Morgunblaðið - 15.10.2004, Síða 45

Morgunblaðið - 15.10.2004, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 45 FRÉTTIR LEIKFÉLAG Fljótsdalshéraðs frumsýnir söngleikinn vinsæla Bugsy Malone, eftir Alan Park- er, í Valaskjálf á Egilsstöðum, laugardaginn 16. október, kl. 18. Leikstjóri er Guðjón Sig- valdason sem jafnframt þýddi verkið og tónlistarstjóri er Freyja Kristjánsdóttir. Í fréttatilkynningu segir að í þessari uppfærslu Leikfélags Fljótsdalshéraðs sé það yngri kynslóðin sem fái að njóta sín, en leikarar eru allir á aldr- inum 11–16 ára. Sýningin er viðamikil, en um 70 leikarar og tónlistarmenn taka þátt og alls koma um 90 manns að upp- færslunni. Bugsy Malone gerist á tímum bannáranna í Ameríku í kring- um 1930 og fjallar um stríð milli glæpagengja í New York. Í sýningunni eru amerískir glæponar og fylgifiskar þeirra allir af smærri gerðinni enda eru öll hlutverkin leikin af börnum eins og fyrr segir. Söguhetjur sýningarinnar eru gangsterar af öllum teg- undum, ásamt dansmeyjum og söngkonum. Alan Parker er höfundur Bugsy Malone en kvikmynd hans, sem frumsýnd var árið 1976, sló rækilega í gegn og hefur tónlistin úr kvikmyndinni verið vinsæl æ síðan. Næstu sýningar verða sunnu- daginn 17/10, miðvikudaginn 20/10 og föstudaginn 22/10 og hefjast allar kl. 20. Sýnt verður fram í nóvem- bermánuð. Ljósmynd/ÁÓ Smá en kná. Leikfélag Fljótsdalshérðs frumsýnir Bugsy Malone á laugar- dag. Um 70 börn taka þátt í sýningunni. Sjötíu litlir Austfirð- ingar á sviðinu Egilsstöðum. Morgunblaðið. Bugsy Malone frumsýnt í Valaskjálf „STJÓRNMÁL skipta máli“ er yfir- skrift dagskrár sem Sjálfstæðisflokk- urinn og Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna, bjóða ungu fólki til kl. 13 á morgun, laugardag, í Valhöll. Þar munu forystumenn flokksins; Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður og borgarfulltrúi, Hanna Birna Krist- jánsdóttir borgarfulltrúi, Ragnheiður Elín Árnadóttir, aðstoðarmaður fjár- málaráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, ásamt þeim sem stýra starfi Heim- dallar fræða og ræða við þátttak- endur um stjórnmál líðandi stundar. Meðal umræðuefna er stefna Sjálf- stæðisflokksins og Heimdallar, hvernig hægt sé að hafa áhrif, mennt- un ungs fólks og þau atvinnutækifæri sem hún skapar, hlutverk hins op- inbera, komandi forsetakosningar í Bandaríkjunum, Íraksstríðið o.fl. Í málstofum málefnanefnda Heimdall- ar verður rætt um efnahags- og at- vinnumál, borgarmálefni, jafnrétt- ismál og mannréttindi, skólamál o.fl. Þátttaka er ókeypis. Ræða stjórnmál líðandi stundar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.