Morgunblaðið - 15.10.2004, Blaðsíða 26
Kínverjar voru fyrstir til að leggja sér þetta sérstaka grænmeti til munns.Reyndar greinir menn á um hvort eggaldin sé grænmeti eða ávöxtur enKínverjar ræktuðu eggaldin upphaflega til skreytinga í veislum. Þeir köll-
uðu eggaldin „brjáluð epli“ og höfðu þá trú að ekki þyrfti að bíta nema einn
bita til að menn ærðust. En íbúar Miðjarðarhafslanda bitu
óhræddir í eggaldin og þaðan eru margir góðir
eggaldinréttir. „Eggaldin er stór þáttur í
ýmsum réttum frá mörgum löndum,“
segir Valentína. „Nægir að nefna
Ratatouille, sem er frá
Frakklandi, Moussaka
frá Grikklandi og ýmsa
indverska karrírétti.
Eggaldin kemur víða
við enda þykir það
skemmtilegt undir
tönn, gefa góða fyll-
ingu og það má
nota á ýmsa vegu
en það er ekki sér-
lega næringarríkt.“
MATARKISTAN
Eggaldin kemur víða
við í þekktum réttum
Morgunblaðið/Golli
Eggaldin: Valentína Björnsdóttir og Karl Eiríksson með mismunandi og spennandi rétti.
Hvernig er best að matreiða eggaldin og hvaðan er það?
Kristín Gunnarsdóttir leitaði til Valentínu Björnsdóttur og
Karls Eiríkssonar hjá Móður náttúru en þau eru uppfull af
fróðleik um eggaldin og uppskriftum af spennandi réttum.
26 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Flottur forrréttur
Fyrir sex.
Setjið vænan hrauk af fallegu grænu
salati á disk. Stráið yfir smásalti og
malið pipar yfir. Hellið nokkrum
dropum af góðri ólífuolíu út á og
kreistið sítrónusafa yfir.
Setjið 1 ískúluskeið af réttinum á
mitt salatið og berið fram með döðl-
um og heitu brauði.
Eggaldin með parmesan
2 eggaldin
salt
ólífuolía
1 meðallaukur, sax-
aður
2 hvítlauksrif
2 dós tómatar
1 tsk. tómatpúré
handfylli af basil, gróft
saxað
svartur pipar
salt
200 g Mozzarellaostur
í vatni
fullt af parmesan.
nokkur basilblöð
Sneiðið eggaldinið langsum í 1 cm
þykkar sneiðar, saltið báðum megin
og látið standa í 1 klst.
Hitið olíu í potti og steikið laukinn
þar til hann brúnast aðeins, bætið þá
hvítlauknum, tómötunum og tómat-
púré út í saltið og látið malla í ½ klst.
Setjið basil út í og látið malla áfram í
rólegheitunum, smakkið til með salti
og svörtum pipar.
Þerrið vökvann af eggald-
ininu, og steikið sneið-
arnar upp úr olíu á
vel heitri pönnu,
ath! það þarf svolít-
ið mikla olíu í steik-
inguna. Gott er að
leggja sneiðarnar á
eldhúspappír eftir
steikinguna.
Setjið þunnt lag af tómatsósunni í
botninn á eldföstu fati. Raðið eggald-
insneiðum ofan á. Setjið þunnt lag af
mozzarella-osti, slatta af parmesan
og 3–4 basilblöð, þá lag af tómatsós-
unni og síðan koll af kolli þar til allt
hráefnið er búið.
Passar vel í meðalstórt eldfast
mót.
Bakað í ofni í 25 mín. við170°. Lát-
ið standa í 15 mín.
Borið fram með brakandi fersku
grænu salati.
Eggaldin af fingrum fram
Aðalréttur fyrir 2–3 eða forréttur
fyrir um það bil sex.
1 eggaldin skorið þversum í 1 cm
þykkar sneiðar, saltað báðum megin
og látið standa í 1 klst.
olía
1 laukur sneiddur
kanill á hnífsoddi
2–3 þræðir saffran mulið á milli
fingra
¼ tsk. engiferduft
5 meðalstórir tómatar í bitum
1 bolli soðnar kjúklingabaunir
2 msk. appelsínusafi
1 msk. sítrónusafi
salt og svartur pipar
1 lítill rauðlaukur
3 msk. ferskur kóríander
Steikið laukinn í potti, stráið kanil
yfir engifer og saffran, hræið í og
setjið tómatana strax út í, hrærið öllu
saman. Bætið út í kjúklingabaunum,
appelsínu- og sítrónusafa. Smakkið
til með salti og pipar. Í lokin er svo
rauðlauk og ferskum kóríander bætt
saman við.
Þerrið allan vökva af eggaldin-
sneiðunum og steikið þær báðum
megin á vel heitri pönnu upp úr
olíu. Leggið sneiðarnar á
eldhúsbréf og látið
þær kólna aðeins.
Skerið þær í bita og
setjið út í baunarétt-
inn.
Kælið ef nota á
réttinn sem forrétt.
Bagar Baingan
Þessi réttur er ættaður frá indverska
veitingahúsinu Rasa í London.
2 eggaldin, skorin í 2,5 cm teninga
sett í salt vatn og látið liggja í 30
mín.,
skolað og þerrað.
1 msk. malað kór-
íanderfræ
¼ tsk. rautt chilliduft
3 msk. olía
1 laukur grófskorinn
2 stk. grænn chilli
200 ml hrein jógúrt
30 g kókosmjöl
1 tsk. svört sinnepsfræ
10 karrílauf (fást í austurlenskum
búðum)
25 g ósaltar cashew-hnetur
2 msk. matreiðslurjómi
salt
Hitið 1 msk. af olíu á pönnu og
steikið laukinn og græna chilliið þar
til laukurinn brúnast.
Takið af hitanum og látið kólna.
Setjið það síðan í matvinnsluvél
ásamt möluðu kóríander, chilli-dufti,
kókosmjöli og jógúrt. Maukið allt vel
saman.
Hitið 2 msk. af olíu í víðum potti,
setjið sinnepsfræin og karrílaufið út í
þegar sinnepsfræin byrja að poppa,
bætið þá eggaldininu saman við, salt-
ið og steikið í um 10 mín. þar til egg-
aldinið er orðið fallega brúnt og byrj-
að að mýkjast.
Bætið lauk og kryddsósunni út í
pottinn og látið krauma á lágum hita
í um 10 mín.
Setjið cashew-hneturnar og mat-
reiðslurjómann í matvinnsluvél og
maukið saman svo úr verði mjúkt
krem.
Eggaldinrétturinn borinn fram í
skál með cashew-rjómanum yfir.
Gott er að bera fram með réttinum
basmati-hrísgrjón, nan-brauð og
sterkt chutney.
krgu@mbl.is
http://www.thegutsy-
gourmet.net/eggplant.html
Eggaldin af fingrum fram.
Eggaldin með parmesan.
Bagar Baingan.