Morgunblaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK  Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Fólk sýnir þér góðvild í dag. Kannski færðu meira að segja gjöf. Greiðar og hlunnindi verða á vegi þínum. Hugsanlega færðu að njóta ríkidæmis einhvers nákomins. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú laðast sterklega að einhverjum í dag. Það ýtir undir nýtt samband eða blæs lífi í gamalt. Ekki láta þitt eftir liggja í félagslífinu, nýttu þér þennan meðbyr. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú nýtur vinnunnar í dag. Stundum er vinnan skemmtilegri en besta skemmtun, finnst þér. Þú ert til í að hella þér út í verkefnin og hefur fundið eitthvað til þess að trúa á. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Dagurinn í dag er kjörinn til þess að falla fyrir ókunnugri manneskju. Augu ykkar mætast í fullum sal af fólki og allt það. Þú vilt vera frír og frjáls í dag, krabbi, og gera það sem þig lystir. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Nýttu kraftana í að gera þitt nán- asta umhverfi meira aðlaðandi núna. Standsetning, endurbætur eða versl- unarleiðangur fyrir heimilið kætir þig mjög. Þú kemur miklu í verk. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Samræður þínar við aðra eru óvenju kraftmiklar og sannfærandi um þessar mundir. Þú ræður bara ekki við þetta. Þú ert að springa úr áhuga og vilt ná eyrum alls um- heimsins. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þig langar mikið til þess að eyða peningum í dag, kaupa eitthvað fal- legt handa þér eða ástvinum. Feg- urðin heillar þig jafnan, þess vegna er líklegt að þú látir það eftir þér. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ert einstaklega aðlaðandi í aug- um annarra núna. Ástargyðjan Ven- us og framkvæmdaplánetan Mars eru saman í þínu merki þessa dag- ana og þú hreinlega ljómar. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Hugleiðsla, vangaveltur og nátt- úrudýrkun höfða sterklega til þín upp á síðkastið. Þú hefur unun af því að vera utandyra og ert elskur að dýrum, bogmaður. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú átt fjörugt félagslíf í vændum. Þiggðu öll heimboð og skráðu þig í félagasamtök. Samtöl við vini verða lífleg, áhugaverð og upplýsandi. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú ert í essinu þínu núna og gengur auðveldlega í augun á fólki án þess að leggja nokkuð á þig. Máttarvöld heimsins, til dæmis foreldrar, sjá ekki sólina fyrir þér. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þetta er góður dagur fyrir stutt ferðalag, eða langt, eigir þú tök á því að bregða þér frá. Gerðu hvað- eina sem þú getur til þess að víkka sjóndeildarhringinn. Stjörnuspá Frances Drake Bogmaður Afmælisbarn dagsins: Þú hefur jafnan mikið fyrir stafni og býrð yfir djörfung og dug. Öðrum finnst þú jafnan sýna hugrekki. Þú mælir lífið í langtímamarkmiðum og hefur stórhuga áætlanir á prjónunum. Sjálfstraust og óbilandi trú er einn helsti styrkleiki þinn. Komandi ár verður fjörugt og gott fyrir parsamband. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Skemmtanir Cafe Catalina | Hermann Ingi jr. spilar á Catalinu í kvöld. Café Victor | DJ Gunni sér um danstónlist. Celtic Cross | Kari and the Clubmembers skemmta um helgina. Classic Rock | Hljómsveitin Sólon spilar um helgina. Café Rosenberg | Sváfnir Sigurðarson trúbador kl. 23. De Palace | Techno plötusnúðurinn Exos spilar. Dubliner | Spilafíklarnir leika. Gaukur á Stöng | Buff og DJ Master. Hressó | Hraun leikur frumsamda tónlist og sérútsett tökulög í bland frá 22-01. Kaffi 59 | Hljómsveitin Sex Volt. Klúbburinn við Gullinbrú | Sigga Beinteins og Grétar Örvars ásamt hljómsveit. Kringlukráin | Mannakorn með dansl. kl. 23 Odd-Vitinn | Sýning Fimm stelpur. Logar frá Vestmannaeyjum leika á eftir. Vélsmiðjan Akureyri | Rokksveit Rúnars Júlíussonar. Vitinn Sandgerði | Rúnar Þór leikur á Vit- anum í kvöld. Tónlist Hallgrímskirkja | Jólatónleikar Mót- ettukórsins kl. 17. Ketilhúsið Listagili | Djassextettinn Margt smátt efnir til tónleika á vegum Djass- klúbbs Akureyrar kl. 21 í kvöld. Paddýs | Osbournes-helgi á PADDÝS í Keflavík. The Black Zappas sem sló svo eftirminnilega í gegn á Ljósanótt kemur loksins fram aftur. Smekkleysa Plötubúð – Humar eða Frægð | Jagúar spilar efni af nýútkominni breiðskífu sinni, Hello Somebody kl. 15. Lights On The Highway sem nýkomin er úr Global Battle Of The Bands stígur einnig á stokk og spilar ný og nýleg lög. Aðgangur er ókeypis. Myndlist Kirkjuhvoll Akranesi | Gylfi Ægisson sýnir um 60 akrýlmyndir. Alliance Francaise | Marie-Sandrine Bej- anninn – málverk. Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig- urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk. Gallerí 101 | Daníel Magnússon – Matpr- jónagerð lýðveldisins kynnir: Innihald heimilisins. Gallerí + Akureyri | Oliver van den Berg, Þóroddur Bjarnason, Ragnar Kjartanson, Gunnar Kristinsson, Tumi Magnússon og Magnús Sigurðarson –Aldrei–Nie–Never – Þriðji hluti. Gallerí Banananas | Hrafnkell Sigurðsson – Verkamaður / Workman. Gallerí Dvergur | Anke Sievers – Songs of St. Anthony and Other Nice Tries. Gallerí Fold | Guðrún Indriðadóttir, Eing- unn Erna Stefánsdóttir og Áslaug Hösk- uldsdóttir – Þrjár af okkur. M.J. Levy Dick- inson – Vatnslitaverk. Gallerí I8 | Kristján Guðmundsson – Arki- tektúr. Gallerí Sævars Karls | Hjörtur Marteins- son – Ókyrrar Kyrralífsmyndir. Gallerí Tukt | Illgresi. Manifesto: Illgresi er svar alþýðunnar við elítunni! Gerðuberg | Guðríður B. Helgadóttir – Efn- ið og andinn. Grafíksafn Íslands | Í dimmunni – samsýn- ing. Hafnarborg | Jólagjafir hönnunarnema í Iðnskólanum í Hafnarfirði til þjóðþekktra Íslendinga. Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu- málverk í forkirkju Hallgrímskirkju. Hólmaröst, Lista– og menningarverstöð | Jón Ingi Sigurmundsson – Olíu- og vatns- litamyndir. Hrafnista Hafnarfirði | Sólveig Eggertz Pétursdóttir sýnir myndir sínar í Menning- arsalnum. Hönnunarsafnið | Sænskt listgler – þjóð- argjöf í Hönnunarsafninu. Kaffi Sólon | Kristín Tryggvadóttir – Leikur að steinum. Kling og Bang gallerí | Sigurður Guð- jónsson – Hýsill Listasafn ASÍ | Erling Þ.V. Klingenberg og David Diviney – Ertu að horfa á mig / Are you looking at me. Sara Björnsdóttir – Ég elska tilfinningarnar þínar. Listasafn Árnesinga | Tumi Magnússon – Innsetning. Listasafnið á Akureyri | Patrick Kuse – Encounter. Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist: um veruleikann, manninn og ímyndina. 20 listamenn sýna. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Þrjár sýningar: Ný íslensk gullsmíði í Austursal, Salóme eftir Richard Strauss í Vestursal og úrval verka úr einkasafni Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guð- mundsdóttur á neðri hæð safnsins. Listasafn Reykjanesbæjar | Valgarður Gunnarsson – Eilífðin á háum hælum. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Graf- ísk hönnun á Íslandi. Stendur til áramóta. Erró – Víðáttur. Stendur til 27. feb. nk. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Textillist 2004 – Alþjóðleg textílsýning. Stendur til 16. jan. Myndir úr Kjarvalssafni. Listmunahúsið Síðumúla 34 | Sýning á verkum Valtýs Péturssonar Norræna húsið | Vetrarmessa Nýlistasafnið | Ráðhildur Ingadóttir – Inni í kuðungi, einn díll. Björk Guðnadóttir – Ei- lífðin er líklega núna. Suzuki Bílar | Björn E. Westergren sýnir myndir málaðar í akrýl og raf. Thorvaldsen | Linda Dögg Ólafsdóttir – –sKæti– Tjarnarsalur Ráðhúss | Ketill Larsen – Sól- stafir frá öðrum heimi. Listasýning Gler í Bergvík | Í Bergvík verður gler- blástur sýndur, og mun m.a. ungur glerblás- ari frá Bandaríkjunum sýna listir sínar ásamt íslenskri stúlku, sem nýverið útskrif- aðist frá glerblástursskóla í Svíþjóð. Útsala á útlitsgölluðum glermunum og afsláttur af öðru gleri. Kaffi og piparkökur. Handverk og Hönnun | Hjá Handverki og hönnun stendur yfir jólasýningin „Allir fá þá eitthvað fallegt...“ Sölusýning þar sem 32 aðilar sýna íslenskt handverk og list- iðnað úr fjölbreyttu hráefni. Bækur Alþjóðahúsið | Þýðingahlaðborð í Alþjóða- húsi kl. 16. Þýðendur lesa úr nýútkomnum þýðingum, spjalla um þær og vinnu sína að þeim. Anna María Hilmarsdóttir, Ingibjörg Haralds, Hjalti Kristgeirsson, Óskar Árni Óskarsson og Sigrún Á. Eiríksdóttir lesa úr nýjum þýðingum sínum. Allir velkomnir. MÍR-salurinn | Bóklestur og tónlist hjá MFÍK: Áslaug Jónsdóttir, Guðbergur Bergs- son, Guðrún Helgadóttir, Kristín Ómars- dóttir, Kristín Steinsdóttir, Kristín Thorla- cius, Sigmundur Ernir, Vilborg Dagbjartsdóttir, Jóhanna Þórhallsdóttir og Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Aðventustemn- ing, kaffisala. Allir velkomnir. Fréttir Bókatíðindi 2004 | Númer laugardagsins 4. desember er 92627 Hólmarar Hollvinasamtök | Aðventukvöld miðvikudaginn 8. des. kl. 20 í hátíðarsal LOGOS lögmannaþjónustunnar í Efstaleiti 5, Reykjavík. Gísli Kolbeins flytur jóla- hugvekju, Lárus Hannesson syngur við undirleik Jóhönnu Guðmundsdóttur. Árni Helgason segir frá og fer með gamanmál við undirleik Jóns Svans Péturssonar. Allir Hólmarar velkomnir. Kaffiveitingar. Laugardalsvöllur | Jólamarkaður verður kl. 11–16 undir stúku Laugardalsvallar. Mark- aðurinn er á vegum íbúa í hverfunum sem umlykja Laugardalinn. Jólatré, handverk, ullarvörur, kaffihús og kompudót. Allir vel- komnir. Námskeið Emm School of Make Up ehf | EMM School Of Make Up er nýr förðunarskóli með nám fyrir byrjendur sem og lengra komna. Námskeið hefjast í janúar n.k. Lögð er áhersla á tísku og stíliseringu. Eingöngu er kennt á MAC snyrtivörur. Nánari upplýs- ingar á www.emm.is eða í síma. 5171070. Fundir Félag einhleypra | Fundur kl. 21. Heitt á könnunni. Félag húseigenda á Spáni | Félag húseig- enda á Spáni heldur árlegan jólafund á morgun kl. 17, í sal á efri hæð veitingahúss- ins Naustsins við Vesturgötu. Kvenfélagið Fjallkonurnar | Jólafundur þriðjudaginn 7. desember kl. 19.30 í Safn- aðarheimili Fella- og Hólakirkju. Jólamatur. Konur taki með sér jólapakka. Upplýsingar hjá Binnu í síma 557 3240. Börn www.menntagatt.is | Fram að áramótum verður opinn jólakortavefur á mennta- gatt.is. Kynning Kínaklúbbur Unnar | Næsta Kínaferð Kínaklúbbs Unnar sem farin verður 13. maí – 3. júní n.k. verður kynnt sunnudaginn 5. desember kl. 20 að Njálsgötu 33. Unnur Guðjónsdóttir mun kynna ferðina í máli og myndum. Nánari upplýsingar í síma 5512596. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 forhengi, 4 aft- urelding, 7 púkans, 8 dæg- ur, 9 forskeyti, 11 svelg- urinn, 13 vaxi, 14 eykst, 15 sterk, 17 reykir, 20 agnúi, 22 aula, 23 dínamó, 24 aldna, 25 lestrarmerki. Lóðrétt | 1 skýrði frá, 2 áana, 3 stynja, 4 slór, 5 megnar, 6 næstum, 10 starfsvilji, 12 tek, 13 tímg- unarfruma, 15 slæpt af drykkju, 16 dýrahljóð, 18 legubekkjum, 19 munn- tóbak, 20 álka, 21 öngul. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 sædjöfull, 8 folar, 9 lyfta, 10 tía, 11 sárna, 13 rýr- an, 15 stáss, 18 jagar, 21 lóa, 22 knapa, 23 tinna, 24 mis- kunnar. Lóðrétt | 2 ætlar, 3 jurta, 4 fúlar, 5 lofar, 6 ofns, 7 bann, 12 nes, 14 ýsa, 15 sekk, 16 álagi, 17 slark, 18 jatan, 19 gunga, 20 róar. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Be3 cxd4 8. Rxd4 Bc5 9. Dd2 O-O 10. O-O-O a6 11. h4 Rxd4 12. Bxd4 b5 13. Kb1 b4 14. Ra4 Bxd4 15. Dxd4 a5 16. h5 Ba6 17. Bxa6 Hxa6 18. c4 bxc3 19. Rxc3 Hb6 20. h6 g6 Staðan kom upp í fyrra hluta Ís- landsmóts skákfélaga sem fram fór fyrir skömmu í húsakynnum Menntaskólans í Hamrahlíð. Þröstur Þórhallsson (2460) hafði hvítt gegn Guðmundi Kjartanssyni (2229). 21. Rxd5! exd5 22. e6 Df6 22... Rf6 hefði verið svarað með 23. e7! og hvítur vinnur. 23. exd7 Hd8 24. Hhe1 Kf8 25. Dxf6 Hxf6 26. Hxd5 og svartur gafst upp enda staðan ekki falleg á að líta. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. HLJÓMSVEITIN Dimma mun skekja Grand Rokk um miðnæturbil í kvöld. Dimma ber nafn með rentu, en sveitin leikur dökka rokktónlist með drungalegum fimmund- arröddunum og áherslu á leikræna tilburði. Meðlimir eiga ekki langt að sækja hina leikrænu tilburði enda eru þar á ferðinni þrír fjórðu hlutar hinnar alræmdu sveitar Stripshow, þ.e.a.s. Ingólfur Geirdal gít- arleikari, Sigurður Geirdal bassaleikari og Bjarki Magnússon trommari auk fyrrver- andi söngvara hinnar fornfrægu ísfirsku rokksveitarinnar Urmuls, Hjalta Ómars Ágústssonar. Sveitin er nú að leggja loka- hönd á plötu sína og munu þeir kynna lög af henni í kvöld. Ingólfur, gítarleikari Dimmu, segir mikla áherslu lagða hjá sveitinni að ná þjóð- legum og myrkum blæ á tónlist sveit- arinnar og gegni fimmundarraddanir þar veigamiklu hlutverki. „Okkur fannst það líka mjög mikilvægt að sveitin héti ís- lensku nafni þótt textarnir geti verið á ensku,“ segir Ingólfur. „En tónlistin sæk- ir í þennan arf. Svo sækjum við einnig m.a. í upprunalega meðlimi Alice Cooper bandsins, sem við kynntumst fyrir nokkrum ár- um og höfum átt gott samstarf við, þar á meðal Michael Bruce.“ Tónleikar Dimmu hefjast á mið- nætti á laug- ardag en á eftir þeim koma Noise og Sign. Sveit- irnar eiga fleira en rokkið sam- eiginlegt, því í öllum sveitunum eru bræður. „Þetta eru líka þrjár af örfáum sveitum hér á landi sem skammast sín ekkert fyrir að taka brjáluð gítarsóló,“ segir Ingólfur. Þess má að lokum geta að aðgangur á tónleikana er ókeypis. Dimma leggst á Grand Rokk Morgunblaðið/Golli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.