Morgunblaðið - 15.10.2004, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Saw Palmetto
Styrkjandi blanda fyrir
blöðruhálskirtilinn
www.islandia.is/~heilsuhorn
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Borgartúni 24
Árnesaptóteki Selfossi
Kárastíg 1
Fjarðarkaupum
Reykjavík | Miklar breytingar verða
gerðar á stjórnkerfi Reykjavíkur-
borgar frá og með næstu áramótum,
nefndir og svið verða stokkuð upp
með það fyrir augum að einfalda
stjórnkerfið.
„Markmiðið með þessu er að al-
menningur og þeir sem til borgarinn-
ar leita mæti ekki bara einhverju
flóknu gamaldags embættismanna-
kerfi heldur auðskilinni mynd sem er
auðrötuð og aðgengileg. Það kallar á
skýra verkaskiptingu og skýra
ábyrgð,“ segir Dagur B. Eggertsson,
formaður stjórnkerfisnefndar
Reykjavíkurborgar, þegar hann
kynnti breytingarnar fjölmiðlum í
Ráðhúsi Reykjavíkur í gær ásamt
borgarstjóra.
Eftir áramót verður fastanefndum
og ráðum borgarinnar fækkað um
helming og verða þar með sjö. Fallið
var frá hugmyndum um að sameina
menningarmál og íþróttamál í eitt
ráð, en mikil mótmæli voru vegna
áforma þar að lútandi frá íþrótta-
hreyfingunni. Tillaga borgarstjóra
um breytingarnar var lögð fram á
fundi borgarráðs í gær og vísaði ráð-
ið málinu til borgarstjórnar sem
fjalla mun um málið nk. þriðjudag.
„Þetta ferli hefur tekið langan
tíma, þetta er liður í 10 ára umbóta-
ferli sem hefur staðið hér í ráðhús-
inu,“ sagði Þórólfur Árnason borgar-
stjóri.
Þegar fremur fámennur hópur
kjörinna borgarfulltrúa dreifir kröft-
um sínum milli margra ráða og
nefnda, í skipulagi þar sem rík emb-
ættismannahefð er fyrir hendi, verð-
ur ekki alltaf skýrt hvar ábyrgðin
liggur, segir Dagur. „Þetta erum við
að reyna að taka í gegn núna með því
að hafa betra samræmi milli starfs-
sviða nefnda og stjórnsýslu.“ Dagur
segir að ekki hafi verið hægt að laga
þetta vandamál nema með því að
fækka verulega nefndum borgarinn-
ar og samræma starfssvið nefnda og
stjórnsýslunnar.
Í nýju skipulagi verða sjö fagsvið
embættismanna borgarinnar, með
samsvarandi fastaráðum sem í sitja
kjörnir fulltrúar. Ráðin sjö verða
menntamálaráð, menningar- og
ferðamannaráð, velferðarráð,
íþrótta- og tómstundaráð, skipulags-
ráð, umhverfisráð og framkvæmda-
ráð.
Starf borgarritara og borgarlög-
manns verða lögð niður frá og með
næstu áramótum. Stofnað verður
stjórnsýslu- og starfsmannasvið sem
bera ábyrgð á stjórnsýslueftirliti,
lögfræðistörfum, jafnréttismálum,
starfsþróunarmálum o.fl.
Borgarbúar fá ráð
hjá lögfræðingi
Borgarstjóri segir að meðal ný-
mæla sem þessi endurskipulagning
hafi í för með sér sé að komið verði á
fót starfi lögfræðilegs ráðgjafa.
„Hann verður staðsettur á skrifstofu
borgarstjórnar til að ráðleggja íbú-
um og fyrirtækjum um hvernig þau
geta leitað réttar síns gagnvart
Reykjavíkurborg. Eins konar um-
boðsmaður fólksins í borginni. Þann-
ig að þarna hafi rödd hins smáa ein-
hvern að tala við sem ekki er
blandaður inn í stjórnsýsluverkefni
hjá Reykjavíkurborg,“ segir Þórólf-
ur.
Langtímastefnumótun og þróun-
arstarf borgarinnar mun hér eftir
heyra beint undir borgarstjóra, þar
með talið innleiðing þeirra umfangs-
miklu breytinga á þjónustu Reykja-
víkurborgar sem nú standa yfir. Fyr-
irtækið Aflvaki, sem sett var upp sem
fjárfestingarfyrirtæki í nýsköpun,
verður lagt niður, og atvinnuþróun-
arþáttur fyrirtækisins fluttur á skrif-
stofu borgarstjóra.
Dagur segir að íbúar og fyrirtæki í
borginni muni fyrst og fremst taka
eftir breytingunum á þann hátt að
mál þeirra verði afgreidd á skilvirk-
ari hátt, flest mál sem komi til borg-
arinnar eigi embættismenn á
ákveðnum sviðum, og það ráð sem
nær yfir það svið, að geta afgreitt
samkvæmt gildandi reglum. Einung-
is ef ágreiningur er um málið komi til
kasta borgarráðs og borgarstjórnar.
Í undirbúningi í 2 ár
Þessar breytingar hafa verið í und-
irbúningi í stjórnkerfisnefnd borgar-
innar sl. 2 ár, og hafa þær verið unnar
í samráði við embættismenn borgar-
innar. Breytingarnar voru kynntar
fyrir sviðsstjórum og einhverjum af
starfsmönnum borgarinnar í gær, og
verða kynntar frekar fyrir öðrum
starfsmönnum á næstunni.
Miklar breytingar á stjórnkerfi borgarinnar verða gerðar um næstu áramót
Vilja einfalda
stjórnkerfið
Morgunblaðið/Kristinn
Stjórnkerfið breytist Dagur B. Eggertsson, formaður stjórnkerfisnefndar
(t.v.), Þórólfur Árnason borgarstjóri og Helga Jónsdóttir borgarritari
kynntu breytingarnar á fundi með fréttamönnum í gær.
STARFSEMI líkamsræktarstöðv-
arinnar Bjargs við Bugðusíðu hefst í
nýjum húsakynnum á morgun, laug-
ardaginn 16. október, en eigendur
stöðvarinnar keyptu íþróttahús af
Sjálfsbjörgu og hafa frá því í byrjun
júní unnið að heilmiklum endurbót-
um á því. Það eru tvenn hjón, Aðal-
björg Hafsteinsdóttir og Ólafur
Óskarsson og Hulda Þorsteinsdóttir
og Heimir Gunnarsson sem eiga og
reka Bjarg.
„Þetta hefur verið heilmikil
vinna,“ sagði Heimir, en íþróttahús-
ið hefur nú gengið í endurnýjun líf-
daganna, búið er að setja í það milli-
gólf þannig að stöðin er nú á
tveimur hæðum, samtals tæpir 1000
fermetrar að stærð. Á efri hæð er
tækjasalur, búinn nýjum tækjum,
þar er líka veitingaaðstaða þar sem í
boði verður hollt og gott fæði, salöt
og skyrdrykkir svo dæmi séu tekin.
Á neðri hæðinni eru svo tveir hóp-
tímasalir sem einnig má gera úr
einn stóran sal. Þá er þar einnig að-
staða fyrir barnagæslu sem gestum
býðst endurgjaldslaust að nýta sér
og þá er þar einnig ný afgreiðsla.
„Við ætlum svo að laga mikið til hér
úti, koma upp aðstöðu fyrir útileik-
fimi, setja þar heitan pott og gufu-
bað,“ sagði Aðalbjörg, en innandyra
er einnig pottur og tveir saunaklef-
ar. Þá verður einnig útbúinn sólpall-
ur á þaki byggingarinnar þar sem
gestir geta haft það notalegt á sól-
skinsdögum.
Um 1300 manns koma að stað-
aldri í líkamsrækt á Bjargi og þar
eru ýmsir hópar sem gjarnan fara
saman í leikfimi af ýmsu tagi. „Fé-
lagslegi þátturinn hefur alltaf verið
mjög mikilvægur í okkar huga, það
er alltaf eitthvað um að vera hérna
og við reynum sífellt að brydda upp
á nýjungum í starfseminni,“ sagði
Aðalbjörg.
Til stendur að bjóða hópum, innan
og utan bæjarins, starfsmannafélög-
um, saumaklúbbum og öðrum hóp-
um af slíku tagi að nýta aðstöðuna á
Bjargi, t.d. í tengslum við óvissu-
ferðir.
„Hér getur fólk fengið allan
pakkann, hlustað á fyrirlestur, farið
í líkamsrækt eða línudanstíma, slak-
að á í heitum potti og gufubaði,
fengið nudd og svo kemur til greina
líka að hafa snyrtifræðing til taks
við speglana að þessu öllu loknu,“
sagði Heimir, en í raun sagði hann
ekkert því til fyrirstöðu að bjóða
líka upp á málsverð í samvinnu við
aðra.
Um 20 manns starfa á Bjargi, þar
af eru um 6 í fullu starfi. Opið er
virka daga frá kl. 6 á morgnana til
22 á kvöldin, frá 9 til 16 á laugardög-
um og 10 til 14 á sunnudögum.
Kostnaður við kaup á húsnæði, end-
urbætur á því sem og tækjakaup
nemur um 60 til 65 milljónum króna.
Stöðin verður sem fyrr segir opn-
uð formlega á morgun með opnu
húsi, þar sem starfsemin verður
kynnt og listamenn koma fram.
„Svo verður mikið um að vera hjá
okkur alla næstu viku í tilefni af
opnuninni,“ sagði Aðalbjörg.
Líkamsræktarstöðin Bjarg opnuð í nýju húsnæði
Alltaf eitthvað um að vera
Morgunblaðið/Kristján
Lokafrágangur Hulda Þorsteinsdóttir og Aðalheiður Hafsteinsdóttir, sem
eiga og reka líkamsræktarstöðina, mála karlaklefann.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
Uppskerudagur | Starfsdagur að
hausti, eða uppskerudagur verður
haldinn í Gamla bænum í Laufási á
laugardag, 16. október frá kl. 14–16.
Ýmislegt verður aðhafst í Gamla
bænum, m.a. sláturgerð, sviðnir
verða hausar og lappir, grasamjólk
verður mallandi á hlóðum og fá gest-
ir að bragða á því hnossgæti, sem og
á nýju slátri, kæfu, fjallagrasabrauði
o.fl. Tóvinna verður í baðstofu. Smá
markaður verður starfræktur, þar
sem boðið verður upp á grænmeti,
kartöflur, reyktan lax, harðfisk og
ýmis konar handverk. Einar og
Haukur sjá um tónlistarflutning.
Veitingar verða seldar í Gamla
prestshúsinu.
Leir og skartgripir
MARGRÉT Jónsdóttir leirlistakona
og Ásdís Frímannsdóttir gullsmiður
opna sameiginlega sýningu á verkum
sínum í galleríi Margrétar við Gránu-
félagsgötu 48 á Akureyri, en sýningin
verður opin frá 16. til 24. október.
Margrét sýnir leirmuni, einkum
kertastjaka, en Ásdís skartgripi af
margvíslegum toga, hálsfestar,
hringa, eyrnalokka, nælur og fleira.
Margrét og Ásdís eru Akureyringar
og hefur sú fyrrnefnda starfað í bæn-
um um árabil þar sem hún hefur sýnt
og kynnt list sína. Ásdís lærði á Ak-
ureyri og í Kaupmannahöfn, en hún
hefur búið ytra síðastliðin 13 ár og
rekur verkstæði í miðborginni. Hún
hefur ekki áður sýnt verk sín heima á
Íslandi, en margir hafa eflaust rekist
inn á verkstæði hennar í Kaupmanna-
höfn. Bæjarbúum gefst nú kostur á að
skoða verk hennar í heimabyggð
næstu daga. Sýningin verður opin
daglega frá kl. 14 til 18.
Hagsmunamál eldri borgara |
Stjórn Félags eldri borgara á Ak-
ureyri hefur sent frá sér yfirlýsingu í
tengslum við mótmæli og undir-
skriftalista gegn fyrirhugaðri bygg-
ingu á Baldurshagareit. Í henni segir
að lengi hafi verið á dagskrá hjá fé-
laginu að fá viðunandi aðstöðu fyrir
starfsemi sína, en núverandi félags-
heimili að Lundargötu 7 sé með öllu
ófullnægjandi enda elsti hluti þess
110 ára gamall. Í tengslum við íbúða-
byggingu á Baldurshagareitnum er
gert ráð fyrir að byggt verði hús er
gæti orðið framtíðaraðstaða fyrir Fé-
lag eldri borgara og telur stjórn þess
að um ákjósanlega staðsetningu sé að
ræða, bæði fyrir íbúa hússins sem er
hugsað fyrir eldri borgara og eins
vegna nálægðar við miðbæinn. „Þetta
er eitt mesta hagsmunamál félagsins
til margra ára og deilan um hæð og
útlit íbúðarhússins má ekki verða til
þess að útiloka þennan möguleika,“
segir í yfirlýsingu stjórnarinnar.
Skák | Haustmót Skákfélags Ak-
ureyrar hefst á sunnudag, 17. októ-
ber kl 14. Teflt verður í húsnæði
Skákfélagsins í Sunnuhlíð og eru all-
ir velkomnir.
Sýning um Nonna | Úr Fjörunni
til fjarlægra landa er heiti á sýningu
sem forseti Íslands, opnar í Amts-
bókasafninu á Akureyri á laugardag,
16. október, kl. 16. Þann dag eru 60
ár liðin frá því Nonni lést. Á sýning-
unni má sjá eitt og annað sem teng-
ist lífi og störfum rithöfundarins og
jesúítaprestsins Jóns Sveinssonar,
Nonna. Sýningin er samvinnuverk-
efni Nonnahúss og Amtsbókasafns-
ins. Hún stendur til 11. nóvember.
FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokks í
borgarráði styðja ýmsar af þeim til-
lögum að breytingum á stjórnkerfi
borgarinnar sem meirihluti R-lista
lagði fram í borgarráði í gær, en
leggjast alfarið gegn ákveðnum til-
lögum, sérstaklega þó því að emb-
ætti borgarlögmanns og borgarrit-
ara verði lögð niður.
„Sporin hræða. Sú staðreynd
liggur fyrir að R-listinn hefur á sín-
um valdatíma í borginni nokkuð oft
gert breytingar á stjórnkerfi borg-
arinnar, sem margar hafa ekki
gengið eftir og oft verið horfið frá
upphaflegum áætlunum,“ segir Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarráði.
Vilhjálmur segir sjálfstæðismenn
styðja sumar af þeim breytingum
sem eru í tillögunum, til að mynda
sameiningu fræðsluráðs og leik-
skólaráðs, og það að fyrirtækið Afl-
vaki verði lagt niður.
Engin viðhlítandi rök
Vilhjálmur telur fráleitt að
leggja niður embætti borgarlög-
manns og borgarritara, enda hafi
engin viðhlítandi rök verið færð
fyrir þeirri breytingu. „Eins teljum
við mjög sérkennilegt að nýstofn-
uðu umhverfissviði sé falið að móta
stefnu í samgöngumálum og al-
menningssamgöngum, sem hefur
verið verkefni skipulagsráðs,
skipulagsnefndar og embættis
borgarverkfræðings – sem nú er
kallað framkvæmdasvið.“
Hætt var við að sameina íþrótta-
og tómstundaráð við menningar-
málanefnd, og segir Vilhjálmur það
vel. „Að vel athuguðu máli, eftir
samtöl við fulltrúa í menningar- og
íþróttageirunum, var niðurstaða
okkar sú að ekki væri rétt að sam-
eina þetta,“ segir Vilhjálmur, en
sjálfstæðismenn studdu upphaflega
hugmyndir um þessa sameiningu.
„Sporin hræða“