Morgunblaðið - 19.12.2004, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
H
ægur bati er greinanlegur í Kambód-
íu, þó er þriðjungur þjóðarinnar
undir fátæktarmörkum og lífslíkurn-
ar þær lægstu í Asíu eða 57 ár að
meðaltali. Kambódía er ekki oft í
fréttum á Íslandi, þó var það talið
fréttnæmt að skipt var um kóng, og
einnig þegar fyrrverandi popp-
stjarnan Gary Glitter neitaði að yfir-
gefa Kambódíu þrátt fyrir tilskipun
og dóm fyrir að höndla með barnaklám. Landið hefur orð á sér
fyrir að vera sælureitur fyrir barnaníðinga og öfugugga. Flestir
þekkja óskarsverðlaunamyndina Vígvelli eða Killing Fields frá
árinu 1984 eftir leikstjórann Roland Joffé, og einhverjir hafa lesið
bókina Ógnir minninganna eftir Loung Ung sem gefin var út hér
á landi árið 2000 (Vaka-Helgafell), en hún er um líf í skugga ógn-
arstjórnar Rauðu khmeranna.
Kambódíska þjóðin þarf að endurheimta styrk sinn og mennt-
un og hún þarf að varðveita menninguna. Kambódía er fagurt
land og gæti orðið vinsælt ferðamannaland, þjóðin á sér merka
sögu, í landinu eru forn hof, mikilfenglegar ár og ósnertir skógar
ásamt hreinni baðströnd. Í Kambódíu var hið fornfræga Khmer-
keisaraveldi sem réð yfir landsvæði sem spannaði einnig Víetnam,
Laos og Taíland. Angkar-hofin í Kambódíu eru yfir 100 talsins og
flokkast sem undur, en þau voru reist á 9.–13. öld Khmer-kon-
ungum til dýrðar. Þekktustu musterin eru Bayon, Ta Prohm og
Angkor Wat.
Ferðamenn eru velkomnir en þó var ekki búist við nema einni
milljón erlendra ferðamanna árið 2004. Fáir Íslendingar leggja
leið sína til Kambódíu og fáir Kambódíumenn koma hingað, því
þjóðin kom illa undan 20. öldinni. Hæsta tíðni barnadauða í Asíu-
löndum er í Kambódíu, en árlega deyja þar um 63 þúsund börn
fimm ára og yngri og er vannæring talin valda a.m.k. helmingi
dauðsfallanna. Fjórðungur barnanna deyr af völdum niðurgangs
og lungnabólgu. Mörg deyja einnig við að stíga á jarðsprengjur,
en hlutfall sprengja í jörð þar er eitt það hæsta í heimi. Kambódía
er í 141. sæti á lista Alþjóðafjarskiptasambandsins (ITU) þar sem
177 þjóðum er raðað eftir því hvernig þeim hefur tekist að nýta sér
nýja rafræna fjarskiptatækni, Ísland er í þriðja sæti.
Ruslahaugarnir í Phnom Penh
Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari á Morgunblaðinu, var í
Kambódíu fyrr á þessu ári, en hann vinnur nú að viðamiklu al-
þjóðlegu ljósmyndaverkefni sem ber heitið „The Survival of the
Human Being“. Verkefnið lýsir lífsbaráttu jarðarbúa í svarthvít-
um ljósmyndum. Hann var á ferð með Rosmarie North, sendifull-
Fábrotnar óskir
„Ef ég ætti sand af seðlum myndi ég
kaupa mér köku,“ segir Pen Srey
Pech sem ætlar sér að verða rík. „Ég
hef ekki tíma til að vera í skóla,“
segir drengur sem safnar rusli á
haugunum í Phnom Penh í Kamb-
ódíu. Þorkell Þorkelsson myndaði
daglegt líf í Phnom Penh og ná-
grannaborgum og -bæjum, og
Gunnar Hersveinn varpar ljósi á
brot úr sögu og aðstæðum þjóðar
og einstaklinga í Kambódíu.
Morgunblaðið/Þorkell
Gömlu hjónin Ben Thun og Ouk Neng búa í litlu húsi án herbergja með barnabörnum sínum; Pen Sith 11 ára, Pen Srey Pech 7 ára sem er HIV-smituð og Pen Vanak 16 ára sem var í skólanum þegar
myndin var tekin. Faðir þeirra lést fyrir fimm árum og móðir fyrir þremur árum af völdum alnæmis. Pech á líf í vændum vegna ARV-lyfjameðferðarinnar.