Morgunblaðið - 15.10.2004, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞINGFLOKKUR Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs hefur lagt
fram frumvarp á Alþingi um breyt-
ingu á lögum um tekjustofna sveitar-
félaganna. Frumvarpið felur í sér að
heimildir sveitarfélaganna til álagn-
ingar útsvars verði rýmkaðar um eitt
prósentustig, þ.e. úr 13,03% í 14,03%.
Á blaðamannafundi í gær þar sem
frumvarpið var kynnt, kom fram að
það er flutt í beinum tengslum við
boðuð áform ríkisstjórnarinnar um að
lækka álagningu tekjuskatts um 1%
um næstu áramót. Samanlagt álagn-
ingarhlutfall tekjuskatts og hámarks
útsvarsheimildar héldist því óbreytt,
næði frumvarp Vinstri grænna fram
að ganga.
„Þar af leiðandi yrði hvergi um
skattahækkun að ræða,“ útskýrði
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
VG, á fundinum. „En lækkunin,
hvernig hún yrði, réðist þá af því að
hvaða marki sveitarfélögin nýttu sér
á móti möguleika á hækkun útsvars.“
Samkvæmt upplýsingum Stein-
gríms mun tekjuaukning sveitarfé-
laganna í landinu, ef öll nýttu sér að
fullu hámark útsvarshlutfalls, verða
tæpir fimm milljarðar króna á ári, en
taka verði tillit til ýmissa þátta í því
samhengi.Hann segir að ef 2⁄3 hlutar
sveitarfélaganna myndu nýta sér
heimild til hækkunar myndi tekju-
aukningin samsvara skuldum sveitar-
félaganna á árs grundvelli eða rúmum
þremur milljörðum króna. Tók hann
fram að mjög misjafnt væri hvort
sveitarfélögin nýttu sér að fullu heim-
ildir til útsvars og óvíst hvort önnur
myndu hækka útsvarið, í það minnsta
strax, þrátt fyrir aukið svigrúm. Nú
væru ónotaðar hjá sveitarfélögunum
heimildir til álagningar útsvars sem
nema rúmlega milljarði króna. Benti
hann einnig á að taka verði tillit til
mismunandi stöðu sveitarfélaganna í
þessu samhengi, samspil eigin tekna
þeirra og úthlutunar úr jöfnunarsjóði.
Steingrímur tekur fram að því fari
fjarri að flutningsmenn frumvarpsins
telji það vera allsherjarlausn á fjár-
hagsvanda sveitarfélaganna.
„Okkar skoðun er sú að það sé al-
gjörlega óumflýjanlegt að finna leiðir
til að bæta hag sveitarfélaganna, þó
að fyrr hefði verið því að afkoma
þeirra er óviðunandi. Þau hafa safnað
skuldum og verið rekin með halla í
einn og hálfan áratug.“
Í greinargerð með frumvarpinu
segir að á sveitarfélögunum standi
miklar og vaxandi kröfur um þjón-
ustu, þau hafa tekið við ýmsum nýjum
verkefnum og fengið á herðar sínar
nýjar skyldur, sem ekki hafa fylgt
auknir tekjumöguleikar.
Er færsla grunnskólans til sveitar-
félaga nefnd í því samhengi. Segir að
auki að í ýmsum samstarfsverkefnum
halli á sveitarfélögin með því að ríkið
bindi kostnaðarþátttöku sína við
framlög á fjárlögum sem oftar en ekki
hrökkvi hvergi nærri fyrir því kostn-
aðarhlutfalli sem ríkinu að nafninu til
er ætlað að standa straum af. Eru
húsaleigubætur teknar sem dæmi.
Jón Bjarnason, þingmaður VG,
ræddi á fundinum um jöfnunarsjóð
sveitarfélaganna sem fær tekjur sínar
sem hlutfall af skattheimtu ríkisins.
„Við það að ríkið lækkar einhliða
skattaprósentur sínar, og þar af leið-
andi líka skattinn, þá lækkar sjálf-
krafa framlag í jöfnunarsjóð og kem-
ur þannig aftan að sveitarfélögun-
um,“ sagði Jón.
Á fundinum sagði Steingrímur að
æskilegt væri að staða sveitarfélag-
anna yrði rædd í samhengi við skatta-
breytingar ríkisstjórnarinnar. „Það
væri mjög sérkennilegt ef ríkið telur
sig aflögufært um tekjur og ætlar að
fara að lækka hér skatta og það væri
aldrei minnst á sveitarfélögin.“
Þingflokkur VG leggur fram frumvarp um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga
Mögulegt að hækka útsvarsheimildir
Morgunblaðið/Golli
Þingmenn Vinstri grænna kynntu frumvarp um breytingar á lögum um
tekjustofna sveitarfélaganna á fundi með fjölmiðlum í gær.
SEX þingmenn hafa lagt fram á
Alþingi frumvarp um breytingar á
upplýsingalögum, á þann veg að al-
menningur hafi aðgang að gögnum
um einka- eða fjárhagsmálefni ein-
staklinga, sem tekið hafa sæti í
nefndum, ráðum og stjórnum á
vegum ríkis og sveitarfélaga.
Fyrsti flutningsmaður frumvarps-
ins er Jóhanna Sigurðardóttir,
Samfylkingu.
„Í frumvarpi þessu er lagt til að
sú regla 5. gr. upplýsingalaga að
óheimilt sé að veita almenningi að-
gang að gögnum um einka- eða
fjárhagsmálefni einstaklinga sem
sanngjarnt er og eðlilegt að leynt
fari, nema sá samþykki sem í hlut
á, taki ekki til þeirra sem tekið
hafa sæti í nefndum, ráðum og
stjórnum á vegum ríkis og sveitar-
félaga,“ er útskýrt í greinargerð.
Þar segir að forsaga málsins sé
sú að úrskurðarnefnd um upplýs-
ingamál hafi í júlí sl. staðfest
ákvörðun forsætisráðuneytisins um
að synja kæranda um aðgang að
lista yfir greiðslur til þeirra sem
sátu í nefndum, stjórnum og ráðum
á vegum ríkisins 2001–2003.
„Beiðni kæranda kom í framhaldi
af fyrirspurn til forsætisráðherra
um nefndir, ráð og stjórnir á veg-
um ríkisins,“ segir í greinargerð.
„Í svari forsætisráðherra var ein-
göngu tilgreindur fjöldi þeirra ein-
staklinga sem áttu sæti í fleiri en
tíu nefndum, en nöfn þeirra ekki
látin uppi.“
Leynd valdi grunsemdum
Flutningsmenn segja m.a. í
greinargerð að almenningur eigi að
eiga þess kost að fylgjast með því
sem stjórnvöld hafist að. „Flutn-
ingsmenn leggja áherslu á að sem
flestar athafnir stjórnvalda, sem og
kostnaður við þær, eigi að vera al-
menningi ljósar. Leynd varðandi
slík mál er til þess eins fallin að
valda grunsemdum og ýta undir
tortryggni gagnvart stjórnsýslunni.
Með því að stjórnsýslan starfi fyrir
eins opnum tjöldum og mögulegt
er eru stoðir hennar styrktar,
traust byggt upp og tortryggni
eytt.“
Meðflutningsmenn Jóhönnu eru:
Ögmundur Jónasson, Vinstri græn-
um, Pétur H. Blöndal, Sjálfstæð-
isflokki, Gunnar Örlygsson, Frjáls-
lynda flokknum, Jónína Bjartmarz,
Framsóknarflokki og Ágúst Ólafur
Ágústsson, Samfylkingu.
Vilja upp-
lýsa al-
menning
um fjármál
ALGENG bið eftir því að komast til
geðlæknis er þrír til fimm mánuðir,
sagði Ásta R. Jóhannesdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, málshefj-
andi umræðunnar um geðheilbrigð-
ismál á Alþingi í gær. „Nú bíða 380
manns með geðrænan vanda eftir
meðferð á Reykjalundi. Biðin þar er
rúmlega eitt ár, hún er raunar lengri,
vegna þess að læknar eru hættir að
setja fólk á biðlistann. Staða heim-
ilislausra mikið geðveikra einstak-
linga, sem eru 20 til 30 hér á höf-
uðborgarsvæðinu, er afleit. Þeir
velkjast um í kerfinu án úrlausnar.
Þeir eru hættulegir sjálfum sér og
öðrum. Við sjáum þetta fólk hér úti á
Austurvelli nánast daglega. Svo er
það Barna- og unglingageðdeildin
þar sem aldrei jafn margir hafa beðið
eftir þjónustu. Níutíu bíða eftir mati
og meðferð. Sex til átta mánaða bið
er eftir leguplássi. Þar bíða um þrjá-
tíu börn og unglingar og hátt í hundr-
að bíða eftir félagsfærni- og einstak-
lingsþjálfun. Þar er biðin tvö ár,“
sagði þingmaðurinn og bætti við:
„Þetta ástand getur haft varanlegar
og alvarlegar afleiðingar fyrir sjúk-
linga og aðstandendur þeirra.“
Ásta sagði að miklar breytingar
hefðu orðið í þjónustu við geðsjúka
hér á landi og að átak hefði verið gert
í því að auka geðheilbrigði. Á hinn
bóginn væri víða pottur brotinn.
„Fólk með geðsjúkdóma þarf að eiga
kost á fjölbreytilegri þjónustu heldur
en einungis geðlæknisþjónustu og
lyfjameðferð.“ Nefndi hún m.a. við-
talsmeðferð hjá sálfræðingi í því
sambandi.
Ásta sagði einnig að geðdeildum
með á annað hundrað rúmum á
Landspítala – háskólasjúkrahúsi
hefði verið lokað á síðustu átta árum
„án þess að nokkuð kæmi í staðinn til
þess að mæta umönnunar- og þjón-
ustuþörf mikið veikra langtíma sjúk-
linga,“ sagði hún. „Fjöldi þeirra er á
vergangi vegna ófullnægjandi með-
ferðar og öryrkjum vegna geðrask-
ana hefur fjölgað verulega eða tvö-
faldast. Og fólk er útskrifað áður en
það getur fótað sig. Á þetta bendir
prófessor Tómas Helgason, fyrrver-
andi yfirmaður geðsviðs Landspítal-
ans, í Morgunblaðinu á dögunum.“
Ítrekaði Ásta að úr þessu þyrfti að
bæta.
Útgjöld aukin
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra lagði m.a. áherslu á að ríkis-
stjórnin hefði leitast við að efla geð-
heilbrigðisþjónustuna á undan-
förnum árum. Hann sagði m.a. að hér
á landi væri boðið upp á fleiri sjúkra-
rúm fyrir geðsjúka en annars staðar.
„Lyfjameðferð er hér meiri og al-
mennari í mörgum greinum en ann-
ars staðar og hér eru fleiri læknar á
hvern mann en annars staðar.“
Hann sagði einnig að útgjöld
vegna geðsviðs LSH hefðu verið auk-
in, einkum til Barna- og unglingageð-
deildarinnar. Þá hefðu útgjöld
Tryggingastofnunar ríkisins vegna
geðlyfja aukist umtalsvert. „Veruleg
aukning hefur orðið á einkastofum
geðlækna utan spítala og ítrekað hef-
ur verið gripið til sérstakra aðgerða
til að mæta þörfum þeirra sem eiga
við geðsjúkdóma að stríða.“
Ráðherra sagðist hafna fullyrðing-
um um að hundruð manna ráfi um
götur höfuðborgarinnar án þess að fá
viðeigandi meðferð eða úrræði. „Og
það er mér ánægjuefni að geta sagt
frá því hér að um áramótin tekur til
starfa ný sérhæfð deild fyrir þá ein-
staklinga sem gætu verið hættulegir
sjálfum sér og umhverfi sínu og notið
hafa þjónustu annars staðar. Geðsvið
LSH mun annast rekstur deildarinn-
ar og henni verður komið fyrir á
Kleppsspítala.“
Fjölbreytileg úrræði
Ráðherra lagði einnig áherslu á að
geðsjúkdómar væru margvíslegar og
að aðstæður einstaklinga væru mis-
munandi. Mikilvægt væri að hafa
hugfasta nauðsyn fjölbreytilegra úr-
ræða. „Fyrir utan að standa vel að
rekstri hinna hefðbundu geðdeilda
og tryggja með því hefðbundin úr-
ræði, sem gert hefur verið, er því af-
ar brýnt að hlúa að því sérstaklega
sem verið er að gera utan þess sem
hefðbundið gæti talist. Á þetta höfum
við lagt áherslu undanfarin misseri.
Við erum hér að tala um mjög fjöl-
breytilegan hóp sjúklinga og við höf-
um verið að bregðast við því með því
að sníða meðferðarúrræðin að fjöl-
breytilegum þörfum sjúklingahóps-
ins, auk þess að leggja áherslu á að
gera geðsjúkum kleift að búa við eðli-
legar aðstæður úti í samfélaginu.“
Fleiri þingmenn tóku þátt í um-
ræðunni. Ásta Möller, varaþingmað-
ur Sjálfstæðisflokks, sagðist þeirrar
skoðunar að stjórnvöld hefðu um
langt árabil rekið of einhæfa stefnu í
málefnum geðsjúkra. Sagði hún að
tilraunir hefðu þó verið gerðar, á síð-
ustu árum, til að rétta kúrsinn, ekki
síst fyrir frumkvæði notenda geð-
heilbrigðisþjónustunnar og aðstand-
enda þeirra. „Við höfum í allt of rík-
um mæli lagt áherslu á stofnana-
þjónustu fyrir geðfatlaða,“ sagði hún.
„Geðfatlaðir vilja hafa möguleika á
að búa utan stofnana í sjálfstæðri bú-
setu með stuðningi samfélagsins ef
þess er þörf.“
Sigurjón Þórðarson, þingmaður
Frjálslynda flokksins, sagði að geð-
sjúkdómar snertu fjölmarga í sam-
félaginu. Ekki einungis þá sem veikt-
ust heldur einnig aðstandendur
þeirra. „Það má öllum vera ljóst að
stjórnvöld verða að sinna þessum
málaflokki mun betur en gert er. Það
er nauðsynlegt að bregðast við vanda
þeirra nokkur hundruð sjúklinga,
bæði barna og fullorðinna, sem bíða
eftir heilbrigðisþjónustu.“
Samið verði við sálfræðinga
Guðrún Ögmundsdóttir, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, kallaði m.a.
eftir því að gengið yrði frá samning-
um við sálfræðinga og félagsráðgjafa
hjá Tryggingastofnun ríkisins.
Jónína Bjartmarz, þingmaður
Framsóknarflokksins, sagði m.a. að
framlög til geðheilbrigðismála sýndu
að ekki væri hægt að tala um nið-
urskurð í þeim málaflokki en Ög-
mundur Jónasson, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, sagði að við stæðum okkur
ekki vel í þessum efnum. Það kæmi
að minnsta kosti ekki heim og saman
við þá staðreynd að mörg hundruð
einstaklingar væru á biðlista eftir því
að komast í viðtal hjá lækni. Þuríður
Backman, þingmaður Vinstri-
grænna, sagði m.a. að sárast vantaði
þjónustu utan sjúkrahúsanna, þjón-
ustu sem tengdist heilsugæslunni og
félagsþjónustunni.
Katrín Fjeldsted, varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði m.a. að
veikindi geðsjúkra væru oft þannig
að þeir leituðu ekki endilega eftir
hjálp. „Og ráðþrota aðstandendur
vita ekki alltaf hvert þeir geta leitað.
Í stað þess að gengið sé milli Pontíus-
ar og Pílatusar þarf að einfalda stýri-
kerfið.“
Undir lok umræðunnar sagði Guð-
mundur Árni Stefánsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, m.a. að það væri
til skammar hvernig búð væri að geð-
fötluðum í þessu samfélagi.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokks, sagði á hinn bóg-
inn alrangt að staðið hefði verið illa
að málefnum geðsjúkra. Til dæmis
væru hér fleiri sjúkrarúm fyrir geð-
sjúka en annars staðar.
Þingmenn ræða um geðheilbrigðismál utan dagskrár á Alþingi
Fjölbreytileg úrræði mikilvæg
Morgunblaðið/Sverrir
Margir komu á þingpalla til að fylgjast með umræðu um geðheilbrigðismál.
Efla þarf þjónustu við geðsjúka utan stofnana. Þetta
var meðal þess sem fram kom í máli þingmanna, er
ræddu geðheilbrigðismál, utan dagskrár á Alþingi í
gær. Heilbrigðisráðherra tók í sama streng.
380 manns með geðrænan vanda
bíða eftir meðferð á Reykjalundi