Morgunblaðið - 04.12.2004, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 04.12.2004, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 41 KIRKJUSTARF Leirárkirkja 90 ára AÐ kvöldi sunnudagsins 5. desem- ber kl. 20.30 verður þess minnst með messugjörðí Leirárkirkju í Borgarfjarðarprófastsdæmi að 90 ár eru síðan kirkjanvar tekin í notkun en hún var vígð annan sunnudag í aðventu árið 1914 sem þá bar upp þann 6. desember. Prédikun flytur sr. Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skál- holti og að messu lokinni verður boðið upp á létta hressingu í Heið- arskóla. Það var Rögnvaldur Ólafsson, húsameistari, sem teiknaði kirkj- una og var hún upphaflega án forkirkju sem árið 1974 var svo bætt við. Af gripum kirkjunnar má nefna kirkjuklukkurnar en þær erufrá 1699og 1739. Þá er kirkjan búin sex radda pípuorgeli, sem er hin vandaðasta smíðBjörgvins Tóm- assonar, vígt árið 1991, gjöf frá Sigurjóni Hallsteinssyni, Skorholti. Þá á kirkjan í fórum sínum ein- tak af hinni frægu Messusöngs- og sálmabók sem löngum hefur geng- ið undir nafninu „Leirgerður“, en hún var prentuð í Leirárgörðum 1801, gjöf sr. Jóns Einarssonar. Allir eru hjartanlega velkomnir til messunnar og væri ánægjulegt að sem flestir sæju sér fært að koma. Sóknarprestur. Margrét Frímannsdóttir í Villingaholtskirkju AÐVENTUKVÖLD verður nk. sunnudag kl. 20:30 í Villingaholts- kirkju í Flóa. Ræðumaður kvölds- ins verður Margrét Frímannsdóttir alþingisþingmaður. Söngkór Hraungerðisprestakalls undir stjórn Eyrúnar Jónasdóttur flytur tónlistardagskrá. Börn úr sókninni syngja jólalög undir stjórn Höllu Aðalsteinsdóttur. Kveikt verður á aðventukransi við söng barnanna og með hefð- bundnum siðum. Sóknarprestur flytur aðventutexta og örstutta hugvekju um aðventuna. Að lokum sameinast allir viðstaddir í fjölda- söng. Kristinn Á. Friðfinnsson. Aðventutónleikar Kórs Hjallakirkju ÁRLEG aðventuhátíð Kórs Hjalla- kirkju verður að kvöldi 2. sunnu- dags í aðventu, 5. desember, kl. 20. Á tónleikunum verður flutt hefð- bundin aðventu- og jólatónlist. Ein- söngvarar með kórnum verða Kristín R. Sigurðardóttir, Erla Björg Káradóttir, Kristín Halla Hannesdóttir og Gunnar Jónsson. Undirleikari er Julian Hewlett og söngstjóri Jón Ólafur Sigurðsson. Séra Sigfús Kristjánsson annast talað mál. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir. Að þeim loknum verður boðið upp á heitt kakó og piparkökur í safn- aðarsal kirkjunnar. Verið hjart- anlega velkomin í Hjallakirkju á sunnudaginn. Íslenska Krists- kirkjan með „Dag í kirkjunni“ EINS og undanfarin ár verður Ís- lenska Kristskirkjan með „Dag í kirkjunni“ á annan sunnudag í að- ventu. Hann byrjar með fjölbreyttri fjölskylduguðsþjónustu kl. 11.00. Þar koma börnin fram með söng- atriði og sýndar verða myndir frá Eþíópíu. Einnig verður hugleiðing og lofgjörð. Í hádeginu verða grill- aðir hamborgarar og seldir við vægu verði. Síðan verður föndrað saman fram eftir degi við jóla- tónlist og piparkökur. Samkoma verður síðan kl. 20 með mikilli lofgjörð og fyr- irbænum. Sigríður Schram predik- ar. Einnig verður heilög kvöld- máltíð, þar sem gott verður að undirbúa sig undir aðventuna og jólin, með því að koma að borði Drottins. Allir eru hjartanlega vel- komnir að taka þátt í þessum degi. Heimsókn frá Færeyjum LEO Hans og Sigrun Mikkelsen frá Færeyjum koma í heimsókn í færeyska sjómannaheimilið um helgina. Þau verða með kvöldvöku í dag, laugardag, kl. 20.30 þar sem þau segja frá og sýna myndir frá ferð um Afríku. Á sunnudag kl. 20.30 verður samkoma og kaffi á eftir. Allir eru hjartanlega velkomnir. Basar Kristniboðs- félags kvenna BASAR Kristniboðsfélags kvenna verður í dag, laugardaginn 4. des- ember, kl. 14–17 á Háaleitisbraut 58–60. Kökur, handunnir munir, föt, jólakort og skyndihappdrætti. Heitt kaffi og súkkulaði og nýbak- aðar vöfflur. Allur ágóði rennur til kristni- boðs og hjálparstarfs í Eþíópíu og Kenýu. Aðventutónar í Seljakirkju AÐVENTUTÓNAR verða í Selja- kirkju sunnudagskvöldið 5. desem- ber kl. 20. Karlakórinn Fóst- bræður syngur undir stjórn Árna Harðarsonar og Seljur, kór Kven- félags Seljasóknar, syngur undir stjórn Vilbergs Viggóssonar. Verið velkomin. Jólafundur Safnaðarfélags Grafarvogskirkju JÓLAFUNDUR Safnaðarfélags Grafarvogskirkju verður haldinn mánudaginn 6. desember nk. kl. 20. Dagskrá: Kristín Marja Bald- ursdóttir, rithöfundur og Graf- arvogsskáld, les úr bók sinni Kar- itas án titils, Þorvaldur Halldórsson söngvari flytur jóla- lög. Fjölbreytt jólaföndur frá versluninni Litum og föndri. „Jóla- legar“ veitingar. Allir velkomnir. Stjórnin. Lágafellskirkja – aðventukvöld Á MORGUN, annan sunnudag í að- ventu, verður aðventusamkoma með fjölbreyttri efnisskrá í Lága- fellskirkju kl. 20.30. Ræðumaður: Matthías Johannessen skáld. Hanna Björk Guðjónsdóttir, Óskar Pétursson og Páll Rósinkranz syngja einsöng. Skólakór Mosfells- bæjar og Kirkjukór Lágafells- sóknar syngja. Stjórnandi skólakórsins er Guð- mundur Ómar Óskarsson en org- anisti safnaðarins, Jónas Þórir, sér um stjórn kirkjukórs og orgelleik. Jónas Þórir stjórnar einnig strengja- og blásarasveit sem fegr- ar stundina með list sinni. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir og Ásgeir Eiríksson, form. sóknarnefndar, flytja ávörp en sóknarprestur, sr. Jón Þorsteinsson, sér um ritning- arlestur og bæn. Að lokinni stundinni í kirkjunni verður boðið upp á kirkjukaffi í safnaðarheimilinu í Þverholti 3. Aðventan er undirbúningstími blessaðra jóla. Þann undirbúning er gott að eiga í húsi Guðs. Mætum öll og eigum saman helga stund í húsi Drottins. Prestar og sóknarnefnd. Aðventukvöld í Glæsibæjarkirkju AÐVENTUKVÖLD verður í kirkj- unni sunnudagskvöldið 5. desem- ber kl. 20.30. Valdís Jónsdóttir, Hraukbæjarkoti, flytur hátíð- arræðu. Fermingarbörn flytja helgileik. Nemendur Tónlistar- skóla Eyjafjarðar leika á hljóðfæri. Kirkjukór Möðruvallaprestakalls syngur. Börn úr Þelamerkurskóla bera inn ljósið og syngja jólalög. Helgistund í umsjá sóknarprests. Sannkölluð jólastemmning. Allir velkomnir. Sóknarprestur. Fjölskylduhátíð í Hafnarfjarðarkirkju Á MORGUN, sunnudag, kl. 11 verður haldin fjölskylduhátíð í Hafnarfjarðarkirkju sem tekur sérstaklega mið af aðventunni og komu helgra jóla. Þá koma þar saman sunnudaga- skólabörn úr báðum sunnudaga- skólum kirkjunnar ásamt leiðtog- um sínum. Þau eiga þar gefandi stund með fjölskyldum sínum og ættingjum á öllum aldri, ungum sem eldri. Og auðvitað eru allir velkomnir. Prestur er sr. Gunnþór Þ. Ingason. Barnakórinn syngur aðventu- og jólalög undir stjórn Helgu Lofts- dóttur. Anna Magnúsdóttir leikur undir söng hans. Hljómsveitin Gleðigjafar leikur og leiðir annan söng. Eftir stundina í kirkjunni er boðið upp á góðgæti í Strandbergi. Ekið verður frá Hvaleyrarskóla kl. 10:55 og aftur þangað eftir hátíð- ina. Gerðubergskórinn og kaffisala í Breiðholtskirkju Á MORGUN, sunnudag, fáum við ánægjulega heimsókn í Breiðholts- kirkju í Mjódd. Þá kemur Gerðu- bergskórinn, kór félagsstarfsins í Gerðubergi, og syngur við messu kl. 14, undir stjórn Kára Friðriks- sonar, en sú skemmtilega hefð hef- ur skapast að kórinn syngi við messu í kirkjunni þennan sunnu- dag og hefur sú heimsókn ávallt verið mjög vel heppnuð. Einnig munu þátttakendur í félagsstarf- inu í Gerðubergi, þau Margrét Eyj- ólfsdóttir, Sigríður Jónsdóttir, Sig- rún B. Ólafsdóttir og Valdimar Ólafsson, lesa ritningarlestra og bænir. Vakin skal athygli á því, að hér er um að ræða breyttan messutíma frá því sem venjulegast er í Breiðholtskirkju. Barnastarfið verður hins vegar á hefðbundnum tíma kl. 11. Að messu lokinni verður kaffi- sala kórs Breiðholtskirkju í safn- aðarheimilinu og verður þá vænt- anlega gripið í hljóðfæri að hætti gestanna úr Gerðubergi. Það er von okkar, að sem flestir safnaðarmeðlimir og aðrir velunn- arar kirkjunnar og félagsstarfsins í Gerðubergi hafi tækifæri til að taka þátt í guðsþjónustunni og styðja síðan starf kirkjukórsins með því að þiggja veitingar á eftir. Sr. Gísli Jónasson. Aðventusamkoma í Vídalínskirkju SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 5. desem- ber kl. 20:00 er hin árlega að- ventusamkoma Vídalínskirkju. Þar komum við saman og eigum ljúfa stund í kirkjunni um leið og við færumst nær hátíð ljóss og friðar við það að syngja saman yndislegu jólalögin og sjá helgileik fluttan. Flytjendur tónlistar verða: Hall- fríður Ólafsdóttir flautuleikari, Jó- hann Baldvinsson organisti, Söng- hópurinn Veirurnar, stjórnandi Þóra Fríða Sæmundsdóttir, og Kór Vídalínskirkju, stjórnandi Jóhann Baldvinsson. Æskulýðsfélag Garðasóknar flytur helgileik. Súkkulaði og piparkökur í boði sóknarinnar að lokinni samkomu. Prestarnir. Aðventuhátíð í Stað- arkirkju í Hrútafirði AÐVENTUHÁTÍÐ verður laug- ardagskvöld 4. desember kl. 20:30. Hugleiðing: Ólafur Teitur Guðna- son blaðamaður. Tónlist, helgi- leikur og fleira kallar fram jóla- skapið. Pálína Fanney Skúladóttir stjórnar tónlistarflutningi. Aðventuhátíð í Víðidalstungukirkju, Víðidal AÐVENTUHÁTÍÐ verður sunnu- dagskvöld 5. desember kl. 20:30. Pétur Jónsson, safnvörður á Reykjum, segir frá jólahaldi hér áður fyrr. Tónlist og annað hátíð- legt sem er ómissandi í jólaund- irbúningnum. Organisti er Guð- mundur St. Sigurðsson. Grafarvogssöfnuður eignast vinasöfnuð í London NÆSTKOMANDI sunnudag munu prestar Grafarvogssafnaðar ásamt nokkrum sóknarbörnum í Graf- arvogi taka þátt í guðsþjónustu í St. Paul-kirkjunni í Covent Garden kl. 11:00. Að tilstuðlan Biskupsstofu og sendiráðsprests í London hefur verið komið á vinatengslum við áð- urnefndan söfnuð og kirkju. Sam- band safnaðanna er byggt á svo- nefndum Porvoo-samningi, er greinir frá tengslum lútersku kirkjunnar á Norðurlöndum og ensku biskupakirkjunnar á Bret- landseyjum. Grafarvogskirkja. Tónlistarsamkoma í KFUM og KFUK SANNKÖLLUÐ tónlistarveisla verður á samkomu KFUM og KFUK á morgun kl. 17.00. Þá mun Gospelkór Reykjavíkur syngja undir stjórn Óskars Einarssonar og kynna nýja geisla- og mynd- diska kórsins. Gospelkór KFUM og KFUK og lofgjörðarhópur KFUM og KFUK synga einnig undir stjórn Keiths Reeds, sem mun líka syngja einsöng ásamt Helgu Magn- úsdóttur. Guðlaugur Gunnarsson verður með aðventuhugleiðingu. Boðið verður upp á barnapössun og heitan mat eftir samkomu. Gísli Marteinn í Fríkirkjunni í Hafnarfirði ANNAÐ kvöld, sunnudagskvöldið 5. desember, verður aðventukvöld í Fríkirkjunni í Hafnarfirði og hefst dagskrá kl. 20. Að venju verður flutt vönduð dagskrá í tali og tónum sem tengist undirbúingi jólanna en aðventan er jú tími kyrrðar og íhugunar. Gísli Mar- teinn Baldursson flytur hugleið- ingu. Kór kirkjunnar syngur að- ventu- og jólalög undir stjórn Arnar Arnarsonar og Erna Blön- dal syngur einsöng. Sóley Elías- dóttir leikkona les jólasögu. Heitt súkkulaði og smákökur í safn- aðarheimilinu eftir kvöldvökuna. Aðventukvöld í Hafnarfjarðarkirkju 9. des. KRABBAMEINSFÉLAG Hafn- arfjarðar og Hafnarfjarðarkirkja efna til aðventukvölds í Hafn- arfjarðarkirkju fimmtudaginn 9. desember nk. kl. 20.30. Er þetta árlegur viðburður, en krabba- meinsfélagið hefur aðstöðu í safn- aðarheimili kirkjunar. Á aðventukvöldinu flytur Sig- þrúður Ingimundardóttir, hjúkr- unarforstjóri á Sólvangi, hugvekju. Þá syngur Óperukór Hafn- arfjarðar nokkur jólalög undir stjórn Kjartans Ólafssonar og við undirleik Peters Máté. Einnig syngur barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju undir stjórn Helgu Loftsdóttur við undirleik Önnu Magnúsdóttur. Séra Þórhall- ur Heimisson leiðir athöfnina en organisti er Antonia Hevesi. Að at- höfninni lokinni býður Krabba- meinsfélag Hafnarfjarðar upp á kakó, piparkökur og konfekt í safnaðarheimilinu. Allir velkomnir. Aðventukvöld í Áskirkju SUNNUDAGINN 5. desember, 2. sd. í aðventu, verður haldið að- ventukvöld í Áskirkju. Að venju verður vandað mjög til dagskrár aðventukvöldsins. Kór Áskirkju flytur upp- byggilega tónlist, aðventu- og jóla- söngva, auk þess sem kórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Hallveig Rúnarsdóttir syngur einsöng og Jóhann Stefánsson leikur á tromp- et. Stjórnandi er Kári Þormar, organisti Áskirkju. Ræðumaður kvöldsins verður Birna Anna Morgunblaðið/ÓmarYtri-Njarðvíkurkirkja. SJÁ SÍÐU 42
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.