Morgunblaðið - 15.10.2004, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 35
AFMÆLI
Model 6337
14.4 borvél
2.6 amp rafhl
1/2” patr, 65 Nm
Auka rafhl.
23.900
TILBOÐSDAGAR 13.10 - 15.10.04
Model 6347
18 v borvél
1/2” patr, 80 Nm
2.6 amp rafhl
Auka rafhl.
28.900
Model HR2440
Höggborvél
780 W
2.7 Joule
14.900
Model 5704R
Hjólsög
0=190mm
1200 Wött
4.6 kg.
14.900
Model 1902
82 mm Hefill
580 Wött
2.5 kg.
13.500
REYKJAVÍK • AKUREYRI
Auk þess: KEÐJUSAGIR, FRÆSARAR, NAGLARAR, SVERÐSAGIR
STINGSAGIR, BORVÉLAR, BROTVÉLAR, PÚSSIVÉLAR OG FL.
GÓÐAR VÉLAR - BETRI VERÐ
Í dag er níræður
Sigurður Kristjáns-
son, fyrrum skóla-
stjóri Laugaskóla í
Suður-Þingeyjarsýslu
og nú bóndi á Braut-
arhóli í Svarfaðardal.
Hann er innfæddur
Svarfdælingur og er
búsettur á fæðingar-
stað sínum sem hann
hefur haldið tryggð
við þótt hluti ævi-
starfsins yrði í öðru
héraði.
Orðtak er að setinn
sé Svarfaðardalur og
nú sýnist aðkomumanni næstum
með ólíkindum hve þéttbýlt hefur
þar verið á þeim tímum, þegar lífs-
björg fólks var fengin frá hinum
frumstæða landbúnaði fyrri alda.
Brautarhóll er mjög landlítil jörð
og áreiðanlega var þar ekki auður í
garði þegar Sigurður og fjögur
systkini hans ólust upp á fyrstu
áratugum nýliðinnar aldar. Engu
að síður lauk hann stúdentsprófi
frá MA 1938 og guðfræðiprófi frá
Háskóla Íslands 1943. Ekki varð
starf kennimannsins hlutskipti
hans því að haustið 1943 réðist
hann kennari við Héraðsskólann að
Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu.
Þar varð svo vettvangur starfa
hans, fyrst sem kennara til hausts
1950 að hann tók við skólastjórn og
gegndi henni til 1981. Þar við bæt-
ist að allt frá 1955 hefur hann haft
með höndum búrekstur á Braut-
arhóli. Starf skólastjóra í heima-
vistarskóla með rúmlega 100 nem-
endum á gelgjuskeiði var á þeim
árum, sem Sigurður sinnti því,
hvorki einfalt né auðvelt. Hann gat
þurft, allt eftir aðstæðum, að vera
SIGURÐUR
KRISTJÁNSSON
gagnvart nemendum
og kennurum heimilis-
faðir með myndug-
leika, fræðari og fjár-
málastjóri, sálusorgari
og sáttasemjari, jafn-
vel lögreglumaður og
er þó sjálfsagt ekki
allt upptalið.
Sá sem þetta ritar
kom óreyndur ung-
lingur, nýsloppinn
gegnum stúdentspróf,
sem kennari að
Laugaskóla haustið
1951 og starfaði undir
stjórn Sigurðar í rúma
tvo áratugi. Það var ómetanlegt að
eiga hann að, njóta handleiðslu
hans og finna stuðning hans bæði í
upphafi starfsins og síðar meir.
Hinn 17. júní 1961 kvæntist hann
Stefaníu Jónasdóttur, fæddri 11.
maí 1939 á Smáragrund á Jökuldal.
Aldursmunur þeirra var því nær 25
ár. Því mátti ætla að það hlyti að
verða honum stórfellt áfall þegar
hún lést úr krabbameini vorið
2003.
Við sem þekkjum hann undr-
umst hve vel hann hefur staðist þá
raun og yfirleitt hve ótrúlega vel
hann ber hinn háa aldur. Þeim sem
þekkti hann ekki, en hitti og ætti
tal við hann, gæti hæglega virst
þar vera maður ekki mikið eldri en
sjötugur.
Enn ræður hann fyrir fjárbúi
sínu á Brautarhóli en nýtur þar
góðrar aðstoðar barna sinna,
frænda og venslafólks. En vel má
ætla að einmitt starf hans að bú-
rekstrinum hjálpi honum að stand-
ast ásókn Elli kerlingar svo vel
sem raun ber vitni.
Guðmundur Gunnarsson.
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK í Gullsmára
spilaði tvímenning á 13 borðum
mánudaginn 11. október. Efst vóru:
NS
Guðm. Pálsson - Kristinn Guðmundsson
344
Björn Bjarnason - Sigríður Gunnarsd. 290
Heiður Gestsd. - Þórdís Sólmundarsd. 288
Ernst Backmann - Karl Gunnarss. 285
AV
Katrínus Jónsson - Oddur Jónsson 317
Guðm. Guðveigsson - Guðjón Ottósson 315
Auðunn Bergsvss. - Sigurður Björnsson 306
Steindór Árnason - Tómas Sigurðsson 288
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í
sveitakeppninni sem allra fyrst.
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Glæsibæ, mánudaginn 4.10.
2004.
Spilað var á 10 borðum.
Árangur N-S
Rafn Kristjánss. – Júlíus Guðmundss. 250
Alda Hansen – Jón Lárusson 248
Þorsteinn Sveinsson – Kristján Jónsson
244
Árangur A-V
Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 270
Einar Einarsson – Ólafur Ingvarsson 241
Ragnar Björnsson – Magnús Oddsson 240
Tvimenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Glæsibæ, fimmtudag 7.10.
2004.
Spilað var á 11 borðum. Meðal-
skor 216 stig.
Árangur N-S
Björn Pétursson – Gísli Hafliðason 269
Eysteinn Einarsson – Kári Sigurjónsson
242
Jóhann Guðmundss. – Hjálmar Gíslason 242
Árangur A-V
Ragnar Björnsson – Magnús Oddsson 253
Þorsteinn Sveinsson – Kristján Jónsson 230
Skarphéðinn Lýðss. – Guðbjörn Eiríkss. 226
Sigurður Karlsson – Jón Karlsson 226
Bridsfélag Suðurnesja
Sl. mánudag var spilaður tví-
menningur og urðu úrslitin þessi:
Karl Karlss. - Gunnlaugur Sævarss. 142
Karl Hermannss. - Gísli Torfason 126
Dagbjartur Einarss. - Guðjón Einarss. 118
Þátttakan er heldur að aukast og
væntanlega verður hægt að byrja
sveitarokkið af krafti næsta mánu-
dag. Spilarar eru hvattir til að mæta
snemma til skrafs. Keppni hefst kl.
19.30.
Íslandsmótið í einmenningi
Mótið verður spilað 15.–16.októ-
ber í Síðumúla 37. Spilamennska
hefst á föstudag kl. 19:00 og lýkur
um kl. 18:00 laugardag. Spilaður
verður barometer. Allir spila sama
kerfið, þ.e. einfalt Standard-kerfi og
er hægt að nálgast það á skrifstof-
unni eða www.bridge.is
Skráning í s. 587 9360 eða bridge-
@bridge.is
Keppnisstjóri er Björgvin Már
Kristinsson. Ríkjandi Íslandsmeist-
ari í einmenningi er Birkir Jón
Jónsson.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson