Morgunblaðið - 19.12.2004, Síða 25

Morgunblaðið - 19.12.2004, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 25 FRÁ KEFLAVÍK TIL FRANKFURT Á 21.000 PUNKTUM FARÐU ÚT Á VILDARPUNKTUM Viltu komast í hóp þeirra 21.205 VISA korthafa sem nú þegar eiga næga vildarpunkta til að fljúga frítt út með Icelandair? Þú safnar punktum m.a. þegar þú notar Vildarkort VISA hér heima. Ert þú ekki örugglega að safna? Kannaðu málið á www.visa.is/vildarkort til að vera viss. FÓR Í SKÍÐASKÓLA Í AUSTURRÍKI Síðast þegar við fjölskyldan fórum í skíðaferð þá gátum við notað Vildarpunktana fyrir stelpuna okkar. Við flugum til Frankfurt með Icelandair og keyrðum svo til Lech í Austurríki. Myndin er tekin þegar við erum að sækja hana í skíðaskólann þar sem hún eignaðist fullt af vinum, m.a. frá Ástralíu, Portúgal og Ungverjalandi. Turabi, sem eitt sinn var helsti ísl- amski hugmyndafræðingur stjórnar- innar. Hann situr nú í fangelsi og er gefið að sök að hafa ætlað að steypa stjórninni. Ibrahim Khallil, leiðtogi JEM, leiddi eitt sinn bardagamenn Mujahedeen til að reka jihad – heilagt stríð – sem stjórnin lýsti yfir á hendur uppreisnarmönnum í suðurhluta Súd- ans, að því er virðist í þeirri trú að íbú- unum og í framhaldinu öðrum hlutum svörtu Afríku yrði snúið með valdi til íslamskrar trúar. Tortryggni vegna sáttmála í suðri Einn valdamesti ímaminn í Nyala er Abdulhaye Alrabe. Hann sagði mér að neyðarástand hefði skapast í Darfur vegna þess að „fimmtíu árum eftir sjálfstæði væri ríkisstjórnin ekki ákveðin í að innleiða íslömsk lög í líf okkar“. En hann sagði einnig að ein ástæðan fyrir stríðinu væri óttinn í Darfur, sem ætti rætur í sáttmálan- um, sem stjórnvöld og uppreisnar- menn í suðri, Lýðfrelsisher Súdans (SPLA), virtust vera að koma í höfn og fæli meðal annars í sér skiptingu hagnaðarins af olíuauði Súdans. „Stjórnvöld og SPLA ætla að skipta kökunum til helminga á milli sín þannig að það verður engin leið fyrir súdanska hagsmunaaðila í suðri að ná sér í hlut.“ Það var auðvelt að finna liðsmenn SLA, sem voru tilbúnir til að tala, og nánast allir, sem ég hitti í Darfur og sögðust vera afrískir, lýstu yfir ótak- mörkuðum stuðningi við uppreisnar- menn, en það var erfitt að hafa upp á mönnum, sem voru tilbúnir að lýsa yf- ir stuðningi við arabísku bardaga- mennina, sérstaklega í bæjum Darf- ur. Áður fyrr komu arabarnir með úlfaldana sína á markaðinn til að stunda viðskipti. Nú komast margir þeirra hvergi og eru umkringdir af SLA. Mér var sagt að á þessum árs- tíma ættu að vera mörg hundruð úlf- aldar til sölu á Al-Manash-markaðn- um í Nyala. Daginn sem ég fór taldi ég aðeins 25 einmanalegar skepnur. Jaly Abdu Alrahim úlfaldasali sagði að uppreisnarmenn réðust linnulaust á arabíska hirðingja og svo dæmi væri tekið hefðu þeir náð 3.700 úlföldum og 76 manns á leið til Líbýu í júní. Úlfaldarnir hefðu verið étnir og ekki væri vitað um örlög þeirra, sem hefði verið rænt. „Ef þeir finna okkur drepa þeir okkur,“ sagði hann. „Nú erum við orðin mjög fátæk vegna þess að við höfum glatað úlföldunum okkar og búpeningi og við erum svöng.“ Í liðinni viku hafa átökin harðnað í Darfur. Tveir hjálparstarfsmenn voru myrtir, snurða er hlaupin á þráð- inn í friðarviðræðunum í Abuja í Níg- eríu og Jan Egeland, aðstoðarfram- kvæmdastjóri mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum, segir að mörg hundruð þúsund manns gætu soltið í hel ef átökin koma í veg fyrir að hjálp- argögn komist í gegn. Fátt bendir til að endalok stríðsins í Darfur séu í augsýn. Darfur Höfundur er stríðsfréttaritari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.