Morgunblaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 54
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
ÞÚ STENDUR
ÞIG VEL
GRETTIR
HVAÐ
ERTU
AÐ
GERA?
ÉG VAR EKKI
BÚINN AÐ LESA
ÞESSA SÍÐU
EF ÞÚ ÆTLAR AÐ
LESA ÞESSA BÓK
MEÐ MÉR ÞÁ
VERÐUR ÞÚ LESA
TÖLUVERT HRAÐAR
EN ÞETTA
SKÓLI!
ÞAÐ ER FYRSTI
SKÓLADAGURINN Í DAG! ÉG
ER BÚIN AÐ LÆRA ALLAR
ÞESSAR JÖFNUR OG LEGGJA
NÖFN Á ÁM Á MINNIÐ
EKKI GLEYMA
LYKLINUM AÐ
SKÁPNUM ÞÍNUM!!
HVER ER HÖFUÐBORG
VENESÚELA?!
ÉG HELD AÐ SUMRIN
SÉU AÐ STYTTAST
ERTU
TILBÚINN?
NEI
DRÍFÐU ÞIG! ÉG ER
TILBÚINN!!
Svínið mitt
RÚNAR
© DARGAUD
ÉG ER SVO
GLÖÐ!!
JÆJA, OFSALEGA
ERTU GLÖÐ JÁHÁ,
MAMMA ...
HVAÐA GLEÐI TÍÐINDI
HEFUR ÞÚ AÐ FÆRA ...
10 Í
ÍSLENSKU
NEI, EN
KENNARINN
ÆTLAR MEÐ
OKKUR Á
STÖNDINA ...
MÁ ÉG FARA,
ELSKU MAMMA ...
AUÐVITA
MÁTTU ÞAÐ
AAAH...
SJÓRINN
ÉG TEK ÞAÐ EKKI Í MÁL AÐ
FARA Í ÞESSA ASNALEGU
FERÐ...!!
Dagbók
Í dag er laugardagur 4. desember, 339. dagur ársins 2004
Vinkona Víkverja býr í gömlu húsi,þar sem ýmislegt er farið að láta
á sjá og þarfnast endurnýjunar. Hún
ákvað á dögunum að
ráðast í að endurnýja
baðherbergi sitt frá
grunni. Hún þefaði
uppi hvert tilboðið á
fætur öðru, keypti flís-
ar, handlaug, salerni,
blöndunartæki og allt
það sem til þarf áður
en komið var að fram-
kvæmdinni sjálfri.
Ekki treysti hún sér
sjálf í verkið, enda er
að mörgu að huga í
slíkum stórfram-
kvæmdum. Hún leit-
aði því á náðir aðila
sem gefa sig út fyrir
að bjóða heildarþjón-
ustu á þessu sviði, þ.e. að senda á
svæðið viðeigandi iðnaðarmenn allt
þar til verkinu er lokið. Ekki stóð á
því að útsendarar fyrirtækisins
mættu á svæðið, tækju út verkið og
gerðu síðan himinhátt tilboð í allt-
saman. Þar sem framkvæmdin var
orðin aðkallandi ákvað vinkonan að
slá til og gekk til samninga. Þá var
ekki eftir neinu að bíða, öllu var rutt
út úr gamla baðherberginu og því
var iðnaðarmönnum ekkert að van-
búnaði að hefja störf sín. Píparinn
mætti á staðinn og vann sitt starf og
múrarinn gat tekið við. En þá kom
babb í bátinn. Vinkonunni var nú til-
kynnt að hún þyrfti að
bíða í nærri tvær vikur
áður en hægt væri að
halda verkinu áfram.
Við því væri ekkert að
gera. Og hún þarf nú
að gera stykki sín hjá
nágrönnunum og baða
sig hjá vandamönnum.
Er hægt að koma
svona fram við fólk?
x x x
Víkverji fer af göml-um vana inná
heimasíður fast-
eignasala og er oft að
velta fyrir sér máltil-
finningu og -kunnáttu
þeirra sem taka það að sér að meta
íbúðir og í framhaldi af því að gera
lýsingu á viðkomandi eign. Það
stingur vissulega í augun þegar íbúð
er lýst með gullkornum á borð við
þessi: „Baðherbergið er flísalagt í
hólf og gólf með sturtu. Svefn-
herbergin eru dúkalögð með skáp-
um. Skóli er í 10 mín. göngu frá íbúð-
inni sem hefur gott orð á sér fyrir að
vera frábær og með hæstu með-
aleinkunn á meðal nemenda á höfð-
uðborgasvæðinu.“ Greind íbúð það!
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Hafnarborg | Nemendur á lokaári hönnunardeildar Iðnskólans í Hafnarfirði
opnuðu í gær sýningu á jólagjöfum sem þeir hafa sérhannað fyrir þjóðþekkta
Íslendinga. Nemendur völdu sjálfir hverjum þeir vildu gefa gjafirnar. Þar
mátti m.a. sjá gjafir til Bjarkar Guðmundsdóttur, Davíðs Oddssonar, Guðna
Ágústssonar og Bjarts í Sumarhúsum.
Ekki var annað að sjá en að Siggi Hall meistarakokkur væri kampakátur
með vínstandinn sem Ólafur Ágúst Jensson hannaði fyrir hann.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sérhannaðar jólagjafir
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauð-
ina.
(Jóh. 10, 11.)