Morgunblaðið - 04.12.2004, Page 61
!"#$%$& ' ($%%#) * + '$#",#
-. "(-) + '(%/) "!"%0/ -. & 121 3144/
5". 67.6('-#0 8-/
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 61
SIR Elton John hefur sakað vin sinn
George Michael um að láta hæfileika
sína fara til spillis með því að vera
svona heimakær.
Þeir Elton og George sungu saman
dúett í lagi Eltons „Don’t Let The Sun
Go Down On Me“ en það orð fer af
George að hann sé mikill einfari.
„Ég hef hvatt hann til að gera
meira en hann er bara í öðrum heimi.
Það nagar mig að hann skuli ekki fást
til að halda tónleika. Honum finnst
miklu betra að hanga heima hjá sér
öllum stundum, sem mér finnst vera
sóun á hæfileikum. En þetta er hans
líf, ekki mitt. Hann virðist afar van-
sæll og það sýnir sig á plötunni hans
nýju,“ en þar talar Elton um Patience,
sem hann segist hafa orðið fyrir mikl-
um vonbrigðum með.
„Mér þótti hún góð, en miðað við
hversu lengi hún var í bígerð þá olli
hún mér vonbrigðum. Hann er ein-
hver hæfileikaríkasti maður sem ég
hef hitt og svo sannarlega einn besti
söngvari sem ég hef heyrt í. Ég ann
honum sem vini, þannig að ég verð að
gæta að því hvað ég segi um hann.
Það eina sem ég vil því segja er:
George, þú þarft að drífa þig oftar út.“
Sir Elton John verður seint sagður
manna orðvarastur.
George Michael verður seint sagð-
ur manna duglegastur.
Tónlist | Sir Elton John
George Michael
sóar hæfileikunum
ÓLAFUR Jósepsson / Stafrænn Há-
kon hefur haldið sig við heimabruggið
til þessa og en gefur nú út plötu á
vegum þeirrar merku og virtu útgáfu
Resonant. Á Ventli / Poka tekur hann
undir sig stórt
stökk inn í epíska
naumhyggju, allir
hljómar eru meiri
um sig, rými á milli
þeirra betur mark-
að og hljóð hljóma betur. Líklegt
verður að telja að hann hafi við hönd-
ina betri tól og tæki en fram til þessa,
verkfæri sem gera honum kleift að
hafa tónlistina skýrari og hreinni og
um leið sterkari en áður, en hugs-
anlegt líka að hann hafi komist í betra
hljóðver en forðum. Það hefur og sitt
að segja að hann notar meira af lif-
andi hljóðfæraleik en áður, fær til liðs
við sig mannskap til að spila á tromm-
ur, selló, gítara, bassa og básúnu, eft-
ir því sem við á.
Upphafslagið, „Unnar“, er einkar
dægilegt, falleg laglína og þung und-
iralda skapa einkar skemmtilega
sveimkennda stemmningu. Básúnan
er skemmtilega notuð og sellóið skil-
ar hlýum tregablöndnum hljómi.
Sama er upp á teningnum í næsta
lagi, „Bleki“, en þar er ljúfur gítar í
aðalhlutverki þó óreiðan kraumi und-
ir niðri. Þannig vindur plötunni fram
að mestu leyti, átök hófleg, en fullt að
gerast í hverju lagi þegar maður tek-
ur að rýna í það. Gott dæmi er „Vo-
gor“ þar sem skemmtilega teygj-
anlegur taktur knýr lagið áfram.
„Eder“ er náskylt því, meinleysisleg
gítarklifun lifnar við með taktlykkju
sem er teygð og toguð, smám saman
byggist upp spenna sem brýst svo út í
hrífandi sterkum millikafla. Það er
líka boðið upp á takt í „Kvos“ undir
lok plötunnar, raftakti og mannlegum
áslætti er þar blandað saman á
skemmtilegan hátt.
„Kjammi“ er svo hápunktur plöt-
unnar að mínu mati, geysiöflugt lag
með stöðugri stígandi og endar sem
hátimbruð hljómahöll. Næsta lag þar
á eftir, „Górecki Magnús“, er lítt
síðra, en full stutt finnst mér.
Stafrænn Hákon hefur bætt sig til
muna og var þó góður fyrir. Poki /
Ventill er framúrskarandi plata sem
sýnir á sér nýja hlið við hverja
hlustun
Gjöful og
skemmtileg
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Ventill / Poki, breiðskífa með Stafrænum
Hákoni, en svo nefnir sig tónlistarmað-
urinn Ólafur Jósepsson. Ólafur semur sjö
laganna einn, en þrjú með S. Samma sem
leikur á gítar í þeim lögum. S. Daníel leik-
ur á trommur í nokkrum lögum, S. Doddi
á selló og S. Töddi á básúnu. Þetta er
fjórða breiðskífa hans en áður hafa komið
út heimagerðar skífur í heimagerðum um-
slögum. Resonant gefur út. 62:04 mín.
Stafrænn Hákon – Ventill / Poki
Árni Matthíasson