Morgunblaðið - 19.12.2004, Page 20

Morgunblaðið - 19.12.2004, Page 20
20 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Með allt á hreinu erógleymanleg kvik-mynd þeim sem sáu– síðan hafa þeirhinir sömu verið með á hreinu að það er hæfileikafólk sem þar kom við sögu. Nú er komin til sögunnar ný mynd frá þessu sama fólki – Í takt við tímann sem frum- sýnd verður á annan í jólum í Smára- bíói. Leikstjóri hennar er Ágúst Guð- mundsson sem Íslendingum er að góðu kunnur fyrir margar aðrar kvikmyndaperlur, svo sem Land og syni og Mávahlátur, svo eitthvað sé nefnt. En um hvað fjallar Í takt við tímann? „Hún hefst 22 árum eftir að hinni lauk, fyrir framan Tívolí í Kaup- mannahöfn. Þarna eru sömu persón- ur á ferð, en eldri og vonandi reynd- ari,“ segir Ágúst. Eru allir kallaðir til sögunnar sem voru í fyrri myndinni? „Í stórum dráttum eru þetta alveg sömu persónurnar. Við byrjum bara 22 árum síðar en gerum því engin skil hvað fólkið hefur verið að gera þessa rúmu tvo áratugi. Annars var Þórður Árnason með þá ágætu hugmynd að byrja þessa nýju mynd fyrir utan Tív- olí og láta sem enginn tími hefði liðið – en eftir nokkrar bollaleggingar var hætt við það.“ Er öll myndin tekin í Danmörku? „Nei, langt í frá, einungis eitt atriði er tekið í Danmörku á útisviðinu í Tívolíi en síðan víkur sögunni til Ís- lands, Spánar, Rússlands og Banda- ríkjanna.“ Var þetta ekki dýr mynd? „Á íslenskan mælikvarða var hún ekkert mjög dýr þrátt fyrir ferðalög- in. Við fórum t.d hvorki til Spánar né Bandaríkjanna þótt atriði gerist þar heldur fundum við heppilega staði á Íslandi sem gátu verið Spánn annars vegar en Bandaríkin hins vegar. En það var vissulega farið til Rússlands, nánar til tekið til St. Pétursborgar.“ Hvernig var með búninga og annað sem lýtur að sviðsmynd? „Rebekka Ingimundardóttir sá um búninga og leikmynd er eftir Frosta Friðriksson. Í raun er enginn úr lið- inu sem gerði myndina Með allt á hreinu í starfsliði þessarar myndar nema ég og leikararnir. Hitt fólkið er farið tvist og bast, tökumaðurinn David Bridges er t.d. farinn til Holly- wood.“ Hvað með fjármögnun á þessari mynd? „Það tókst að forselja þessa mynd tiltölulega auðveldlega, bæði kvik- myndahús og sjónvarpsstöðvar höfðu trú á henni, en mestu skiptir framlag Kvikmyndamiðstöðvar, sem leggur til 40% af heildarkostnaðinum.“ Voru farnir að kalla sig Tuðmenn! Hvernig gekk samvinnan, eftir all- an þennan tíma? „Það má svo sem til sanns vegar færa að ýmislegt hafi breyst með aldrinum, þeir voru sjálfir farnir að kalla sig Tuðmenn á tímabili, en ég kallaði þá á fund í janúar 2003 og lagði til að við hittumst nokkrum sinnum, legðum hugmyndir í púkk og ég reyndi síðan að koma saman sögu- þræði í framhaldi af þessu. Fyrstu drögin að þessum söguþræði voru tilbúin mánuði síðar og síðan héldu menn áfram að bæta söguna og fegra, þetta voru ákaflega skemmtilegir fundir þar sem mikið var hlegið. Ég held að ég hafi aldrei unnið að mynd þar sem var virkari samvinna um þetta handritsferli en einmitt þessari. Þessi hæfileikaríki hópur kom sam- an og vissulega eru ekki allir þar með nákvæmlega sömu kímnigáfuna, ætli mitt verk hafi ekki einkum falist í því að leggja lokadóm á það hvað væri fyndnast.“ Er þetta sem sagt gamanmynd? „Ég yrði dálítið sár ef fólk færi og sæi þessa mynd og kæmist að þeirri niðurstöðu að hún væri ekki gaman- mynd.“ Ég ætla nú ekki að spyrja þig of grannt um söguþráðinn, en þó langar mig til að vita hvort eitthvað er sungið í þessari mynd? „Það var augljóst að nokkur atriði yrðu sungin. Við höfðum áhuga á að- hafa nokkur hrein „musical“-atriði – ekki síst í ljósi þess að mér fannst þau atriði njóta sín hvað best í fyrri mynd- inni. Síðan fór hópurinn að semja lög og við erum komin með þrjátíu frum- samin lög í þessari mynd. Mér finnst líklegt að nokkur þeirra eigi eftir að vera á vörum Íslendinga um aldur og ævi. Alveg frá upphafi var Eggert Þor- leifsson með okkur í þessu sköpunar- ferli – það voru sem sagt ég, hann og hljómsveitin sem gerðu handritið. Þess má þó geta að samtöl eru ekki skrifuð nema einstakar setningar. Lokahandritið var óvenjulega stutt eða einungis þrjátíu blaðsíður. Öll samtalsatriði eru spunnin. Þannig fórum við að í fyrri myndinni líka. Það handrit sem fyrir lá var atriðahandrit sem lýsti hvað átti að gerast í hverju atriði fyrir sig en það sem tekur yf- irleitt mest pláss í kvikmyndahand- ritum, samtölin sjálf, voru hvergi skráð.“ Er búið að selja þessa mynd til út- landa? „Það er ekkert erlent fjármagn í þessari mynd en það er þegar búið að bjóða okkur á Edinborgarhátíðina um mánaðamótin janúar-febrúar og við ætlum að þiggja það boð.“ Sterk grunnhugmynað baki Hvað er þér nú efst í huga að lok- inni gerð þessarar myndar, – svo há- tíðlega sé til orða tekið? „Það er fyrst og fremst öll þessi tónlist sem samin var í tilefni mynd- arinnar, hún er eins og Íslendingar segja „á heimsmælikvarða“. Ég trúi að tilþrif leikaranna eigi eftir að vekja nokkra athygli og ég held að á engan sé hallað þótt ég nefni þar sérstaklega Eggert Þorleifsson í hlutverki rótar- ans Dúdda. Íslenska þjóðin kynntist Eggerti fyrst í þessu hlutverki og það var unun að sjá hann hverfa fullkom- lega áreynslulaust aftur í það eftir þessa löngu fjarveru, – 22 ár.“ Hafðir þú gengið með það lengi „í maganum“ að gera mynd númer tvö – framhald af Með allt á hreinu? „Þessi hugmynd kom upp svona á fimm ára fresti en að lokum fann ég það út að framkvæmdin strandaði alltaf á mér, eða með öðrum orðum, – það þurfti einarðlega ákvörðun af minni hálfu til að setja verkefnið í gang. Enginn okkar vildi endurtaka gömlu myndina og okkur fannst ótækt að leggja út í nýja mynd fyrr en fyrir lægi sterk grunnhugmynd að nýrri mynd. Hún fannst í janúar í hitteðfyrra og þar með hófst þetta ævintýri.“ Egill Ólafsson og Ragnhildur Gísladóttir ásamt Ágústi. Orkuhringur Stuðmanna. Ásgeir Óskarsson, Jakob F. Magnússon og Tómas M. Tómasson. Stuðmenn: Í takt við tímann Á annan í jólum verður frumsýnd í Smárabíói kvik- mynd Ágústs Guðmunds- sonar; Í takt við tímann. Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi við Ágúst um þessa forvitnilegu mynd sem er eins konar framhald af hinni geysivinsælu mynd; Með allt á hreinu, – þar sem Stuðmenn og fleiri fóru á kostum. Morgunblaðið/Eggert Úr pulsuatriðinu, Egill Ólafsson með ungmeyjar í baksýn. Ágúst Guðmundsson leikstjóri. Ágúst rýnir í kvikmynd sína á skjá. Eggert Þorleifsson — Dúddi rótari. Ragnhildur Gísladóttir syngur af innlifun. gudrung@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.