Morgunblaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 27 MINNSTAÐUR ÞAÐ var heilmikið fjör á veitingahúsinu Bautanum í gærmorgun, en þar voru börn úr leikskólunum Holta- koti, Sunnubóli og Lundarseli að gæða sér á kakói og kleinuhringjum. Bautinn býður öllum leikskólabörnum á Akureyri upp á þessar veitingar nú á aðventunni, alls um 1000 börnum ásamt leikskólakennurum sem að líkindum verða um 200 talsins að sögn Hallgríms Arasonar fram- kvæmdastjóra. „Það er hefð fyrir því að leikskólabörn fari í bæjarferð á aðventunni, þau ganga um, skoða jóla- ljósin og fá svo hressingu,“ sagði hann. Á Bautanum eru tvö stór fiskabúr þar sem synda gullfiskar í öllum regn- bogans litum. Einn þeirra, Nemo litli, eftir samnefndri teiknimyndahetju, vekur jafnan mesta athygli barnanna og svo var einnig í kaffihúsaferð gærdagsins. Kakó, kleinuhringur og Nemo litli Morgunblaðið/Kristján Leikskólabörn Sigfús á Sunnubóli bendir á Nemo í fiskabúri Bautans, en þau Arndís Eva og Guðmundur Helgi sem eru á Lundarseli horfa líka á hann hugfangin. AKUREYRI STÓRTJÓN varð eftir að vatns- lagnir sprungu og kalt vatn flæddi um M-hótel, gamla Skjaldborg- arhúsið við Hafnarstræti. Húsið er þrjár hæðir og ris og hefur ekki verið í notkun um nokkurt skeið. Jón Knudsen, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á Akureyri, sagði að brunaboð hefðu borist til Securitas og hefði slökkvilið verið kallað út þegar menn sáu hvers kyns var. „Það var allt undirlagt í vatni,“ sagði hann, en risið slapp þó. Við hreinsunarstarf voru notaðar dæl- ur, vatnssugur og teppahreinsi- vélar. „Það var auðsjáanlegt að tjónið er mikið. Það lak niður í gegnum loftaplötur á milli hæða, þær voru alveg á floti og það flaut vatn út um glugga hvað þá meira,“ sagði Jón. Hann sagði að lagnir hefðu sprungið á tveimur mið- hæðum hússins, þ.e. lagnir inn í salernisskálar og vatnsgusan að lík- indum staðið beint út á gólfið síð- astliðna tvo daga í það minnsta. Skrúfað hafði verið fyrir heita vatnið inn í hússins, þar var ískuldi og hefur líklega valdið því að vatn fraus í lögnum. Vatnslagnir í risi hússins voru sprungnar af völdum frosts, en mikill klaki var í þeim þannig að vatn flæddi ekki úr þeim. Ekki var búið að meta tjónið. Stórtjón vegna vatnsleka TRYGGVI Gíslason, magister í ís- lenskri málfræði, heldur fyr- irlestur á vegum Vísindafélags Norðlendinga í húsi Háskólans á Akureyri við Þingvallastræti á mánudag 6. desember kl. 17.15 í stofu 14. Hann nefnist „Staða íslenskrar tungu í heimi alþjóðasamstarfs og markaðshyggju“. Fjallað verður um fámenn málsamfélög og ný viðhorf til málverndar, auknar kröfur til hagræðingar og vanda þann sem steðjar að alþjóða- samskiptum vegna mismunandi tungumálakunnáttu. Reynt verður að svara því hvort fornlegt beyg- ingarmál með þúsund ára bók- menntir og sögu á bakinu geti lif- að af í heimi alþjóðasamstarfs. Staða íslenskrar tungu BORGARDÆTUR, þær Andrea Gylfadóttir, Ellen Kristjánsdóttir og Berglind Björk Jónasdóttir halda tónleika í Laugarborg í Eyjafjarð- arsveit á sunnudagskvöld, 5. desem- ber kl. 20.30. Með í för er þriggja manna hljómsveit, Eyþór Gunn- arsson, píanóleikari, Þórður Högna- son, á bassa og Helgi Svavar Helga- son á trommum. Borgardætur byrjuðu að syngja saman sem þríeyki á Hótel Borg árið 1993, hafa gefið út þrjá geisladiska og að líkindum bætist sá fjórði við á næsta ári. Á tónleikunum í Laug- arborg munu Borgardætur aðallega flytja jólalög, en aldrei að vita nema nýtt efni verði einnig frumflutt á tónleikunum. Forsala aðgöngumiða er í Jólagarðinum. Borgardætur í Laugarborg „HVAR ertu tónlist“ er yfirskrift dags tónlistarmenningar sem hald- inn verður í Ketilhúsinu í dag, laug- ardag. Tónlistarfélag Akureyrar og Gilfélagið leiða saman hesta sína og bjóða upp á tónlistarflutning frá kl. 13 til 18. Fram koma flestir ef ekki allir kórar sem starfandi eru á Akureyri, hátt í tuttugu talsins, en einnig ýmsir hljóðfæraleikarar, einsöngvarar og tónlistarhópar. Tilgangurinn er að vekja athygli á klassísku tónlistarlífi á Akureyri og kynna það starf sem þar er unnið en einnig að auðga líf bæjarbúa á þessum fyrsta stóra verslunardegi fyrir jól. Komið verður upp barna- húsi í Deiglunni þar sem þau geta unað sér við myndlist og tónlist og hlustað á sögulestur. Aðgangur er ókeypis og fólk getur komið og far- ið að vild, fengið sér kakó og jóla- bakkelsi. Tónlistarveisla .. Hafnarstræti 5 - sími 551 6760 • www.veidihornid.is • Síðumúla 8 - sími 568 8410 Sendum samdægursMunið gjafabréfin Fyrir veiðimanninn í fjölskyldunni þinni Mesta úrval landsins af veiðivörum Byssuskápur Viðurkenndir, smekklegir byssuskápar í 3 stærðum. Aðeins frá kr. 22.980 Leirdúfukastari Leirdúfukastari fyrir 1 eða 2 leirdúfur. Frábært verð. Aðeins kr. 5.990 Allen byssutöskur Frábært úrval af byssupokum frá Allen, Norinco, Mad Dog o.fl. Aðeins frá kr. 3.995 Tvíhendur Frábært úrval af tvíhendum fyrir kröfuharða veiðimenn. Aðeins frá kr. 16.900 Scierra Aquatex jakki Mjög góður vatnsheldur jakki með útöndun frá Scierra. Aðeins kr. 19.900 Belly Boat Creek Company „belly-boat“ með loftdælu og sundfitum. Aðeins kr. 15.900 Dakota Watch úr Mjög gott úrval af sérhönnuðum úrum fyrir veiðimenn og útivistarfólk. Aðeins frá kr. 4.995 Ron Thompson nestistaska Nestistöskur í útileguna, fellihýsið eða veiðitúrinn. Aðeins kr. 4.995 Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is -Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Kristín sýnir í dag fallega 2ja herb. íbúð á 1. hæð, merkt 1b. Íbúðin er um 60 fm. Nýlegt parket og nýmál- uð. Frystihólf í kjallara. Laus strax. Stutt í alla þjónustu. Verð aðeins 9,4 millj. Æsufell 6 - Opið hús
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.