Morgunblaðið - 04.12.2004, Síða 60
9 %:#".# ;$0# ."#0 <".# 7!"%6$". 05# ;$.67%
(5# 87&0#/ =! -8-$ >%?" ;"0#" !##)
;"($# ;$.&,%:% $& :% "& ;#"% (".$# <#70
"%0'0 0(-#&/@
A=AB C
9% ''' -. #D 8#5$#) "% %60 -. =-$:%/
E"# &F.%$$ 0F(#&"%% ."# '& % "%%
7#6G(%".# ;": -. &,%: (-#& + !%$ "& "#$
'# ;F..&,%:$& "% :%/@
HH
9 -8-$ >%?" ;"0#" "# .6F#". "%0'0/
'(". &'!5. 0 "& ;"($# %+ 0 ;%
&"%% +;-#(%:/ ( <G ;"($# :#" I
-8-$ !"#') "# '-&%% 0 & 0 <"/@
>J H
POPP- OG ROKKFLOKKUR
POPPPLATA ÁRSINS
Medúlla – Björk
Eivör – Eivör Pálsdóttir
Meðan ég sef – Í svörtum fötum
Hello Somebody – Jagúar
Mugimama, Is This Monkeymus-
ic? – Mugison
ROKKPLATA ÁRSINS
Electric Fungus – Brain Police
Hljóðlega af stað – Hjálmar
Home of the Free – Jan Mayen
Guerilla Disco – Quarashi
Slowblow
DÆGURTÓNLIST, PLATA ÁRSINS
Smásögur – Brimkló
Tvíburinn – Bubbi Morthens
Jón Ólafsson
Betra en best – Mannakorn
Vetrarljóð – Ragnheiður Gröndal
SÖNGVARI ÁRSINS
Björgvin Halldórsson
Jens Ólafsson
Jón Jósep Snæbjörnsson
Mugison
Páll Rósinkrans
SÖNGKONA ÁRSINS
Björk Guðmundsdóttir
Eivör Pálsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir
Margrét Eir
Ragnheiður Gröndal
FLYTJANDI ÁRSINS
Brain Police
Hjálmar
Jagúar
Mugison
Quarashi
LAG ÁRSINS
„Fallegur Dagur“ – Bubbi
Morthens
„Dís“ – Jóhann Jóhannsson/
Ragnheiður Gröndal
„Sunnudagsmorgunn“ – Jón
Ólafsson
„Mur Mur“ – Mugison
„Stun Gun“ – Quarashi
BJARTASTA VONIN
Hjálmar
Jan Mayen
Stranger
Þórir G. Jónsson
SÍGILD OG
SAMTÍMATÓNLIST
TÓNVERK ÁRSINS
„Flow and Fusion“ eftir Þuríði
Jónsdóttur
„Grettir“ eftir Þorkel Sigurbjörnsson
„Sería fyrir 10 hljóðfæraleikara“ eftir Hauk
Tómasson
„Sinfónía“ eftir Þórð Magnússon
„Sjö byltur svefnleysingjans“ eftir Harald
Vigni Sveinbjörnsson
PLATA ÁRSINS
Verk fyrir selló og píanó – Bryndís Halla
Gylfadóttir sellóleikari og Edda Erlends-
dóttir píanóleikari spila tónverk eftir
Enescu, Janacek, Kodaly og Martinu.
Ferskir vindar – Camilla Söderberg flytur ís-
lenskar tónsmíðar fyrir blokkflautu og raf-
hljóð.
Glíman við Glám – Símon H. Ívarsson leikur
gítartónsmíðar eftir Gunnar Reyni Sveins-
son.
Virðulegu forsetar eftir Jóhann Jóhannsson.
CAPUT, Guðmundur Sigurðsson, Hörður
Bragason, Matthías M.D. Hemstock, Skúli
Sverrisson og Jóhann Jóhannsson flytja.
Það er óskaland íslenskt – Kór Áskirkju flyt-
ur íslensk ættjarðarlög undir stjórn Kára
Þormar. (Kór Áskirkju.)
FLYTJANDI ÁRSINS
Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari
Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari
CAPUT-hópurinn
Íslenska óperan – fyrir flutning á Sweeney
Todd eftir Stephen Sondheim.
Sinfóníuhljómsveit Íslands – Rumon
Gamba fyrir flutning á sinfóníum Dmitri
Sjostakovich.
BJARTASTA VONIN
Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari
Kammersveitin Ísafold – Áki Ásgeirsson,
Berglind María Tómasdóttir, Anton Daníel
Bjarnason
Eyjólfur Eyjólfsson tenór
Tríó Gorki Park – Birna Helgadóttir, Freyja
Gunnlaugsdóttir, Una Sveinbjarnardóttir
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari
DJASSFLOKKUR
PLATA ÁRSINS
Lúther – Björn Thoroddsen
Kör – B-3
Skuggsjá – Jóel Pálsson/Eyþór Gunnarsson
Beautiful Monster – Rodent
Dansaðu fíflið þitt dansaðu! – Sammi &
Tómas R Stórsveitin Jagúar
LAG ÁRSINS
„Ástin“ eftir Tómas R. Einarsson (Dansaðu
fíflið þitt dansaðu)
„Kaleidoscope“ eftir Árna Egilson
„Þórdísardans“ eftir Andrés Þór
Gunnlaugson
„Evil beaver“ eftir Hauk Gröndal
„Kör“ eftir Ásgeir Jón Ásgeirsson
„Í dauðans höndum“ eftir Björn
Thoroddsen
FLYTJANDI
Samúel Jón Samúelsson og stórsveitin
Jagúar
B-3
Björn Thoroddsen
Jóel Pálsson/ Eyþór Gunnarsson
Rodent
ÖNNUR
VERÐLAUN
UMSLAG ÁRSINS
Brain Police – Electric fungus
Mugison – Mugimama, is this
monkey music?
Múm – Summer make good
Ske – Feelings are great
Slowblow – Very slow bossanova
Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2004
60 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Tónlistarmaðurinn Mugisonog fönksveitin Jagúarfengu fimm tilnefningarhvort til Íslensku tónlist-
arverðlaunanna 2004, sem kunn-
gjörðar voru síðdegis í gær.
Mugison fékk tilnefningu fyrir
bestu plötuna, Mugimama, Is This
Monkeymusic?, sem besti söngvari,
flytjandi, fyrir besta lagið Mur Mur,
sem tekið er af Mugimama-plötunni
og fyrir besta plötuumslagið. Hér
er á ferð önnur plata þessa efnilega
tónlistarmanns, en árið 2002 gaf
hann út plötuna Lonely Mountain,
sem þótti framúrskarandi frum-
raun.
Jagúar bæði í
popp- og djassflokki
Mugison er tilnefndur í flokkum
popp- og rokktónlistar á meðan til-
nefningar sem Jagúar hlaut
skiptast milli popp- og djassflokka.
Nýútkomin plata sveitarinnar,
Hello Somebody, er tilnefnd í
flokknum „poppplata ársins“ og
sveitin er tilnefnd sem besti flytj-
andi popp- og rokktónlistar. Þá er
önnur mynd af sömu sveit, Sammi
og stórsveit Jagúar, tilnefnd sem
flytjandi ársins í djassflokki, plata
Samma og stórsveitar Jagúar Dans-
aðu fiflið þitt dansaðu! er tilefnd
sem djassplata ársins og í flokknum
djasslag ársins er tilnefnt lagið
„Ástin“, sem tekið er af sömu plötu
og er eftir Tómas R. Einarsson.
Þá hlaut rokksveitin Brain Police
og söngvari sveitarinnar, Jens
Ólafsson, fjórar tilnefningar alls,
fyrir plötu ársins, sem flytjandi árs-
ins, fyrir umslag ársins og Jens var
tilnefndur sem söngvari ársins.
Ropprappsveitin vinsæla Quar-
ashi, reggísveitin efnilega Hjálmar
og Ragnheiður Gröndal hljóta svo
þrjár tilnefningar.
Í fjórum flokkum sígildrar tón-
listar vekur athygli að Bryndís
Halla Gylfadóttir sellóleikari er til-
nefnd í tveimur flokkum, sem flytj-
andi ársins og fyrir plötu ársins
Verk fyrir selló og píanó sem hún
lék inn á ásamt Eddu Erlendsdóttur
píanóleikara.
Nokkur breyting er á Íslensku
tónlistarverðlaununum frá því í
fyrra. Plötum sem áður voru í sam-
eiginlegum popp- og rokkflokki
hefur nú verið skipt upp í þrjá
flokka; popp, rokk og dægurtónlist.
Eru því fimmtán plötur tilnefndar í
stað fimm.
Val á tilnefningum var í höndum
dómnefnda sem voru sérstaklega
skipaðar af framkvæmdastjórn Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna.
Undirbúningur er þegar hafinn
fyrir verðlaunahátíðina sem fer
fram
miðvikudaginn 2. febrúar 2005.
Íslensku tónlistarverðlaunin hafa
nú verið afhent tíu sinnum en þau
voru afhent í fyrsta sinn í aprílmán-
uði 1994 og þá fyrir starfsárið 1993.
Það er Samtónn sem stendur fyrir
verðlaunaafhendingunni.
Íslensku tónlistarverðlaunin er
uppskeruhátíð íslenskrar tónlistar
og eru verðlaunin hugsuð sem
„vegsauki fyrir íslenska tónlist,
flytjendum, höfundum og útgef-
endum til hvatningar“, eins og fram
kemur í tilkynningu frá Samtóni.
Opinber heimasíða Íslensku tón-
listarverðlaunanna eru Tónlist.is og
verður hægt að nálgast þangað all-
ar nánari upplýsingar.
Tónlist | Íslensku tónlistarverðlaunin 2004
Mugison og Jagúar
með fimm tilnefningar
tonlist.is
Morgunblaðið/Golli
Liðsmenn Jagúar eru tilnefndir til alls fimm tónlistarverðlauna, bæði í popp- og djassflokki fyrir plöturnar Hello
Somebody og Dansaðu fíflið þitt dansaðu!
Morgunblaðið/Kristinn
Bryndís Halla Gylfadóttir og
Edda Erlendsdóttir eru til-
nefndar til tónlistarverðlauna
fyrir plötuna Verk fyrir selló
og píanó.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Örn Elías Guðmundsson tónlist-
armaður starfar undir lista-
mannsnafninu Mugison. Hann
hefur gefið út hljómplötur og
haldið tónleika víða um heim.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Jón Jósep Snæbjörnsson fær
tvær tilnefningar, sem söngvari
ársins í poppflokki og fyrir popp-
plötu ársins með hljómsveit sinni
Í svörtum fötum.