Morgunblaðið - 04.12.2004, Page 2
2 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
KOSIÐ Á NÝ Í ÚKRAÍNU
Hæstiréttur Úkraínu hefur skipað
svo fyrir að forsetakosningar sem
haldnar voru 21. nóvember sl. verði
endurteknar. Er gert ráð fyrir að
kosningarnar fari fram 26. desem-
ber nk. Viktor Janúkóvítsj forsætis-
ráðherra sigraði leiðtoga stjórnar-
andstöðunnar, Viktor Jústsjenskó, í
kosningunum skv. opinberum tölum
en hæstiréttur tók í úrskurði sínum í
gær undir með Jústsjenkó að svindl
hafi einkennt kjörið.
Blóðbað í Bagdad
Að minnsta kosti 30 manns týndu
lífi í árásum skæruliða í Bagdad,
höfuðborg Íraks, í gær. Vígahópur
Jórdanans Abu Musabs al-Zarqawis
hefur lýst ábyrgð á ódæðunum á
hendur sér.
Krónan styrkist
Gengi krónunnar hækkaði um
2,8% í gær, en hækkunin er rakin til
tilkynningar Seðlabankans um
hækkun á stýrivöxtum bankans.
Hækkun á gengi krónunnar leiðir til
lækkunar á verðbólgu, en sýnt þykir
að samkeppnisstaðan versnar.
Verkfærum stolið
Verkfærum og öðrum búnaði fyrir
tugi milljóna er stolið frá verktökum
á ári hverju. Á síðasta ári voru
greiddar meira en 60 milljónir í bæt-
ur vegna þjófnaðar frá verktökum.
Y f i r l i t
Kynning – Blaðinu fylgja auglýsinga-
blöðin Jólin 2004 frá Lancôme og
Jólagjafahandbók Miðborgarinnar.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
TUTTUGU og eins árs maður var í
gær dæmdur í sjö mánaða fangelsi,
skilorðsbundið til fimm ára, fyrir
kynferðisbrot gegn fimm ára telpu á
heimili hennar í Hafnarfirði í sumar.
Hann var einnig dæmdur til að
greiða henni 150.000 krónur í miska-
bætur.
Móðir telpunnar leitaði til Fé-
lagsþjónustu Hafnarfjarðar eftir að
telpan hafði sagt frá því að maðurinn,
kærasti eldri systur hennar til
tveggja ára, hefði nuddað á henni
kynfærin. Hjá lögreglu sagði maður-
inn að stúlkan hefði dottið og meitt
sig á kynfærunum, en það var stað-
fest af móður hennar, og hún hefði
viljað sýna honum sárið. Þá hefði
hann kysst á kynfæri hennar og
strokið þau og hefði það staðið yfir í
tíu mínútur. Fyrir dómi sagðist hann
frekar telja að þetta hefði staðið yfir í
fimm mínútur. Stúlkan sagði foreldr-
um sínum frá atburðinum samdæg-
urs og móðir hennar leitaði í kjölfarið
til Félagsþjónustunnar.
Í niðurstöðum Héraðsdóms
Reykjaness segir að atvikið hafi verið
alvarlegt og beinst að mikilsverðum
hagsmunum. Það hafi verið framið á
heimili telpunnar þar sem maðurinn
var heimilisvinur og naut óskoraðs
trúnaðartrausts foreldra hennar.
Með þetta í huga þætti sjö mánaða
fangelsi hæfileg refsing, en þar sem
maðurinn væri ungur, hefði ekki áður
gerst sekur um brot á hegningarlög-
um, skýlaust játað brot sitt, sýnt iðr-
un og leitað sér hjálpar til þess að
koma í veg fyrir að svona atburður
gerist aftur mætti skilorðsbinda refs-
inguna. Skilorðstíminn er fimm ár og
brjóti maðurinn ekki af sér fellur hún
niður að þeim tíma liðnum.
150.000 í bætur
Fyrir hönd telpunnar var farið
fram á eina milljón í miskabætur. Í
dómnum segir að stúlkan hafi orðið
fyrir áfalli og ljóst að brotið væri al-
mennt til þess fallið að valda sálræn-
um erfiðleikum. Talið var að telpan
hefði orðið fyrir miska en dómurinn
taldi bætur hæfilegar 150.000 krón-
ur. Þá var maðurinn dæmdur til að
greiða allan sakarkostnað, þ.á m.
180.000 krónur í málsvarnar- og rétt-
argæslulaun.
Gunnar Aðalsteinsson kvað upp
dóminn. Sigríður Jósefsdóttir sak-
sóknari sótti málið f.h. ríkissaksókn-
ara en Guðbjarni Eggertsson hdl. var
til varnar.
Dæmdur fyrir kynferð-
isbrot gegn 5 ára telpu
TILKYNNT var hverjir urðu fyrir
valinu sem ljósberar ársins 2004 í
Alþjóðahúsinu í gær og urðu séra
Toshiki Toma, stjórnmálafræð-
ingur og prestur, og Gunnar Her-
sveinn, heimspekingur og blaða-
maður, fyrir valinu en þeir þykja
báðir hafa vakið athygli með skrif-
um sínum fyrir rökfestu og beitta
dómgreind um siðferði og ábyrgð í
samfélaginu.
Samstarfshópur um ljósberann
hefur frá stofnun árið 2001 valið
ljósbera ársins, en auk þess hefur
hópurinn staðið fyrir fundum og
ýmsum verkefnum tengdum heil-
brigðum lífsstíl barna og unglinga. Í
hópnum eru fulltrúar frá Félags-
þjónustunni í Reykjavík, Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur, ÍTR, Neyðar-
móttökunni, SAMFOK, Landlækn-
isembættinu, Menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi, Lögreglunni í
Reykjavík og Lögreglunni í Kópa-
vogi.
Gunnar hefur undanfarið skrifað
reglulega í Morgunblaðið um sam-
mannleg gildi, tilfinningar, dyggð-
ir, friðarmenningu, jafnrétti og fjöl-
menningu. Þegar hann tók við
viðurkenningunni í Alþjóðahúsinu í
gær hvatti hann fjölmiðla til dáða
við að birta efni um gildi, tilfinning-
ar, mannréttindi og hugtök. „Það er
alveg ljóst að almenningur hefur
mikinn áhuga á þessum málefnum,
miklu meiri kannski en ritstjórarnir
gera sér grein fyrir,“ segir Gunnar.
Toma sagði það mikinn heiður að
verða fyrir valinu sem ljósberi árs-
ins 2004, en það hafi jafnframt kom-
ið sér mikið á óvart. „Mér þykir
vænt um að fólk metur skrif mín svo
mikils,“ sagði Toma. Hann þakkaði
þeim sem hafa tekið að sér að lesa
yfir greinar hans og lagað málfarið
í þeim, og sagði það gott dæmi um
hvernig fjölmenningarlegt sam-
félag getur virkað.
Í umsögn samstarfshópsins um
Gunnar Hersvein og Toshiki Toma
segir að þeir hafi báðir sýnt mikið
hugrekki með því að stíga fram og
fjalla á agaðan og eftirtektarverðan
hátt um viðkvæm og krefjandi sið-
ferðismál, og með því hafi þeir haft
mikil áhrif á viðhorf fólks í sam-
félaginu.
Valdir ljósberar ársins 2004
Morgunblaðið/Árni Torfason
Toshiki Toma og Gunnar Hersveinn eru ljósberar ársins 2004.
VERJENDUR Dragoljub Ojd-
anic, fyrrverandi yfirmanns
júgóslavneska hersins, hafa
óskað eftir því að íslensk
stjórnvöld láti þeim í té allar
leynilegar upplýsingar sem þau
búi yfir um samskipti hershöfð-
ingjans við aðra á tímabilinu 1.
janúar til 1. júní 1999. Beiðnin
var lögð fram á miðvikudag en
þá hófust réttarhöld yfir hon-
um hjá Alþjóðastríðsglæpa-
dómstólnum í Haag í Hollandi.
Hjá utanríkisráðuneytinu
fengust þær upplýsingar að
engin slík beiðni hefði borist og
ekki væri vitað til þess að slíkar
upplýsingar væri hér að finna.
Verjendurnir hafa sent sam-
bærilegar beiðnir til allra aðild-
arríkja Atlantshafsbandalags-
ins.
Dragoljub Ojdanic var yfir-
maður júgóslavneska heraflans
í átökum í Kosovo 1998–1999
og var ákærður fyrir stríðs-
glæpi og glæpi gegn mannúð í
maí 1999, á sama tíma og
ákæra var lögð fram gegn Slo-
bodan Milosevic, fyrrverandi
forseta Júgóslavíu. Hann gaf
sig fram við dómstólinn árið
2002 og hefur ætíð haldið fram
sakleysi sínu.
Beiðni til 13 ríkja
Blaðafulltrúi dómstólsins
staðfesti í gær að íslensk
stjórnvöld hefðu verið beðin
um upplýsingar en enginn
fulltrúi Íslands hefði þó mætt
fyrir dóminn. Í bréfi sem blaða-
fulltrúinn sagði að hefði verið
sent til íslenskra stjórnvalda
segir að verjendur Ojdanic fari
fram á „allar upptökur, sam-
antektir, minnispunkta eða
endurrit“ af öllum hleruðum
samskiptum sem hershöfðing-
inn hafi átt í, hvort sem um sé
að ræða samtöl, tölvupóst eða
bréf, sem og upplýsingar um öll
samskipti þar sem á hann er
minnst. Einnig er farið fram á
að stjórnvöld afhendi öll skjöl
þar sem Ojdanic ber á góma.
Í samtali við Morgunblaðið
sagði Peter Robinson, einn
þriggja verjenda Ojdanic, að
dómstóllinn hefði tvisvar áður
sent beiðnir til íslenskra
stjórnvalda um upplýsingar en
aldrei fengið svör.
Vilja fá
leynileg-
ar upp-
lýsingar
INGIBJÖRG Þ. Rafn-
ar hæstaréttarlögmað-
ur hefur verið skipuð af
forsætisráðherra í
embætti umboðsmanns
barna frá 1. janúar
2005. Hún var valin úr
hópi sextán umsækj-
enda og tekur við af
Þórhildi Líndal, sem
gegnt hefur embættinu
frá 1. janúar 1995.
Ingibjörg lauk emb-
ættisprófi í lögfræði frá
Háskóla Íslands árið
1975. Hún var lögfræð-
ingur mæðrastyrks-
nefndar á árunum
1978–1982 og vann sem lögmaður á
árunum 1986–1999, einkum að mál-
um er varða málefni barna og fjöl-
skyldna. Hún var borgarfulltrúi í
Reykjavík á árunum
1982–1986 og sat sem
slík í félagsmálaráði,
þar af sem formaður í
eitt ár. Auk þess var
hún formaður Dagvist-
ar barna 1982–1985. Þá
hefur hún tekið þátt í
mótun löggjafar um
málefni barna, bæði
laga um fæðingarorlof
1986 og laga um vernd
barna og ungmenna
1992. Ingibjörg hefur
langa og farsæla
reynslu af störfum
tengdum réttindum
barna og aðbúnaði
þeirra.
Eiginmaður Ingibjargar er Þor-
steinn Pálsson sendiherra og eiga
þau þrjú börn.
Ingibjörg Þ. Rafnar
umboðsmaður barna
Ingibjörg Þ. Rafnar
Í dag
Úr verinu 12 Viðhorf 36
Viðskipti 16 Messur 40/42
Erlent 20/21 Minningar 42/49
Höfuðborgin 25 Skák 49
Árborg 26 Brids 52
Landið 26 Dagbók 54
Akureyri 27 Víkverji 54
Listir 28 Velvakandi 55
Ferðalög 29 Staður og stund 56
Daglegt líf 30/31 Menning 57/65
Bréf 32 Ljósvakamiðlar 66
Umræðan 32/37 Veður 67
Forystugrein 34 Staksteinar 67
* * *