Morgunblaðið - 11.09.2004, Blaðsíða 14
ERLENT
14 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
N
A
T
2
53
88
09
/2
00
4
Nenni níski
Siggi sæti
Halla hrekkjusvín
Goggim
ega
MJÖG er umdeilt hver árangurinn
hafi orðið af baráttunni gegn alþjóð-
legum hryðjuverkum, og þá ekki síst
samtökum Sádi-Arabans Osama bin
Ladens, al-Qaeda. Sérfræðingar
segja að samtökin hafi í kjölfar
stríðsins gegn samtökunum á síð-
ustu árum breyst í laustengd samtök
án eiginlegar yfirstjórnar, hver hóp-
ur starfi í reynd sjálfstætt. Sé því
orðið enn torveldara en áður að gera
út af við þá og al-Qaeda.
Talið er að allt að 4.000 manns um
allan heim tengist nú beint eða
óbeint samskiptaneti al-Qaeda.
Rétt þrjú ár eru nú liðin frá árás-
unum mannskæðu á Bandaríkin og
enn hefur ekki tekist að sakfella
neinn fyrir aðild að hryðjuverkunum
þótt vitað sé að fjölmargir komu að
skipulagningu þeirra auk flugræn-
ingjanna sjálfra. Tveir menn voru á
sínum tíma ákærðir í Þýskalandi en
Bandaríkjamenn treystu sér ekki til
að gera opinberar upplýsingar úr
vitnaleiðslum þar í landi sem gætu
hafa nægt til að sakfella þá. Vandinn
er að al-Qaeda gæti nýtt sér slíkar
upplýsingar til að efla varnir sínar.
Og enn gengur bin Laden laus,
sennilega einhvers staðar í fjalllendi
á landamærum Afganistans og Pak-
istans. Oft er óljóst hvað hæft er í
fullyrðingum þess efnis að al-Qeda
hafi staðið á bak við tilræði vegna
þess að hópar sem í reynd sækja að-
eins óljósar hugmyndir til bin Lad-
ens og manna hans kenna sig gjarn-
an við al-Qaeda, segir í frétt
AFP-fréttastofunnar. Sumir hópar
eru þó í nánum tengslum við bin
Laden og helstu samverkamenn
hans. Loks má ekki gleyma því að
stjórnvöld í sum-
um löndum reyna
oft að setja
merkimiða al-
Qaeda á tilræði
sem and-
spyrnuhópar af
ýmsu tagi í lönd-
um þeirra standa
fyrir.
Þótt bin Laden
hírist við erfiðar aðstæður í fjöll-
unum og geti til dæmis ekki notfært
sér að ráði fjarskiptatækni fer því
fjarri að hann hljóti að vera alger-
lega sambandslaus.
„Þeir notast við vandlega lokað
kerfi þar sem fyrirmælum frá æðstu
mönnum er komið til skipuleggjenda
með aðstoð tölvudiska eða munn-
legum skilaboðum valinna sendi-
manna og skipuleggjendurnir koma
boðum sínum til þeirra sem annast
sjálft verkið áleiðis án þess að hitta
þá augliti til auglitis,“ segir pakist-
anskur leyniþjónustumaður sem
ekki vill láta nafns síns getið.
Án Netsins, ekkert al-Qaeda
Netið er sagt gegna lykilhlutverki
í starfi hryðjuverkamanna. „Án
Netsins myndi al-Qaeda ekki vera
til. Án arabískra gervihnattasjón-
varpsstöðva myndi al-Qaeda ekki
heldur vera til,“ segir Gilles Kepel,
franskur sérfræðingur í málefnum
arabalanda. „Þeir sjá yfirlýsingu frá
[Ayman] al-Zawahiri [næstráðanda
bin Ladens] á Netinu, sjá bin Laden
í sjónvarpinu – það eru þess konar
hlutir sem fá þá til að hefjast handa,
þeir vilja feta í fótspor þeirra.“
Einnig er talið að á netsíðum ísl-
amistasamtaka séu oft dulbúin skila-
boð til stuðningsmanna.
Og bjartsýni sérfræðinga er tak-
mörkuð, ekki síst vegna þeirrar að-
ferðar al-Qaeda að takmarka sem
mest persónuleg samskipti milli liðs-
manna hinna ýmsu hópa og æðstu
stjórnenda. Óbreyttir liðsmenn vita í
reynd fátt um forystumennina og því
lítið gagn að því að yfirheyra þá.
„Möguleikinn á því að fljótlega
takist að binda enda á hryðjuverk
sem tengjast al-Qaeda er ekki fyrir
hendi. Þeir þurfa sáralítið fé og
mannafla en nýta sér að allur heim-
urinn þekkir nafnið og þeim hefur
tekist að koma af stað því sem virðist
vera hnattrænt hættuástand,“ segir
í skýrslu sem gerð var fyrir Samein-
uðu þjóðirnar.
Louis Caprioli, franskur sérfræð-
ingur í hryðjuverkavörnum, segir að
eftir fall talibana hafi áhrifasvæði al-
Qaeda færst til Norður-Íraks, Mið-
Austurlanda og Kákasus. Vestrænir
sérfræðingar telja að pakistanskur
leyniþjónustumaður líki al-Qaeda
við ófreskju „sem getur myndað
nýja arma í stað þeirra sem hún
missir“. Bin Laden hefur vissulega
misst marga menn en sá áróður hans
að gyðingar og Bandaríkjamenn vilji
útrýma múslímum finnur víða
hljómgrunn. Þess vegna bætast
stöðugt liðsmenn í raðirnar og ekki
þarf marga til að standa fyrir blóð-
ugu tilræði.
Forðast bein samskipti
Osama bin Laden
’[...] getur myndað nýjaarma í stað þeirra
sem hún missir.‘
Margir af ráðamönnum al-Qaeda-samtakanna hafa
náðst en aðildarhóparnir starfa nú að mestu sjálfstætt
TVEIR týndu lífi þegar farþegalest skall á vöruflutn-
ingabíl við bæinn Kristianstad á Skáni í Svíþjóð í gær-
morgun. 47 menn slösuðust, þar af fjórir alvarlega.
Margir farþeganna voru börn og unglingar á leið í
skóla. Hér sjást björgunarmenn og sjálfboðaliðar að-
stoða farþega sem sumir lokuðust inni í lestinni. Flutn-
ingabíll ók yfir lestarteinana við Nosaby í útjaðri
Kristianstad um leið og lestina bar að en hún var á leið
frá Karlskrona til Helsingborg. Tveir af þremur vögn-
um lestarinnar fóru á hliðina. Að sögn talsmanns lög-
reglu í Kristianstad, Bo Widell, létust tveir „hið
minnsta“. Annar þeirra stjórnaði lestinni.
Haft var eftir vitnum að bílstjórinn hefði reynt að
komast yfir sporið í sama mund og hliðið lokaðist.
Reuters
Manntjón í lestarslysi á Skáni
BANDARÍSKA sjónvarpsstöðin
CBS ætlar að láta fara fram rannsókn
á skjölum sem sýnd voru í 60 Min-
utes-þætti stöðvarinnar í vikunni og
sýndu að sögn fram á að George W.
Bush forseti hefði óhlýðnast beinni
skipun og verið sviptur flugmanns-
starfi þegar hann var í þjóðvarðliði
Texas árin 1972 og ’73. Sérfræðingar
segja sennilegt að minnisblöðin séu
fölsuð.
Blöðin áttu að hafa verið úr fórum
eins yfirmanna Bush, Jerrys Killians,
sem lést árið 1984. Sonur Killians hef-
ur dregið í efa að faðirinn hefði
nokkru sinni skrifað slíkt minnisblað.
Gary Killian, fyrrnefndur sonur Jerr-
ys Killians, segir að afar ólíklegt sé að
faðir hans hefði skrifað á ómerkt
minnisblað að hann væri undir þrýst-
ingi að „sykurhúða“ umsögn um
frammistöðu Bush. „Enginn liðsfor-
ingi með fullu viti myndi nokkru sinni
skrifa minnisblað eins og þetta,“ sagði
Killian.
Talsmaður Bush, sagði að starfs-
menn forsetans væru ekki að kanna
hvort skjölin væru ekta. Sandra
Ramsey Lines, sem er óháður skjala-
fræðingur í bandarískri akademíu
réttarrannsóknarmanna, segir að
skjölin líti út fyrir að hafa verið skrif-
uð á Microsoft Word-forritið. Hún
bendir á að í setningunni „111th Fig-
hter Interceptor Squadron“ séu staf-
irnir „th“ minni og hærri en hinir. Það
bendi til þess að skjölin séu fölsuð, því
sú tækni hafi ekki verið til fyrir 32 ár-
um en sé sjálfvirk í Microsoft Word.
„Ég er nánast viss um að þessi
skjöl koma úr tölvu,“ sagði Lines eftir
að hafa skoðað þau.
Skjöl gegn Bush fölsuð?
New York. AFP, AP.