Morgunblaðið - 15.10.2004, Blaðsíða 47
4. flokki 1992 – 43. útdráttur
4. flokki 1994 – 36. útdráttur
2. flokki 1995 – 34. útdráttur
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
Koma þessi bréf til innlausnar 15. desember 2004.
Öll útdregin númer verða birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess liggja upplýsingar frammi hjá Íbúðalánasjóði,
í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
Útdráttur
húsbréfa
Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800 www.ils.is
Aukaútdráttur
Aukaútdráttur hefur einnig farið fram í ofangreindum
húsbréfaflokkum, 2.fl.94, 4.fl.94 og 2.fl.95, sem eru á
innlausn 15. desember nk. Skv. 22. og 23. gr. laga nr.
44/1998 er Íbúðalánasjóði heimilt að fara í aukaútdrátt til
að jafna fjárstreymi sjóðsins. Uppgreiddum fasteigna-
veðbréfum er jafnað á móti útistandandi húsbréfum með
útdrætti úr gildum húsbréfum úr þeim flokki, er tilheyrir
umræddu fasteignabréfi.
Einnig verður aukaútdráttur úr rafvæddum flokkum
1.fl.98, 2.fl.98, 1.fl.01 og 2.fl.01 sem eru á innlausn
15. desember nk.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 47
DAGBÓK
Matvæla- og næringarfræðafélag Ís-lands (MNÍ)stendur í dag fyrir ráð-stefnu helgaðri rannsóknum á Nord-ica-hótelinu. Tímasetning ráðstefn-
unnar er valin með tilliti til þess að 16. október ár
hvert minnir Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ
á misskiptingu fæðu í heiminum á alþjóðlegum
degi fæðunnar.
Markmið ráðstefnunnar er að fá yfirlit yfir
helstu rannsóknir á sviði matvæla- og næringar-
fræða síðustu ára og það sem er í farvatninu. Með-
al fyrirlesara má nefna dr. Hörð G. Kristinsson
matvælalífefnafræðing og mun hann fjalla um
nýjustu þróun í einangrun og nýtingu fiski-
próteina. Þá mun dr. Arne Astrup, yfirmaður
næringardeildar hins konunglega landbúnaðarhá-
skóla í Danmörku, flytja erindi um baráttuna
gegn offitu. Þá mun sagt frá nokkrum íslenskum
rannsóknum þ.á m. rannsókn á grænmetis- og
ávaxtaneyslu ellefu ára barna, ensímum í þorski,
háþrýstingsmeðhöndlun matvæla og fleira.
Á ráðstefnunni verður einnig „Fjöregg MNÍ“
afhent en það er verðlaunagripur sem veittur er
fyrir loftsvert framtak á matvælasviði. Samtök
iðnaðarins gefa verðlaunagripinn.
Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður MNÍ, segir
óhætt að fullyrða að fátt sé mikilvægara heilsu
fólks en hollur matur og heilbrigt líferni. „Undan-
farin ár hefur umfjöllun um þessi mál aukist hratt,
matreiðslubækur, heilsukúrar, námskeið og ým-
iskonar töfralausnir og ráð sem leggja til besta
mataræð hverju sinni, flæða um þjóðfélagið. Þessi
mikli áhugi er sannarlega af hinu góða, enda hollt
fyrir okkur öll að huga að næringargildi og gæð-
um matarins sem við borðum,“ segir Heiða Björg
en bendir á að það geti líka verið skaðlegt ef fólk
fylgir leiðbeiningum og ráðum frá aðilum sem
ekki hafa faglega þekkingu að byggja á.
Hverjar eru helstu áherslur MNÍ?
„MNÍ vill stuðla að faglegri umfjöllun og er
þessi ráðstefna liður í því að vekja athygli á því
mikla og merka starfi sem matvæla- og næring-
arfæðimenntað fólk vinnur á Íslandi. MNÍ vill
með starfi sínu stuðla að kraftmikilli þróun í mat-
vælafyrirtækjum í góðu samstarfi við þau og
stuðla að aukinni menntun og eflingu vísindalegra
rannsókna á sviði matvæla- og næringarfræða.
Ábyrgð matvælaframleiðaenda er mikil, bæði
hvað varðar öryggi og næringarinnihald matvæla
en einnig hvað varðar að gefa réttar upplýsingar
og þegar það á við, ráðleggingar um mataræði.
Það er mjög mikilvægt að neytendur, stóreldhús
og matvælafyrirtæki taki til sín ráðleggingar
þeirra sem besta hafa þekkingu á manneldis-
málum og eru að miðla henni út í þjóðfélagið.
Til þess þarf þekkingu og aðgengi að faglega
unnum upplýsingum, ekki síst fyrir almenna neyt-
endur. Árleg afhending á Fjöregginu, viðurkenn-
ingu MNÍ, er viðleitni félagsins til að byggja upp
slíkan gæðastimpil fyrir íslenska neytendur og
hvetja matvælaframleiðendur til frekari dáða.
Matvæli | Ráðstefna um rannsóknir á sviði matvæla- og næringarfræði á Hótel Nordica
Vilja auka menntun og rannsóknir
Heiða Björg Hilm-
isdóttir er fædd á
Akureyri árið 1971.
Hún lauk M.sc.-prófi í
næringar- og rekstr-
arfræðum frá há-
skólanum í Gautaborg
og er nú á öðru ári í
MBA-námi við HR.
Heiða er forstöðumað-
ur Eldhúss-matsölu á
LSH. Þá gegnir hún
embætti formanns MNÍ.
Heiða er í sambúð með Hrannari Birni Arn-
arssyni, markaðsstjóra Eddu útgáfu. Eiga þau
saman einn son og eina dóttur Hrannars.
Börnin og Þjóðminjasafnið
9. SEPTEMBER sl. var fyrirspurn í
Velvakanda um hvað börnin hétu
sem voru viðstödd opnun Þjóðminja-
safnsins.
Velvakanda hafa borist þær upp-
lýsingar að þau heiti Auður og
Brynjar og séu 9 ára gamlir tvíburar
þjóðminjavarðar.
Hótel Geysir
SAUMAKLÚBBURINN Varmi
sem dvaldi helgina 8.–10. október
ásamt mökum sínum á þessum frá-
bæra stað þakkar starfsfólki og eig-
endum fyrir góðan mat og þjónustu
sem öll var til mikillar fyrirmyndar.
Bestu kveðjur frá
Varma og Klúbbi 58.
Kvörtun vegna blaðburðar
ÉG vil koma á framfæri kvörtun
vegna þess að Fréttablaðið er alltaf
látið í pósthólf móður minnar, sem
er ekki heima, þó að ég hafi sett
miða á hólfið og beðið um að blaðið
sé ekki sett í hólfið.
Er ég margbúin að kvarta undan
þessu hjá Fréttablaðinu en ekki
virðist tekið mark á þessum kvört-
unum. Veit ég að fleiri hafa kvartað
undan þessu.
190923-4799.
Belti af kápu týndist
LJÓST belti af kápu týndist líklega
við Lækjargötu eða Kirkjuhvol að-
faranótt sl. sunnudags. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma 698 7878.
Gullhálsmen týndist
GULLHÁLSMEN (gullkeðja) týnd-
ist við Fornuströnd 1, Seltjarnar-
nesi, sl. sunnudag. Skilvís finnandi
hafi samband í síma 898 5449 eða
561 6559. Fundarlaun.
Gul, vatteruð barnaúlpa
í óskilum
GUL vatteruð úlpa af lítilli telpu
fannst fyrir nokkru (2-3 vikum) í
fjörunni nyrst á Seltjarnarnesi. Úlp-
unni var komið til lögreglunnar.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Traust.
Norður
♠D7432
♥872 S/Enginn
♦K65
♣K4
Vestur Austur
♠86 ♠ÁK95
♥103 ♥G64
♦ÁD98432 ♦G7
♣G8 ♣10762
Suður
♠G10
♥ÁKD95
♦10
♣ÁD953
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 hjarta
3 tíglar 3 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Með bestu vörn má ná fjórum hjört-
um niður. Sér lesandinn hvernig? Út-
spilið er spaðaátta.
AV eiga þrjá toppslagi – ÁK í spaða
og tígulás – og geta byggt upp fjórða
slaginn á tromp ef austur spilar spaða í
þriðja sinn. En fyrst verður að taka á
tígulásinn, því annars hendir suður tígli
í þriðja spaðann.
Sem sagt: Austur þarf að skipta yfir í
tígul í öðrum slag og vestur verður að
snúa sér aftur að spaðanum. En það er
þrautin þyngri því frá bæjardyrum
vesturs gæti makker hæglega verið
með einspil í tígli.
„Það er útilokað,“ segir Eddie Kant-
ar, en frá honum er spilið komið. „Aust-
ur tekur fyrsta slaginn á spaðakóng. Ef
hann ætti einspil í tígli væri rétt að
drepa á spaðaásinn í fyrsta slag til að
fyrirbyggja áframhaldandi spaðasókn.“
Þetta er djúpt og byggist á miklu
trausti en eins og Kantar segir: „Taktu
stökkið og treystu makker – kannski er
hann traustsins verður.“
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
KRINGLUKAST
20% afsláttur
á Kringlukasti
Kringlunni 8-12, sími 553-3600, www.olympia.is
Glæsibæ – Sími 562 5110
- Opið virka daga 10-18 og laugardaga 10-16
Ný sending af
glæsilegum toppum
og peysum
ÞÆR Ragnheiður Ingunn Ágústs-
dóttir myndlistarmaður og Þórdís
Erla Ágústsdóttir ljósmyndari
opna á morgun kl. 16 samsýningu í
Grafíksafni Íslands. Þar verða ljós-
myndir eftir Þórdísi, annars vegar
af mannlausri náttúru og hins veg-
ar af kvenmannssköpum og ker-
amikplattar eftir Ragnheiði sem
hún skreytir út frá minningum sín-
um, lífsreynslu og draumum.
Þórdís og Ragnheiður sýndu
saman áður á sýningunni „Án sýni-
legs titils“ árið 1991 ásamt nokkr-
um öðrum myndlistarmönnum, í
boði Sendiráðs Frakklands á Ís-
landi.
Ragnheiður hefur haldið einka-
sýningar og tekið þátt í fjölda sam-
sýninga innanlands og utan, Einn-
ig hefur hún hannað verðlauna-
gripi fyrir Þróunarfélag mið-
borgarinnar og Nýsköpunarsjóð
forseta Íslands og eru verk eftir
hana í eigu opinberra aðila, s.s.
EFTA í Brussell og í sendiráði Ís-
lands í Tókýó.
Viðfangsefni sýningar þeirra
Ragnheiðar og Þórdísar í þetta
sinn eru landið og líkaminn. Staðir
sem eru óumdeilanlega fagrir og
ber að virða og umgangast með
varfærni. Móðir náttúra tengir við-
fangsefnin saman. Titillinn helgir
staðir kemur af orðinu helgi; helg-
að eða friðlýst svæði, það sem ekki
má spilla. Fyrir margar konur eru
sköpin helgasti staður líkamans og
þær tilfinningar bera margir til
náttúrunnar.
Sýningin stendur til 31. okt. nk.
Helgir staðir í Grafíksafni Íslands