Morgunblaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 29
1969) var skógarvörður á Vöglum í
Fnjóskadal í júní 1946. Hann sagði
mér eftirfarandi sögu um framboðs-
fundinn í þinghúsinu að Skógum í
Fnjóskadal: Leifur Auðunarson frá
Dalseli var ekki eingöngu skrifari,
heldur bráðsnjall harmonikuleikari.
Þegar hann hugðist flytja fram-
boðsræðu sína, þá var strax gripið
fram í fyrir honum og rödd úr saln-
um mælti: „Hættu þessu íhaldsbulli,
komdu heldur með nikkuna.“ Gekk
þá Leifur úr pontu og settist við
orgel, sem í þinghúsinu var, og
sagði: „Ef þið viljið syngja, þá er ég
til.“ Stóðu þá allir viðstaddir upp og
sungu nokkur ættjarðarlög. Að því
loknu stóð upp gamall framsókn-
armaður og mælti: „Við skulum
leyfa honum að tala, hann hefur
hjartað á réttum stað.“
V.
Við Siggi Lúther hittumst aðeins
einu sinni. Var það á Landsmóti
hestamanna á Skógarhólum í Þing-
vallasveit sumarið 1958. Árinu áður,
1957, hafði ég keypt minn fyrsta
hest af Kristjáni Vigfússyni frá
Úlfsbæ í Bárðardal (1904–1979).
Hann hét Villingur og var fæddur
Skúla Thorarensen (1892–1963) út-
gerðarmanni, sem þá rak bú að
Geldingarlæk á Rangárvöllum.
Hlaut hann nafnið af því, að 5 menn
náðu honum ekki inni í hesthúsi,
þegar átti að temja hann. Ég ríð á
Villing innum mannfjöldann í Skóg-
arhólum, þegar maður einn grípur
um tauminn og segir: „Er þetta
ekki Villingur Stjána bróður?“ Ég
svara: „Jú, ef þú ert Siggi Lúther.“
Siggi Lúther var þá þegar orðinn
þjóðsagnapersóna og birti ég þó
nokkrar sögur um hann, er ég rak
Sagnabanka minn í Lesbók Mbl. ár-
in 1983–7, og tel ég ekki ástæðu til
að endurtaka þær hér. Í XXVI. ár-
gangi Árbókar Þingeyinga, er út
kom 1983 er aftur á móti afbragðs-
grein um Sigga Lúther eftir Andrés
Kristjánsson (1915–1990), fyrrum
ritstjóra Tímans, er hann nefnir:
„Leiftur grárra daga“ – Ógleyman-
legur maður.
Þannig hefst grein Andrésar:
„Sumir menn eru eins og segulstál-
ið, en þeir eru fáir. Þeir draga allt
að sér, og allt snýst um þá. Það er
eins og eitthvert náttúrulögmál geri
þá að sveifarási alls byggðarlagsins.
Tal manna snýst um þá, gamanyrði
þeirra eru annari fyndni betri, eng-
in skemmtun er nema hálf gleði án
þeirra. Engin hjálp eins góð og
þeirra. Þegar þeir nálgast grípur
menn kitlandi tilhlökkun eins og
von um ævintýri, og þegar þeir
fara, brosir hversdagsleikinn enn
drjúga stund í vitund manna, af því
að þeir hafa skilið eftir eitthvað,
sem glitrar, eitthvað sem vermir og
geymist. Svona var Sigurður Lúth-
er.“
--------
Andrés lýkur grein sinni á eft-
irfarandi hátt: „Og svo var Sigurður
Lúther allur. Og þó eiga minning-
arnar um hann svo undarlega
sterka samfylgd með manni. Hann
er einn þeirra manna, sem verður
ógleymanlegur, meðan maður á
minni sjálfur. Þessar minningar
vitja manns, þegar minnst varir.
Allt í einu getur hversdagslegt at-
vik kallað fram glettið tilsvar,
stríðnishlátur eða gamansögu frá
Sigurði Lúther. Þannig birtist hann
ljóslifandi í minningunni og heldur
áfram að miðla okkur gleðinni, auka
trúna á mennina og bregða leiftri á
gráa daga.“
Árbók Þingeyinga 1983, XXVI. árg.
Byggðir og bú, Aldarminning Búnaðar-
samtaka Þingeyinga, Akureyri 1963.
Byggðir og bú Suður-Þingeyinga 1985,
Tröð, Prenthús og Oddi hf. 1986.
Alþingismannatal 1845–1995, Reykjavík
1996, Skrifstofa Alþingis gaf út.
Spegillinn, 21. árg., jólablað forsíða,
Reykjavík 1946.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 29
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Kraká
25. okt.
Kr. 19.990
Flugsæti með sköttum,
m.v. 2 fyrir 1.
Sorrento
30. sept.
Kr. 79.900
7 nætur, flug, hótel,
skattar. Netverð.
Barcelona
24. okt.
Kr. 29.990
4 nætur, 2 fyrir 1.
Róm
6. okt.
Kr. 69.900
4 nætur, flug, hótel,
skattar. Netverð.
Prag
4. okt.
Kr. 29.990
Flugsæti með sköttum.
Budapest
11. okt.
Kr. 29.990
Flugsæti með sköttum,
3 nætur.