Morgunblaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
Yfir 40 þúsund gestir
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 14 ára.
Mjáumst
í bíó!
Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl tal. / Sýnd kl. 2. 4, 6, 8 og 10. Enskt tal.
Sjáið frábæra gamanmynd um frægasta,
latasta og feitasta kött í heimi!
Sýnd bæði með íslensku og ensku tali.
Yfir 23.000 gestir!
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Myrkraöflin eru
með okkur!
Mögnuð
ævintýra-
spennumynd!
Ein besta ástarsaga allra tíma.
EFTIR METSÖLUBÓK
NICHOLAS SPARKS
Mjáumst
í bíó!
Uppáhalds köttur
allrar fjölskyldunnar
er kominn í bíó!
Sjáið frábæra
gamanmynd
um frægasta,
latasta og
feitasta kött
í heimi!
Sýnd kl. 4. ísl tal.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl.4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.45.
Ó.H.T Rás2
„Myndir á borð við þessar segja
meira en þúsund orð.“
HJ. MBL
S.K., Skonrokk
S.K., Skonrokk
HJ MBL
Ein besta ástarsaga
allra tíma.
Sýnd kl. 10.15.
Sýnd kl. 2.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Kem í bíó 10 sept
"Fjörugt bíó"
Þ.Þ. FBL
Nicole Kidmani l i
Sýnd kl. 2. B.i. 12 ára.
Ný íslensk mynd gerð
eftirsamnefndri
metsölubók, í leikstjórn
Silju Hauksdóttur,
með Álfrúnu Helgu
Örnólfsdóttur í
titilhlutverkinu.
Stórskemmtileg
nútímasaga
úr Reykjavík
sem tekur
á stöðu ungs fólks í
íslenskum
samtíma
með húmorinn
að vopni.
Ný íslensk mynd
gerð eftir
samnefndri
metsölubók, í
leikstjórn Silju
Hauksdóttur,
með Álfrúnu
Helgu
Örnólfsdóttur í
titilhlutverkinu.
Stórskemmtileg
nútímasaga úr
Reykjavík sem
tekur á stöðu
ungs fólks í
íslenskum
samtíma með
húmorinn að
vopni.
óvenjulega venjuleg stelpa óvenjulega venjuleg stelpa
Þeir Harold og Kumar erusambýlingar og vinir. Eft-ir að hafa stundað heldurvafasama iðju kvöld eitt
finna þeir félagar hjá sér óseðjandi
þörf fyrir að gæða sér á hamborg-
ara frá skyndibitakeðjunni White
Castle. Þeir leggja upp í ferð til að
uppfylla þrána en lenda á leiðinni í
ýmiskonar ævintýrum og hrakför-
um. Þetta er söguþráður mynd-
arinnar Harold og Kumar fara í
Hvíta kastalann sem frumsýnd var
hér á landi um helgina.
John Cho lýsir persónu sinni,
Harold Lee, sem dæmigerðum ung-
um Bandaríkjamanni.
„Harold er afar upptekinn af
vinnunni sinni og er skotinn í stelpu
sem hann þorir ekki að tala við,“
segir Cho.
„Hann er hinn dæmigerði með-
aljón og því ættu flestir að geta
fundið smá Harold innra með sér.
Allir hafa einhverntíma upplifað
óöryggi gagnvart einhverjum sem
maður er skotinn í. Það eru margir
hlutir í myndinni sem fólk getur
tengt sig við.“
Cho sagði að sú staðreynd að
hlutverk Harolds væri aðalhlutverk
myndarinnar hefði vegið þyngst
þegar hann tók að sér verkefnið.
„Ég hef aldrei leikið hlutverk af
þessarri stærðargráðu, það eru ein-
hverra hluta vegna ekki skrifuð
svona stór hlutverk fyrir fólk af as-
ískum uppruna,“ segir Cho og segir
að í myndinni sé reynt að brjóta á
bak aftur staðlaðar ímyndir kyn-
þátta.
„Ég held að myndin taki á þeim
kynþáttafordómum sem við erum að
bögglast við í Bandaríkjunum. Við
gefum kynþáttafordómum langt nef
þar sem þetta er svo fáránlegt fyr-
irbæri.“
Endurgerðu lok
myndarinnar
Leikstjóri myndarinnar er Danny
nokkur Leiner en hann á að baki
myndir á borð við Dude Where is
my Car?, mynd sem fjallar einnig
um tvo félaga með ákveðið takmark.
Cho segir þó myndirnar ekki líkar
að neinu öðru leyti.
„Þrátt fyrir að það hljómi kannski
ósennilega reyndum við að gera
mun raunverulegri mynd í þetta
sinn. Við einbeittum okkur að því að
gera aðalpersónurnar eins raun-
verulegar og hægt er svo að auka-
leikararnir gætu verið eins kjána-
legir og hægt er,“ segir Cho.
„Myndin er líka um dýpri hluti en
þetta ferðalag þeirra. Þetta er saga
um vináttu, og ást og það voru þeir
þættir í myndinni sem ég einbeitti
mér mest að þegar ég var að gera
hana og til að gera persónu mína
sem raunverulegasta.“
Cho segir að þrátt fyrir að leik-
ararnir hafi verið trúir handritinu
við gerð myndarinnar hafi þurft að
endurgera endi myndarinnar til að
verða við kröfum áhorfenda. Les-
endur eru varaðir við að hér á eftir
verður ljóstrað upp um endi mynd-
arinnar svo þeir sem ekki hafa séð
myndina ættu að hafa varann á.
„Í upprunalegu útgáfunni endaði
Harold ekki með stúlkunni sinni í
lokin en þegar við fórum að sýna
myndina áhorfendum fannst þeim
það alveg ófært. Við breyttum end-
inum, tókum hann aftur og gerðum
hann á hamingjusama mátann,“
segir Cho.
Í viðtali á dögunum sagði einn
handritshöfunda myndarinnar að sú
hugmynd að láta tvo stráka hendast
um allt í leit að hamborgara væri
eitthvað sem fullt af ungi fólki gæti
samsamað sig við. Er Cho sammála
því?
„Já, allir hafa verið svangir ein-
hverntímann,“ segir hann og hlær.
„En í alvöru þá held ég að þetta
sé sérstakt fyrirbæri hér í Banda-
ríkjunum því við elskum hamborg-
ara. Það eru margir sem tengja
þetta við æsku sína, að keyra um
með vinum sínum leitandi að ein-
hverju góðu í gogginn.“
Cho segist sjálfur ósjaldan hafa
verið í þessum aðastæðum og þá
sérstaklega á háskólaárum sínum
þegar hann og vinir hans, sem einn-
ig eru ættaðir frá Kóreu, keyrðu um
allt til að finna kóreska veit-
ingastaði.
Hvíti kastalinn er raunveruleg
skyndibitakeðja sem staðsett er
víðsvegar um Bandaríkin. Þar sem
þessi keðja hefur enn ekki ratað
upp á Íslands strendur lék blaða-
Kvikmyndir | John Cho leikur aðalhlutverk í Harold og Kumar leita Hvíta kastalans
„Við elskum hamborgara“
Myndin um grallaraspóana Harold og Kumar hefur fengið fína dóma erlendra gagnrýnenda – í alvöru talað!
Hvað leggja tveir félagar á sig til að komast
yfir hamborgara frá skyndibitakeðjunni
Hvíta kastalanum? Svarið fæst í myndinni
Harold and Kumar go White Castle sem
frumsýnd var um helgina. Birta Björns-
dóttir sló á þráðinn til Johns Cho, annars
aðalleikara myndarinnar.