Morgunblaðið - 12.12.2004, Síða 8
8 SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þrátt fyrir að staðaþeirra ellilífeyris-þega sem fá fullar
bætur almannatrygginga
hafi batnað á allra síðustu
árum eru bæturnar enn
undir lágmarkstaxta
verkafólks. Allt fram til
1995 voru þessar bætur ör-
lítið hærri en lágmarks-
taxti. Þetta kemur fram í
staðtölum Trygginga-
stofnunar ríkisins.
Fulltrúar eldri borgara
hafa ítrekað bent á að bæt-
ur almannatrygginga til
ellilífeyrisþega hafi á síð-
ustu árum ekki hækkað í
takt við hækkun á lág-
markstaxta verkafólks.
Lögum breytt árið 1995
Árið 1995 var lögum breytt á Al-
þingi sem hafði í för með sér að
bætur almannatrygginga þurftu
ekki lengur að fylgja launaþróun
lágmarkslauna. Árið 1995 námu
hámarksbætur TR 55.258 krónum,
en lágmarkslaun voru þá 54.743
krónur á mánuði. Á árunum þar á
eftir hækkuðu lágmarkslaun veru-
lega. Árið 2001 voru lágmarkslaun
komin upp í 89.584 krónur, en þá
námu hámarksbætur TR 78.522
krónum á mánuði.
Árið 2001 var farið að greiða
svokallaðan tekjutryggingarauka
og árið eftir var hann hækkaður
um helming. Þetta hefur því bætt
nokkuð stöðu aldraðra. Um síð-
ustu áramót voru lágmarkslaun
97.783 krónur á mánuði, en há-
marksbætur voru 97.151 króna.
Hámarksbætur TR eru settar
saman úr grunnlífeyri, tekjutrygg-
ingu, heimilisuppbót og tekju-
tryggingarauka. Bæturnar skerð-
ast ef fólk er með aðrar tekjur og
fari tekjurnar upp fyrir viss mörk
falla þær niður. Tölur um há-
marksbætur segja þess vegna ekki
nema hálfa söguna vegna þess að
það er ekki nema mjög takmark-
aður hluti ellilífeyrisþega sem fær
óskertar hámarksbætur.
Á árinu 2003 fengu tæp 95% elli-
lífeyrisþega óskertan grunnlífeyri
eða 25.194 ellilífeyrisþegar, tæp-
lega 37% fengu greidda óskerta
tekjutryggingu eða 9.713 ellilífeyr-
isþegar, óskerta heimilisuppbót
fengu 15% eða 3.952 ellilífeyris-
þegar og 1,2% ellilífeyrisþega
fengu óskertan tekjutryggingar-
auka eða 314 ellilífeyrisþegar.
Þetta eru þeir grunnflokkar með
eingreiðslum sem ellilífeyrisþegi
gat gengið að vísu að fá, ef ekki var
um aðrar tekjur að ræða hjá við-
komandi. Með öðrum orðum, að-
eins 314 einstaklingar fengu há-
marksbætur á síðasta ári eða
97.151 krónu. Aðrir fengu minna.
Grunnlífeyririnn, sem þorri
allra lífeyrisþega fær, nemur núna
21.249 krónum á mánuði. Frá
árinu 1988 hefur grunnlífeyririnn
hækkað um 124%. Lágmarkslaun
hafa hins vegar á sama tímabili
hækkað um 208%. Þess má geta að
launavísitala hefur hækkað um
153% frá árinu 1988.
Þorri ellilífeyrisþega hefur
tekjur úr lífeyrissjóðum, en þær
eru mjög misháar eftir því hve
mikil réttindi viðkomandi hefur
unnið sér inn. Á síðasta ári var
meðalgreiðsla ellilífeyris úr Líf-
eyrissjóði verslunarmanna um
34.000 krónur á mánuði.
Bætur öryrkja hafa hækkað
meira en aldraðra
Hámarksbætur öryrkja eru
núna 126.547 krónur, en þá er mið-
að við að viðkomandi fái 21.249
krónur í aldurstengda örorku.
Miðað við þessa tölu hafa há-
marksbætur öryrkja hækkað um
259% frá árinu 1988. Nauðsynlegt
er hins vegar að hafa í huga að ekki
fá allir öryrkjar hámarksbætur.
Samkvæmt tölum Trygginga-
stofnunar fengu 10.275 öryrkjar
grunnlífeyri á síðasta ári og 5.285
fengu tekjutryggingu, en þetta
samtals gerir 63.927 krónur á
mánuði. 1.149 fengu tekjutrygg-
ingarauka og 2.190 fengu heimilis-
uppbót. Ekki var farið að greiða út
aldurstengda örorkuuppbót á síð-
asta ári, en sem kunnugt er lögðu
stjórnvöld fram einn milljarð
króna á þessu ári til að bæta stöðu
ungra öryrkja.
Fréttaskýring | Hafa bætur almanna-
trygginga fylgt lágmarkslaunum?
Nokkur hækk-
un síðustu ár
Grunnlífeyrir hækkaði frá 1988 um
124% en lágmarkslaun um 208%
Aldraðir telja að bætur almannatrygginga
hefðu þurft að hækka mun meira.
Lágmarkslaun hafa hækk-
að mikið á síðustu árum
Grunnlífeyrir almannatrygg-
inga hefur hækkað um 124% frá
árinu 1988. Lágmarkslaun hafa
hins vegar á sama tímabili hækk-
að um 208%. Hámarksbætur til
ellilífeyrisþega hafa hækkað um
195%, en hafa verður í huga að
aðeins 314 einstaklingar fengu
óskertar hámarksbætur frá
Tryggingastofnun ríkisins á síð-
asta ári. 25.194 ellilífeyrisþegar
fengu aftur á móti óskertan
grunnlífeyri.
egol@mbl.is
! " #$
% &' (
#
( # ( ($ ( # # ) ($ *+ , )#-
.$ / 0
Ólafur H. Magnússon ætti ekki að verða í vandræðum með að finna formið á næstu
góðgerðarsamkomu.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn