Morgunblaðið - 15.10.2004, Blaðsíða 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Viagra-níðstöngin | Byggingarnefnd
Húsavíkurbæjar hefur samþykkt ósk reða-
safnsins að reisa listaverkið „Viagra-
níðstöngin“ fyrir framan Hið íslenska reða-
safn á Héðinsbraut 3. Fram kemur í fund-
argerð að verkið er eftir danska lista-
manninn Bjarne P. Ejaas og er hátt í þrír
metrar á hæð.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Fulltrúi í stjórn Fasteignar | Bæj-
arráð Vestmannaeyjabæjar hefur sam-
þykkt að tilnefna Lúðvík Bergvinsson
bæjarfulltrúa í stjórn Eignarhaldsfélags-
ins Fasteignar hf. Tilnefningin kemur í
kjölfar þess að Vestmannaeyjabær keypti
hlut í félaginu í tengslum við sölu á ýms-
um fasteignum bæjarins til Fasteignar
hf.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem er í
minnihluta bæjarstjórnar, Arnar Sig-
urmundsson, lét bóka við afgreiðslu máls-
ins að miðað við aðstæður og undirbúning
málsins hefði verið eðlilegra að bæjar-
stjóri tæki sæti í stjórn fyrirtækisins.
Hafnar útvarpssendingar | Útvarp
Fjörheima, Fjörstöð 97,2, hefur hafið út-
sendingar í Reykjanesbæ. Útvarpsstöðin er
rekin af unglingum í félagsmiðstöðinni
Fjörheimum í Reykjanesbæ og mun hún
starfa daglega fram til 21. október, frá kl.
16–22. Auglýsingar eru lesnar á milli þátta
og þegar færi gefst.
BjörgunarsveitinStrönd á Skaga-strönd og Björg-
unarbátasjóður Húnaflóa
hafa samið við Slysa-
varnafélagið Lands-
björgu um kaup á björg-
unarskipi frá Bretlandi.
Er þetta öflugur bátur
sem kemur til Skaga-
strandar innan fárra
vikna, að því er fram
kemur á vef Höfða-
hrepps. Sveitarfélög við
Húnaflóa, fyrirtæki og
einstaklingar taka þátt í
fjármögnun.
Auglýst hefur verið
eftir nafni á væntanlegan
bát. Hugmyndakassi
verður settur upp í sölu-
skálanum og björg-
unarsveitarmenn taka
einnig við hugmyndum.
Björgunarbátur
Hjálmar Freysteins-son fylgdist meðatburðunum í
kringum löndun úr Sólbak
sem Brim gerir út, en lög-
reglan greip inn í verk-
fallsaðgerðir:
Margt er það enn sem miður fer
og margur illa er settur.
Sýslumaðurinn okkar er
eins og brimsorfinn klettur.
Á landsmóti hagyrðinga á
Hvolsvelli í haust var gefin
út dagskipun um að yrkja
um Kárahnjúka. Halldór
Blöndal brást við kallinu:
Eins og tröll á svörtum sandi
sem ei nokkur þekkti fyrr
einhvers staðar á Austurlandi
eru Kárahnjúkarnir.
Skólabróðir hans úr
menntaskóla, Birgir Stef-
ánsson, lét ekki sitt eftir
liggja:
Þó að fyllist fúadý
og flákar eyðisanda
úr kafinu með kurt og pí
Kárahnjúkar standa.
Brim á Akureyri
pebl@mbl.is
Hornafjörður | Héraðsfréttablaðið Eystra-
horn í Hornafirði er nú prentað á ritstjórn-
arskrifstofunum með nýrri stafrænni
tækni. Ritstjórinn segir að það lækki út-
gáfukostnaðinn og stytti vinnsluferlið.
Sigurður Mar Halldórsson, ritstjóri
Eystrahorns, segist hafa verið að fylgjast
með tækni við prentun blaða frá því hann
og félagi hans eignuðust blaðið fyrir hálfu
öðru ári. Í sumar hafi komið á markaðinn
tæki sem geri prentunina mun ódýrari en
þá hefðbundnu offsetprentun sem notuð
hafi verið til þessa við prentun blaðsins.
Útgefandi blaðsins, Galdur ehf., tók slíka
vél í notkun á dögunum og í þessari viku
var annað blaðið prentað með henni.
Sigurður Mar segir að tækið sé fremur
stór tölvuprentari en prentvél og brjóti hún
blaðið saman og hefti. Segir hann að þetta
komi mjög vel út. Gæðin séu síst minni en í
offsetinu en kostnaðurinn mun minni. Þá
skipti miklu máli að vinnslutíminn styttist.
Þeir geti nánast ýtt á „prenta“ í tölvunni
hjá sér til að hefja prentunina. Styttri
vinnslutími geri það að verkum að hægt sé
að koma blaðinu á póstinn sem leggur af
stað í sveitirnar snemma á fimmtudags-
morgni og þá fái allir íbúar sveitarfélagsins
blaðið á fimmtudegi. Áður hafi blaðið borist
í sveitirnar á föstudegi.
Sigurður Mar veit ekki til þess að önnur
héraðsfréttablöð hafi tekið þessa tækni í
þágu sína en spáir því að fleiri eigi eftir að
gera það. Þegar hafi einn ritstjóri haft
samband til að spyrjast fyrir.
Minni kostn-
aður og fljót-
ari vinnsla
Prenta út héraðsfréttablaðið
Borgarfjörður | Sameiningarnefnd sveit-
arfélaga í Borgarfirði samþykkti á fundi
sínum að verða við beiðni Kolbeinsstaða-
hrepps í Snæfellsnessýslu um aðild að
sameiningarviðræðum allra sveitarfélag-
anna í Borgarfirði, norðan Skarðsheiðar.
Beiðni Kolbeinsstaðahrepps kemur í
kjölfar tillögu landsnefndar um sameining-
armál og með hliðsjón af viðhorfskönnun
sem gerð var meðal íbúanna þar, að því er
fram kemur á vef sameiningarnefndarinn-
ar, www.sameining.is.
Þrjú sveitarfélög í Borgarfirði, Borgar-
byggð, Borgarfjarðarsveit og Hvítársíðu-
hreppur, hófu viðræður um sameiningu
vorið 2003 og síðar kom Skorradalshrepp-
ur inn í verkefnið. Nú er því um að ræða
viðræður allra sveitarfélaganna á þessu
svæði og ef þau sameinast verður til sveit-
arfélag með rúmlega 3.500 íbúum.
Taka þátt í
viðræðunum
♦♦♦
Afmæli Stokkseyringsins Páls Ísólfssonar var hald-ið hátíðlegt í Lista- og menningarverstöðinniHólmaröst á Stokkseyri í fyrrakvöld. Systkinin
Kristjana og Gísli Stefánsbörn frá Selfossi sungu meðal
annars lög eftir tónskáldið.
Dr. Páll Ísólfsson, tónskáld og dómorganisti, fæddist í
Símonarhúsum á Stokkseyri 12. október 1893. Fyrir fjór-
um árum hugkvæmdist nokkrum framsýnum Stokkseyr-
ingum að halda upp á afmæli Páls í frystihúsinu Hólma-
röst og var afmælisins nú minnst í fjórða skipti.
Morgunblaðið/Jóhann Óli
Til heiðurs Páli Ísólfssyni
Akureyri | Þeir voru bara
nokkuð hressir félagarnir
Kristján Júlíusson, vörubíl-
stjóri og eigandi, og Ólafur
Hermannsson, starfsmaður
Samherja, en þeir voru að
koma með veiðarfæri fyrir
þýska frystitogarann Kiel NC,
sem hélt frá Akureyri í gær-
kvöld. Kiel NC, sem er í eigu
Deutsche Fischfang Union
GmgH, DFFU, sem er dótt-
urfélag Samherja í Þýskalandi
kom til hafnar á Akureyri fyrir
rúmri viku, með eitt mesta ef
ekki mesta aflaverðmæti sem
komið hefur verið með að landi
á Íslandi. Aflinn var um 700
tonn af frystum flökum, eftir
rúmlega tveggja mánaða veiði-
ferð og aflaverðmætið rúmar
300 milljónir króna. Togarinn
hélt frá Akureyri til grálúðu-
veiða við Austur-Grænland.
Morgunblaðið/Kristján
Hressir karlar á bryggjunni
Bryggjuspjall
Hveragerði | Var það ekki átján núll
og níu, nokkru eftir kríu, sem Jör-
undur hundadagakonungur var
handtekinn? Það eru liðin tæp tvö
hundruð ár síðan hann var hér fyrst.
Enn er hann okkur hugleikinn og
Leikfélag Hveragerðis frumsýnir í
Völundi í kvöld sýninguna „Þið mun-
ið hann Jörund“ eftir Jónas Árna-
son.
Það var fjör, þegar fréttaritari leit
inn á æfingu nú í vikunni, leikarar
stóðu um allan salinn og sungu arí-
dúarí af innlifun. Lögin í sýningunni
eru mörg hver vel þekkt og gefur
það henni aukið gildi fyrir áhorfand-
ann sem getur jafnvel raulað með.
Það er Ólafur Jens Sigurðsson
sem er leikstjóri sýningarinnar. Jör-
undur sjálfur er leikinn af Hirti Má
Benediktssyni. Alls eru leikarar og
hljóðfæraleikarar tuttugu og fimm,
en að uppsetningunni koma yfir
þrjátíu manns. Leikhúsið er reyndar
kaffihús í leiðinni, því að veitingar
eru seldar á sýningunni.
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Leikarar Yfir þrjátíu manns koma að uppsetningu leikritsins um Jörund.
Þið munið hann Jörund
Aftur til Sviss | Aðalsteinn Hjartarson,
sviðsstjóri tómstunda- og forvarnasviðs
Akraneskaupstaðar, hefur sagt upp störfum
frá og með lokum janúar næstkomandi.
Fram kemur á vef Akraneskaupstaðar að
Aðalsteinn kom til starfa á Akranesi frá
Sviss og hefur nú ákveðið að flytjast utan að
nýju með fjölskyldu sína. Á fundi bæjarráðs
voru Aðalsteini færðar þakkir fyrir vel unn-
in störf.
Heimasíða hreppsins | Hraungerðis-
hreppur hefur opnað vef. Slóðin er
www.thingborg.is.
Á vefnum eru upplýsingar um sveit-
arstjórn og nefndir, aðalskipulag og mála-
flokka og gert ráð fyrir að birtar verði fund-
argerðir. Þá eru birtar fréttir af félögum í
Hraungerðishreppi.