Morgunblaðið - 04.12.2004, Page 33

Morgunblaðið - 04.12.2004, Page 33
www.krabb.is Uppl‡singar um vinningsnúmer í símum 540 1918 (símsvari) og 540 1900 og á heimasí›u Krabbameinsfélagsins www.krabb.is/happ Audi A3 Sportback. Ver›mæti 2.490.000 kr. Bifreið eða greiðsla upp í íbúð. Ver›mæti 1.000.000 kr. Úttektir hjá ferðaskrifstofu eða verslun. Hver a› ver›mæti 100.000 kr. 168 Krabbameinsfélagsins skattfrjálsir vinningar að verðmæti 170 20.290.000 kr. Vertu með og styrktu gott málefni vinningar: MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 33 UMRÆÐAN Í MORGUNBLAÐINU í gær [fimmtudag] eru um tuttugu greinar og bréf um ólík mál- efni. Öll skrifin eiga það sammerkt að koma á framfæri skoðunum og upp- lýsingum, sem höf- undar álíta, að eigi erindi við almenn- ing. Með því að birta þessar greinar er Morgunblaðið öðrum fremur að kosta miklu til að efla það frumatriði alls lýðræðis, að virða og rækta rétt einstaklinga til að tjá sig þannig að aðrir geti vitað. Þessi háttsemi er eina ástæða þess að ég er áskrifandi Morgunblaðsins þó ég sé oftast andvíg- ur pólitískri rit- stjórnarstefnu þess. Ástæða þessara skrifa minna nú er sú að í síðustu viku sögðu mér tveir kunningjar mínir, sem ekki þekkjast, annar er bifvéla- virki, hinn háskólakennari, að þeir hefðu gerst áskrifendur blaðsins. Báðir hafa oft lesið það á vinnustað og með lausa- kaupum. Þegar ég spurði af hverju þeir hefðu gerst áskrifendur sagði kennarinn að hann yrði að fylgjast með umræðunni í þjóðfélaginu og hún væri mest í Mogg- anum. Bifvélavirkinn sagði: „Mogginn er eini staðurinn þar, sem fólk eins og ég getur komið skoð- unum sínum á fram- færi, hann er svo dýrmætur fyrir um- ræðuna í þjóðfélag- inu og lýðræðið að mér finnst skylda mín að styrkja hann með áskrift, og hef ég þó aldrei kosið íhaldið.“ Mogginn er þjóð- fundur – opið mál- þing. Þar geta allir beðið um orðið og mælendaskráin er löng. Þetta kom í huga minn þegar ég las blaðið í gær. Málþing þjóðarinnar Birgir Dýrfjörð fjallar um Morgunblaðið ’Mogginn erþjóðfundur – opið málþing. Þar geta allir beðið um orðið og mælenda- skráin er löng.‘ Birgir Dýrfjörð Höfundur er rafvirki og á sæti í flokksstjórn Samfylkingarinnar. MÁLEFNI sem tengjast stofnfjár- eigendum SPRON og heimild til við- skipta með stofnfé þeirra hafa verið mjög til umræðu og gjarnan í kastljósi fjölmiðla í meira en tvö ár. Fyrir nokkru hófust viðskipti með stofnfjárbréf SPRON á markaði sem sparisjóðurinn stofnaði til. Við hæfi er að líta um öxl og rifja upp aðdrag- andann að þessum við- skiptum og þær afleið- ingar sem hann hefur haft í för með sér. Sumarið 2002 reyndi Búnaðarbankinn með að- stoð 5 stofnfjáreigenda að komast yfir SPRON með því að bjóða stofn- fjáreigendum 4–5,5-falt verð fyrir stofnfé þeirra, eða samtals 2–2,7 millj- arða króna. Ári síðar var sparisjóðurinn metinn á um átta milljarða króna. Bún- aðarbankinn hefði hagnast vel. Bankinn var þá að meirihluta í eigu ríkisins og markmið þeirra, sem þar réðu för, var að nota yfirráðin og stóran eignarhluta SPRON í Kaupþingi til að tukta þá til, sem staðið höfðu fyrir sölu á hlutfé í Fjárfestingabanka atvinnulífsins til Orca-hópsins. Stjórn SPRON taldi ekki heimilt að versla með stofnfjárbréf á hærra verði en framreiknuðu nafnverði, þ.e. hærra verði en sparisjóðum er heimilt að taka fyrir ný bréf eða greiða fyrir innlausn bréfa. Fjármálaeftirlitið úrskurðaði hins vegar í júlí 2002, að þar sem slík verslun væri ekki bönnuð berum orðum í lögum væri hún heimil. Var það þvert á álit allra sem komið höfðu að setningu laga um sparisjóði. Fjármálaeftirlitið úrskurðaði einnig, að áform Búnaðarbankans gætu ekki gengið eftir og lagði fyrir stjórn SPRON að hafna framsölum á stofn- fjárbréfum, sem byggð væru á tilboði bankans. Í stað þess að Búnaðarbank- inn félli þá frá yfirtökuáformum sínum var flutt vantrauststillaga á stjórn SPRON fyrir að lýsa því yfir, að hún myndi hlíta fyrirmælum eftirlitsstofn- unar ríkisins. Í Mbl. 31. júlí 2002 skrif- aði Jón Steinar Gunn- laugsson, lögmaður, sem launaður var af Bún- aðarbankanum til að stýra aðgerðunum: „Vegna þessarar afstöðu núver- andi stjórnar SPRON hef- ur orðið nauðsynlegt að flytja tillögu um að víkja henni frá og kjósa nýja. Öðruvísi geta viðskiptin ekki gengið eftir. Fallist nægilega margir eigendur stofnfjár á þetta mun hin nýja stjórn samþykkja viðskiptin.“ Svona einfalt var það. Bara víkja þeim frá sem vildu fara að settum reglum og fá síðan aðra til verksins, enda beið þeirra ríkuleg umbun. Er vonandi að lögmaðurinn nálgist verkefni sín sem nýskipaður dómari við æðsta dómstól landsins með meiri virðingu fyrir því að farið sé að settum lögum og reglum. Í lok liðins árs samdi stjórn SPRON við KB banka um sölu á eiginfé spari- sjóðsins öðru en stofnfé fyrir 6 milljarða krónur. Allt það fé átti að leggja í sjóð til styrktar menningar- og líknarmálum í Reykjavík. Hefði það orðið langstærsti styrktarsjóður sinnar tegundar á land- inu. Bankinn átti enga aðild að stjórn sjóðsins eða aðgang að fé hans, sem hefði runnið óskipt til ofangreindra verkefna. KB banki bauðst jafnframt til að kaupa stofnfjárbréf á genginu 5,5. Fyrir atbeina forystumanna Sambands sparisjóða og þorra alþingismanna voru þessi áform eyðilögð með umdeildri lagasetningu. Stofnfjáreigendur voru taldir hagnast óeðlilega, en þess við- horfs gætti lítið, þegar ríkisbankinn ætlaði að eignast SPRON fyrir brot af því, sem KB banki vildi greiða. Í samn- ingnum við KB banka var að auki stofn- aður öflugur styrktarsjóður og framtíð SPRON sem sjálfstæðrar rekstrarein- ingar var tryggð. Í kjölfar alls þessa ákvað stjórn SPRON fyrr á þessu ári að stofna til markaðar með stofnfjárbréfin. Í raun hefði hvaða verðbréfastofa sem er getað hafið viðskipti með stofnfjárbréf í hvaða sparisjóði sem er. Fjármálaeftirlitið hafði jú úrskurðað, að bréfin væru sölu- vara. Ýmsir aðilar hafa boðið og greitt allt að 7-falt nafnverð fyrir bréf í SPRON. Stofnfjáreigendur hafa því átt kost á hærra verði en þeim stóð áður til boða. En sex milljarða króna styrktarsjóð- urinn er ekki til. Bankastjórn Búnaðarbankans með blessun ríkisvaldsins og afstöðu Fjár- málaeftirlitsins hratt þessari atburða- rás af stað. Afstaða Sambands spari- sjóða undir forystu sparisjóðsins á Akureyri og með dyggri aðstoð alþing- ismanna kom síðar í veg fyrir stofnun öflugasta styrktarsjóðs landsins. Þessir aðilar geta nú metið árangur verka sinna. Stofnfjárbréfin í SPRON Jón G. Tómasson fjallar um málefni SPRON ’Bankastjórn Bún-aðarbankans með bless- un ríkisvaldsins og af- stöðu Fjármálaeftir- litsins hratt þessari atburðarás af stað. ‘ Jón G. Tómasson Höfundur er fyrrverandi ríkislögmaður og fyrrverandi formaður stjórnar SPRON. mbl.isFRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.