Morgunblaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 25
MINNSTAÐUR
Höfuðborgarsvæðið | Jólaljósin
verða kveikt víða á höfuðborgar-
svæðinu um helgina.
Í Reykjavík verða ljósin á Óslóar-
trénu á Austurvelli tendruð á morg-
un, sunnudag, kl. 16.00. Dómkórinn
syngur nokkur lög, skemmtiatriði
verða fyrir alla fjölskylduna, og aldr-
ei að vita nema jólasveinar verði á
ferð.
Jólahátíð verður haldin í miðbæ
Mosfellsbæjar í dag, laugardag, kl.
16:00, og verða ljósin tendruð á
jólatré bæjarins. Skólahljómsveit
Mosfellsbæjar mun spila og barna-
kór syngja nokkur lög, auk þess sem
heyrst hefur að einhverjir jólasvein-
ar muni stelast í bæinn og skemmta
börnunum.
Í Kópavogi verða ljósin kveikt á
jólatrénu frá vinabænum Norrköp-
ing hjá Gerðarsafni og Safnahúsum í
dag kl. 15:30. Skólahljómsveit Kópa-
vogs flytur nokkur lög, skólakór
Snælandsskóla syngur, og jólasvein-
ar líta við. Einnig mun Sigríður
Anna Þórðardóttir umhverfisráð-
herra vígja nýtt kúluskítsbúr í
Safnahúsinu.
Dagskrá verður á Garðatorgi í
Garðabæ frá kl. 11 í dag, og verður
handverksmarkaður, kaffi- og köku-
sala og fleira í gangi. Ljósin á jóla-
trénu frá Asker verða svo tendruð
kl. 16, og verða sungin og spiluð jóla-
lög.
Jólaþorpið við Hafnarborg í Hafn-
arfirði var opnað um síðustu helgi,
og verður opið aftur bæði laugardag
og sunnudag frá kl. 12-18. Þar eru
ýmsar vörur tengdar jólunum á boð-
stólum og skemmtidagskrá hefst kl.
14.
Á Álftanesi verða ljósin tendruð á
jólatrénu í Kvenfélagsgarðinum á
morgun, sunnudag, kl. 17:15. Yngri
og eldri skólakór Álftaness syngur
jólalög og gengið verður í kringum
jólatréð með jólasveinum sem stelast
til byggða.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Jólastemmn-
ing í skamm-
deginu
Laugardalur | Haldinn verður jóla-
markaður undir stúku Laugardals-
vallar í dag milli kl. 11 og 16, þar sem
íbúar nærliggjandi hverfa ætla að
bjóða upp á ýmsan varning. Þetta er
í annað skipti sem markaðsdagur er
haldinn af íbúum þessara hverfa og
er hugmyndin sú að halda markaðs-
dag um vor, haust og jól í framtíð-
inni. Markmiðið er að efla samskipti
íbúa á jákvæðum nótum og skapa
skemmtilegan hverfisbrag, ásamt
því að stuðla að vistvernd í verki með
endurnýtingu og heimaframleiðslu.
Jólamarkaður
í Laugardal
Hafnarfjörður | Atlantsolía og aðal-
stjórn FH hafa óskað eftir því við
Hafnarfjarðarbæ að gerð verði breyt-
ing á aðal- og deiliskipulagi á svæði
FH við Kaplakrika svo unnt verði að
setja upp bensínsjálfsafgreiðslustöð á
hluta lóðarinnar. Málið var lagt fram í
Skipulags- og byggingarráði fyrr í
vikunni en engin afstaða tekin til þess
að svo komnu máli.
Vilja bensín í
Kaplakrika
♦♦♦
♦♦♦