Morgunblaðið - 04.12.2004, Page 32

Morgunblaðið - 04.12.2004, Page 32
32 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Munið að slökkva á kertunum ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ Yfirgefið aldrei vistarverur þar sem kertaljós logar. ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins „ÍSLENDINGAR eiga að taka þátt í baráttunni gegn alnæmi í þriðja heiminum. Við höfum á að skipa fær- um sérfræðingum á sviði læknavís- inda og jafnframt ætt- um við að geta lagt t.d. Afríkuríkjum lið við að styrkja stöðu og rétt- indi kvenna. Við ættum að leggja áherzlu á að nálgast vandann með sem skilvirkustum hætti og án fordóma og kredda, af trúarlegum toga eða öðrum.“ Þetta gat að lesa í leiðara Morgunblaðs- ins sl. sunnudag og á ritstjórn Morgunblaðs- ins heiður skilið fyrir afstöðu sína. Við Ís- lendingar eigum svo sannarlega að taka þátt í baráttunni gegn al- næmi í þriðja heim- inum. En hvar á að byrja og hvar má vænta besta árangurs af framlagi Íslands? Ekki er vænlegt að dreifa kröftunum um allan hinn þriðja heim, heldur ein- beita sér þar sem vænta má að árang- ur náist. Fjölmargar misvitrar rík- isstjórnir ýmissa þróunarlanda hindra oft slíka starfsemi með fjár- málaspillingu, ránum og gripdeildum eða jafnvel manndrápum og þjóðern- ishreinsunum, og er þá verr farið en heima setið að reyna að fást við slík vonlaus dæmi. Uppáhaldsbarn þróunarhjálpar Ís- lands í að minnsta kosti 15 ár hefur verið Namibía. Meginhluti alþjóð- legrar þróunarhjálpar Íslands hefur runnið til Namibíu og árangurinn hef- ur verið stórkostlegur. Namibía er nú orðið eitt af þróaðri ríkjum Afríku og meðaltekjur á mann eru hærri en í flestum öðrum ríkjum álfunnar þótt mikið vanti ennþá upp á að ná evr- ópskum eða öðrum vestrænum stöðl- um. Nú sem aldrei fyrr þarf Namibía á aðstoð Íslands að halda. Ógurleg plága herjar í landinu, plága sem líkja má við svartadauða á miðöldum, sem nær því náði að útrýma öllum Ís- lendingum. Þessi plága er AIDS eða alnæmi. Talið er að allt að því 20% fullorðinna íbúa Namibíu séu smitaðir af HIV-veirunni sem talin er leiða til alnæmis. En hvað er til varnar? Ég kann ekki skil á þessum málum, en án efa höfum við Íslend- ingar fjölda sérfræðinga á heilbrigðissviði sem myndu fúslega vera reiðubúnir til þess að takast á við það verkefni að aðstoða Namibíu við berjast við þá ógn sem AIDS er. Hjálp- arstöðvar og sjúkraskýli til þess að sinna þessu verkefni þurfa ekki að vera dýr mannvirki þótt þau verði sett upp í hverjum landshluta. Mönnuð með íslenskum sérfræðingum eru þau ómetanleg og geta skipt sköpum fyrir baráttuna við alnæmi í Namibíu. Fyrir eina ríkustu þjóð heimsins, Íslendinga, væri það kannske ekki ofætlað að þeir væru reiðubúnir til þess að endurnýja aðstoð sína við uppáhaldsbarnið, Namibíu, og takast á við hina miklu ógn sem alnæmið er. Vinir okkar í Namibíu verða okkur ævinlega þakklátir fyrir hverja þá að- stoð sem við getum veitt þeim og vissulega fara þeir fjármunir og önn- ur aðstoð sem við veitum Namibíu ekki í súginn. Namibíumenn hafa sýnt það að þeir eru trausts og að- stoðar fyllilega verðugir, hvað sem segja má um önnur þróunarlönd. Alnæmi í Namibíu Grétar H. Óskarsson fjallar um alnæmi ’Við Íslend-ingar eigum svo sannarlega að taka þátt í bar- áttunni gegn al- næmi í þriðja heiminum. ‘ Grétar H. Óskarsson Höfundur er fv. flugmálastjóri Namibíu. Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar Frá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur: tryggð einstaklinga og fyrirtækja í áraraðir. Engu fé er eytt til að auglýsa nefndina heldur er hver króna notuð til aðstoðar þeim sem á þurfa að halda. Átta kvenfélög í Reykjavík standa að Mæðrastyrksnefnd og frá þeim fé- lögum koma yfir tuttugu sjálf- boðaliðar til starfa allt árið, þó mest fyrir stórhátíðar, jól og páska. Í desember 2003 fengu 1700 fjöl- skyldur aðstoð hjá nefndinni og að jafnaði allt árið 2004 hefir 110 fjöl- skyldum verið veitt aðstoð vikulega, þar af koma 56% oftar en einu sinni í mánuði. Fata- og matarúthlutun er alla miðvikudaga. Í desember verður úthlutunardögum fjölgað í þrjá daga í viku vegna mikils álags. Hafin er söfnun vegna jólaúthlut- ana. Treysta má því að peningunun verður eingöngu varið til þess að styrkja skjólstæðinga, en ekki í dýrar auglýsingar og myndbirtingar. Bankanúmer nefndarinnar er 0101- 26-35021 og kt. 470269-1119 vilji fólk leggja þeim lið sem minna mega sín, hver eftir sinni getu. Öll aðstoð er vel þegin. Þeir sem vilja kynna sér starf- semina eru velkomnir á Sólvallagötu 48. MÆÐRASTYRKSNEFND REYKJAVÍKUR. ÞEGAR líður að jólum margfaldast beiðnir um aðstoð Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur. Mæðrastyrks- nefnd setur þá allt sitt traust á ein- staklinga, fyrirtæki og opinbera aðila að styrkja nefndina í aðstoð við þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu til að halda gleðileg jól. Mæðrastyrksnefnd hefur starfað í 76 ár. Störf hennar þekkjast vel þó svo þau hafi ekki verið borin á torg en það má merkja af góðum stuðningi og UM NOKKURT árabil hef ég reynt að leita réttar míns vegna þess mikla fjárhagstjóns sem ég hef orðið fyrir vegna ólöglegra fjárhættuspila, sem viðgengist hafa hér á landi á vegum „virðulegra“ þjóðfélagsstofnana og í skjóli ríkisvalds. Ég er ekki einn um að hafa haldið því fram að spilakassar Háskóla Ís- lands, Rauða krossins og Lands- bjargar séu kolólöglegir. Ekki minni menn en hæstarréttarlögmenn hafa haldið slíku fram og vísa ég m.a. í ágæta grein sem Sigurgeir Sig- urjónsson skrifaði í Morgunblaðið 20. nóvember 1993. Þar segir m.a.: „Með hliðsjón af þeim ásökunum sem Há- skólinn og Rauði krossinn hafa orðið fyrir um lögbrot og „fjárhættuspil“ er þá ekki hér ástæða til að staldra dálítið við og rannsaka þetta atriði nokkuð nánar?“ Undir þetta skal tekið. En hér stendur hnífurinn í kúnni. Eina færa leiðin til að fá úr þessu skorið er frammi fyrir dómstólum. Um árabil hef ég reynt að leita réttar míns en alltaf komið að lokuðum dyrum. Það er umhugsunarvert að dóms- málaráðuneytið skuli komast upp með að gefa út leyfisbréf fyrir spila- vélum án þess að farið sé að lögum um málsmeðferð, að ekki sé á það minnst að ráðuneytinu skuli líðast að gefa ekki út reglugerðir um spila- kassa eins og þó er kveðið á um í lög- um. Meginmálið er þó að rekstur spilakassanna stenst ekki hegning- arlögin. Í 183. grein þeirra segir: „Sá sem gerir sér fjárhættuspil eða veð- mál að atvinnu eða það að koma öðr- um til þátttöku í þeim, skal sæta sekt- um ... eða fangelsi... Ákveða skal með dómi, hvort vinningi af fjárhættuspili eða veðmáli skuli skilað aftur eða hvort hann skuli gerður upptækur.“ Og í 184. grein segir: „Hver, sem aflar sér tekna beint eða óbeint með því að láta fjárhættuspil eða veðmál fara fram í húsnæði, er hann hefur umráð yfir, skal sæta sektum...eða fangelsi allt að ári.“ Ég er nú búinn að verja tæpri milljón í lögfræðikostnað en án ár- angurs. Lögfræðingar detta úr skaft- inu og er sú spurning farin að gerast áleitin hvort þeir séu svo undir hæl dómsmálaráðuneytisins, að enginn vilji eða þori að taka á máli þar sem nauðsynlegt er að beina spjótum að dómsmálayfirvöldum. Ég mun ekki gefast upp því ég veit að einhvers staðar liggur réttur minn. Ég auglýsi því hér með eftir lögfræðingi sem vill reka mál mitt fyrir Evrópudóm- stólnum. ÓLAFUR M. ÓLAFSSON, Esjugrund 14, 116 Reykjavík. Auglýst eftir lögfræðingi Frá Ólafi M. Ólafssyni: BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is JÆJA, þá er að koma að honum. Deginum sem allir hafa beðið eftir var í gær: Alþjóðadagur fatlaðra! Fatlaðir um heim allan eru væntanlega byrj- aðir að gramsa í fata- skápunum, leitandi að sínum fínustu spariföt- um til að fagna þess- um merkisdegi. Fólk mun rúlla sér út á göt- urnar eða staulast um strætin á hækjunum sínum og fagna, þar sem þessi dagur er svo mikilvægur í bar- áttu fatlaðra. Fólk mun safnast saman á degi þessum og byggja rampa út um allar trissur, henda lyftum inn í stiga- ganga. Öryrkjar geta hætt að birta nöld- urgreinar í Morg- unblaðinu um leið og „paradísarheimur“ fatlaðra verður til. Þessi dagur er horn- steinninn í okkar baráttu, er það ekki annars? Ekki alveg. Mikilvægt er að berjast fyrir réttindum sínum og bættu sam- félagi. Til þess að þróun verði í átt að bættu samfélagi þarf að berjast gegn því sem aftrar þeirri þróun. Smám saman reynum við að mjak- ast í áttina að því sem næst kemst fullkomnun. Ekkert okkar sem er- um lifandi í dag mun upplifa þenn- an „paradísarheim“ fatlaðra. Í lágværum hópum er fínt að hafa dag tileinkaðan sér. Það er þægilegt að berjast á ákveðnum dögum, en ef það heyrir enginn í okkur er alveg eins gott að sleppa því. Því fólk lætur aðeins heyra í sér einu sinni á ári og þegir þess á milli. Þetta er eitthvað sem er ansi slæmt. Ef við erum hluti af minnihlutahópi sem telur stöðu sína ekki nógu góða er nauðsyn- legt að hafa hátt og láta taka eftir sér. Nú er ég ekki að hvetja fólk til að vera sí- tuðandi um hvað allt sé ömurlegt og þyrfti að vera betra. Ég er að hvetja fólk til að láta í sér heyra og bjóða fram lausnir. Sýna fram á hvað má bæta, og hvernig, og gera það við hvert tækifæri. Ekki bara á einhverjum sérstökum dögum. Barátta vinnst ekki á einum degi, það er mikilvægt að enginn gleymi því. Einnig vil ég benda á að stans- laust nöldur og niðurrif er ekki besta aðferðin. Mikilvægt er að taka á málunum með jákvæðni og hvetja í stað þess að skammast. Við verðum nefnilega að muna að bar- átta fatlaðra er barátta fyrir bættu samfélagi, ekki gegn núverandi samfélagi. Dagurinn sem allir hafa beðið eftir Fannar Örn Karlsson fjallar um alþjóðadag fatlaðra Fannar Örn Karlsson ’Barátta vinnstekki á einum degi, það er mikilvægt að enginn gleymi því.‘ Höfundur er nemi og meðlimur Ný-ungar, ungliðahreyfingar Sjálfsbjargar, lsf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.