Morgunblaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 47
ALDARMINNING MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 47 Tómas Jónsson, báts- maður á Karlsefni, var fæddur í Neðradal í Mýr- dal 5. september 1904. Hann andaðist á Hrafn- istu í Reykjavík 5. októ- ber 1998. Tómas var eitt af sex börnum hjónanna Þórunnar Gísladóttur og Jóns Árnasonar, er lengst af bjuggu í Norð- ur-Hvammi í Mýrdal. Systkini Tómasar í ald- ursröð voru: Gísli, Árni, Sigríður tvíburasystir hans, Sveinn og Her- mann. Tómas kvæntist hinn 6. október 1933 Karenu Júlíu Júlíusdóttur sem fæddist á Ásgautsstöðum í Stokks- eyrarhreppi 21. júlí 1909. Hún lést fyrir aldur fram 13. október 1955. Foreldrar hennar voru hjónin Júlíus Gíslason og Katrín Þorkelsdóttir, er lengst af bjuggu á Syðsta-Kekki á Stokkseyri. Tómas og Karen eignuð- ust þrjú börn: 1) Þórunn fyrrv. síma- maður, f. 8.6. 1934. Börn hennar eru: Tómas rafmagnstæknifræðingur, f. 28.4. 1959, og Jónína Steinunn, kenn- ari, f. 6.8. 1961. 2) Júlíus, flugstjóri, f. 9.9. 1936, d. 19.2. 1968. Börn hans eru: Runólfur Hilmar athafnamaður, f. 11.8. 1959, Karen Júlía hjúkrunar- fræðingur, f. 8.12. 1960, Ásta Ragn- heiður sálfræðingur, f. 30.6. 1962, og Þórunn Brynja kennari, f. 10.1. 1964. 3) Gísli flugmaður, f. 26.9. 1946, d. 19.2. 1968. Tómas flutti með foreldr- um sínum að Norður-Hvammi í Mýr- dal árið 1911 og ólst þar upp. Hann fór ungur til starfa sem sjómaður og varð það hans ævistarf, lengst af á togurunum Karlsefni og í fjöldamörg ár sem bátsmaður. Afi Tómas, alnafni minn og ein stærsta fyrirmynd mín í lífinu, var einstakur maður, allt í senn, afar mjúkur, tillitssamur, glettinn og ein- lægur en gat einnig verið fastur fyrir ef með þurfti. Lífið fór ekki mjúkum höndum um afa en hann kunni alltaf að meta til fullnustu það sem hann átti, fjölskylduna sína, góða heilsu og góða vini. Afi elskaði sína átthaga í Mýrdaln- um umfram aðra staði landsins enda átti hann þar djúpar rætur. Hann heimsótti Mýrdalinn eins oft og hann hafði möguleika á og varð ég þeirrar ánægju aðnjótandi að vera bílstjóri hans og ferðafélagi í hans síðustu ferð þangað. Foreldrar hans og systkini voru miklar dugnaðar- og mann- kostamanneskjur sem fæddust og ól- ust upp í ægifagurri náttúru undir Kötlurótum. Katla hefur enda ekki bært á sér síðan á uppvaxtarárum systkinanna í Hvammi, árið 1918. Fallegar heiðarlendur með snar- bröttum klettabeltum, þröngum löngum giljum og rennisléttum enda- lausum söndunum mynda ramma um æskuslóðir hans. Þegar við þetta bæt- ist nánast óendanlegt fuglalíf með gargandi sjófuglunum, hvellandi vað- fuglunum og syngjandi mófuglum auk íslensku húsdýranna og villtra spendýra áttar maður sig betur á hvers vegna bernskuslóðir afa míns voru hans paradís sem hann í huga sér geymdi á meðan hann lifði. Ís- lenski hesturinn var alltaf í miklum metum hjá afa enda var hann af mikl- um hrossaræktendum og hestamönn- um kominn í marga ættliði. Þrátt fyr- TÓMAS JÓNSSON ir að hafa alist upp við hafnlausa sandströnd- ina með Dyrhólaey og Reynisdranga sem sterklega brimbarða minnisvarða um alda- gömul eldsumbrot, átti sjórinn og sjósókn hug hans nánast óskiptan frá unga aldri. Alltaf notaði hann þó hvert tækifæri sem gafst til þess að „koma heim“ og aðstoða föður sinn og bræður við bústörf- in. Skólagangan varð ekki löng en afi fór ungur til sjós á vertíð í Vestmannaeyjum. Á þeim tíma var aðbúnaður ekki upp á marga fiska; sjófötin fituborin þykk skinn- föt, lúkarinn þröngur og kuldinn og lyktin drepandi. Árið 1926 urðu kafla- skipti í lífi hans. Hann réð sig til út- gerðar Geirs Thorsteinsson í Reykja- vík á vetrarvertíð og var þar þrjár vertíðir. Var það upphafið að áratuga- löngu, farsælu samstarfi afa og Geirs og síðar sonar hans Ragnars. Þetta samstarf var báðum aðilum ómetan- legt enda allir sannir heiðursmenn. Afi Tómas byrjaði á togaranum Karlsefni árið 1932 og átti hann eftir að vera, með stuttum hléum á þessum fyrstu árum, á þremur togurum sem báru nafn landnámsmannsins. Afi tók þátt í þróun togaraútgerðar Íslend- inga nánast frá upphafi og vann á ný- sköpunartogara, síðutogara og að lokum á nýtískulegum skuttogara. Árin á Karlsefni urðu hvorki fleiri né færri en fimmtíu og sjómannsferillinn í heild varði í tæpa sex áratugi. Á þessum langa tíma var hann til sjós með ótölulegum fjölda bæði yfir- og undirmanna. Margir voru honum mjög eftirminnilegir og reyndust honum vel og hann þeim. Margur ungur sveinninn naut styrkrar leið- sagnar hans á sínum fyrstu vikum á sjó enda var afi óþreytandi að miðla sinni áratugalöngu reynslu í réttum handbrögðum og framkomu við Ægi, konung hafsins. Einnig held ég að betri fyrirmynd en hann hafi verið erfitt finna bæði hvað varðar reglu- semi og annálaðan dugnað og ósér- hlífni. Þrátt fyrir langar útiverur fjarri heimili sínu átti fjölskyldan, hans heittelskaða kona, Karen Júlía og börnin, hug hans dag hvern. Í þá daga var ekki boðið upp á nútíma samskipti með síma eða rafpósti. Þá voru skila- boð lengi á leiðinni og einungis send ef mjög mikið lá við. Ömmu mína og eiginkonu sína sá afi fyrst er hún kom sem ung kaupakona að Hvammi. Þau áttu farsælt og ástríkt hjónaband og eignuðust þrjú mannvænleg börn, þau Þórunni, Júlíus og Gísla. En sorgin barði dyra er síst varði, amma Karen veiktist rétt rúmlega fertug af krabbameini er leiddi hana til dauða í október 1955. Mikill var harmur afa og barnanna en hann lét þau njóta ástríkis síns óskipt og síðan tengda- börnin og barnabörnin. Hann var okkur öllum alltaf besti og umhyggju- samasti verndari, huggari og óbilandi stoð og stytta í lífsins öldugangi. Á móti fékk hann okkur óskipt því að ástríki hans var ausið úr ótæmandi lind góðmennsku og umhyggju. Hann var stoltur af hópnum sínum og þegar hann var í stuttum landlegum áttum við hug hans allan og hann okkar. En ótrúlega þungt högg var höggvið í litlu fjölskylduna þegar synir hans báðir fórust í hörmulegu flugslysi á Reykjavíkurflugvelli, í febrúar 1968. Sterkur og traustur sjómaðurinn, vanur óblíðri vetrarveðráttunni á Norður-Atlantshafinu, bognaði en bugaðist ekki. Nú var lagst enn fastar á árarnar til þess að sinna öllum þeim sem áttu um sárt að binda og gefa ríkulega af manngæskubrunni sínum. Á þessum erfiðu tímum naut hann styrks frá mjög mörgum, dóttur sinni, tengdabörnum, systkinum, systkinum eiginkonu sinnar og fjöl- mörgum öðrum. Bóklestur, aðallega þjóðlegur fróðleikur og ljóð voru meðal aðaláhugamála hans og hann var uppspretta fjölmargra sagna einkum frá heimaslóðum hans á Suð- urlandi. Einnig hafði hann lesið allar Íslendingasögurnar nokkrum sinnum og Njála var þó í mestu uppáhaldi. Afi bjó lengi á heimili foreldra minna og við áttum mjög margar samveru- stundir. Ég keyrði hann austur í Mýr- dal og margsinnis austur í Flóa þar sem tveir bræður hans bjuggu og einnig tvö systkina ömmu. Þrátt fyrir okkar nánu samskipti og samveru var afi lengst af dulur um sjálfan sig og sína líðan. Skopskynið og létt lund fylgdi honum þó alltaf og hann átti auðvelt með að sjá spaugilegar hliðar mannlífsins. Afi missti heilsuna 1982 og fór þá á dvalarheimili fyrir aldraða sjómenn á Hrafnistu, þar sem hann naut bestu umhyggju góðs starfsfólks til síðasta dags. Afi var mjög raunsær og aldrei vék hann orði að því að skaparinn hefði verið honum þungur í skauti en þakkaði Guði góðar gjafir. Ég þakka afa kærleika hans, lífsgleð- ina og væntumþykjuna fyrir öllum hans afkomendum, sem áttu allir sinn sess í hjarta hans þann tíma sem hann lifði. Hann og Sigríður tvíbura- systir hans eiga 100 ára fæðingar- afmæli í dag og þeirra vil ég minnast með þessum orðum. Tómas Jónsson yngri. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍSABET F. KRISTÓFERSDÓTTIR, Dalbraut 20, Reykjavík, sem andaðist á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 28. ágúst, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 7. september kl. 13.30. Guðmundur H. Franklínsson, Guðný Helga Örvar, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. Ástarþakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur hlýhug og samúð við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KARLS THEÓDÓRS SÆMUNDSSONAR, Aflagranda 40. Guð blessi ykkur öll. Jón Æ. Karlsson, Anna M. Snorradóttir, Auður Edda Karlsdóttir, Örn Jónsson, Steinunn H. Theodórsdóttir, Helgi Jónsson, Helga M. Þorbjarnardóttir, Andri Þór Sigurgeirsson, Marel Snær og Jón Steinar. Þökkum af alhug öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs sambýlismanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa, sonar og bróður, PÉTURS SVAVARSSONAR tannlæknis, Meistaravöllum 15. Auður Ragnarsdóttir, Pétur Jóhann Pétursson, Ingibjörg Hanna Pétursdóttir, Bas Mijnen, Hrafnhildur Pétursdóttir, Thijs Jacobs, Ólöf Bolladóttir, Guðmundur Pálsson, Nina Mijnen, Hanna Pétursdóttir, Sigurður, Ágúst og Sigrún Svavarsbörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför elskulegr- ar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, ÖNNU PÁLÍNU JÓNSDÓTTUR frá Sauðhúsum, Ögurási 3, Garðabæ. Egill Jón Benediktsson, Birgir Símonarson, María Kristín Lárusdóttir, Johnny Símonarson, Hugrún Ásta Elíasdóttir, Helen Gunnarsdóttir, Benedikt Egilsson, Sigrún Eyjólfsdóttir, Jón Egilsson, Sigurborg Valdimarsdóttir, Herdís Egilsdóttir, Brynjólfur Garðarsson, ömmu- og langömmubörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GÍSLA SIGURTRYGGVASONAR bifreiðarstjóra, hjúkrunarheimilinu Skjóli, áður Steinagerði 2. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar- heimilisins Skjóls. Tryggvi Gíslason, Kristín S. Gísladóttir, Hannes S. Kristinsson, Valgeir K. Gíslason, Pálína Sveinsdóttir, Ævar Gíslason, Hrönn Petersen, Eygló Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 www.englasteinar.is Englasteinar Legsteinar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Halldór Ólafsson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.