Morgunblaðið - 05.09.2004, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 17
samtali við DN hvort Umhverfis-
flokkurinn fái ráðherrastóla en hann
hefur þó lýst yfir áhuga á því að þróa
samstarfið við hann enn frekar og
gera það nánara.
DN gerði könnun á hug kjósenda
stjórnarflokkanna til kosningabanda-
lags borgaraflokkanna. Í ljós kom að
fimmta hverjum kjósanda stjórnar-
flokkanna þótti vænlegri tilhugsun að
kjósa borgaralegan flokk ef hann
væri í kosningabandalagi með hinum
borgaralegu flokkunum en ella. Ef
það hlutfall mundi kjósa borgaraleg-
an flokk í stað Jafnaðarmannaflokks-
ins, Umhverfisflokksins eða Vinstri-
flokksins, blasir borgaralegur sigur
við. Hins vegar er einn af hverjum tíu
úr hópi kjósenda borgaralegu flokk-
anna sem er hræddur um að stefnu-
mál flokkanna þynnist út og miklu
þurfi að fórna fyrir sameiginlega
stefnuskrá.
Skuggaráðuneyti að tillögu
Hægriflokksins
Formennirnir fjórir virðast mestu
mátar þegar þeir sitja fyrir svörum á
heimili Maud Olofsson undir útsaum-
uðum innrömmuðum orðunum „Det
bästa vi har är varandra“ eða „Það
besta sem við eigum er hvert annað“.
Það lítur út fyrir að formaður Mið-
flokksins sem hefur 6,5% fylgi skv.
skoðanakönnuninni, Maud Olofsson,
sé potturinn og pannan í samstarfinu
þegar hún býður hinum heim á býlið
sitt í sveitasælunni, í heita pottinn og
eldhúsið sitt þar sem hún býður upp á
heimabakað brauð.
Upphafið að fundinum má þó rekja
til tillögu formanns Hægriflokksins,
Fredrik Reinfeldt, að samstarfi um
stjórnarskipti. „Í fyrsta skipti munu
kjósendur geta valið á milli samstiga
borgaralegra afla og sundraðra
vinstriafla,“ segir hann. Reinfeldt er
talinn hafa fært Hægriflokkinn nokk-
uð nær miðjunni og megi m.a. þakka
því aukið fylgi í skoðanakönnunum
nú. Nafn Reinfeldts hefur verið nefnt
þegar spáð er í hver verði forsætis-
ráðherra ef borgaralegu öflin ná
markmiði sínu. Formennirnir fjórir
vilja ekki ákveða það, a.m.k. ekki til-
kynna það, fyrirfram og segjast koma
að samstarfinu á jafnréttisgrundvelli
þótt flokkarnir séu misstórir. Í tillög-
um sínum gerir Reinfeldt ráð fyrir
sex vinnuhópum sem nú verða stofn-
aðir um helstu málaflokka og litið er á
sem nokkurs konar skuggaráðuneyti
næstu tvö árin.
Borgaralegu flokkarnir eru ekki
sammála um allt, t.d. ekki um skatta-
mál, fjölskyldumál og félagsþjónustu.
Hægriflokkurinn vill draga úr fé-
lagslegri aðstoð en Þjóðarflokkurinn
auka hana. Miðflokkurinn er á móti
kjarnorku en Þjóðarflokkurinn vill
fjölga kjarnorkuverum. Formennirn-
ir viðurkenna að fórna þurfi einhverj-
um stefnumálum fyrir samstarfið en
að þeirra mati mun það borga sig.
Sameiginleg kosningastefnuskrá
í ágúst 2006
Í ágúst 2006 ætla flokkarnir fjórir
að kynna sameiginlega kosninga-
stefnuskrá. Veturinn 2005–2006
munu skýrslur frá sex vinnuhópum
liggja fyrir en þeir verða stofnaðir á
næstunni. Vinnuhóparnir eru mynd-
aðir um sex málaflokka: Stefnu í efna-
hagsmálum til vaxtar, Svíþjóð á
þriðja árþúsundi, menntun, dómsmál
og öryggi, vaxtarsvæðið Svíþjóð og
velferð fyrir öryggi og valfrelsi.
Hægriflokkurinn ber ábyrgð á fyrstu
tveimur, Þjóðarflokkurinn sem hefur
12,8% fylgi skv. skoðanakönnunum
ber ábyrgð á næstu tveimur, Mið-
flokkurinn á næstsíðasta og og Kristi-
legir demókratar sem hafa álíka fylgi
og Miðflokkurinn eða 6,4% á þeim síð-
astnefnda. Segja má að Hægriflokk-
urinn beri mesta ábyrgð sem stærst-
ur flokkanna, því fyrsti
vinnuhópurinn sem fjallar um stefnu í
efnahagsmálum til vaxtar ber ábyrgð
á að tillögur hinna hópanna feli í sér
tillögur um fjármögnun að fullu.
Plaggið sem formennirnir sendu
frá sér eftir fundinn hefst á þessum
orðum: „Svíþjóð á betri ríkisstjórn
skilið. Svíþjóð þarfnast nýrra leið-
toga. Flokkar okkar eru ákveðnir í að
mynda þannig valkost við sitjandi rík-
isstjórn að kjósendur kjósi stjórnar-
skipti árið 2006. Tólf ár með sósíal-
demókrötum er nóg.“
Meðal áhersluatriða og lykilorða í
sameiginlegu plaggi flokkanna eru
velferð, frelsi, lækkaðir skattar, fyr-
irtæki, menntun og fjölskyldan. Einn-
ig er rætt um jafnrétti, alþjóðahag-
kerfið og umhverfismál. Lögð er
áhersla á að hvetja frumkvöðla og fyr-
irtæki. Það á að borga sig að vinna,
valfrelsi í velferðarmálum aukið, kon-
ur og karlar eiga að hafa sömu mögu-
leika og Svíþjóð á að vera virkur þátt-
takandi í Evrópusambandinu og taka
alþjóðlega ábyrgð.
Formennirnir nefna fleira og í
sumum tilvikum nefna þeir aðra kosti
í stöðunni. En fyrst og fremst er
plaggið gagnrýni á sitjandi stjórn-
völd, að mörg vandamálanna stafi af
því að valdþreyta hrjái núverandi
stjórnvöld sem hafi enga sýn fyrir
hönd Svíþjóðar, enga pólitíska hug-
sjón heldur vilji bara völd. „Svíþjóð
þarfnast breyttrar stefnu þar sem við
snúum efnahagsþróuninni við og
sköpum rými bæði fyrir aukna velferð
og fyrir meira efnahagslegt frelsi með
lækkuðum sköttum á venjulega laun-
þega, segja formennirnir fjórir í
plagginu.
Gerð er grein fyrir næstu skrefum
sem flokkarnir fjórir taka í átt til
meiri samvinnu. Sameiginlegir þing-
flokksfundir munu verða haldnir í ein-
hverjum tilvikum á tímabilinu og
kosningabaráttan sem hefst á næsta
ári verður sameiginleg að einhverju
leyti. Haldin verða námskeið og fund-
ir til að skilgreina stefnu borgaralegu
flokkanna í ýmsum málaflokkum, t.d.
jafnréttismálum.
Borgaralegu flokkarnir ætla að
reyna að skilgreina og kortleggja
valdastöðu sósíaldemókrata í sænsku
samfélagi. M.a. vegna þess hve Jafn-
aðarmannaflokkurinn hafi verið lengi
við völd og sambands hans við verka-
lýðshreyfinguna hafi vald hans teygt
anga sína langt út fyrir stjórnmálin.
Þetta sé óhollt fyrir stjórnmálin og
þurfi að skilgreina, afhjúpa og stöðva.
Blokkirnar tvær í sænskum stjórn-
málum munu áfram takast á en af-
staðan til kosningabandalagsins er
mismunandi. Sumir telja borgaralegu
öflin hafa farið of snemma af stað inn í
kosningabaráttuna og hætta skapist á
að rökræðan verði þreytt þegar loks
kemur að kosningum. Hins vegar hef-
ur verið bent á að formennirnir fjórir
geri rétt í því að mynda bandalag svo
löngu fyrir kosningar og undirbúa
samstarfið vel, frekar en að hefja
samstarf eftir kosningar. Án banda-
lags taki þeir frekar atkvæði hver frá
öðrum og samstarfið nú auki því lík-
urnar á samstarfi í ríkisstjórn.
steingerdur@telia.se
’Síðasta könnun á fylgiflokkanna leiddi í ljós
að borgaralegum öflum
vex nú fiskur um hrygg
í Svíþjóð.‘
Göran Persson á í vök að verjast.