Morgunblaðið - 04.12.2004, Qupperneq 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Heilsukoddar
Heilsunnar vegna
Opi› í dag laugardag
frá kl. 11-16
ÞÓTT álftin nærist mest á vatna- og mýrar-
gróðri fúlsar hún ekki við brauðinu ef svo ber
undir. Þessir guttar sættu lagi á meðan álftin
var að maula brauðið og freistuðu þess að
strjúka henni. Virtist hún ekki kippa sér upp
við þessa stígvéluðu gutta.
Morgunblaðið/Sverrir
Vinir álftarinnar sættu lagi á tjarnarbakkanum
Þagað um
Völuspárkenn-
ingar Helga
EYSTEINN Þorvaldsson, prófessor emer-
itus, segir í grein í Lesbók í dag að það sé
með ólíkindum að stofnanir og starfsmenn
íslenskra fræða skuli í fjóra áratugi hafa
þagað þunnu hljóði um Völuspárkenningar
og -skýringar Helga Hálfdanarsonar og lát-
ið sem bók hans um efnið, Maddaman með
kýrhausinn, sé ekki til.
Eysteinn telur að bók Helga, frá árinu
1964, sé athyglisverðasta rit sem birst hafi
um Völuspá, merkasta kvæði allra Eddu-
kvæða. Í ritinu setji Helgi fram nýjar og
gagntækar skoðanir um form, efnisskipan
og upprunalega gerð þessa elsta bók-
menntaverks Íslendinga. Þykir Eysteini
Helga takast að leiðrétta ýmsar rang-
færslur og misskilning sem fram hafi komið
um form og efni kvæðisins.
Lesbók/4
TÓNLISTARMAÐURINN Mugison og
fönksveitin Jagúar fengu alls fimm til-
nefningar hvor til Íslensku tónlistarverð-
launanna 2004 sem voru kunngjörðar síð-
degis í gær.
Mugison er tilnefndur fyrir plötu sína
Mugimama, Is This Monkeymusic? í flokki
popptónlistar og Jagúar fyrir tvær plötur,
Hello Somebody í flokki popptónlistar og
Dansaðu fíflið þitt dansaðu! í flokki djass-
tónlistar.
Alls eru flokkarnir 16 talsins og
skiptast niður á þrjá yfirflokka; popp og
rokktónlist, sígilda tónlist og djasstónlist.
Íslensku tónlistarverðlaunin verða af-
hent í Þjóðleikhúsinu 2. febrúar 2005./60
Liðsmenn fönksveitarinnar Jagúars.
Mugison og
Jagúar með fimm
tilnefningar
Íslensku tónlistar-
verðlaunin 2004
Atkvæði
greidd um
fjárlög í dag
ÞRIÐJU og síðustu umræðu um fjárlaga-
frumvarp fyrir árið 2005 lauk á Alþingi í
gærkvöld. Lokaatkvæðagreiðsla fer fram á
Alþingi í dag.
Í umræðunni í gær gerðu stjórnarand-
stæðingar m.a. nýlega spá Seðlabanka Ís-
lands að umtalsefni. „Hefur Seðlabankinn
staðfest að fjárlögin muni ekki duga sem
aðhald í efnahagsmálum og jafnvel auka
hættu á vaxandi verðbólgu,“ segir m.a. í
áliti þingmanna Samfylkingar og Frjáls-
lynda flokksins í fjárlaganefnd. Jón Bjarna-
son, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, sagði m.a. í sínu nefnd-
aráliti að þótt gert væri ráð fyrir rúmlega
tíu milljarða tekjuafgangi sýndi reynsla síð-
ustu ára að niðurstaðan yrði allt önnur þeg-
ar árið yrði loks gert upp.
Ákvörðun/10
VERKFÆRUM og öðrum búnaði
fyrir tugi milljóna er stolið frá
verktökum á hverju ári. Virðist
sem þjófnaðurinn sé vandlega
skipulagður og í mörgum tilfellum
þykir líklegt að þjófarnir fái pant-
anir, þ.e. að einhver biðji þá um
stela ákveðnum verkfærum. Loft-
pressur, borðsagir og dýr mæli-
tæki eru meðal þess sem stolið er.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjavík, Kópavogi og
Hafnarfirði hafa talsvert á annað
hundrað innbrot og þjófnaðir á
verkfærum og búnaði frá verktök-
um verið tilkynnt til lögreglu það
sem af er þessu ári. Illa gengur að
upplýsa málin og heyrir til algjörra
undantekninga ef tekst að hafa
uppi á kaupendum þýfisins. Sumir
þeirra sem Morgunblaðið ræddi
við telja hugsanlegt að hluti verk-
færanna sé fluttur úr landi en þyk-
ir þó langlíklegast að mestur hluti
sé seldur hér á landi.
Samkvæmt upplýsingum frá
stóru tryggingafélögunum þrem-
ur, TM, Sjóvá-Almennum og VÍS,
hafa þau greitt í kringum 60 millj-
ónir í bætur vegna þjófnaðar frá
verktökum á þessu ári.
Hjá lögreglunni í Reykjavík eru
skráð 76 slík tilvik fyrstu tíu mán-
uði ársins. Dæmi eru um að brotist
hafi verið inn átta sinnum hjá einu
og sama verktakafyrirtækinu og í
tíu tilvikum var brotist inn tvisvar.
Þjófarnir víla ekki fyrir sér að stela
stórum og þungum verkfærum
sem þarf a.m.k. tvo menn til að
bera og sendibíl til að flytja.
Hinrik Pálsson, rannsóknarlög-
reglumaður í Reykjavík, segir að
oft virðist sem þjófarnir hafi fengið
pantanir um að útvega tiltekin
verkfæri og þeim fylgi jafnvel upp-
lýsingar um hjá hvaða fyrirtæki
þeir geti gengið að þeim. Skipti
miklu að vita að þeir geti selt þýfið
áður en þeir láta til skarar skríða.
Handverkfærum og tækjum stolið frá verktökum fyrir tugi milljóna á ári
Oft stolið eftir pöntun
♦♦♦
♦♦♦
Í HAUST hefur tvisvar verið brotist inn í vinnuskúr Eyktar ehf. við Úlf-
arsá og þaðan stolið verkfærum og búnaði fyrir um 1,5 milljónir króna.
Höskuldur Höskuldsson verkstjóri segir að eftir fyrra innbrotið hafi
læsingar verið styrktar og m.a. settir gámalásar sem eru sérstaklega
styrktir. Allt kom fyrir ekki því að um mánuði eftir fyrra innbrotið var
aftur brotist inn, að öllum líkindum sami þjófur að mati Höskuldar.
Þjófurinn mætti með eigin slípirokk og tók rafmagn úr sambandi í gámi
skammt frá, tengdi sig við það og skar í burtu bæði hengi- og gámalása.
Hverju einasta verkfæri og fylgihlutum var stolið úr skúrnum, þ. á m.
leysigeislakíki sem kostar um 350.000 krónur. Höskuldur segir að verk-
færin hafi verið rækilega merkt fyrirtækinu með lit sem erfitt er að má
af og nafn fyrirtækisins ennfremur grafið í þau.
Skáru sig gegnum lása
STEINGRÍMUR J. Sigfússon,
formaður Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs, gerði
viðveru ráðherra á Alþingi að
umtalsefni í fjárlagaumræðu á
þinginu í gærkvöldi.
Steingrímur tók fram í um-
ræðunum í gær að það hefði þótt
sjálfsögð embættisskylda ráð-
herra, áður fyrr, að mæta ef við-
veru þeirra var óskað á þinginu
svo framarlega sem þeir væru
ekki veikir í rúminu eða erlendis.
Virðingarleysi ráðherra gagn-
vart þinginu hefði hins vegar
versnað ár frá ári. Þeir virtust
telja að þeim væri það í sjálfsvald
sett hvort þeir mættu í umræður
eða ekki. Spurði hann síðan
hvort hinir nýskipuðu og frísku
ráðherrar, eins og umhverf-
isráðherra og menntamálaráð-
herra, væru svona aðfram-
komnir af þreytu vegna starfa
sinna að þeir þyrftu að fara í
rúmið fyrir kl. níu á kvöldin.
Sagði hann að þingmenn
hefðu í gær ítrekað óskað eftir
nærveru þeirra. Það vekti því at-
hygli að þær kæmu ekki til
þings.
Steingrímur rifjaði upp þegar
hann, sem ráðherra, var kall-
aður í umræður á þinginu um
miðja nótt. Halldór Blöndal,
þingmaður Sjálfstæðisflokks,
hefði þá verið þingmaður efri
deildar þingsins og krafist þess
að Steingrímur mætti í umræð-
urnar til að svara fyrirspurnum.
„Það var hringt heim til mín eitt-
hvað að ganga þrjú um nótt og
ég að sjálfsögðu dreif mig í fötin
og keyrði hingað niður eftir al-
veg í spretti.“ Steingrímur tók
þó fram að hann hefði ekið á lög-
legum hraða. „Ég kom svo hing-
að og mætti Halldóri á tröpp-
unum. Hann hefur þá sennilega
ekki nennt að bíða eftir mér eða
tilganginum var e.t.v. náð með
því að ná mér úr rúminu,“ rifjaði
Steingrímur upp í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Í rúmið fyrir klukkan níu?