Morgunblaðið - 04.12.2004, Side 49

Morgunblaðið - 04.12.2004, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 49 MINNINGAR Það eru ótal fleiri minningar sem þjóta gegnum hugann á þessari stundu – árin í Höfn, ættarmót og úti- legur, og svo margt margt fleira. Elsku Jóna, Gestur, Erla, Sigþór, Biggi og fjölskyldur, missir ykkar er mestur. Hugur okkar er hjá ykkur. Minningin um góðan mann lifir. Hrafnhildur, Bragi Þór og Ester Alda. Elsku afi og langafi, þá kom að því að þú fengir hvíldina þína. Sorg okkar er mikil en við getum huggað okkur við það að nú líður þér betur og þarft ekkert að kveljast meira. Síðustu vik- ur voru erfiðar fyrir þig en hún amma sat fast við hlið þér dag eftir dag og alveg hverja mínútu síðasta sólar- hringinn þinn hér. Nú ertu kominn til Guðs og við erum viss um að þar ertu á hestbaki um endalausa hagana og horfir niður til okkar og fylgist með. Við erum stolt og glöð að hafa fengið að hafa þig þó svona lengi. Fegnust er ég að þú fékkst að kynnast þínu öðru langafabarni og mínu fyrsta barni honum Kristni Snæ. Þó að ég vildi óska að þú hefðir geta kynnst honum meira þá veit ég að þú fylgist alveg örugglega með honum að ofan eins og okkur öllum. Það er líka ofarlega í huga okkar brúðkaup foreldra okkar og hvað við erum glöð yfir því að þú skyldir lifa til að vera viðstaddur þann merka atburð, þegar þau loks- ins létu verða af því eftir yfir tuttugu ára trúlofun. Eins munum við allar heimsóknir okkar til ykkar ömmu, hvað þú varst alltaf mikill barnakall. Okkur fannst fátt skemmtilegra en að koma og leika við afa sem gerði í því að fíflast í okkur, sérstaklega ef við fórum út í garð í myrkri. Eitt skipti á gamlárskvöld man ég þegar þú læstir dyrunum og komst hlaupandi á eftir mér og Agnesi með hettuna yfir höfð- inu og við hlupum kringum húsið og allt var læst, svo sáum við restina af fjölskyldunni skellihlæjandi inni í stofu og við sprungum úr hlátri sjálf- ar. Þetta er gott dæmi um fíflaganginn og fjörið þegar við komum til ykkar, sérstaklega um jól og áramót. Sem betur fer lifa minningarnar alltaf áfram, við munum alltaf minnast þín, elsku afi, með bros á vör og Kristinn Snær fær svo sannalega að heyra all- ar sögurnar og vita allt um elsku langafa Halla. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Við vottum elsku ömmu okkar dýpstu samúð og biðjum Guð að fylgj- ast með henni og leiða hana gegnum þessa erfiðleika. Hjálmar Már, Jóna Guðrún og Kristinn Snær. Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum í líknarmildum föður- örmum þínum og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta, ég halla mér að þínu föðurhjarta. (Matthías Joch.) Guðrún, tengdamóðir mín, hefur kvatt að sinni. Langri lífsgöngu lokið og var hvíldin henni kærkom- in eftir erfið veikindi. Rúna, eins og hún var ávallt kölluð, var hjartahlý kona og glað- sinna. Ég náði þó einungis að þekkja hana í sjö ár en mikið vildi ég hafa þekkt hana lengur, ekki síst þegar hún var upp á sitt besta. En kynni mín af henni voru samt góð þennan stutta tíma. Tónlist skipaði stóran sess í lífi hennar og er hún fluttist á Hrafn- istu í Hafnarfirði fyrir u.þ.b. tveimur árum síðan gekk hún í „húsbandið“ svokallaða þar sem lagvisst og tónelskt fólk var til staðar. Þar lék hún á harmonikk- una sína ásamt húsbandinu við hin ýmsu tilefni. Félögum Rúnu í hús- bandinu viljum við fjölskyldan öll þakka fyrir allt og allt og ekki hvað síst Böðvari Magnússyni, tónlistarstjóra á Hrafnistu, fyrir vináttuna. Sigríði Aradóttur, sem bjó á 416 með Rúnu, viljum við einnig færa þakkir fyrir vináttuna og um- hyggjusemina sem hún auðsýndi Rúnu þann tíma sem þær voru ná- grannar. Í lokin vil ég kveðja Rúnu mína með ljóði sem lýsir að mínu mati ástinni og söknuðinum, sem hlýtur að hafa ríkt í brjósti hennar er hún GUÐRÚN ÓFEIGSDÓTTIR HJALTESTED ✝ Guðrún Ófeigs-dóttir Hjaltested fæddist í Kolsholti í Villingaholtshreppi í Árnessýslu 4. desem- ber 1920. Hún lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 8. nóvember síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Nes- kirkju 18. nóvember. missti Pétur, eigin- mann sinn, árið 1996. kornunga brúður ég bið þér hvíldar í örmum unnusta þíns hér hefur hann sofið undir sænginni hvítu og sverðinum sem grænkar á vorin þegar hjörtun ærast af ástríðum og fljúga út úr brjóstunum haglélið fer hamförum um garðinn gamla leiðið hans opið hann opnar þér faðminn í fæðingu dauðans ó, hversu gott er að hitta hann aftur ungan og sterkan eftir öll þessi ár laus við langnættið kalda og lúið hold liggja í örmum hans mold af mold (Hrafn Gunnlaugsson.) Þau eru saman að nýju og ég gleðst vegna þess. Sofðu rótt Rúna mín, þín tengdadóttir, Hanna Guðrún. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Myndir Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningar- greina vita. Minningar- greinar Á ÁRUM áður var helsti sam- komustaður íslenskra skákmanna á atburðum taflfélaga og alþjóðlegum stórmótum. Margir tugir manna mættu stundum á æfingar hjá Tafl- félagi Reykjavíkur á þriðjudögum og fimmtudögum og var þá skegg- rætt um allt milli himins og jarðar. Félagsskapurinn var jafn mikilvæg- ur og skákin sjálf enda flestir komn- ir til þess að taka þátt ánægjunnar vegna. Þessi andi félagsskapar og skáklistar hefur farið minnkandi hin síðari ár og má segja að Netið hafi haft þar mikið að segja. Fullyrða má að þar séu flestir áhugamenn um skák samankomnir á hverjum tíma. Vefsíður um skák eru fjölmargar og er þar hægt að verða sér úti um margan fróðleik. Fjöldi skákþjóna er til þar sem hægt er að taka eina bröndótta við skákmenn hvaðanæva frá heiminum. Stundum er sagt að Íslendingar séu nýjungargjarnir og voru þeir fljótir að tileinka sér möguleika Netsins. Daði Örn Jóns- son sá um frábæra skáksíðu upp úr miðjum síðasta áratug 20. aldar sem hét ,,Skák á Íslandi’’. Almennt var viðurkennt að hún hefði verið með þeim betri í heiminum en þar var að finna fréttir, skákdæmi og margt fleira. Eftir að heimasíðan lagði upp laupana tók Gunnar Björnsson við að sjá um www.skak.is en þar er að finna ávallt nýjustu fréttir úr ís- lenska skákheiminum og víðar. Margir íslenskir skákmenn hösluðu sér völl á vinsælasta skákþjóninum ICC og sumir þeirra ánetjuðust þessu svo mikið að þeir sáust ekki lengur á opinberum skákmótum né heldur mikið annars staðar! Fyrsta landsmótið í Netskák var haldið á Íslandi árið 1996. Taflfélagið Hellir hélt mótið og var því brautryðjandi á þessu sviði en félagið hefur einnig haldið keppnir á borð við Norður- landamót taflfélaga. Hægt og síg- andi er Netskák að taka meiri tíma frá hinum almenna skákáhuga- manni en hinu opinberu skákmót skákhreyfingarinnar. Þessi þróun er eðlileg í samfélagi þar sem hraði og örar breytingar eru miklar. Engu að síður má sakna þeirrar tíðar þegar öldungar mættu á einn stað til þess að tefla við ungviðið og gátu þá kyn- slóðirnar sameinast eina kvöldstund yfir göldrum taflsins. Á hitt er þó að líta að á Netinu er hægt að hafa samskipti við fjölda manns sem eru búsettir erlendis og mynda þar með félagsleg tengsl. Í þessu samhengi er þess einnig að gæta að fyrir nokkrum árum var af Daða Erni sett á laggirnar vefsíðan ,,skákhorn skákmanna“ þar sem allir gátu látið gamminn geisa um það sem þeim datt í hug um skákmál. Í fyrstu lögðu fáir orð í belg en eftir að mál- flóðið brast á hefur ekki orðið lát. Núverandi veffang síðunnar er http://www.skak.hornid.com/ og má þar finna greinarkorn um allt milli himins og jarðar. Stundum verður skákhornið að einskonar meinhorni en í seinni tíð hefur athygli manna færst aðallega í að fjalla um ein- staka skákir eða koma á framfæri skákþrautum. Torfi Stefánsson hef- ur verið á meðal umdeildustu manna hornsins og var um tíma bannað að rita greinar þar. Hann er ótrúlega iðinn að skrifa um menn og málefni en einblínir nú aðallega á skrifa um skákir annarra. Tölvufor- ritið Fritz er mikið notað í skýr- ingum hans og hefur hann þá styrk- an grundvöll til að gagnrýna jafnvel leiki bestu skákmanna heims. Hinn ódrepandi skákáhugamaður Eyjólf- ur Ármannsson birtir oft skákþraut- ir sem hann hefur rekist á og er það ákaflega vinsælt af hornverjum. Fleiri penna mætti nefna en al- mennt má segja um ritara hornsins að kaldhæðnin og húmorinn sé sjaldan langt á undan í skrifum þeirra. Af þeim heimasíðum um skák sem eru hvað vinsælastar um heim allan ber Week in Chess höfuð og herðar yfir aðrar síður. Mark Crowther sér um hana og er þar hægt að finna nýjustu fréttirnar í skákheiminum en veffang hennar er http://www.chesscenter.com/twic/ twic.html. Heimasíða FIDE er gagnleg til að nálgast alþjóðleg stig skákmanna en þar fyrir utan er hún misheppnuð. Til að mynda hugðist greinarhöfundur senda samtökun- um rafpóst um daginn en fékk hann alltaf sendan til baka þar sem hýs- ingin var óþekkt! Eins og áður hef- ur verið drepið á þá er ICC vinsæl- asti skákþjónninn en margir aðrar halda úti slíkri þjónustu, t.d. Micro- soft. Öll Netskákmót á Íslandi fara fram á ICC. Fyrir skömmu var haldið Íslandsmót í Netskák sem jafnframt var lokamót í Bikarsyrpu Eddu útgáfu hf. og Taflfélagsins Hellis. Tímamörkin voru fjórar mín- utur auk þess sem keppendur fengu tvær sekúndur fyrir hvern leik sem þeir léku. Taflmennskan á Netinu er yfirleitt töluvert lakari en að jafn- aði. Engu að síður verða til gamans birtar tvær skákir frá mótinu. Ís- landsmeistarinn, Stefán Kristjáns- son, hefur alla tíð nefnt sig sem Champbuster á ICC á meðan bik- armeistarinn, Þorsteinn Þorsteins- son, kallar sig StoneStone. Þeir tefldu tiltölulega vandaða skák sín á milli. Hvítt: Þorsteinn Þorsteinsson (StoneStone) Svart: Stefán Kristjánsson (Champbuster) 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. Rf3 Bg7 5. Bg5 Re4 6. cxd5 Rxg5 7. Rxg5 e6 8. Rf3 exd5 9. b4 O-O 10. e3 a6 11. Hc1 c6 12. Be2 Rd7 13. O-O He8 14. a3 De7 15. Dc2 Rf6 16. Re5 Bf5 17. Bd3 Bxd3 18. Dxd3 Re4 Stefán hefur tekið Grunfeldsvörn upp á sína arma hin síðari misseri og hefur hér tryggt sér a.m.k. jafnt tafl. Næsti leikur hvíts var eilítið vanhugsaður þar eð ýmsar veilur mynduðust þá í stöðu hans. Sjá stöðumynd 1. 19. f4?! f6! 20. Rxe4 fxe5 21. Rc5 exd4 22. exd4 a5! 23. f5 axb4 24. axb4 gxf5 25. Hxf5 b6 26. Rb3 Ha3 27. Dc3 De4! 28. Hcf1 Svartur hefur hert tök sín á stöð- unni með skynsamlegri tafl- mennsku. Sjálfsagt hefur tíminn farið að spila stórt hlutverk í skák- inni enda ákaflega mikilvægt í net- skák að hafa nægan tíma á réttum augnablikum. Sjá stöðumynd 2. 28... c5?! 28...Hxb3! hefði fært svörtum sig- urinn eftir 29. Dxb3 Bxd4 30. Kh1 Dxf5! og svartur verður manni yfir. 30. H5f2 væri einnig ófullnægjandi vegna 30...Bxf2 31. Hxf2 De1+ og svartur fær unnið endatafl. Þessi yf- irsjón er þó skiljanleg enda lítur textaleikurinn vel út. 29. bxc5 bxc5 30. Hg5 Kh8 31. Hxg7 Kxg7 32. dxc5+ De5 33. Dxe5+? Nú vinnur svartur örugg- lega. 33...Hxe5 34. Rd4 Hc3 35. c6 He4 36. Hd1 Kf6! 37. Hf1+ Ke5 38. Rf3+ Kd6 39. Rg5 He7 40. Hf6+ Kc7 41. Hh6 Hxc6 42. Hxh7 Hxh7 43. Rxh7 d4 44. Rg5 d3 45. Rf3 Hc2 46. Kf1 Kd6 47. Rd4 Kd5 48. Rf3 Ke4 49. h4 Ke3 50. h5 Hc1+ 51. Re1 d2 og hvítur gafst upp. Þorsteinn er reyndur netskák- maður og vann Bikarkeppnina fylli- lega verðskuldað. Á Íslandsmótinu vann hann Björn Þorfinnsson sann- færandi en sá kallar sig Busta. Hvítt: Þorsteinn Þorsteinsson (StoneStone) Svart: Björn Þorfinsson (Busta) 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. a3 Bb7 5. Rc3 d5 6. Bg5 Be7 7. Bxf6 Bxf6 8. cxd5 exd5 9. Db3 O-O 10. e3 c6 11. Be2 Rd7 12. O-O Hc8 13. Hfe1 He8?! Hvítur hefur ekki teflt byrjunina af mikilli hugmyndaauðgi en texta- leikurinn gefur honum færi á að opna taflið sér í vil. Sjá stöðumynd 3. 14. e4! dxe4 14... Rf8 kom til álita þar sem svartur þarf eftir textaleikinn að verjast af mikilli nákvæmni. 15. Bc4! He7 16. Rxe4 Hc7? Þessi leikur dugar og ekki hefði 16... b5 stoðað heldur vegna 17. Bxf7+ Hxf7 18. Rd6. Eini leikurinn til að halda taflinu gangandi var 16... Df8 þar sem 17. Rd6 yrði þá svarað með 17...Hxe1+ og svartur ynni mann. 17. Rd6 Rf8 18. Hxe7 Dxe7 19. Rxf7 b5 Þorsteinn er eldri en tvævetur í þessum bransa og lætur þessa hót- un sem vind um eyru þjóta. Sjá stöðumynd 4. 20. Bxb5! Dxf7 hvítur hefði mátað eftir 20...cxb5 21. Rh6+ Kh8 22. Dg8#. 21. Bc4 Re6 22. Bxe6 og svartur gafst upp. Samfélag skákmanna á Netinu Andri Áss Grétarsson Stefán Kristjánsson daggi@internet.is SKÁK Netið Íslandsmótið í netskák 28. nóvember 2004 Helgi Áss Grétarsson Stöðumynd 4. Stöðumynd 2.Stöðumynd 1. Stöðumynd 3.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.