Morgunblaðið - 15.10.2004, Síða 14
Fá
ðu
se
nd
ing
un
a
sa
m
dæ
gu
rs
m
eð
P
ós
tin
um
He
fur
þú
ef
ni
á a
ð b
íða
til
m
or
gu
ns
?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IS
P
23
96
1
1
0/
20
04
FJÁRFESTINGAR Íslendinga í
Bretlandi eru til umfjöllunar í bresk-
um fjölmiðlum eftir að fréttist að
Landsbanki Íslands hefði reynt að
gera tilboð í breska fjárfestingar-
bankann Numis.
Í The Guardian segir að í yfirtöku-
vangaveltum fjármálasérfræðinga í
London í gær hafi íslensk fyrirtæki
verið miðpunkturinn.
Guardian fjallar um orðróm þess
efnis að KB banki geri yfirtökutilboð
í breska bankann Singer & Fried-
lander, þar sem hann á fyrir 20%
hlut, og tilboð Landsbankans í Num-
is sem hafi reyndar verið hafnað.
Jafnframt er fjallað um tengsl Burð-
aráss og Landsbankans og 10% eign-
arhlut Burðaráss í Singer & Fried-
lander. Og vitanlega eru fjárfest-
ingar Baugs í Bretlandi tíndar til.
Haft er eftir sérfræðingum á ís-
lenskum fjármálamarkaði að áhugi
íslenskra fyrirtækja á breskum ætti
ekki að koma á óvart. Íslenski fjár-
málamarkaðurinn hafi vaxið hratt og
þar séu takmarkaðir vaxtarmögu-
leikar. Lykillinn að frekari vexti sé
því erlendis. Ástæður útrásarinnar
rekur FT m.a. til styrks efnahags-
ástands á Íslandi en hagvöxtur hafi
hér verið yfir 4% á ári.
Innrás Íslendinga
á Bretlandsmarkað
14 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ARTHUR Bogason, formaður
Landssambands smábátaeigenda,
varar við afskiptum sjálfskipaðra
afla sem berjast gegn fiskimönnum
með órökstuddum upplýsingum og
vilja m.a. banna botntrollsveiðar.
Telur hann mikilvægt að efla rann-
sóknir á umhverfisáhrifum veiðar-
færa. Þetta kom fram í setningar-
ræðu hans á aðalfundi sambandsins
í gær.
Arthur fór m.a. í ræðu sinni yfir
aðdraganda og framkvæmd línu-
ívilnunar fyrr á þessu ári. Hann lýsti
vonbrigðum sínum með framkvæmd
ívilnunarinnar en sagði það þó hafa
komið á afar góðum tíma fyrir sjáv-
arútvegsráðherra. Aðeins fáeinum
mánuðum eftir lögfestingu hennar
hafi birst auglýsingar víða í Evrópu
frá stærsta fyrirtæki heims í sölu
matvara, alþjóðafyrirtækinu Carr-
efour, þar sem því var lýst að sam-
starfsaðilar þeirra á Íslandi stund-
uðu eingöngu línuveiðar og þar með
stuðlaði Carrefour að verndun nátt-
úruauðlinda og sjálfbærri nýtingu.
Arthur spáði því hinsvegar að
átökum varðandi þetta fyrirkomulag
væri hvergi nærri lokið. „Stórút-
gerðin hatast út í það og mun neyta
allra færa til að fá línuívilnun af-
numda. Þar á bæ er sú skoðun
ríkjandi að engu skipti hvaða veið-
arfærum sé beitt til veiðanna.“
„Sjálfskipaðar
björgunarsveitir“
Sagði Arthur að þessi afdráttar-
lausa afneitun gæti átt eftir að koma
útgerðinni, og þjóðinni, í koll og vís-
aði til tillögu um alþjóðlegt bann við
notkun botnvörpu sem nú er til um-
fjöllunar hjá Sameinuðu þjóðunum.
„Það er óumflýjanleg staðreynd, að
æ fleiri telja sig þess umkomna að
fjalla um málefni hafsins og fiskveið-
anna, jafnt af aðilum sem eru til
þess prýðilega menntaðir sem og
öðrum með fátæklegar upplýsingar
og knúna af öllum öðrum hvötum en
að vilja hag þeirra bestan sem
byggja lifibrauð sitt á fiskveiðum,“
sagði Arthur. Hann sagði stundum
væri líkast því að þessar sjálfskip-
uðu björgunarsveitir jarðarinnar
hefðu ekkert annað fyrir stafni í líf-
inu en að segja fiskimönnum hversu
miklir skaðræðisgripir þeir séu.
Hann varaði hinsvegar við því að
vanmeta afl þessara hópa. „Tillagan
sem liggur fyrir Sameinuðu þjóðun-
um er vissulega komin frá smáríki,
sem reyndar er 13 sinnum fjölmenn-
ari þjóð en Íslendingar, en uppruna
tillögunnar má rekja beint til vís-
indasamfélagsins og umhverfissam-
taka. Fyrr á þessu ári rituðu hvorki
fleiri né færri en 1.100 sjávarlíffræð-
ingar undir yfirlýsingu þess efnis að
banna skyldi notkun botnvörpunn-
ar.“
Rifjaði Arthur upp og ítrekaði
fyrri áskoranir LS til viðkomandi
stofnana og stjórnvalda að efla
rannsóknir á umhverfisáhrifum
veiðarfæra. „Það er snautleg staða
hjá þjóð sem telur sig þess um-
komna að segja öðrum fyrir verkum
í stjórnun fiskveiða, að hún skuli
verða ber að því að hafa dregið lapp-
irnar í jafn mikilvægum þætti rann-
sókna á lífríki hafsins,“ sagði Arthur
Bogason.
20. aðalfundur Landssambands smábátaeigenda
Áhrif veiðarfæra
verði rannsökuð
Morgunblaðið/Alfons
ÚR VERINU
MARGIR muna eflaust eftir mynd-
inni The Insider frá árinu 1999 þar
sem Russel Crowe lék dr. Jeffrey
Wigand, manninn sem fletti ofan af
blekkingarstarfsemi tóbaksiðnaðar-
ins, en myndin var tilnefnd til sjö
Óskarsverðlauna á sínum tíma. Nú
gefst áhugasömum tækifæri á að
hlýða á Wigand því hann heldur op-
inn fyrirlestur á Nordica Hotel í dag
kl. 15.30 á vegum Lýðheilsustöðvar,
en Wigand hefur á síðustu árum ein-
mitt ferðast um heiminn og haldið
fjölda fyrirlestra um skaðsemi tób-
aks og tóbaksiðnaðinn.
Wigand vakti heimsathygli á sín-
um tíma þegar hann kom fram í
fréttaskýringaþætti CBS, 60 mínút-
um, og ljóstraði því upp að tóbaks-
fyrirtækin hefði áratugum saman
leynt því fyrir almenningi hversu
hættulegar reykingar eru.
Eftir að Wigand fór að gagnrýna
tóbaksfyrirtækin varð hann um tíma
að ráða sér lífvörð því forráðamenn í
tóbaksiðnaðinum gerðu allt hvað
þeir gátu til að ráða hann af dögum.
Sjálfur segist Wigand ekki iðrast
neins, því hann taldi að sér bæri sið-
ferðileg skylda til að fletta ofan af
blekkingastarfsemi tóbaksiðnaðar-
ins. „Tóbaksfyrirtækin græða stórfé
á saklausu fólki með því að ljúga að
því að reykingar séu hættulausar
þótt þeir viti betur. Þannig héldu
þeir því t.d. leyndu í rúma þrjá ára-
tugi að óbeinar reykingar væru
hættulegar þó vitað væri að af þeim
400 þúsund manns sem árlega deyja
í Bandaríkjunum deyi allt að 60 þús-
und einstaklingar vegna óbeinna
reykinga.“
Ekki öruggar heilsu manna
Í fyrirlestri sínum í dag segist
Wigand, auk sannleikans um óbeinar
reykingar, ætla að fjalla um hvers
vegna nikótínið nær slíku taki á fólki
og raun er og hvort til séu „öruggar“
sígarettur. „Á síðustu árum hafa tób-
aksfyrirtækin einmitt farið í það að
búa til það sem þeir kalla „öruggari“
sígarettur. Rannsóknir sýna vissu-
lega að hægt er að gera ýmsar ráð-
stafanir til að draga úr skaðlegum
áhrifum þeirra tæplega 8 þúsund
hættulegra efna sem losna úr læð-
ingi þegar kveikt er í sígarettu. Hins
vegar sýna rannsóknir líka að þótt
hægt sé að gera sígarettur „örugg-
ari“ í þessum skilningi þá verða þær
samt aldrei öruggar heilsu manna.“
Morgunblaðið/Golli
Jeffrey Wigand (annar frá hægri) ásamt starfsfólki Lýðheilsustöðvar. Frá
vinstri eru Bryndís Kristjánsdóttir, Viðar Jensson, Wigand og Anna Elísa-
bet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar.
Segir tóbaksfyr-
irtæki blekkja
NÝR flugskóli, Flugskóli
Reykjavíkur, tekur til starfa á
mánudag og býður hann flug-
nemum að taka stærstan hluta bók-
lega námsins í fjarnámi. Einnig
mun skólinn bjóða hefðbundna bók-
lega kennslu á kvöldin.
Hafsteinn Þorsteinsson, flug-
maður og flugkennari, er eigandi
og flugrekstrastjóri skólans og
tveir aðrir flugmenn starfa með
honum að kennslunni. Hann kenndi
áður hjá Flugsýn og segir hann að
mikill áhugi sé á flugnámi um þess-
ar mundir, hann sé þegar með 53 á
skrá og af þeim muni 10 hefja nám-
ið í fullri alvöru, aðrir muni gera
það í minni skrefum með annarri
vinnu.
„Skólinn hefur verið tvö ár í und-
irbúningi og hann hefur m.a. falist í
því að skrifa yfir 400 blaðsíðna
flugrekstrarhandbók og þjálf-
unarhandbók,“ segir Hafsteinn og
bætir við að rekstur skólans sé
byggður á Evrópureglum um flug-
skóla og skólinn hafi fengið skrán-
ingu Flugmálastjórnar Íslands.
Bóklegt námskeið til einkaflug-
prófs tekur 150 tíma og segir Haf-
steinn að taka megi 130 tíma í fjar-
námi en hitt verði kennt á tveimur
helgum. Bóklega námskeiðið kost-
ar 109 þúsund sé það tekið í fjar-
námi en 125 þúsund með hefð-
bundnu sniði.
Flugskóli Reykjavíkur er til húsa
í Fluggörðum 26 á Reykjavík-
urflugvelli. Til verklegu kennsl-
unnar er notuð vél af gerðinni
Cessna 172 en skólinn á einnig
tveggja hreyfla Partenavia-vél sem
leigð verður út.
Nokkrir flugskólar eru í landinu,
þ.e. Flugskóli Íslands, Flugskóli
Reykjavíkur, Flugskóli Helga Jóns-
sonar, Flugskóli Akureyrar og
flugfélagið Geirfugl.
Morgunblaðið/Þorkell
Nýr flugskóli
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands lækkaði í gær fjórða daginn í
röð. Lokagildi hennar var 3.849,13
stig og var lækkunin frá deginum áður
0,3%. Lækkunin frá því í lok síðustu
viku er 2,5%.
Viðskipti í Kauphöllinni námu 12,1
milljarði króna. Þar af voru viðskipti
með hlutabréf fyrir rúma 2,3 milljarða.
Mest viðskipti voru með bréf KB
Banka, fyrir liðlega 500 milljónir, og
hækkaði gengi þeirra um 1,0%. Mest
hækkun var á bréfum Granda, 5,4%,
en bréf Straums fjárfestingarbanka
lækkuðu mest, eða um 3,0%.
Eins og hér á landi þá lækkuðu
hlutabréfavísitölur almennt bæði
austan hafs og vestan í gær. Í erlend-
um fjölmiðlum er lækkunin að stórum
hluta rakin til ástandsins á olíu-
mörkuðum. Dow Jones hefur ekki ver-
ið lægri í tvo mánuði.
Lækkun í Kauphöll
Íslands fjórða
daginn í röð
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
NORÐURLÖNDIN einkennast af
framúrskarandi þjóðhagsstjórnun,
afar lítilli spillingu, lagaumhverfi fyr-
irtækja þar sem almenn virðing er
borin fyrir samningagerð og lögun-
um, auk þess sem einkafyrirtæki í
löndunum eru í fremstu röð hvað
varðar tækniframfarir. Þetta segir
Augusto Lopez-Claros, forsvarsmað-
ur rannsóknar World Economic For-
um á samkeppnishæfni hagkerfa í
heiminum, í The New York Times í
gær.
Í blaðinu er fjallað um góða útkomu
Norðurlandanna í könnun á sam-
keppnishæfni landa, sem og í úttekt
Alþjóðabankans á hversu auðvelt er
að stofna fyrirtæki í hverju landi um
sig.
Niðurstöður fyrri skýrslunnar
leiddu í ljós að Finnland, Svíþjóð,
Danmörk, Noregur og Ísland eru
meðal tíu samkeppnishæfustu landa
heims. Í hinni síðarnefndu voru Dan-
mörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð
meðal þeirra tíu landa þar sem auð-
veldast er að stofna fyrirtæki. Ísland
var ekki með í þeirri könnun.
„Við getum gleymt hinni stöðluðu
ímynd af jafnaðarstefnu Norður-
landanna, hvernig háir skattar og
kostnaðarsamt velferðarkerfi séu að
eyðileggja einkaframtakið,“ segir í
The New York Times. Og haft er eftir
einum höfunda skýrslu Alþjóðabank-
ans, Caralee McLeish, að goðsögnin
um að félagsleg vernd kalli á meira
regluveldi, sem skaði fyrirtækin, sé
ekki á rökum reist. „Niðurstöður okk-
ar benda til hins gagnstæða, þ.e. að
félagsvernd komi viðskiptalífinu til
góða. Ábyrgð og kostnaður af velferð
einstaklinganna er þá ekki hjá fyrir-
tækjunum auk þess sem þeim er
tryggður aðgangur að vel þjálfuðu og
menntuðu vinnuafli.“
Norðurlöndin fram-
arlega í viðskiptum
● HAFIN er birting á viðskiptafrétt-
um á ensku frá fréttaveitunni Hugin
á viðskiptavef mbl.is. Um er að
ræða fréttir sem helstu fyrirtæki á
Norðurlöndunum senda frá sér á
ensku.
Þá er einnig hafin birting á frétt-
um úr Morgunkorni Greiningar Ís-
landsbanka með sama hætti og
birtar eru fréttir úr fréttakerfi Kaup-
hallar Íslands og úr ½5 fréttum KB
banka.
Aukin þjónusta á
viðskiptavef mbl.is