Morgunblaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 53
MENNING MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 53 Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna. Geymið auglýsinguna. www.lavilla.dk sími 004532975530 • gsm 004528488905 Kaupmannahöfn - La Villa KVENNALEIKFIMI Í AUSTURBÆJARSKÓLA Kvennaleikfimin, sem áður var kennd í Melaskólanum, verður kennd í íþróttasal Austurbæjarskóla, gengið inn frá Bergþórugötu. Leikfimin byggist upp á mjúkum hreyfingum, styrktaræfingum, teygjum og slökun. Tímarnir verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:10 og 18:05. Takmarkaður fjöldi. Skráning og kynning verður á staðnum þriðjudaginn 7. september kl. 18:00-19:00. Leikfimin hefst svo þann 9. september. Þóra Sif Sigurðardóttir, íþróttafræðingur, netfang thorasif@heimsnet.is, sími 691 7269 Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á einn vinsælasta áfanga- stað við ströndina við Barcelona, Lloret de Mar. Gott hótel með góðri aðstöðu, fallegum garði, sundlaug, veitingastöðum. Örstutt í golf og 10 mínútna gangur á ströndina. Öll herbergi með baði, sjónvarpi og síma. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 39.990 Flug, gisting, skattar, fullt fæði allan tímann. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 2.400. Aukaferð – uppselt 9. sept. Lloret de Mar 16. september frá kr. 39.990 með fullu fæði í viku Jens Ingólfsson, rekstrarhagfræðingur, Róbert Trausti Árnason, rekstrarfræðingur. Salómon Jónsson, löggiltur fasteignasali. Fyrirtæki til sölu Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur. Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is . Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:  Glæsileg ísbúð, myndbandaleiga og grill á einstaklega góðum stað í austurbænum. Mikil veitingasala og góð framlegð.  Vörubílaverkstæði með mikil föst viðskipti. 4-5 starfsmenn. Vel tækjum búið, í eigin húsnæði á góðum stað.  Big Ben Sportbar. Flottur bar í Seljahverfi með nýjum innréttingum og tækjum, m.a. þrjú breiðtjöld. Velta 2-3 m. kr. á mánuði.  Sérverslun - heildverslun með 300 m. kr. ársveltu.  Heildverslun með þekkt merki í matvöru. Ársvelta 70 m. kr.  Íþróttavöruverslun með þekkt merki og góð viðskiptasambönd. Sami eigandi í 20 ár. Hagstætt verð.  Lítið innflutnings- og þjónustufyrirtæki með öryggisvörur. Tilvalið til sameiningar.  Rótgróinn skyndibitastaður - söluturn í atvinnuhverfi. Arðbær rekstur fyr- ir duglegt fólk. Verð 12 m. kr.  Gömul og þekkt sérverslun með 150 m. kr. ársveltu. Eigin innflutn- ingur.  Lítill söluturn í Háaleitishverfi. Gott tækifæri fyrir duglegt fólk sem vill komast í eigin rekstur.  Kaffi Amokka, Borgartúni. Stórglæsilegt kaffihús á besta stað í helsta atvinnuhverfi borgarinnar.  Smáskór. Rótgróin sérverslun með fallega barnaskó. Eiginn innflutning- ur að stórum hluta. Hentugt fyrirtæki fyrir tvær smekklegar konur eða sem viðbót við annan rekstur.  Deild úr heildverslun með 8 m. kr. framlegð á ári. Örugg viðskipti og lítill lager.  Stór og þekkt bílasala á besta stað. Eigið húsnæði.  Ein þekktasta barnafataverslun landsins. Ársvelta 85 m. kr.  Falleg lítil blómabúð í miðbænum.  Matvöruverslun, bensínsala og veitingarekstur í Búðardal. Einstakt tæki- færi fyrir duglegt fólk. Leiga möguleg fyrir réttan aðila.  Þekkt barnavöruverslun. Góð umboð.  Bílasprautun og réttingaverkstæði. Vel tækjum búið. 3-4 starfsmenn.  Glæsileg efnalaug í góðu hverfi. Eigið húsnæði.  Sérverslun í Kópavogi með raftæki o.fl. Auðveld kaup.  Stór trésmiðja með sérhæfða framleiðslu. Mjög tæknivædd. Mikil verk- efni og góð afkoma.  Rótgróið fyrirtæki í álsmíði og viðgerðum. Traust föst viðskipti. Tilvalið sem viðbót við vélsmiðju eða skyldan rekstur.  Söluturninn Hagamel. Auðveld kaup.  Vélaverkstæði á Akranesi með fjölbreytta þjónustu.  Lítil líkamsræktarstöð. Búin fullkomnustu tækjum. Auðveld kaup Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu fyrirtækjadeildar: www.husid.is . Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen), sími 533 4300, GSM 820 8658. „ÞAÐ verður listahátíð hjá okkur í allan vetur,“ segir Vigdís Esradóttir forstöðukona Salarins í Kópavogi um vetrardagskrána þar á bæ, sem senn fer í hönd. Kópavogsbær stendur fyrir tveim- ur tónleikaröðum í Salnum, Tíbrá, og tónleikum kennara Tónlistarskóla Kópavogs. Hefð hefur skapast fyrir því að Tíbrárröðin hefjist 7. sept- ember ár hvert, en ljúki 11. maí. Vig- dís segir að mikið verði um dýrðir í vetur, jafnvel þótt tónleikum fækki frá því er var í fyrra, en dýrðirnar helgast af því að í vor fagnar bærinn 50 ára afmæli sínu, og liður í fögn- uðinum verða þrennir hátíð- artónleikar í Salnum. Vigdís skiptir tónleikum í nokkra flokka: tíu söngtónleika, þrenna sellótónleika, ferna fiðlutónleika, þrenna píanótónleika og svo tónleika með öðrum hljóðfærum. Dagskráin hefst á þriðjudags- kvöldið þegar Liene Circene frá Lettlandi opnar tónleikaröðina með einleikstónleikum á píanó. Liene Circene lék síðast í Salnum í fyrra- haust og var lof gagnrýnenda með eindæmum hástemmt. „Við vildum fá hana til að opna tónleikaröðina því í fyrra var fólk svo hrifið. Í kjölfarið var henni boðið að spila með Sinfón- íuhljómsveit Íslands og það gerir hún í mars. Við erum því stolt af því að fá hana í hóp erlendra gesta Salarins í vetur. Að utan kemur líka Pi-Kap- strengjakvartettinn tékkneski og leikur tónlist frá heimalandi sínu og í mars fáum við gömbukvartettinn Phantasm, en þá tónleika höldum við í samstarfi við Listaháskólann. Ann Schein, sem er orðin vel þekkt hér eftir tónleika og námskeið á liðnum árum, kemur hingað í maí, en nú verður maðurinn hennar með í för, Earl Carlyss, sem lék lengi með Juilliard-strengjakvartettinum heimsfræga. Þau verða bæði með tónleika og masterklassa. Það sem kórónar allt saman er svo þjóð- argersemi Kanadamanna, söng- konan Mary Lou Fallis, sem er frá- bært sambland af Diddú, Erni Árnasyni og Victor Borge. Hún samdi kabarett sem hún kallar Primadonna, en hann er grín – eða karikatúr söngkonunnar. Þetta flyt- ur hún hér ásamt píanóleikaranum Peter Tiefenbach. Tónleikar hennar, tónleikar Ann Schein og Earls Carlyss og tónleikar Kristins Sig- mundssonar og Jónasar Ingimund- arsonar í maí eru allir liður í afmæl- ishátíð bæjarins.“ Þrír ungir menn þreyta hver um sig frumraun sína á opinberum vett- vangi í Salnum í vetur. „Þetta eru ungir menn með dásamleg forn nöfn: Ari Vilhjálmsson fiðluleikari, sem leikur í nóvember með Önnu Guð- nýju Guðmundsdóttur; Víkingur Heiðar Ólafsson sem verður með ein- leikstónleika í janúar og Ögmundur Jóhannesson gítarleikari, sem verður líka með einleikstónleika í janúar.“ Djassaður Marteinn Lúther Meir en 100 tónlistarmenn koma fram á Tíbrártónleikum í vetur að sögn Vigdísar. „Þetta eru margir af bestu tónlistarmönnum þjóðarinnar. Meðal söngvaranna verða Auður Gunnarsdóttir sem syngur spænska tónlist ásamt Helgu Bryndísi Magn- úsdóttur píanóleikara; Diddú og Bergþór Pálsson á fullveldisdaginn, 1. desember, en þá er hefð fyrir tón- leikum með íslenskri söngtónlist. Þau syngja lög eftir Atla Heimi Sveins- son. Guðrún Ingimarsdóttir sópr- ansöngkona sem starfar í Þýskalandi syngur á nýárstónleikum Salarins ásamt Salonhljómsveit Sigurðar Ingva Snorrasonar. Alina Dubik og Þóra Einarsdóttir verða hvor um sig með sína einsöngstónleika, og Eivør Pálsdóttir syngur eigin lög í útsetn- ingum Hilmars Arnar Hilmarssonar ásamt Kasa-hópnum. Það verða sér- stakir tónleikar með sönglögum Tryggva M. Baldvinssonar þar sem margir góðir söngvarar syngja og þau Hallveig Rúnarsdóttir og Eyjólf- ur Eyjólfsson verða með tónleika ásamt Árna Heimi Ingólfssyni píanó- leikara þar sem þau flytja gömul og ný íslensk sönglög.“ Tvennir djasstónleikar verða í Salnum í vetur. Tómas R. Einarsson og og Havanabandið hans leika í byrjun nóvember og Djasskvartett Björns Thoroddsen leikur viku síðar splunkunýjar útsetningar á sálma- lögum eftir Marteinn Lúther. Fiðluleikararnir Auður Hafsteins- dóttir og Sigrún Eðvaldsdóttir verða hvor um sig með einleikstónleika ásamt píanóleikurum sínum, Stein- unni Birnu Ragnarsdóttur og James Lisney. „Auður leikur litrík verk frá 20. öld, en Sigrún ætlar eingöngu að spila verk sem hafa verið samin fyrir fiðlusnillinga.“ Gunnar Kvaran leikur allar svítur Bachs á tvennum tónleikum, og Bryndís Halla Gylfadóttir og Edda Erlendsdóttir bjóða upp á mið- evrópska tónlist frá upphafi síðustu aldar, fyrir selló og píanó. Ótalmargt fleira verður í boði í Salnum í vetur, og er hægt að skoða tónleikadagskrána nánar á vef Sal- arins: www.salurinn.is. Kammerhópur Salarins leikur að- eins á tvennum tónleikum í vetur, jólatónleikum og með Eivøru Páls- dóttur, í stað fimm til sex á liðnum árum. „Við þurftum að fækka tón- leikum í vetur,“ segir Vigdís. „Við vorum með 44 tónleika alls í Tí- brárröðinni í fyrra, en í vetur verða þeir 26. Það var ákveðið að fækka tónleikum Kammerhópsins vegna þess að margir bönkuðu á dyrnar og umsóknir um tónleika voru svo margar, að við vildum hleypa fleirum að og dreifa tónleikunum á fleira tón- listarfólk.“ Eftir sem áður verður fjöldi tón- leika utan Tíbrárraðarinnar. Tónleikaröð kennara Tónlistar- skóla Kópavogs er fjölbreytt. Í októ- ber getur að heyra tónlist fyrir blás- arakvintett og píanó, í nóvember verður plokkað á hörpur og gítara og blásið í flautur; í mars verður flutt tónlist eftir Hilmar Þórðarson; í byrj- un apríl verða kammertónleikar með blandaðri dagskrá, og í apríllok verða tónleikar með franskri 20. aldar tón- list fyrir tvö píanó. Spilar Bach og Ginastera Á fyrstu tónleikunum, á þriðju- dagskvöld, leikur Liene Circene verk verk eftir Bach, Beethoven, Ginast- era og Rachmaninov. Circene hóf nám sex ára gömul og komu ríkir tónlistarhæfileikar hennar strax í ljós. Eftir nám í Siguldas-tónlistar- skólanum í Lettlandi stundaði hún framhaldsnám frá 1988–1996 í Emils Därzins-tónlistarskólanum hjá Anitu Päze. Hún hefur haldið fjölda tón- leika víða um heim og tekið þátt í fjöl- mörgum alþjóðlegum listahátíðum, meðal annars í Þýskalandi, Sviss, Frakklandi, Bretlandi, Bandaríkj- unum, Póllandi, Úkraínu, Rússlandi, Lettlandi og Litháen. Hún hefur einnig leikið einleik með fjölmörgum hljómsveitum. Tónleikar í Salnum hefjast að vanda kl. 20. Tónlist | Meira en 100 tónlistarmenn í Tíbrárröð Salarins Liene Circena Mary Lou Fallis Tómas R. Einarsson Listahátíð í allan vetur FASTEIGNIR mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.