Morgunblaðið - 04.12.2004, Side 1

Morgunblaðið - 04.12.2004, Side 1
ÍBÚAR í litlum bæ í Svíþjóð, Ringvattnet, sem er nálægt Strömsund, rétt við norsku landamærin, óttast nú mjög einmana úlf sem heldur til í sveitinni og hagar sér furðulega. Nýlega drap hann íslenska fjár- hundinn Pilt, sem var í eigu bóndans Janer- iks Bjurströms, og þora íbúar ekki lengur að leyfa litlum börnum að leika sér úti við nema fullorðnir fylgist með þeim. Háværar kröfur eru um að dýrið verði skotið og að sögn blaðsins Östersund er fólk staðráðið í að taka ella málið í eigin hendur. Bjurström segist hafa að venju farið út til að sinna hestunum sínum þremur og ís- lenski hundurinn Piltur stokkið á bak við hesthúsið. „Ég heyrði hann skömmu síðar gelta tvisvar og rétt á eftir heyrði ég ægi- legt vein. Ég flýtti mér út og kallaði á hund- inn. Þá skreið hann í áttina til mín,“ segir Bjurström sem ók með hundinn til dýra- læknis. En Piltur var þá dauður, úlfurinn hafði bitið hrygginn í sundur. Úlfur bítur Pilt GENGI krónunnar hækkaði um 2,8% í miklum gjaldeyrisviðskiptum í gær, en þau námu tæp- um 18 milljörðum króna. Er hækkunin rakin til tilkynningar Seðlabankans um hækkun á stýri- vöxtum bankans um eitt prósentustig næst- komandi þriðjudag, en hækkunin var töluvert umfram væntingar. Gengi Bandaríkjadals er komið í 62,50 krónur og hefur ekki verið lægra í níu ár, evru í 83,60 krónur og sterlingspunds í 121,15 krónur. Er nafngengi krónunnar orðið það sama og fyrir ellefu árum, árið 1993. Gengishækkun leiðir til lækkunar á verð- bólgu, sem er eitt meginmarkmið Seðlabank- ans með hækkun stýrivaxta. Samkeppnisstaða íslenskra útflutningsfyrirtækja versnar hins vegar með styrkingu krónunnar. Fyrir al- menning þýðir styrking gjaldmiðilsins aftur á móti að verð innfluttrar vöru lækkar. Þórður Pálsson, forstöðumaður greiningar- deildar KB banka, segir að útflutningsgrein- arnar líði fyrir hina miklu þenslu af völdum stóriðjuframkvæmdanna í landinu. Gagnvart almenningi séu áhrifin af styrkingu krónunnar hins vegar jákvæð, þegar til skamms tíma sé litið, vegna lækkunar á verði innfluttra vara. Raungengið mun lækka „Ef kreppir hins vegar um of að útflutnings- greinunum þá versna atvinnuhorfur þegar til lengri tíma er litið, og kemur þannig niður á al- menningi,“ segir Þórður. Hann segir að í ársfjórðungsriti Seðlabank- Samkeppnisstaðan versnar en innfluttar vörur lækka Mikil styrking krónunnar eftir vaxta- hækkun Seðlabankans  Reynir á/10  Bankarnir /16  Veikur dollar/35 ans, Peningamálum, sem kynnt var í fyrradag, komi skýrt fram að viðskiptahallinn sé orðinn það mikill að ljóst sé að raungengisstig krón- unnar muni ekki haldast til lengdar. „Aðgerðir Seðlabankans munu hafa tölu- verðan kostnað í för með sér. Bankinn er að grípa til þessara aðgerða til þess að sporna við þenslu í hagkerfinu og til þess að slá á þær miklu væntingar sem hér hafa myndast, til að mynda vegna mikillar hækkunar á öllum eigna- mörkuðum. Það er hins vegar okkar mat hjá greiningardeild KB banka að Seðlabankanum muni meira eða minna takast að ná mark- miðum sínum með þessum aðgerðum,“ segir Þórður. STOFNAÐ 1913 331. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is PS: Ég elska þig Írski metsöluhöfundurinn Cecelia Ahern í viðtali | Menning Fjögur sérblöð í dag Lesbók | Átta síðna bókablað  Samkvæmisleikir Braga Ólafssonar  Haukur Tómasson, Stranglers og Pogues Börn | Hvernig eru jólin í Latabæ? Íþróttir | Eyjakonur áfram í bikarnum Enska knattspyrnan | Evertonklúbburinn á Íslandi HÆSTIRÉTTUR Úkraínu ógilti í gær úrslit seinni umferðar um- deildra forsetakosninga í landinu sem fram fóru 21. nóvember sl. Skipaði rétturinn svo fyrir að aftur yrði kosið á milli tveggja efstu manna úr fyrri umferð kosning- anna og sagði Anatoly Yarema, for- seti hæstaréttar, að endurtaka skyldi kosningarnar 26. desember nk. Stuðningsmenn Viktors Jústsj- enkós, leiðtoga stjórnarandstöð- unnar, fögnuðu úrskurði hæsta- réttar innilega á Sjálfstæðis- torginu í miðborg Kíev í gær. Úrskurðurinn er í samræmi við kröfu stjórnarandstöðunnar sem heldur því fram að stjórnvöld hafi staðið fyrir kosningasvindli í því skyni að tryggja Viktor Janúkó- vítsj forsætisráðherra sigur yfir Jústsjenkó. Sagði í úrskurði hæstaréttar að yfirkjörstjórn Úkraínu hefði ekki sinnt því hlutverki sínu að rann- saka þau brot sem framin voru í kosningunum. „Aðgerðir og ákvarðanir kjörstjórnarinnar í tengslum við seinni umferð for- setakosninganna voru ólöglegar,“ sagði Yarema. Ekki er hægt að áfrýja úrskurði dómstólsins og báðir deilendur hafa sagt að þeir muni hlíta honum. Er niðurstaðan í samræmi við þær óskir Jústsjenkós að aðeins seinni umferð kosninganna verði endur- tekin, ekki verður því efnt til nýrra kosninga frá grunni. Þá úrskurðaði hæstiréttur að kosningarnar skyldu endurteknar í landinu öllu, ekki aðeins í þeim hér- uðum þar sem Viktor Jústsjenkó kvartaði undan því að svindl hefði átt sér stað. Hæstiréttur Úkraínu ógildir forsetakosningarnar og boðar til nýrra Sigur fyrir Jústsjenkó Reuters Viktor Jústsjenkó fagnar með stuðningsfólki sínu í Kíev í gær. Kíev. AFP, AP. LJÓSIN á Óslóartrénu á Aust- urvelli verða tendruð á morgun kl. 16. Dagskráin hefst kl. 15.30. Er þetta í 53. sinn sem Norðmenn færa Íslendingum veglegt jólatré til að skreyta miðborg Reykjavík- ur á aðventu. Sendiherra Noregs á Íslandi, Guttorm Vik, afhendir Reykvíkingum tréð fyrir hönd Óslóbúa, en ljósin kveikir hinn norsk-íslenski Helge Snorri Seljeseth. Jóladagskrá Þjóðminjasafns Ís- lands hefst enn fremur á morgun, en þetta árið er dagskrá safnsins helguð íslenskum og erlendum jólasiðum. Á morgun mun Toshiki Toma, prestur innflytjenda, tendra ljósin á jólatré safnsins, en það verður að þessu sinni skreytt á japanska vísu. Morgunblaðið/Sverrir Jón Gísli Harðarson vann hörðum höndum að því að undirbúa ljósabúnaðinn á Óslóartrénu á Austurvelli. Ljósin tendruð á aðventunni FIMM sprengjur sprungu í nágrenni bens- ínstöðva í útjaðri Madrídborgar á Spáni síð- degis í gær en viðvörun hafði áður borist frá Aðskilnaðarsamtökum Baska (ETA). Að sögn lögreglu voru sprengingarnar ekki öfl- ugar og engin meiðsl urðu á fólki. Þetta eru fyrstu sprengjuárásirnar sem ETA stendur fyrir á Spáni í marga mánuði./Miðopna AP ETA minnti á tilvist sína HÁTTSETTIR embætt- ismenn í Washington greindu í gær frá því að George W. Bush Banda- ríkjaforseti hefði form- lega farið þess á leit við Donald Rumsfeld varnar- málaráðherra að hann sæti áfram í embætti. Mun Rumsfeld hafa sam- þykkt beiðni forsetans. Bush og Rumsfeld hittust á fundi í Hvíta húsinu til að ræða framtíð varnarmálaráð- herrans sem var gagnrýndur harðlega í vor í kjölfar frétta þess efnis að bandarískir her- menn hefðu misþyrmt íröskum föngum í þeirra umsjá í Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad. Kröfðust nokkur dagblöð og tímarit afsagnar Rumsfelds við það tækifæri. Miklar breytingar verða á ríkisstjórn Bush á seinna kjörtímabili hans en Tommy Thompson heilbrigðisráðherra varð í gær áttundi ráðherrann í fimmtán manna ríkis- stjórn Bush til að tilkynna um afsögn sína. Áður hafði Bush greint frá því að Bernard Kerik yrði næsti ráðherra heimavarna. Rumsfeld fer hvergi Donald Rumsfeld Washington. AP.  Týndi sonurinn/20 ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.