Morgunblaðið - 15.10.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.10.2004, Blaðsíða 2
BLÓÐBAÐ Í BAGDAD Hátt í 40 manns féllu í árásum í Írak í gær, þar af tíu í fyrstu mann- skæðu sprengjutilræðunum á Græna svæðinu svokallaða í Bagdad. Mikill öryggisviðbúnaður hefur verið á svæðinu til að vernda embættismenn írösku bráðabirgðastjórnarinnar og erlenda stjórnarerindreka sem hafa þar aðsetur. Kosinn formaður SGS Kristján Gunnarsson var kjörinn nýr formaður Starfsgreinasambands- ins á ársfundi þess í gær. For- ystumenn verkalýðshreyfingarinnar lýstu á fundinum áhyggjum af að verðlagsforsendur kjarasamninga kynnu að bresta á næstunni. Sagt upp í fæðingarorlofi Tilvikum fer fjölgandi þar sem karlmönnum í fæðingarorlofi er sagt upp störfum. Um 10 til 20 slík mál berast Verslunarmannafélagi Reykjavíkur á ári. Forstöðumaður kjaramálasviðs VR segir að dæmi um ólögmætar uppsagnir af þessu tagi þekkist í flestum starfsstéttum, þó einna helst hjá skrifstofumönnum. Minni verksmiðja í Hvalfirði Ákveðið hefur verið af eigendum fyrirhugaðrar rafskautaverksmiðju í Katanesi við Hvalfjörð að minnka framleiðslugetuna úr 340 þúsund tonnum á ári í 140 þúsund. Megin- ástæðan er sú að Alcoa álfyrirtækið hefur ekki áhuga á að kaupa rafskaut hér á landi þegar álverið á Aust- fjörðum tekur til starfa. Nýr konungur í Kambódíu Sérstakt krúnuráð Kambódíu kaus Norodom Sihamoni prins nýjan kon- ung landsins í gær. Sihamoni er son- ur Norodoms Sihanouks konungs sem sagði af sér í vikunni sem leið. Y f i r l i t 2 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR edda.is Mál og menning mun á næsta ári gefa út bók um fyrstu íslensku konurnar sem héldu til myndlistarnáms í Kaupmannahöfn. Ein þeirra var Sigríður Björnsdóttir (1879-1942) sem stundaði kennslu í Reykjavík og rak um skeið bókaverslun Ísafoldar. Þeir sem kynnu að eiga, eða geta bent á verk eftir Sigríði; teikningar, skissubækur, málverk eða leirverk, eru beðnir að hafa samband viðHrafnhildi Schram í síma 898 8170. Þekkir þú eða átt verk Sigríðar Björnsdóttur? Í dag Sigmund 8 Minningar 36/42 Viðskipti 14/15 Staksteinar 59 Erlent 18 Bréf 34 Höfuðborgin 22 Skák 47 Akureyri 22 Dagbók 46/48 Suðurnes 24 Brids 47 Landið 24 Leikhús 50 Listir 49/50 Fólk 52/57 Umræðan 28/35 Bíó 54/57 Forystugrein 30 Ljósvakamiðlar 58 Viðhorf 32 Veður 59 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull- trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl                                  ! " #          $         %&' ( )***                því í fyrrahaust. Bílar og varahlutir hafa að meðaltali hækkað um 2,9% samkvæmt mælingum vísitölu neysluverðs. Áfengi og tóbak hafa hækkað um 1,9% og önnur þjónusta en opinber þjónusta hefur hækkað um 2,3%. VERÐBÓLGUHRAÐINN í októ- bermánuði var tæp 10% sem er svip- að og verðbólguhraðinn var í maí og júní á þessu ári. Verðbólga síðustu tólf mánaða mælist nú 3,7% og hefur verið yfir þremur prósentum síðustu sex mánuði. Tólf mánaða verðbólgan hefur ekki verið yfir þremur pró- sentum frá því í september árið 2002. Það eru einkum miklar hækkanir á húsnæði og eldsneyti sem valda þessari hækkun á vísitölunni. Sé litið ár aftur í tímann kemur í ljós að hús- næðisliður vísitölu neysluverðs hef- ur hækkað um 7,5% síðustu tólf mán- uði og bensín hefur á sama tímabili hækkað um 19%. Ef horft er framhjá hækkun hús- næðisverðsins síðustu tólf mánuðina kemur í ljós að verðbólgan að hús- næðinu frátöldu er 2,7% á tímabilinu eða einu prósentustigi lægri en þeg- ar húsnæðið er tekið með. Innfluttar matvörur hækka um 0,6% Ef breytingar á öðrum liðum vísi- tölunnar eru skoðaðir kemur í ljós að opinber þjónusta hefur hækkað mest frá því í fyrrahaust að þessum tveim- ur liðum frátöldum eða um 5,1%. Bú- vörur án grænmetis hafa hækkað um 4,5%, en grænmeti hefur hins vegar lækkað á tímabilinu um 3% og verð á öðrum innlendum mat- og drykkjarvörum er óbreytt frá því í fyrrahaust. Aðrar innlendar vörur en matvörur hækka um 3,7%, en inn- fluttar matvörur hækka að meðaltali um 0,6% frá því í fyrrahaust. Verð á öðrum innfluttum vörum en matvör- um stendur í stað og er óbreytt frá           !       "               Verðbólguhraðinn tæp 10% í október LANDSVIRKJUN greiðir nú um 200 milljónir króna í fasteignagjöld á ári af húseignum, þ.m.t. stöðvarhúsum eins og lög bjóða. Langmestur hluti þeirrar raforku sem Landsvirkjun framleiðir fer til stóriðju samkvæmt langtímasamningum og þegar þeir voru gerðir var ekki gert ráð fyrir að greiddir yrðu sérstakir skattar af stífl- um eða mannvirkjum sem ekki bera skatt í dag. Þetta segir Friðrik Sophussson, forstjóri Landsvirkj- unar, vegna fréttar í Morgunblaðinu í gær þar sem sagði að líklegt væri að nefnd sem vinnur að heildar- endurskoðun á tekjustofnum sveitarfélaganna, muni leggja til að fasteignaskattar verði greiddir af stíflu- mannvirkjum. Árleg útgjöld gætu aukist um 400–600 milljónir Friðrik segir að verði ákveðið að leggja á fast- eignagjöld á stíflur gætu árleg útgjöld Landsvirkjunar (LV) aukist um 400–600 milljónir króna, eftir því hvernig reiknað sé. „Til að afla fjár fyrir slíkum hækk- unum þyrfti, svo dæmi sé tekið, að hækka raforkuverð LV um 8–12% sem gæti þýtt 3–5% hækkun til not- enda.“ Friðrik segir vandann þann að fasteignir LV séu í örfáum sveitarfélögum og ekki sé nema eðlilegt að önn- ur sveitarfélög renni hýru auga til fasteignagjaldanna. Landsvirkjun hafi fullan skilning á því að önnur sveit- arfélög vilji fá eitthvað í sinn hlut. „Það hjálpar hins vegar lítið að bæta stíflumannvirkjum við og taka gjöld af þeim því í flestum tilvikum eru þau í sömu sveitar- félögum og stöðvarhúsin.“ Friðrik segir að menn verði að hafa í huga að LV verði að greiða háar upphæðir fyrir landnotkun og vatnsréttindi og sé ætlunin að leggja fatseignagjöld á stíflur, sem sveitarfélögin þurfi ekki að þjóna á neinn hátt, hljóti menn að spyrja hvers vegna eigi að sleppa vegum, raf- og símalínum, skurðum bænda, jarðgöng- um, svo dæmi séu tekin um mannvirki, sem fast- eignagjöld séu ekki greidd af. LV greiðir um 200 milljónir í fasteignagjöld Morgunblaðið/ÞÖK Unnið við stíflugerð að Kárahnjúkum. SAMKEPPNISSTOFNUN hefur beint þeim tilmælum til Bensínork- unnar að fyrirtækið hætti að nota orð eins og „ódýrast“ og „miklu ódýrara“ í auglýsingum sínum. Samkeppnisstofnun hefur fallist á með auglýsinganefnd ráð- gjafanefndar samkeppnisráðs, að Bensínorkan hafi ekki sýnt fram á að almennt sé verð á Orkustöðv- unum lægst eða miklu lægra sam- anborið við alla keppinauta. Það voru Olíuverslun Íslands, Atlantsolía og Ego sem kvörtuðu yfir auglýsingum Bensínorkunnar og hefur Samkeppnisstofnun til- kynnt Bensínorkunni að umkvört- unarefnið muni verða lagt fyrir samkeppnisráð til ákvörðunar. Hefur ekki sýnt fram á lægsta bensínverðið BORGARRÁÐ samþykkti í gær að veita Sportbitanum í Egilshöll vín- veitingaleyfi til reynslu í eitt ár, en úrskurðarnefnd áfengismála hafði komist að þeirri niðurstöðu að borgin hafi brotið gegn jafnræð- isreglu og meðalhófsreglu þegar hún synjaði Sportbitanum um leyfi fyrr á árinu. Þrír borgarráðsmenn, Árni Þór Sigurðsson, Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson og Guðrún Ebba Ólafs- dóttir sátu hjá við afgreiðslu máls- ins. Í bókun Árna vegna málsins mótmælir hann því að úrskurðar- nefndin álíti að hagsmunir vínveit- ingastaða vegi þyngra en almanna- hagsmunir barna og unglinga. Samstarfsráð um forvarnir skor- ar á borgarstjórn Reykjavíkur að heimila ekki sölu á áfengi í skólum og íþróttamannvirkjum innan borg- armarkanna, og að leyfi sem þegar hafa verið veitt verði ekki end- urnýjuð. Vín veitt í Egilshöll „TILGANGUR flugsins er að vekja athygli á störfum UNICEF (Barna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna), en ég vil hvetja fólk til umhugsunar um að- stæður barna um allan heim,“ segir Iren Dornier, flugstjóri og formaður South East Asian Airlines, en hann lenti sögulegum flugbáti af gerðinni Dornier DO24 ATT á Reykjavíkur- flugvelli í gær. Dornier, sem er barnabarn Claude Dornier, ætlar sér að fljúga í kringum heiminn á vélinni. Hann hóf ferðina 16. apríl og vonast hann til að ljúka henni í mars á næsta ári. Dornier segist vera að minnast þess að í ár séu nákvæmlega 75 ár síðan afi hans fór ferð með eins flug- vél og hann sjálfur, en Claude Dorn- ier var hönnuður vélarinnar sem þótti mikið afrek á sviði flugsmíði. Söfnunarfé Dornier, sem kemur frá honum sjálfum og stórfyrir- tækjum, mun renna til mennt- unarverkefna UNICEF um allan heim, en í dag er 121 milljón barna sem gengur ekki í skóla skv. upplýs- ingum frá UNICEF. Dornier mun halda ferðinni áfram í dag og verður ferðinni heitið vestur á bóginn. „Ég mun fljúga til New York og þar kem ég til með að lenda flugbátnum á Hudson-ánni,“ segir Dornier sem mun koma við á um 50 stöðum í yfir 40 löndum. Flýgur til styrktar börnum LÖGREGLUMAÐUR í Reykjavík hefur óskað eftir opinberri rannsókn á því hvers vegna nafn hans er á vef- síðu þar sem nöfn meintra fíkniefna- sala og handrukkara eru birt. Á listanum eru nöfn 25 manna sem samkvæmt vefsíðunni eru dópsalar eða handrukkarar. Sumir þessara einstaklinga hafa hlotið dóma fyrir fíkniefnamisferli. Einnig eru á síð- unni birt nöfn tveggja lögreglu- manna. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Reykjavík hefur annar mannanna óskað eftir opinberri rannsókn á nafnbirtingunni. Óskar eftir opin- berri rannsókn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.