Morgunblaðið - 15.10.2004, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Ársfundur
Tækniháskóla Íslands 2004
Ársfundur Tækniháskóla Íslands verður haldinn
í stofu 326 í Tækniháskóla Íslands, Höfða-
bakka 9, föstudaginn 22. október.
Fundurinn hefst kl. 16:00.
Ársfundurinn er haldinn skv. ákvæði 23. gr.
laga um háskóla 136/1997 þar sem segir, að
hver háskóli, sem nýtur fjárframlaga frá rík-
issjóði, skuli árlega halda opinn ársfund þar
sem fjárhagur háskólans og meginatriði starfs-
áætlunar eru kynnt.
Dagskrá ársfundar Tækniháskóla Íslands
er sem hér segir:
1. Skýrsla um starf Tækniháskóla Íslands árið
2003 og meginmarkmið starfseminnar árið
2004.
2. Fjármál Tækniháskóla Íslands árið 2003.
3. Umræður og fyrirspurnir.
4. Önnur mál.
Ársfundurinn er öllum opinn.
Rektor.
Aðalfundur Skúlagarðs hf.
Aðalfundur Skúlagarðs hf. vegna reikningsárs-
ins 2003 verður haldinn á Hverfisgötu 33,
2. hæð, föstudaginn 22. október 2004 kl. 16.30.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf sam-
kvæmt grein 3.4 í samþykktum félagsins.
Stjórnin.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Hl. Fiskilæks í Leirár- og Melahreppi, þingl. eig. Ólafur Finnur Böðv-
arsson, gerðarbeiðandi Tollstjóraskrifstofa, þriðjudaginn 19. október
2004 kl. 10:30.
Jörðin Hvammur í Skorradal, þingl. eig. Eignarhaldsfél. Hvamms-
skógur ehf., gerðarbeiðandi Sparisjóður Mýrasýslu, þriðjudaginn
19. október 2004 kl. 11:30.
Lækjarmelur 6, Skilmannahreppi, þingl. eig. Steypustöð Blönduóss
ehf., gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sjóvá- Almennar hf.,
þriðjudaginn 19. október 2004 kl. 9:30.
Lækjarmelur 8, Skilmannahreppi, þingl. eig. Steypustöð Blönduóss
ehf., gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Olíufélagið ehf. og Sjóvá-Al-
mennar hf., þriðjudaginn 19. október 2004 kl. 10:00.
Strýtusel 6, fastanr. 224-5636, Borgarbyggð, þingl. eig. Anita Ragn-
hild Aanesen, Guðmundur Pálsson og Finnhús ehf., gerðarbeiðandi
Tollstjóraskrifstofa, þriðjudaginn 19. október 2004 kl. 14:00
Sýslumaðurinn í Borgarnesi,
14. október 2004.
Stefán Skarphéðinsson.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Dugguvogur 3, 0201, Reykjavík, þingl. eig. Voot Import-Export ehf.,
gerðarbeiðendur Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, útibú og
Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 19. október 2004 kl. 14:30.
Fossháls 13, 0301, Reykjavík, þingl. eig. Oliver Edvardsson og Sigrún
Björk Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur Sparisjóður vélstjóra og Toll-
stjóraembættið, þriðjudaginn 19. október 2004 kl. 10:30.
Hraunbær 38, 0202, Reykjavík, þingl. eig. Hafþór Rúnar Sigurðsson,
gerðarbeiðendur Hraunbær 36-42, húsfélag, Sjóvá-Almennar trygg-
ingar hf. og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 19. október 2004
kl. 11:00.
Skipholt 19, 010301, Reykjavík, þingl. eig. Rungnapa Channakorn,
gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 19. október 2004
kl. 14:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
14. október 2004. Sálarrannsókna-
félag Suðurnesja
Þórhallur Guðmundsson,
miðill, verður með skyggnilýs-
ingarfund sunnudaginn 17. októ-
ber í húsi félagsins á Víkurbraut
13, Keflavík, kl. 20.30. Húsið
opnað kl. 20. Aðgangseyrir við
innganginn.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Vetrardagskrá Guðspekifé-
lagsins hefst í kvöld kl. 20.30
með erindi Árna Einarssonar
„Draumhús Ólafs Helga, laun-
saga frá miðöldum“ í húsi fé-
lagsins, Ingólfsstræti 22. Starfs-
emi félagsins er öllum opin.
www.gudspekifelagid.is
I.O.O.F. 12 18510158½ Sk.
I.O.O.F. 1 18510158
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
mbl.is
✝ Ingvar EinarKjartansson
fæddist á Hólmavík
22. desember 1957.
Hann varð bráð-
kvaddur í fjársmölun
laugardaginn 9.
október síðastliðinn.
Ingvar er sonur
hjónanna Kjartans
Ólafssonar bónda í
Sandhólum, f. 27.1.
1931 og konu hans
Guðmundu Haralds-
dóttur, f. 31.8. 1928,
d. 19.9. 1989. Systk-
ini Ingvars eru: a)
Óla Friðmey, f. 24.10. 1952,
sambýlismaður Sigurjón Guð-
mundsson, hann á fjögur börn
frá fyrra hjónabandi. Börn Ólu
eru Sigurður Óli Gunnarsson, f.
15.7. 1973 og Ingunn Helga
Gunnarsdóttir, f. 12.1. 1981,
sambýlismaður Sigtryggur Árni
Ólafsson, b) Ólaf-
ur Haraldur, f.
3.4. 1954, d. 20.5.
1979, c) Gísli
Kristján, f. 23.10.
1965, kvæntur
Oddnýju Ás-
mundsdóttur,
sonur þeirra er
Guðmundur
Kjartan, fyrir átti
Oddný þrjú börn.
Þeir feðgar
Ingvar og Kjart-
an hafa rekið
saman félagsbú
þar til allra síð-
ustu árin að það færðist að
mestu yfir á herðar Ingvars.
Ingvar stundaði bústörf frá
árinu 1977 að einum vetri und-
anskildum.
Útför Ingvars fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Með söknuði í hjarta skrifa ég
þessi orð um hann móðurbróður
minn Ingvar, eða Bróa eins og hann
var alltaf kallaður innan fjölskyld-
unnar. Það er svo margt sem kemur
upp í hugann núna þegar maður þarf
að kveðja hann elsku frænda í hinsta
sinn.
Þegar ég var að alast upp á Þóru-
stöðum voru oft samgöngur á milli
bæjanna, þ.e.a.s. Þórustaða og Sand-
hóla. Það kom ósjaldan fyrir að
manni datt í hug að fá sér smá
göngutúr til afa, ömmu og Bróa. En
það varð reyndar sjaldgæfara eftir
að amma blessunin lést haustið 1989.
En minningarnar eru góðar, alltaf
var hann Brói uppáhaldsfrændi
minn þegar ég var lítil stúlka. Hann
var mjög barngóður og skemmtileg-
ur og það var mikil synd að hann
skyldi aldrei eignast börn sjálfur.
Hann helgaði líf sitt sveitinni og
búinu sínu. Manni fannst hann aldrei
láta neitt eftir sér. Vann hörðum
höndum og sá um útistörfin samhliða
því að halda heimili fyrir sig og föður
sinn.
Yfirleitt hitti maður Bróa í góðu
skapi. Hann var glettinn og stríðinn
og reyndi yfirleitt að sjá eitthvað
spaugilegt við hlutina.
Fyrir nokkrum árum síðan veikt-
ist hann frændi minn fyrir hjartanu
en fékk rétta meðferð og lyf og allt
gekk ljómandi vel. Hann var búinn
að vera mjög hress og heilsuhraust-
ur í sumar og í haust og við vorum
svo ánægð með hann.
Það var mikið framundan hjá hon-
um, haustið gengið í garð með til-
heyrandi látum, þ.e. göngum og slát-
urtíð og allt að verða tilbúið fyrir
komandi vetur. En þá kemur þetta
reiðarslag eins og þruma úr heið-
skíru lofti. Hann elsku Brói sem fór í
smalamennsku, hress og kátur um
morguninn á laugardeginum 9. októ-
ber, varð bráðkvaddur undir berum
himni.
Nú er hann blessaður búinn að
hitta móður sína og Onna bróður
sinn sem lést fyrir 25 árum. Vonandi
líður honum frænda mínum vel núna
á nýjum stað.
Guð geymi þig, elsku Brói minn.
Þín litla frænka,
Ingunn Helga.
Elsku Brói minn.
Þú hefur alltaf bara verið kallaður
Brói, enda varstu mér miklu frekar
sem bróðir en frændi enda vorum við
systkinabörn í báðar ættir. Þvílíkt
áfall þegar ég fékk þær fréttir að þú
hefðir orðið bráðkvaddur við smala-
mennsku, ekkert hafði amað að þér
og léttur á fæti, hress og kátur
hljópst þú upp á fjall eins og alltaf en
á einu augnabliki er allt búið. Ég er
ekki enn farin að trúa því að við eig-
um ekki eftir að hittast aftur í þessu
lífi, en svona er þetta víst, enginn veit
hver er næstur. Mikið er ég fegin að
hafa upplifað stundina sem við áttum
saman um daginn. Svo skrítið sem
það nú er var eins og við tvö ættum
kvöldið enda var hlegið að okkur
daginn eftir eins og svo oft áður.
Eins þegar við vorum lítil þá var
mikið brallað og margt gert sem ekki
verður sagt frá hér en margir vita af
og hafa gaman af að rifja upp á góð-
um stundum.
Þú varst svo myndarlegur í einu
og öllu eftir að hún mamma þín hún
Munda mín elskuleg féll frá, blessuð
sé minning hennar. Svo ekki sé talað
um eldamennskuna þína, steikurnar
og sósurnar, nóg var að bíta og
brenna hjá þér og gestrisni þín eins
og hjá öllu þínu fólki var einstök,
enginn mátti fara svangur af bæ. Þú
varst ein af þessum yndislegu sálum,
hvers manns hugljúfi og það var svo
notalegt og þægilegt að vera í návist
þinni. Þegar við hittumst gátum við
alltaf fundið barnið í okkur og það lá
við að við breyttumst í litlu prakk-
arana eins og í den en því miður hitt-
umst við alltof sjaldan í seinni tíð.
Fráfall þitt kennir manni að vera
duglegri við að rækta fólkið sitt sem
maður elskar, nota stundirnar sem
við höfum því lífið er óútreiknanlegt.
Það síðasta sem þú lofaðir mér var að
koma til mín í nýja húsið þegar þú
kæmir næst í bæinn en þú komst svo
sjaldan og þá oftast bara yfir daginn
og á hraðferð, en ég vil trúa því að þú
sért búin að kíkja inn, það er mín trú.
Það held ég nú, Brói minn, það er
huggun að vita af faðmlaginu frá
mömmu þinni og honum Onna bróð-
ur þínum og öllum hinum sem á und-
an hafa farið og tekið hafa þig í sinn
faðm.
Elsku Daddi minn, þú sem ert bú-
in að vera svo lasinn, það er mikið á
þig lagt, megi Guð gefa þér styrk á
þessari erfiðu stundu sem og ykkur
elsku Didda, Gísli, Inga, Siggi Óli,
makar og allir hinir sem eiga um sárt
að binda, megi góður Guð veita ykk-
ur kraft og styrk til að takast á við
þessa raun.
Elsku Brói minn, ég kveð að sinni.
Góða nótt, minn litli ljúfur. Þín
frænka
Hafdís Haraldsdóttir
(Haddý).
Fyrir botni Bitrufjarðar er bærinn
Sandhólar. Innar eru Þórustaðir og
Snartartunga. Á þessum slóðum
hafa í minni tíð 5 kynslóðir gengið til
verka, unað glaðar við sinn búskap.
Elskað sitt land og sínar skepnur
þótt harðbýlt sé og ekki undir þær
mulið. Þarna í dalnum steig hann öll
sín spor. Axlaði ábyrgð og gekk í
störf fyrirrennara sinna og forfeðra.
Gerðist bóndi. Í nábýli við systur
sína og frænda. Við hlið föður síns.
Mikill hæglætismaður vildi öllum og
gerði öllum vel. Mér finnst hann hafa
líkst meir móður sinni í lund, en föð-
ur sínum á velli. Grannur enda alltaf
á iði. Ljúfur, þó ekki skaplaus. Höfð-
ingi heim að sækja, síveitandi en þáði
fátt. Heilsuveill á stundum en hlífði
sér hvergi. Eftir lát móður sinnar
sýndi hann virkilega hvað í honum
bjó. Snilldarkokkur. Framundan
voru endurbætur á húsinu. Minn
maður horfði fram á veginn bjart-
sýnn og brattur. Hann yrði 47 ára á
jólaföstunni. Í sveitinni eru vorin og
sumrin yndislegur tími. Haustið aft-
ur tími uppskerunnar. Smala-
mennska og fjallskil. Dalirnir og
fjöllin inn af Þórustöðum eru smala-
lönd bændanna. Langir brattir dalir,
gil og gljúfur. Gróið land og skriður á
víxl. Það heitir Brunngil gamalt eyði-
býli þar sem rekið er ofan áður en
fénu er smalað heim í rétt.
Það getur verið töfrum líkt að sitja
hátt uppi í hlíð. Í góðu haustveðri,
berjalyngið roða slegið, grösin föl
eftir næturfrost. Áin þarna langt
niðri silast í átt til sjávar.
Maður sperrir eyrun og drekkur í
sig kyrrðina. Himinninn umlykur
þetta meistaraverk og mann langar
ekkert niður.
Brói, sem einmitt átti svo mörg
sporin í þessu landi kom ekki niður
eins og hinir. Erfið gangan varð hans
síðasta.
„Þið borðið nú áður en þið farið,“
sagði hann, þegar við bræðurnir vor-
um að tygja okkur af stað heim úr
réttunum fyrir skömmu. Þá var mið-
ur morgunn og birti hratt. Nú situr
fjölskyldan og vinirnir og syrgir
þennan góða dreng og veit tæpast,
hvaðan á það stendur veðrið. Og
sveitin, sveitin verður aldrei söm.
Farðu í Guðs friði, vinur.
Ketill.
INGVAR EINAR
KJARTANSSON
Fleiri minningargreinar
um Ingvar Einar Kjartansson bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar eru: Har-
aldur, Elísabet, Linda, Ólafur og
fjölskyldur, Ólafía Hafdísardóttir
(Lóa) og Egill Stefánsson, Anna
Magnea Egilsdóttir, Glerbræður og
fjölskyldur.