Morgunblaðið - 04.12.2004, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 55
DAGBÓK
Notaleg stemning verður á safninuGljúfrasteini á aðventunni, en þar lesarithöfundar upp úr bókum alla sunnu-daga fram að jólum. Er það liður í því að
halda safninu lifandi og vekja áhuga almennings á
bókmenntum. Á morgun les Þórarinn Eldjárn upp
úr Baróninum, Halldór Guðmundsson les upp úr
ævisögu Halldórs Laxness og Jónas Ingimundarson
les úr ævisögu sinni, Á vængjum söngsins, og leikur
jafnvel á flygil hússins.
Á Gljúfrasteini er lögð áhersla á að sýna heimili
Halldórs og Auðar Laxness eins og það var þegar
þau bjuggu þar. Í tíð Halldórs og Auðar Laxness
voru oft haldnir tónleikar á Gljúfrasteini og komu
þar fram margir þekktir listamenn.
Guðný Dóra Gestsdóttir, forstöðumaður safnsins
í Gljúfrasteini, segir hlutverk safnsins að halda á
lofti minningu Halldórs Laxness og líka að vekja
áhuga á verkum hans og ævi. „Einnig á það að vera
lifandi vettvangur ýmiss konar viðburða s.s. eins og
upplestra,“ segir Guðný. „Gljúfrasteinn var fyrst og
fremst heimili og vinnustaður skáldsins, þannig að
markmið heimsóknar í Gljúfrastein er að upplifa
heimilið og vinnustaðinn. Heimsóknin í safnið hent-
ar því öllum. Bæði þeim sem vita mikið um skáldið
og þeim sem vita minna. Gljúfrasteinn er líka eins-
konar listasafn því þar gefur að líta stórkostleg
listaverk eftir málara eins og Svavar Guðnason,
Kjarval, Kristján Davíðsson, Nínu Tryggvadóttur,
Louisu Matthíasdóttur og fleiri. Safnið er einstakt á
margan hátt m.a. vegna þess að þar er mikið af
munum sem voru í eigu Halldórs og fjölskyldu hans.
Þessir munir fá svo margfalt gildi því þeim tengjast
sögur og upplýsingar sem að Auður og börn Hall-
dórs hafa veitt okkur til þess að miðla til gesta.“
Hvernig taka rithöfundar upplestrardögunum?
„Rithöfundar hafa tekið því afar vel að lesa upp-
hátt á Gljúfrasteini og óhætt að segja að það hafi
ekki þurft að ganga á eftir fólki. Nú er dagskráin
fram að jólum fullskipuð og er það mikið tilhlökk-
unarefni að fá tækifæri til að hlusta á upplestur úr
nýjum bókum í stofunni á Gljúfrasteini. Þess má
geta að aðgangur er ókeypis og hefjast upplestr-
arnir kl. 15.30. Við vonum auðvitað að sem flestir
hafi tök á að koma á upplestrana en þó verður að slá
þann varnagla að stofan á Gljúfrasteini verður fljót
að fyllast. Nánar má lesa um upplestrana á heima-
síðu safnsins. gljufrasteinn.is“
Hvernig hefur aðsóknin að safninu verið?
„Aðsóknin hefur verið mjög góð. Safnið var opnað
í byrjun september og hafa komið 3.000 gestir þessa
fyrstu þrjá mánuði. Við getum ekki annað en verið
mjög ánægð með þær viðtökur sem safnið hefur
fengið. Það má gera ráð fyrir að aðsókn aukist með
hækkandi sól og betri tíð. Meirihluti þeirra gesta
sem þegar hafa komið í safnið hafa verið Íslend-
ingar þótt talsvert hafi verið um erlenda gesti en
ætla má að þeim fjölgi þegar ferðamannatímabilið
hefst í vor.“
Bókmenntir | Upplestrar á sunnudögum í safninu Gljúfrasteini
Vekur áhuga á lifandi safni
Guðný Dóra Gests-
dóttir er fædd á Fells-
strönd í Dalasýslu árið
1961.
Hún lauk BA í ferða-
málafræði frá South
Bank University í
Lundúnum og hefur
unnið við margvísleg
störf í ferðaþjónustu.
Guðný tók við starfi
framkvæmdastjóra
Gljúfrasteins – húss
skáldsins í janúar 2004. Hún er gift Þórði Sig-
mundssyni geðlækni og eiga þau tvær dætur.
Hver þekkir fólkið?
FÓLKIÐ á þessum myndum er lík-
lega úr Reykjavík. Þeir sem þekkja
það eru beðnir að hafa samband við
Sigurð Björnsson í síma 565 6752 eða
á netfangið: sigbj@vortex.is
Nýting orkueiningar!
ORKUFLOKKURINN vill benda á
vegna umræðunnar um kísilgúrverk-
smiðjuna að það má nota verksmiðj-
una til að framleiða orkueiningu úr
dýraleifum, bein og annað væri hægt
að vinna á svipaðan hátt og kísilgúr,
þar sem Orkuflokkurinn telur að það
sé aðallega orkuinnihald efnisins sem
ræður notkunarmöguleikum efn-
anna. Mundi í þessu sambandi vera
komið í veg fyrir að miltisbrandur
myndaðist í þeim dýraúrgangi sem til
félli.
Orkuflokkurinn hefur oft látið í
ljósi að það þyrfti að vera til orku-
málaráðuneyti til að rannsaka alla þá
möguleika sem hann telur að sé að
finna í orkunni hvaðan sem hún kem-
ur. Orka er í öllu, það er bara að skilja
það sem getur fengið menn til að
hugsa á nýjan hátt um hana og notk-
unarmöguleikana á að nýta hana. Það
mætti gefa öllum hlutum stig með til-
liti til hvað þeir hafa margar orkuein-
ingar á bak við sig og svo er það bara
vinnsluaðferðin sem ræður því hvað
unnið er úr afurðunum.
Allt er orka í hvaða mynd sem hún
birtist.
Bjarni Þór Þorvaldsson,
Hraunbæ 182, Rvík.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
70 ÁRA afmæli. Ídag, 4. desem-
ber, er sjötugur Stef-
án Hirst, fv. skrif-
stofustjóri og
lögfræðingur yf-
irstjórnar lög-
reglustjóraembætt-
isins í Reykjavík.
ÁRLEG jólagleði listamanna í
Álafosskvosinni verður haldin í
dag kl. 13–19 og hafa listamenn af
því tilefni opið hús í vinnustofum
sínum. Þannig verður handverk-
stæðið Ásgarður opið og einnig
Leirverkstæði Helgu Jóhann-
esdóttur, þar sem finna má nytja-
list og skúlptúr úr leir eftir Helgu.
Þá verður haldin nemendasýn-
ing leirmótunarnámskeiðs barna
auk þess sem Myndlistarskóli
Mosfellsbæjar efnir til nem-
endasýningar barna og fullorð-
inna. Í Þrúðvangi sýnir Marisa
Arason ljósmyndir og Ólöf Odd-
geirsdóttir og Valgerður Bergs-
dóttir sýna teikningar.
Þá mun Símon H. Ívarsson gít-
arleikari gleðja gesti og listamenn
með flutningi á ýmsum tón-
verkum, en tónlistardagskráin
hefst kl. 16 í Leirverkstæði Helgu
og síðan kl. 16.30 í Þrúðvangi, kl.
17 í Myndlistarskóla Mosfells-
bæjar og að lokum kl. 18 í Ás-
garði, handverkstæði.
Listamenn bjóða Mosfellinga og
aðra velunnara hjartanlega vel-
komna.
Mosfellskir
listamenn
halda jólagleði
HJÓNIN Catherine Dodd og Jónas
Bragi Jónasson hafa nú opnað
Glergallerí við vinnustofu sína í
Auðbrekku 7, Kópavogi. Í tilefni
af því opna þau sýningu á nýjum
listgripum í dag kl. 14 og stendur
hún til kl. 20 í kvöld.
Catherine og Jónas Bragi eru
bæði starfandi listamenn, menntuð
í Englandi, Skotlandi, Finnlandi
og á Íslandi. Þau skapa handgerða
listgripi, skálar, diska, vasa og
kertastjaka úr flotgleri og eð-
almálmum.
Einnig skapa þau skúlptúra og
myndverk úr ýmiskonar gleri,
kristal, grjóti o.fl.
Glergallerí opnað í Kópavogi
Sýningin verður áfram opin á
morgun frá kl. 12 og allt til 22.
desember frá kl. 12–20.
Fréttir
í tölvupósti
Jólakaffi Hringsins
verður haldið á Broadway á morgun sunnudaginn
1. desember kl. 13:30
Dagskráin verður sem hér segir:
Nemendur úr dansskóla Jóns Péturs og Köru sýna dans
Örn Árnason mætir með grín og glens
Bjarni Ara og Silja syngja
Feðgarnir Jónas Þórir Dagbjartsson og Jónas Þórir Jónasson
leika ljúfa tónlist á fiðlu og píanó.
Jólakaffi Hringsins
verður haldið á Broadway á morgun, sunnudaginn
5. desember kl. 13:30
Dagskráin verður sem hér segir:
Þrjár systur/Lárusdætur syngja jólalög
Nemendur úr Dansskóla Jóns Péturs og Köru sýna tangó
Hin íslenska Edith Piaf gleður gesti með söng og leik
Trúðurinn Tralli skemmtir börnunum
Feðgarnir Jónas Þórir Dagbjartsson
og Jó as Þ rir Jónasson leik ljúfa tónlist á fiðlu og píanó.
Girnilegt kaffihlaðborð – Glæsilegt happdrætti
ALLIANCE française opnar í dag kl. 14.30
sýningu á málverkum eftir Marie-
Sandrine Bejanninn í húsnæði Alliance
française, Tryggvagötu 8.
Áður en Marie-Sandrine Bejanninn varð
listmálari hafði hún um árabil unnið í aug-
lýsingageiranum sem listrænn stjórnandi
og hugmyndastýra. Það er eflaust ástæð-
an fyrir því þess að hún hefur brennandi
áhuga á leik með orð og myndir, þörf henn-
ar fyrir að búa til tengsl, örva ímyndunar-
aflið. Í verkum sínum blandar hún án af-
láts saman merkingum og formum sem
sækja næringu í margvísleg og nánast
ósýnileg ummerki hversdagslífsins. Flest
viðfangsefnanna í verkunum sem sýnd
eru á þessari sýningu eru fiskar, sem eru
óður til Íslands. Fjögur málverkanna
sækja einkum í þennan efnivið: þau hafa
verið notuð í „könnun“ meðal innfæddra
eða aðfluttra Íslendinga: „Hver eru að þín-
um dómi skilningarvitin fimm (snerting,
sjón, lyktarskyn, heyrn og bragð) Ís-
lands?“ Þessi orð – vitnisburðir eru tekin
upp aftur, og sett á svið, þau segja okkur
frá sínu Íslandi, tilfinningum sínum, skynj-
unum. lykilpersónurnar í íslensku jóla-
haldi, Grýlubörnin þrettán eru líka falin í
þeim á hugvitsamlegan hátt.
Fransk-íslensk sýning opnuð í Alliance française
Sýningin stendur frá 4. til 20. des-
ember. Opið mánudag til föstu-
dags 13.30-18.00 og 13.00-17.00
laugar- og sunnudaga.