Morgunblaðið - 04.12.2004, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | Langþráð stækkun vinnu- og hæf-
ingarstöðvar fyrir fatlaða á Suðurlandi var
formlega tekin í notkun í gær að viðstöddum
Árna Magnússyni félagsmálaráðherra. Ný-
byggingin er um 300 fermetrar að stærð og
hýsir aðstöðu fyrir hæfingu fjölfatlaðra, eld-
hús og matsal og sal fyrir fundi. Einnig er
þar komið fyrir verslun með framleiðsluvör-
ur vinnustofunnar, tölvuveri og listgalleríi
með listmunum eftir starfsmenn.
Hin nýja aðstaða breytir miklu fyrir þá
sem eru mest fatlaðir og með tilkomu henn-
ar er unnt að auka þjónustu við þá sem fyrir
eru um helming og hægt er að bæta við
þjónustutímum fyrir fleiri. Eldri hluti hús-
næðisins mun nýtast fyrir þá umfangsmiklu
verkstæðisvinnu sem fram fer í húsinu.
Með því besta sem gerist
Heildarkostnaður við framkvæmdina nem-
ur 60 milljónum króna. Aðalverktaki var fyr-
irtækið Þráinn – Víkingur ehf. í Landeyjum
og eftirlit með framkvæmdum var á hendi
Guðjóns Sigfússonar, Verkfræðistofu GS á
Selfossi.
Við innganginn í nýbygginguna hefur ver-
ið komið fyrir listaverkinu Ljáðu mér vængi
eftir Helga Gíslason myndhöggvara.
Starfsfólk og forsvarsmenn Svæð-
isskrifstofu um málefni fatlaðra á Suðurlandi
hafa horft til þessarar stundar í mörg ár en
byrjað var að ræða stækkun aðstöðunnar
1994. „Aðstaðan er með því sem best gerist,
tækifærin eru óþrjótandi og verkefnin ærin.
VISS, vinnu- og hæfingarstöð, er vinnu-
staður fólks sem hefur margt að leggja til
samfélagsins og hefur mörgu að miðla,“
sagði Ragnheiður Hergeirsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Svæðisskrifstofunnar, í ávarpi
við opnunina. Hún sagði ennfremur: „Vinnan
skipar stóran sess í lífi okkar. Það að hafa
verðugt verkefni, að leggja sitt af mörkum
og að vera virkur þátttakandi í samfélaginu
er afar dýrmætt. Við lifum á tímum tækni og
upplýsinga, nánast allt er mögulegt hafi
maður til þess þekkinguna, réttu aðstæð-
urnar og réttu tækin. Sú aðstaða sem hér
hefur verið sköpuð er skref í átt til betra lífs
og aukinna tækifæra fyrir fatlað fólk á Suð-
urlandi.“
Viðbygging vinnu- og hæfingarstöðvar fatlaðra á Suðurlandi var tekin í notkun í gær
Skapar aukin tæki-
færi fyrir fatlað fólk
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Opnun Árni Magnússon félagsmálaráðherra flytur ávarp við opnunina.
Selfoss | „Þetta gefur mér mjög mik-
ið, maður dettur út úr hinu daglega
amstri og fer inn í hugarheim þar
sem maður dvelur við skapandi hugs-
un og á eftir er maður úthvíldur.
Þetta er eins konar hugleiðsla,“ segir
listamaðurinn Liston á Selfossi, Lúð-
vík Karlsson. Hann er starfsmaður í
Sundhöll Selfoss þar sem hann sinnir
afgreiðslu, laugarvörslu og þjónustu
við hina fjölmörgu gesti sem þangað
koma á degi hverjum.
Liston hefur fengist við myndlist
og sköpun allt frá barnæsku. „Ég hef
alltaf haft mikinn áhuga á list-
sköpun,“ segir Lúðvík sem flutti á
Selfoss fyrir 18 árum. Frá 1994 hefur
hann unnið af krafti við listsköpun og
hefur komið sér upp vinnustofu
heima hjá sér þar sem hann málar og
fæst við skúlptúra í frístundum.
Hann hefur haldið eina sjálfstæða
listsýningu ásamt því að taka þátt í
einni samsýningu. „Það er nú þannig
að fólk hefur hvatt mann áfram í
þessu og það pantar myndir hjá mér
sem er auðvitað mjög gott því það
gerist ekkert nema til sé fólk sem vill
njóta verkanna,“ segir Liston.Um
þessar mundir er Liston að mála
myndir fyrir Gallerý fisk í Reykjavík
en þar eru verkin í anda hússins, fisk-
ar og skúlptúrar sem tengjast sjónum
á einhvern hátt.
Innri þörf sem brýst fram
„Það er einhver þörf sem myndast
innra með manni að fást við þessa
myndgerð. Oftast er mikil hugsun á
bak við myndirnar en ég reyni að
gera verkin þannig úr garði að fólk
geti notið þeirra en svo má finna
dýpri merkingu með því að fara ofan í
hugsunina sem að baki býr,“ segir
Liston sem málar bæði á pappír og
striga ásamt því að móta í tré og
stein. Hann segist skilja alveg á milli
vinnunnar og listsköpunarinnar en
það sé orðið svo mikið að snúast í list-
inni að um leið og vinnudeginum lýk-
ur þá helli hann sér í listsköpunina
annaðhvort með því að hugleiða það
sem efst er í huganum þá stundina
eða að hann gleymir sér við vinnuna á
vinnustofunni.
„Hugmyndir að listaverkum fæ ég
alltaf utan vinnutímans. Verkin birt-
ast stundum í heild sinni í huganum
en önnur þróast smám saman og
stundum árum saman. Svo sæki ég
hugmyndir í heimspekilegar vanga-
veltur sem mér finnst gott að nota til
að ná fram áhrifum. Þessar hugsanir
er ég að tjá í verkum mínum og vil að
fólk geti lesið eitthvað út úr þeim.
Stundum verður til hugmynd sem er
svo ásækin að ég verð að framkvæma
hana strax eins og myndin af fóstrinu
sem ég bjó til í tré en hún varð til eftir
eina verslunarmannahelgina þegar
fréttir voru af nauðgun sextán ára
stúlku. Þetta greip mig mjög sterkt,“
segir Liston en í skúlptúrinn eru
negldir 16 naglar sem sýna eiga sárs-
auka þessarar ungu stúlku. „Þetta
var átakamikið og ég vann myndina í
einum rykk,“ segir Liston þegar hann
handleikur verkið.
Sundlaugarvörðurinn fæst við listsköpun í frístundum
Þetta er einskonar hugleiðsla
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Áhugi Liston í vinnustofu sinni með átakamikinn skúlptúr í höndunum.
Selfoss | Hinn árlegi jólamarkaður
VISS á Selfossi verður opnaður á
mánudag, 6. desember kl 13, í glæsi-
legri viðbyggingu Vinnustofunnar
að Gagnheiði 39. Á markaðnum eru í
boði fallegir listmunir sem unnir eru
af þeim 29 einstaklingum sem starfa
í Vinnustofunni. Við opnunina mun
kór Fjölmenntar syngja nokkur lög
undir stjórn Gylfa Kristinssonar.
Jólamarkaðurinn verður opinn
alla virka daga klukkan 8.30 til 16
fram til 21. desember. Starfsfólkið
býður alla velkomna, að líta inn og
skoða úrvalið.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Undirbúa markaðinn Guðmundur Karl, Haraldur, Hörður og Lárus, starfs-
menn á Vinnustofunni, með nokkra muni sem verða á jólamarkaðnum.
Jólamarkaður
VISS opnar
Flóinn | „Það er alltaf opið, þegar
einhver er hér heima,“ segir Sóley
Andrésdóttir, bóndi og kaupmaður í
Sveitabúðinni Sóley í Gaulverjabæj-
arhreppi í Flóa. „Þótt við séum ekki
inni í búðinni eða íbúðarhúsinu gæt-
um við verið í útihúsunum. Þá er
bara að rölta þangað og sækja okk-
ur og kíkja á hænurnar, kindurnar
og kálfana í leiðinni eða flauta
hressilega á bílnum og þá komum
við að vörmu spori,“ bætir hún við.
Sveitabúðin Sóley er á bænum
Tungu, við veginn sem liggur með
ströndinni, um sjö kílómetra austan
við Stokkseyri.
Sóley segir að búðin sé lítil enda
er hún í bílskúr íbúðarhússins en þar
er verslað með úrval af smávöru fyr-
ir heimili og sumarbústaði. Núna
fyrir jólin er áhersla lögð á gjafavör-
ur og fallega jólaavöru.
„Það hefur ekki verið nein form-
leg opnun, ég byrjaði aðeins síðla
sumars og hef verið að opna smám
saman,“ segir Sóley. Hún segir að
starfsemin hafi spurst út, án þess að
lagt hafi verið í kynningarstarfsemi
og þetta hafi gengið ágætlega. Ný-
lega var sett upp skilti við þjóðveg-
inn.
Sóley og maður hennar, Björgvin
Njáll Ingólfsson, búa með kindur, ís-
lenskar hænur, nautgripi og hross
og Sóley segir að búðin sé liður í því
að auka vinnuna heima og styrkja
búsetugrundvöllinn. „Ég átti mér
þann draum að koma upp lítilli búð,
eins og maður sér víða á sveitabæj-
um í Danmörku. Þetta er smá krydd
í tilveruna í sveitinni,“ segir Sóley
með bros á vör.
Smávörur Sóley Andrésdóttir hefur komið upp sveitabúð í Tungu.
Opið þegar ein-
hver er heima
Sveitabúð að danskri fyrirmynd í Flóanum
Árborg | Sett hefur verið upp síða
um skipulagsvinnu vegna gerðar að-
alskipulags fyrir Árborg árin 2005 til
2025. Síðunni er ætlað að vera sam-
skiptavettvangur fyrir umræður og
veittar verða upplýsingar um gang
mála við gerð skipulagsins. Öll skjöl
sem koma fram við gerð skipulagsins
verða sett inn á síðuna og þannig
gefst íbúum færi á að skoða þau um
leið og skipulagsvinnan á sér stað.
Á vefnum eru birtar fyrstu skipu-
lagstillögurnar, drög að aðalskipu-
lagi Árborgar 2005 til 2025. Um er að
ræða uppdrætti sem enn eru í
vinnslu og skýrslu um forsendur að-
alskipulagsins og framtíðarsýn fyr-
irsveitarfélagið. Á vef Árborgar
kemur fram að á skipulagsvefnum er
sérstaklega hugsað um að íbúar geti
komið frá sér ábendingum og at-
hugasemdum.
Drög að aðalskipulagi kynnt