Morgunblaðið - 04.12.2004, Side 24
Höfuðborgin | Árborg | Akureyri
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
FRAMKVÆMDIR setja svip sinn á
bæjarlífið hér á Þórshöfn; viðbygging
við Dvalarheimilið Naust rís ótrúlega
hratt frá grunni en framkvæmdir hóf-
ust í haust. Horfur eru á að lokið verði
uppsteypu, þaki og glerjun fyrir jól en
eftir áramót hefst vinna innan dyra og
stefnt er að því að hægt verði að taka
húsnæðið í notkun næsta haust.
Hafist verður handa við breytingar
á kúfiskverksmiðju Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar um miðjan desember og
verður þeim væntanlega lokið í mars á
næsta ári. Breytingar munu tvöfalda
afkastagetu verksmiðjunnar og stór-
bæta afkomumöguleika í kúfiskvinnsl-
unni en einnig er verið að skoða af-
kastaaukningu í veiðunum. Í
fjölveiðiskipinu Þorsteini ÞH-360 hafa
veiðar og vinnsla gengið mjög vel og
ljóst að tilkoma skipsins er kærkomin
viðbót við atvinnulíf byggðarlagsins.
Hinn nýi Júpíter, nóta- og tog-
veiðiskipið, sem keypt var í haust frá
Færeyjum, fer væntanlega á veiðar
innan tíðar eftir gagngerar breytingar
og endurbætur. Nokkrar væntingar
eru bundnar við það enda er skipið
búið öflugum kælibúnaði og á að geta
komið með gott hráefni að landi, bæði
í bræðslu og til frystingar í landi.
Hjá Hraðfrystistöðinni hefur
starfsfólk haft nóg að gera en gaf sér
þó tíma til ferðalaga í nóvemberbyrjun
en þá fóru nálægt 50 manns úr byggð-
arlaginu í vikuferð til Kúbu eða um
12% allra íbúa byggðarlagsins. Þar
gekk allt að óskum en fríið og sólin
hefur verið sem uppbyggjandi víta-
mínsprauta fyrir ferðalangana sem
komu vel úthvíldir heim til að takast á
við jólaannríkið og kuldann heima á
Fróni.
Fullveldishátíð á vegum björg-
unarsveitar, leikfélags og sveitarfé-
lagsins hér er haldin núna annað árið í
röð. Hátíðin er haldin í félagsheimilinu
Þórsveri og hefst með margrétta
„gala-dinner“ sem stjórnað er af sæl-
kerakokknum Arnari Einarssyni
skólastjóra og Jóhanni, syni hans.
Leikfélagið sér um skemmtidagskrá
og síðan dunar dansinn fram eftir
nóttu. Skammdegisdrungi hrjáir því
ekki íbúana hér, alltaf er nóg að gera.
ÞÓRSHÖFN
EFTIR LÍNEYJU SIGURÐARDÓTTUR
FRÉTTARITARA
Úr bæjar-
lífinu
Rithöfundarnir Sig-mundur ErnirRúnarsson, Gerð-
ur Kristný, Þráinn Bert-
elsson og Jóhanna Krist-
jónsdóttir verða gestir á
Bókakonfekti í Reykja-
nesbæ í ár. Bókakonfektið
verður laugardaginn 4.
desember kl. 16 í Lista-
safni Reykjanesbæjar í
Duus-húsum. Þá munu
systkinin Ragnheiður og
Haukur Gröndal koma
fram og bjóða gestum upp
á hugljúfa tónlist með jó-
laívafi. Rithöfundarnir
fjórir eiga það sameig-
inlegt að ritverk þeirra
hafa vakið athygli og feng-
ið mikla umfjöllun að und-
anförnu.
Bóka-
konfekt Sigrún Haraldsdóttirheyrði af því aðþingmenn hefðu
hækkað skatta á áfengi:
Þingmanna er kveðjan köld,
kvikindislegt grínið.
Fóru að hækka í fyrrakvöld
fjárans brennivínið.
Stefán Vilhjálmsson bend-
ir á að „ráðherra ferða-
mála“, eins og hann hafi
verið nefndur, hafi unnið
„varnarsigur“:
Stendur keikur Sturla minn,
á stolti finnst mér bera:
„Öl og léttvín, enn um sinn,
alveg létum vera.“
Guðbrandur Guðbrands-
son yrkir:
Þetta vekur ýmsum ugg
einkum þeim er selja bús;
nú kaupi menn hjá bændum brugg,
en bjórinn hætti að lepja úr krús.
Sigurður Ingólfsson orti:
Á Borgarfirði búa þeir til landa,
sem bæði kann að lífga upp og hressa,
svo ég mun ekki hlaupa upp til handa
og heldur ekki fóta vegna þessa.
Skattur á áfengi
pebl@mbl.is
Vík | Leikskólinn í Vík var opinn almenningi í til-
efni af tuttugu ára afmæli Mýrdalshrepps. Boðið
var upp á kaffi og vöfflur í tilefni dagsins. Anna
Beta Jónínudóttir stendur á bak við stólinn sem
Elfa Helgadóttir situr á. Þær skemmtu sér kon-
unglega í afmælisveislunni.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Skemmtileg afmælisveisla
Leikur
Ólafsvík | Byggðastofnun hefur selt Hótel
Ólafsvík til félags í eigu Sverris Her-
mannssonar, hótelhaldara í Reykjavík og á
Egilsstöðum, og Björgvins Þorsteinssonar
hæstaréttarlögmanns.
Kemur þetta fram á vef Snæfellsbæjar.
Félag Sverris og Björgvins ber nafnið
Undir jökli ehf. og mun það taka við rekstri
hótelsins á næstu dögum
Eigendaskipti á
Hótel Ólafsvík
Ísafjörður | Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar
lýsir furðu sinni á því að til standi að gera
samkomulag um sameiningu Landsvirkj-
unar, RARIK og Orkubús Vestfjarða og
vísar til þess að það hafi komið fram í frétt-
um. Kemur þetta fram í ályktun sem Hall-
dór Halldórsson bæjarstjóri flutti á fundi
bæjarstjórnar í fyrradag og samþykkt var
samhljóða.
Í ályktuninni er minnt á fyrirheit um efl-
ingu Vestfjarða, byggðaáætlun ríkisstjórn-
ar og Alþings og Vestfirska byggðaáætlun.
Einnig tillögur Vestfirðinga um eflingu
Orkubús Vestfjarða með sameiningu þess
við RARIK í Norðvesturkjördæmi, með
höfuðstöðvar á Ísafirði. Þá er það rifjað
upp að nefnd á vegum forsætisráðherra
sem fjallaði um byggðamál í Norðvestur-
kjördæmi hafi skila tillögu sama efnis og
hún sé einnig til umfjöllunar í nefnd um
byggðamál á Vestfjörðum sem iðnaðarráð-
herra skipaði.
Fara á fund ríkisstjórnar
„Í ljósi þess hversu alvarlegar afleiðing-
ar fyrrnefndar hugmyndir gætu haft fyrir
vestfirskt samfélag, m.a. með fækkun
starfa, felur bæjarstjórn bæjarstjóra og
formanni bæjarráðs, að fara á fund for-
svarsmanna ríkisstjórnarinnar og fylgja
eftir hagsmunum Ísafjarðarbæjar í þessu
máli,“ segir í ályktuninni.
Hafa áhyggj-
ur af samein-
ingu orku-
fyrirtækja
♦♦♦
Í tilefni af því að flyg-illinn, sem Tónlistar-félag Hveragerðis
keypti í kirkjuna, er
greiddur að fullu var
ákveðið að bjóða Hver-
gerðingum til tónleika. Af
því tilefni komu þar fram
listamennirnir Jónas
Ingimundarson píanóleik-
ari og Sigrún Hjálmtýs-
dóttir söngkona.
Áður en tónleikarnir
hófust afhentu fulltrúar
Lionsklúbbsins ávísun,
sem var ágóði af vorhátíð
Lions og gerði Tónlistar-
félaginu kleift að greiða
síðustu greiðsluna af
flyglinum.
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Flygillinn að fullu greiddur
Hólmavík | Handverks-
félagið Strandakúnst
stendur fyrir jólamark-
aði sem var opnaður í
húsnæði Kaupfélags
Steingrímsfjarðar á
Hólmavík fyrstu
helgina í aðventu og
stendur til jóla. Mæðg-
urnar Ásdís Jónsdóttir
og Hrafnhildur Guð-
björnsdóttir sjá um
markaðinn, en Ásdís var
við afgreiðslu þegar
fréttaritari kíkti við
einn kaldan dag í desember.
„Við erum hér með mikið af fjöl-
breyttu handverki eftir heimafólk og
auk þess galdragóss, “ sagði Ásdís.
„Svo er það flóamarkaðshornið,
þangað getur fólk komið með hluti
um leið og það tekur til í skápunum
fyrir jólin, og þar er líka leyfilegt að
prútta.“ Í umræddu horni getur að
líta notaðan fatnað og ýmsa nytja-
hluti sem heilmikið er eftir af, en
hafa lokið sínu hlutverki hjá fyrri
eigendum.
Á veggjum markaðarins hangir
svo athyglisverð málverkasýning
eftir tvo hólmvíska áhugalistmálara,
þau Ásdísi Jónsdóttur og Jón
Trausta Guðlaugsson. Myndirnar
eru flestar í einkaeigu en voru feng-
ar að láni fyrir þessa sýningu.Til að
undirstrika stemmninguna ómaði
svo nýútgefinn geisladiskur,
Draumar, eftir Drangsnesinginn
Björn Guðna Guðjónsson.
„Það má ekki gleyma kaffihorn-
inu, það er alltaf notalegt að setjast
niður og fá sér kaffi og piparköku
þegar svona kalt er úti. Svo verður
jólakvartettinn með uppákomur síð-
ustu tvo sunnudagana í aðventunni
og syngur gamla og nýja slagara,“
sagði Ásdís.
Strandakúnst með jólamarkað
Leyfilegt að prútta
Morgunblaðið/Stína Einars
Tilraun með sæeyru | Vinnslustöðin í
Vestmannaeyjum mun á næstunni hefja
tilraunaeldi á sæeyrum. Haft er eftir Stef-
áni Friðrikssyni, aðstoðarforstjóra fyrir-
tækisins, í blaðinu Fréttum í Eyjum að ör-
fá dýr komi þangað næstu daga en
niðurstöður tilraunarinnar liggi ekki fyrir
fyrr en eftir nokkra mánuði.
♦♦♦