Morgunblaðið - 15.10.2004, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Í FRÉTTUM Morgunblaðsins nú ný-
verið leggur listamaðurinn Yoko Ono,
ekkja Johns Lennons, til að reist verði
friðarsúla í Reykjavík.
Yoko Ono vill að friðarsúlan verði
„turn sem varpi ljósi friðarins til allra
þjóða heims“, eins og segir í frétta-
tilkynningu frá Listasafni Reykjavík-
ur.
Hugmyndin er að súlan verði fyllt af
óskum sem fólk hefur skrifað og hengt
á „Óskatréð“, en svo nefnist listaverk
sem Ono hefur sýnt í fjölmörgum
löndum á undanförnum áratug. Hún
hefur varðveitt allar þessar óskir í því
augnamiði að gera þær að hluta af
friðarákalli sínu.
Í tilkynningu Listasafns Reykjavík-
ur segir að borgarstjórn Reykjavíkur
hafi tekið vel í málið. Mun undirbún-
ingur að hönnun súlunnar vera þegar
hafinn. Nú sé leitað að heppilegum
stað fyrir Friðarsúluna í borgarland-
inu en væntanlega rísi hún á næsta ári.
Tillaga að stað
Úlfarsfellið er á mörkum Mosfells-
bæjar og Reykjavíkur. Fjallið er vin-
sælt útivistarsvæði við fagran útivist-
arskóg sem Skógræktarfélag Mos-
fellsbæjar hefur haft veg og vanda af í
nær hálfa öld. Austan við skóginn er
ráðgert að verði kirkjugarður þar sem
friður og kyrrð mun ríkja í næsta ná-
grenni við friðarsúlu Yoko Ono. Af
Úlfarsfelli er mjög víðsýnt, einn besti
útsýnisstaðurinn á öllu höfuðborg-
arsvæðinu og því kjörinn staður til að
vera miðpunktur merks listaverks.
Mig langar til að hvetja hlutaðeig-
andi aðila til að skoða nánar þessa til-
lögu.
Vinsamlegast.
GUÐJÓN JENSSON,
Arnartanga 43,
Mosfellsbæ.
Friðarlistaverk Yoko Ono
Frá Guðjóni Jenssyni, bókasafns-
fræðingi, leiðsögumanni og áhuga-
manni um umhverfismál:
ÞAU ykkar sem greinst hafa með
krabbamein, takið frá laugardaginn
16. október. Og þau ykkar sem
þekkja einhvern sem hefur greinst
með krabbamein, takið daginn líka
frá.
Kraftur, stuðnings-
félag ungs fólks sem
greinst hefur með
krabbamein og að-
standendur, er fimm
ára nú í október. Af
því tilefni ætla félagar
Krafts að ganga sólar-
megin frá Hallgríms-
kirkju, niður Skóla-
vörðustíg, Banka-
stræti og Austurstræti
og enda á Ingólfstorgi.
Þar verða flutt stutt
ávörp og tónlistar-
atriði og þar munum við sleppa
1.000 blöðrum og leitast við um leið
og við sleppum takinu á þeim að
sleppa takinu á óttanum sem teng-
ist krabbameini.
Við vekjum athygli á því að það
eru yfir 8.000 Íslendingar lifandi
eftir að hafa greinst með krabba-
mein. Við hvetjum alla þá sem
tengjast krabbameini á einhvern
hátt að koma og ganga með okkur
sólarmegin frá Hallgrímskirkju
þegar klukkan slær tvö á laug-
ardaginn. Mottó göngunnar er Lífið
er núna. Er lífið ekki þess virði að
við fögnum því andartak, gefum
okkur tíma til þess að staldra við og
gleðjast yfir þessu andartaki sem er
núna? Eftir gönguna býður Kraftur
í afmæliskaffi í Ráðhúsi Reykjavík-
ur.
Kraftur stuðningsfélag var stofn-
að fyrir 5 árum. Stofnfélagar Krafts
voru ungt fólk sem greinst hafði
með krabbamein og vantaði vett-
vang til þess að hittast, deila
reynslu og styðja hvað annað. Á
þessum fimm árum hefur berlega
komið í ljós að þörf er á slíkum fé-
lagsskap, þar sem ungt fólk sem
farið hefur í gegnum meðferð/ir við
krabbameini, býður fram stuðning
sinn fyrir aðra unga einstaklinga
sem eru nýgreindir með þennan
sjúkdóm sem ógnar heilsu þeirra og
lífi allra í fjölskyldunni. Ennfremur
hefur Kraftur leitast við að styðja
aðstandendur þeirra sem greinast.
Við finnum mikið fyrir því að and-
legum stuðningi er ábótavant innan
þess heilbrigðiskerfis sem við búum
við. Einnig eru réttindamál þeirra
sem greinast með krabbamein og
aðstandenda, eitthvað sem verulega
þarf að skoða og samræma. Erfið
reynsla við kerfið bætist ofan á erf-
iða reynslu af sjúkdómi sem oft á
tíðum leiðir af sér rýrari lífsgæði.
Kraftur stuðningsfélag hefur
uppi áform um að bæta þjónustu
við þá sem greinast, en Kraftur er
að skoða möguleikana á því að
stofna sérstaka þjónustu- og upp-
lýsingamiðstöð fyrir fólk sem grein-
ist með krabbamein og aðstand-
endur.
Krabbamein fer ekki í mann-
greinarálit. Það eru engar lífsstíls-
uppskriftir til sem halda krabba-
meini frá. Það eru ekki í boði nein
tryggingarskírteini fyrir lífi án
krabbameins. Árlega greinast 1.100
einstaklingar hér á Íslandi með
krabbamein. Hluti þeirra er ungt
fólk sem er að stíga sín
fyrstu skref á lífs-
brautinni sem full-
orðnir einstaklingar,
er í háskólanámi, er að
eignast börn, kaupa
húsnæði og taka á sig
ævilangar skuldbind-
ingar. Stundum bætist
það, að greinast með
krabbamein, ofan á
aðra erfiðleika. Þegar
krabbamein kemur
upp í fjölskyldu þá
hriktir í stoðum lífsins
og flest það sem ávallt
hefur skipt máli gerir það skyndi-
lega ekki lengur. Krabbamein varp-
ar annars konar sýn á lífið. Þeirri
sýn að hver dagur er ekki sjálfgef-
inn. Að lifa lífinu eins og maður sé
ódauðlegur og hafi allt í hendi sér
verður skyndilega ekki alveg sjálf-
sagt. Og þá er eins og það upp-
ljóstrist að lífið er í raun bara gjöf
eða kannski bara fengið að láni og
enginn hefur vissu fyrir því hvenær
gjalddaginn er. Við erum öll í lottó-
potti lífsins. Sumir vinningarnir eru
eftirsóttir á meðan enginn vill taka
við öðrum, sem þó er einnig út-
hlutað. Eins og Hörður Torfa segir
svo vel í texta sínum: Þú færð ekki
allt sem þú vilt og vilt ekki endilega
allt sem þú færð.
Kraftur er vettvangur ungs fólks
sem greinist með krabbamein. Þó
höfum við engin aldursmörk og
bjóðum alla velkomna til okkar. Við
vonumst ekki eftir að sjá marga fé-
laga, vegna þess að við óskum eng-
um þess að greinast með krabba-
mein. En við hvetjum þá sem
greinast að koma og kynna sér
starfsemi Krafts, við tökum fagn-
andi á móti nýjum félögum, því við
vitum að við getum stutt hvert ann-
að við þurfum einmitt á því að halda
að styðja hvert annað. Í Krafti er
fullt af ungu fólki sem nýtur þess að
vera lifandi, að fá að lifa og taka
þátt í verkefnum daglegs lífs sem
flestum finnast sjálfgefin. Komdu,
hver sem þú ert, og gakktu með
okkur sólarmegin frá Hallgríms-
kirkju niður á Ingólfstorg þegar
klukkan slær tvö laugardaginn 16.
október. Mundu að lífið er núna!
Góðir Íslendingar
Anna Ingólfsdóttir skrifar um
ungt fólk með krabbamein ’Við hvetjum alla þásem tengjast krabba-
meini á einhvern hátt að
koma og ganga með
okkur sólarmegin …‘
Anna Ingólfsdóttir
Höfundur er starfsmaður Krafts,
stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem
greinst hefur með krabbamein, og að-
standendur þess.
Eftirfarandi greinar eru á mbl.is:
Jón Steinsson: „Það er engin til-
viljun að hlutabréfamarkaðurinn í
Bandaríkjunum er öflugri en
hlutabréfamarkaðir annarra
landa.“
Regína Ásvaldsdóttir: „Eitt af
markmiðum með stofnun þjón-
ustumiðstöðva er bætt aðgengi í
þjónustu borgaranna.“
Jónas Gunnar Einarsson:
„Áhrifalaus og mikill meirihluti
jarðarbúa, svokallaður almenning-
ur þjóðanna, unir jafnan misjafn-
lega þolinmóður við sitt.“
Jakob Björnsson: „Mörg rök
hníga að því að raforka úr vatns-
orku til álframleiðslu verði í fram-
tíðinni fyrst og fremst unnin í til-
tölulega fámennum, en vatnsorku-
auðugum, löndum …“
Tryggvi Felixson: „Mikil ábyrgð
hvílir því á þeim sem taka ákvörð-
un um að spilla þessum mikilvægu
verðmætum fyrir meinta hagsæld
vegna frekari álbræðslu.“
Stefán Örn Stefánsson: „Ég
hvet alla Seltirninga til að kynna
sér ítarlega fyrirliggjandi skipu-
lagstillögu bæjaryfirvalda …“
Gunnar Finnsson: „Hins vegar er
ljóst að núverandi kerfi hefur
runnið sitt skeið og grundvallar-
breytinga er þörf …“
Eyjólfur Sæmundsson og
Hanna Kristín Stefánsdóttir:
„Öryggismál í landbúnaði falla
undir vinnuverndarlög og þar með
verksvið Vinnueftirlitsins.“
Jakob Björnsson: „Með þvílíkum
vinnubrögðum er auðvitað lítil von
um sættir.“
Guðmundur Hafsteinsson: „Því
eru gráður LHÍ að inntaki engu
fremur háskólagráður en þær sem
TR útskrifaði nemendur með,
nema síður sé.“
María Th. Jónsdóttir: „Á landinu
okkar eru starfandi mjög góðar
hjúkrunardeildir fyrir heilabilaða
en þær eru bara allt of fáar og
fjölgar hægt.“
Hafsteinn Hjaltason: „Landa-
kröfumenn hafa engar heimildir
fyrir því, að Kjölur sé þeirra eign-
arland, eða eignarland Biskups-
tungna- og Svínavatnshreppa.“
Sveinn Aðalsteinsson: „Nýjasta
útspil Landsvirkjunar og Alcoa, er
að lýsa því yfir að Kárahnjúka-
virkjun, álbræðslan í Reyðarfirði
og línulagnir þar á milli flokkist
undir að verða „sjálfbærar“!“
Bergþór Gunnlaugsson: „Ég
hvet alla sjómenn og útgerðar-
menn til að lesa sjómannalögin,
vinnulöggjöfina og kjarasamn-
ingana.“
Á mbl.is
Aðsendar greinar