Morgunblaðið - 04.12.2004, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 21
ERLENT
Helstu útsölustaðir: Blómaval Sigtúni, Tekk Company Kópavogi, Villeroy & Boch Kringlunni, Húsgagnahöllin,
Lystadún Marco Mörkinni, Hlín blómahús Mosfellsbæ.
Landið: Blómaval Akureyri, Blómaval Keflavík, Náttúrubúðin Hveragerði, Blómahúsið Akranesi, Heimahornið
Stykkishólmi, Efnalaugin Albert Ísafirði, Efnalaugin Lind Siglufirði, Húsgagnaval Höfn Hornafirði, Sveitabúðin
Sóley Gaulverjabæjarhreppi.
NOËL
Einstakur jólailmur
!"#
$%"%#
"
"# & ' &(
' )(
' (
*+$%,%
% -" ., /''"
LJÓSALIND 2 - OPIÐ HÚS
Stórglæsileg 97,7 fm íbúð á annarri hæð t.v. með bílskúr. Eignin skiptist í for-
stofu, tvö svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, eldhús,
stofu og borðstofu. Rúmgóðar yfirbyggðar svalir með glæsilegt útsýni. Falleg-
ar sérsmíðaðar innréttingar. Mjög góður bílskúr, sem er innréttaður sem
vinnustofa. Verð 23,5 millj. Jón verður á staðnum frá kl. 14-16 í dag.
564 6464
Síðumúla 24 • 108 Reykjavík
hof@hofid.is • www.hofid.is
Guðm. Björn Steinþórsson
lögg. fasteignasali
Jón Guðmundsson sölustjórifasteignasala
BRESKA hægritímaritið
The Spectator gerir oft í því
að storka hefðbundnum við-
horfum og pólitískri rétt-
hugsun og gengst hikstalaust
við því að reyna að höfða
fremur til menntafólks og yf-
irstéttarinnar en almennings
– þótt vissulega megi oft
greina skelmisbros á bak við
þær yfirlýsingar.
Ritstjórinn, Boris John-
son, er litríkur þingmaður
fyrir Íhaldsflokkinn, giftur
og fjögurra barna faðir en
komst nýlega í fréttirnar fyr-
ir að halda við einn af dálka-
höfundunum, Petronellu
Wyatt. Hún er af þekktri ætt
í Bretlandi og hefur ritað
vikulega dálka úr samkvæm-
islífinu undir heitinu Singular Life
(Einhleypingslíf) og látið þar ým-
islegt flakka. Geoffrey Wheatcroft,
sem ritað hefur greinar í Spectator,
er ekki hrifinn. „Harðbrjósta fólk
gæti sagt að helsta synd Boris hafi
ekki verið að sænga hjá Petronellu
heldur birta greinarnar hennar,“
segir Wheatcroft og leggur til nýjan
dálk undir nafni Johnsons, Double
Life (Tvöfalt líf)!
Stórpólitísk léttúð
Fleiri Spectator-menn hafa syndg-
að, blaðamaðurinn Rod Little yfirgaf
nýlega eiginkonuna eftir að hafa fallið
fyrir 23 ára gamalli stúlku á ritinu. En
nú virðist léttúðin á ritinu geta haft
pólitískar afleiðingar.
David Blunkett, innanríkisráðherra
í stjórn Tonys Blairs, hefur fram til
þessa m.a. verið þekktur fyrir að vera
fyrsti blindi ráðherrann. En nú hafa
ástir hans og giftrar konu, Kimberly
Quinn, sem þekktari er undir nafni
fyrri eiginmanns síns, Fortiers, orðið
til þess að hann gæti orðið að segja af
sér. Konan er útgáfustjóri Spectators.
Málið er eins og hálfgerð sápuópera
en eins og tímaritið The Economist
bendir á einnig harmleikur. Blunkett
er 57 ára gamall, af fátækum kominn
og blindur frá fæðingu. Faðir hans
fórst af slysförum er sonurinn var 12
ára. En Blunkett braust til mennta
þrátt fyrir erfiða fötlun sína og varð
áhrifamaður í Verkamannaflokknum.
Hann nýtur aðdáunar fyrir dugnað og
þolgæði, á þrjú uppkomin börn en
skildi fyrir 14 árum. Sjálfur segir hann
hjónaband sitt hafa verið misheppnað,
samband hans við eiginkonuna hafi
verið að mestu „platónskt“. Ástkonan
Fortier er 44 ára og hafði aðeins verið
gift seinni manni sínum í tvo mánuði í
ágúst 2001 þegar hún hitti Blunkett.
Hún er bandarísk að uppruna, af auð-
ugu fólki í Kaliforníu og gekk í dýra
skóla á austurströndinni. Fortier er
sögð mjög aðlaðandi, er þau hittust
var hún nýorðin útgáfustjóri Specta-
tors.
Sumarleyfi á Korfu
Andstæðurnar gætu vart verið
meiri, fátæki verkamannssonurinn
andspænis yfirstéttarkonunni hægri-
sinnuðu en kunnugir segja að þegar
þau hafi hist hafi þau bæði fallið með
látum. Þau fóru í sumar saman í leyfi
til grísku eyjarinnar Korfu. Sagt er að
tveggja ára gamall sonur Fortier,
William, sé sonur Blunketts en það er
þó umdeilt. Núverandi eiginmaður
Fortier, Stephen Quinn, sem er sex-
tugur útgefandi tímaritsins Vogue og
auðugur stuðningsmaður Verka-
mannaflokksins, er þess fullviss að
hann eigi soninn og einnig barn sem
eiginkonan ber nú undir belti. En
Blunkett grunar að hann eigi ekki að-
eins William heldur líka væntanlega
barnið, það hafi komið undir
á Korfu.
Quinn, sem gengist hafði
undir ófrjósemisaðgerð, lét
tengja aftur til að geta eign-
ast barn með nýju konunni.
Hann var yfir sig hrifinn
þegar William fæddist og
segist nú fyrirgefa maka sín-
um allt.
Samband Fortier og
Blunketts slitnaði fyrir
nokkru og er haft eftir
Fortier að ráðherrann sé
svo frekur að henni hafi
fundist nóg um. Blöð hafa
sum gagnrýnt hana harka-
lega fyrir að beita hálfgerðu
óþverrabragði, að því er
virðist til að hræða Blunk-
ett. Fortier sendi dag-
blaðinu Sunday Telegraph afrit af
tölvuskeyti sem túlka mátti þannig
að ráðherrann hefði misnotað stöðu
sína og beitt áhrifum sínum til að
flýta fyrir því að filippseysk barn-
fóstra ástkonunnar, Leoncia Cas-
alme, fengi dvalarleyfi. Fleiri dæmi
um misnotkun eru tínd til.
„Það hryggir mig mjög að mann-
eskja sem mér þótti svo vænt um
skyldi reyna að skaða mig í embætti
með röngum ásökunum,“ segir
Blunkett. Hann hefur falið fyrrver-
andi, háttstettum embættismanni að
rannsaka málið án sinna afskipta.
Verði niðurstaðan að ráðherrann hafi
brotið reglur gæti það nægt til að
hann yrði að segja af sér, enda þótt
hann hafi fengið eindregnar stuðn-
ingsyfirlýsingar frá Blair.
Vill DNA-rannsókn
Blunkett hefur að sögn krafist
þess að gerð verði DNA-rannsókn til
að kanna faðerni barnanna og vill
hann þannig tryggja sér umgengn-
isrétt við þau. Vinir Blunketts segja
hann vera mjög ósáttan við slitin,
hann hafi verið og sé enn yfir sig ást-
fanginn af Fortier.
Síðasta atriðið í sápuóperunni er
að mál Blunketts til að fá umgengn-
isrétt var staðfest fyrir rétti í London
í gær. Verði réttarhöldin langdregin
gæti farið svo að samúðin sem Blunk-
ett nýtur nægi honum ekki. Menn
gætu spurt sem svo hvort maður sem
á í svo miklum erfiðleikum í einkalíf-
inu geti yfirleitt sinnt jafn ábyrgð-
armiklu starfi.
Þverpólitískt fram-
hjáhald á Spectator
Ástamál Davids Blunketts, innanríkisráðherra Bretlands, hafa vakið
mikla athygli og hugsanlegt að þau kosti hann embættið. Og enn hefur
hægritímaritið The Spectator tengst safaríku hneyksli.
Boris Johnson Petronella Wyatt
Tony Blair (t.v.) forsætisráðherra aðstoðar David
Blunkett innanríkisráðherra en þeir eru á leið inn í
bústað forsætisráðherrans, Downingstræti 10.
Reuters
kjon@mbl.is