Morgunblaðið - 19.12.2004, Page 34

Morgunblaðið - 19.12.2004, Page 34
34 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ 20. desember 1994: „Dómstóll EFTA kvað á föstudag upp ráðgefandi álit vegna máls finnsks innflutningsfyrir- tækis. Samkvæmt álitinu er samkvæmt EES-samningnum óheimilt að viðhalda einkaleyfi ríkisins á áfengisinnflutningi þegar um er að ræða vöru, sem er upprunnin innan Evr- ópska efnahagssvæðisins. Niðurstaðan er því sú – og hún á ekki við um Finnland ein- göngu – að innflutningur á áfengi á að vera frjáls, rétt eins og á öðrum vörum, þótt smásala kunni áfram að vera bundin ríkiseinkaleyfi. Álit EFTA-dómstólsins er athyglisvert efnislega, ekki sízt að því leyti að dómstóllinn vísar á bug þeim röksemdum, að ríkiseinkaleyfi sé nauðsyn- legt til að vernda heilsu manna fyrir skaða af völdum áfengisneyzlu. „[…] unnt er að ná því markmiði með ráðstöf- unum, sem fela í minna mæli í sér hindrun á vöruflutn- ingum,“ segir dómstóllinn. Þetta er í samræmi við ótal- margar vísbendingar um að áfengisneyzla minnki alls ekki þótt innflutningur, dreifing eða sala áfengis sé á hendi rík- isins. Niðurstaða EFTA- dómstólsins styður því þá af- stöðu Morgunblaðsins að tímabært sé að endurskoða það kerfi einokunar í áfeng- issölu hér á landi, sem hefur fyrir löngu gengið sér til húð- ar og stríðir að flestu leyti gegn nútímalegum hugs- unarhætti.“s . . . . . . . . . . 19. desember 1984: „Fé- lagsdómur hefur nú sýknað Reykjavíkurborg í máli sem BSRB höfðaði fyrir hönd Starfsmannafélags borg- arinnar til að fá úr því skorið hvort borgaryfirvöldum hefði borið að greiða þeim laun fyr- irfram, sem boðað höfðu verk- fall 4. október síðastliðinn. Niðurstaða fjögurra af fimm dómurum í Félagsdómi var sú, að borgaryfirvöld hefðu farið rétt að, þegar þau ákváðu að greiða verkfalls- mönnum ekki laun. Þessi niðurstaða Félagsdóms er í samræmi við álit þeirra lögfræðinga sem Reykjavík- urborg studdist við þegar ákvörðun um þetta efni var tekin. BSRB taldi hins vegar hér um skýlaust lögbrot að ræða. Þeirri skoðun hefur nú verið hnekkt.“ . . . . . . . . . . 19. desember 1974: „Frum- varp til fjárlaga fyrir árið 1975 er nú til lokaafgreiðslu á Al- þingi. Engum þarf að koma á óvart, að hér er um að ræða einhverja mestu hækkun á milli ára á niðurstöðutölum fjárlagafrumvarps, sem átt hefur sér stað. Ástæðan fyrir þessari hækkun er fyrst og fremst þróun erfnahags- og fjármála á þessu ári. Fjárlaga- frumvarpið hlýtur ávallt að endurspegla ástand efnahags- málanna og það frumvarp, sem nú er til meðferðar á Al- þingi, ber glöggt vitni um þá ringulreið, sem hér hefur ríkt í efnahagsmálum á þessu ári. Við höfum ekki einvörðungu slegið Íslandsmet í verðbólgu heldur Evrópumet og annað er með öllu útilokað en þessar aðstæður hafi veruleg áhrif á fjárlagagerð.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Þ að er ekki oft, að menn skapi sér af eigin rammleik nýjan starfsferil eftir áratuga starf á öðru sviði. Það hefur Ragnar Arnalds, fyrrum al- þingismaður og ráðherra, gert. Hann var kjörinn á þing 25 ára gamall og varð formaður hins nýstofnaða Alþýðubandalags þrítugur að aldri og ráðherra um fertugt. Áður en hann var kjörinn á þing hafði hann verið virkur í starfi samtaka herstöðvaandstæðinga. Á síðari hluta stjórnmálaferils síns hófst hann handa við leikritagerð og hafa nokkur leikrita hans verið sýnd, bæði í Þjóðleikhúsinu og hjá Leikfélagi Reykjavíkur svo og víða á landsbyggðinni, ekki sízt í hans gamla kjör- dæmi. Og nú er komin út fyrsta skáldsaga hans, Maríumessa, í senn vel skrifuð, fróðleg og spennandi. Einn af bókmenntagagnrýnendum Morgun- blaðsins, Skafti Þ. Halldórsson, sagði í ritdómi hér í blaðinu fyrir nokkrum vikum um þessa bók: „Póstkólóníalismi er hugtak, sem lítið hefur farið fyrir í íslenzkri menningarumræðu enda þótt Íslendingar séu óumdeilanlega fyrrum ný- lenda. Það er þó mín skoðun, að Sigfús Daða- son hafi með skrifum sínum í Tímariti Máls og menningar á sínum tíma um Franz Fanon, menningarnýlendustefnu Bandaríkjamanna og fyrrum nýlendukúgara í Evrópu verið meðal brautryðjenda þessarar greinar menningar- fræðinnar í Evrópu. Því er upp á þessari um- ræðu bryddað hér að þjóðernishyggja eftir- stríðsáranna og eftirnýlendutímans er vakin upp í nýlegri sögulegri skáldsögu eftir Ragnar Arnalds, sem hann nefnir Maríumessu.“ Engum sem þekkir til rithöfundarins kemur þetta á óvart. Þjóðernisleg afstaða til sögu þjóðarinnar, sjálfstæðisbaráttu hennar og stöðu Íslendinga í heimi nútímans hefur ein- kennt stjórnmálaferil Ragnars Arnalds frá upphafi og til þessa dags og endurspeglast m.a. í baráttu hans nú gegn aðild Íslands að Evr- ópusambandinu. Að vísu geta aðrir verið þeirr- ar skoðunar, að þjóðernishyggja þurfi ekki endilega að koma fram í baráttu gegn banda- ríska varnarliðinu á Íslandi heldur þvert á móti í baráttu fyrir veru þess hér en það er önnur saga, sem ekki verður fjallað um nú. Á seinni áratugum hafa yngri kynslóðir gjarnan litið svo á, að í þjóðernishyggju fælist eitthvað neikvætt. Það er mikill misskilningur. Hvað er neikvætt við það, að fólk hafi ást á þjóð sinni, sögu hennar og örlögum og landinu, sem hún hefur lifað í? Barátta Íslendinga fyrir sjálf- stæði sínu byggðist ekki sízt á þjóðernishyggju. Áður tengdist hún sögu landsins og menningar- arfleifð. Yngri fræðimenn hafa vakið athygli á því, að nú tengist hún fremur sterkri tilfinningu fyrir fegurð landsins og náttúru þess, sem vafa- laust er rétt. Í því ljósi má líta svo á, að barátta ekki sízt ungs fólks og alveg sérstaklega kvenna fyrir verndun umhverfisins og gegn náttúruspjöllum sé til marks um nútímalega þjóðernishyggju. Slíkri baráttu á að sýna virðingu, hvort sem menn eru sammála eða ósammála þeim sjón- armiðum, sem fram eru sett. Skafti Þ. Halldórsson segir í ritdómi sínum: „Bygging sögunnar er einföld og hún dregur upp einfalda mynd af andstæðum kúgaranna og hins kúgaða. En í þessari aðferð eru fólgnar hættur. Þannig sýnist mér Ragnar frekar en hitt fegra þátt íslenzkrar yfirstéttar í sögunni og gera sér far um að draga býsna neikvæða mynd af Dönum. Aðferðin hindrar líka flæði milli herbúða þannig að of mikið er gert úr sögulegum andstæðum íslenzkrar yfirstéttar og danska valdsins. Þetta var raunar einkenni á hinu þjóðernissinnaða líkani Íslandssögunnar, einkum á fyrri hluta 20. aldarinnar.“ Þetta er athyglisvert sjónarmið, sem dregur skýrt fram mismunandi viðhorf og sjónarmið tveggja kynslóða núlifandi Íslendinga. Kynslóð Ragnars Arnalds var alin upp í mjög gagnrýnu viðhorfi til Dana. Að sumu leyti má segja, að henni hafi verið innrætt það sem kalla má Danahatur. Þetta var gert með kennslubókum í Íslandssögu og sögukennslu í skólum, barna- skólum, gagnfræðaskólum og menntaskólum. Sögukennslan mótaðist af sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar á síðari hluta 19. aldarinnar og fram eftir 20. öldinni. Kynslóð gagnrýnandans veit ekki hvaðan á hana stendur veðrið, þegar hún kynnist þessari sýn á íslenzka sögu. Sennilega er kynslóð rit- höfundarins ein sú síðasta, sem mótaðist af þessum viðhorfum. En Skafti Þ. Halldórsson vekur upp áhugaverða umræðu með þessum at- hugasemdum. Var þetta rangt sjónarhorn á söguna? Var of langt gengið í innrætingu hverrar kynslóðar á fætur annarri í þessu við- horfi til Dana? Víst er að það hefur tekið þá, sem meðtóku „Danahatrið“, töluverðan tíma að losna undan áhrifum þeirrar sögukennslu en stærsta skrefið í þeim efnum var áreiðanlega stigið með af- hendingu handritanna. Handritin í Kaup- mannahöfn áttu drjúgan þátt í að viðhalda hinu gagnrýna sjónarhorni á athafnir Dana á Ís- landi. Að baki Maríumessu Ragnars Arnalds liggur augljóslega mikil rannsókn á tíðaranda, lífs- viðhorfum og lífsháttum bæði á Íslandi og í Danmörku á þeim tíma, sem sagan fjallar um. Það er ekki sízt styrkur þessarar fyrstu skáld- sögu fyrrverandi forystumanns vinstri manna og herstöðvarandstæðinga á Íslandi. Nýtt landnám Á sama tíma og síð- asta kynslóðin, sem fæddist í konungs- ríkinu Íslandi, er að horfa til baka og leggja mat á sögu lands og þjóðar á síðustu nokkur hundruð árum er ný kynslóð Íslendinga, sem þekkir ekki sjálfstæðisbaráttuna nema af sögu- bókum og man varla þorskastríðin, að hefja nýtt íslenzkt landnám í útlöndum. Raunar fór ekki á milli mála, að sumum Dönum mislíkaði, þegar íslenzk fyrirtæki keyptu Magasin du Nord á dögunum. Kannski má segja, að með þeim viðskiptum hafi verið hefnt fyrir gerðir Herlufs Daa í skáldsögu Ragnars Arnalds! Fyrir skömmu gaf Morgunblaðið út sérblað um strandhögg íslenzkra kaupsýslumanna á Bretlandseyjum. Það blað er raunar að koma út á ensku næstu daga. Við lestur þess verður ljóst, að viðskiptaumsvif Íslendinga í Bretlandi eru orðin ótrúlega mikil og á mörgum sviðum. Þar hafa auðvitað margir komið við sögu. Ís- lenzk fisksölufyrirtæki hafa lengi starfað í Bretlandi og hið sama má segja um Flugleiðir og forvera þess félags, Loftleiðir og Flugfélag Íslands. En á engan er hallað þótt sagt sé, að hinn umdeildi kaupsýslumaður, Jón Ásgeir Jó- hannesson, hafi lagt grundvöll að mikilli þátt- töku íslenzkra fyrirtækja í brezku viðskiptalífi seinni árin. Þar fylgja að vísu fast á eftir bræð- urnir í Bakkavör og forsvarsmenn KB-banka. Miðstöð alþjóðlegra viðskipta Björgólfs Thors Björgólfssonar er í London en aðalathafna- svæði hans er hins vegar í austurhluta Evrópu. Í Morgunblaðinu í dag, laugardag, er skýrt frá því, að Baugur og samstarfsaðilar hafi seint í gærkvöldi, föstudagskvöldi, lokið yfirtöku á brezka stórfyrirtækinu Big Food Group og þar sé um að ræða viðskiptasamning, sem nemur samtals 112 milljörðum króna. Hver er lykillinn að velgengni íslenzkra fyr- irtækja í Bretlandi og raunar víðar um þessar mundir? Augljóst er að hin nýja kynslóð ís- lenzkra kaupsýslumanna býr yfir sjálfstrausti, sem ekki var áður til staðar hjá þjóð, sem fór ekki að standa á eigin fótum fyrr en 1944 og varð að berjast við erfiðan hag alveg fram yfir 1960. Og þeir hafa kjark til að láta að sér kveða. Það er hægt að velta því fyrir sér, hvernig þetta sjálfstraust er til komið. Sú var tíðin, að Íslendingar treystu sér ekki til annarra við- skipta í útlöndum en selja fisk, starfsemi sem átti sér auðvitað langa sögu, og að reka sölu- skrifstofur fyrir íslenzku flugfélögin í öðrum löndum. Það eru ekki nema rúmlega þrír ára- tugir liðnir frá því, að landsmenn horfðu með nokkru stolti á söluskrifstofur íslenzku flug- félaganna í stórborgum beggja vegna Atlants- hafsins. Sjálfsagt er grundvöllurinn að þessu nýja sjálfstrausti almenn velmegun þjóðarinnar á síðustu árum og aukið frelsi til umsvifa. Fyrir hálfri öld var enn búið í torfbæjum víða um land og þeir sem eru að skríða út úr torfbæjum og af moldargólfum eru ekki líklegir til mikilla umsvifa úti í heimi, þótt sagan geymi að vísu dæmi um það m.a. í viðskiptastarfsemi Einars Benediktssonar. Í kjölfar þess tók við ný bar- átta við að koma undir sig fótunum í nútíma samfélagi. En nú eru Íslendingar í hópi ríkustu þjóða heims og þjóðin býr yfir menntun og þekkingu til jafns við aðrar þjóðir. Líklegt má telja, að í öllu þessu megi að hluta til leita skýringar á ný- fengnu sjálfstrausti íslenzkra kaupsýslumanna. Eitt er að kaupa fyrirtæki. Annað að reka þau með góðum árangri. Á Bretlandseyjum er nú um að ræða gífurlegar fjárfestingar ís- lenzkra fyrirtækja alla vega á mælikvarða smá- þjóðar. Mikill hluti þessara fjármuna er tekinn að láni. Þegar kaupin eru afstaðin tekur við það daglega verkefni að reka fyrirtækin og sjá til ÚTRÁS MENNINGARINNAR Útrás viðskiptalífsins til annarralanda vekur mikla athygli umþessar mundir og er m.a. fjallað um hana í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins í dag. En ekki er síð- ur ástæða til að vekja athygli á útrás menningarinnar. Sýning íslenzks leikhóps á Rómeó og Júlíu vakti athygli hér en ekki síður í Bretlandi og raunar svo mjög að margir af þekktustu leikurum Bret- lands hafa lýst vilja til að taka þátt í sýningunni. Ljóst er að forsetafrúin Dorrit Moussaief og tengsl hennar koma þar við sögu og ekki í fyrsta sinn að hún veitir íslenzku menningar- framtaki öflugan stuðning. Það breyt- ir hins vegar engu um það mikla afrek sem ungir, íslenzkir leikarar hafa unn- ið með því að ná fótfestu í hinum harða leikhúsheimi í Bretlandi með þessum hætti. Það er nú að verða daglegt brauð að íslenzkir rithöfundar nái miklum ár- angri með bækur sínar á alþjóðlegum vettvangi. Einar Már Guðmundsson hefur augljóslega haslað sér völl á er- lendum mörkuðum með bækur sínar og er mikið lesinn, m.a. á Norðurlönd- um. Hið sama má segja um Arnald Indriðason sem náð hefur ótrúlegum árangri á skömmum tíma í Evrópu. Góðar viðtökur sem bækur Ólafs Jó- hanns Ólafssonar hafa fengið í öðrum löndum fara ekki á milli mála. Hann er raunar eini íslenzki rithöfundurinn sem komizt hefur að nokkru marki á blað í Bandaríkjunum auk Halldórs Laxness en um leið athyglisvert að Ólafur Jóhann gefur bækur sínar allt- af út fyrst hér á Íslandi. Og ástæða til að taka eftir þeirri ræktarsemi þar sem Ólafur Jóhann hefur búið og starfað í Bandaríkjunum í tvo áratugi. Hér hafa einungis verið nefnd nokk- ur dæmi af mörgum. Það skiptir hins vegar ekki síður máli fyrir okkur Ís- lendinga að ná árangri í hinni menn- ingarlegu útrás. Sagan sýnir að ár- angur á sviði menningar leiðir til aukinna viðskipta. Þess vegna eru ís- lenzk fyrirtæki í alþjóðaviðskiptum að stuðla að eigin hag með því að veita menningunni lið á alþjóðavettvangi. ÞJÓÐIN OG OLÍUFÉLÖGIN Ekki fer á milli mála að þjóðin ermjög ósátt við olíufélögin eftir þær upplýsingar sem fram hafa komið um verðsamráð þeirra í milli þótt eng- inn endanlegur dómur hafi fallið í þeim efnum. Í Morgunblaðinu í gær birtist grein eftir Reyni Tómas Geirsson, prófessor og sviðsstjóra við Landspítala – há- skólasjúkrahús. Í grein þessari segir m.a.: „Ég vil nú leyfa mér að leggja til við olíufélögin og stjórnvöld að þau hætti við að eyða miklu fé og tíma í mála- rekstur vegna þessa þar sem ólíklegt er að sú leið verði til farsældar fyrir almenning. Í staðinn leiti olíufélögin sátta gagnvart þjóðinni með því að endurgreiða henni til dæmis þá tvo og hálfan milljarð sem sagt er að hafi ver- ið oftekinn á síðasta áratug, m.a. af Reykvíkingum.“ Síðan segir prófessorinn: „Næsta stórverkefni þjóðarinnar á eftir Kárahnjúkum á að vera að halda áfram með myndarlegum hætti upp- byggingu Landspítala – háskóla- sjúkrahúss í Reykjavík, stofnun þar sem saman fer hágæðaþjónusta, menntun og vísindi til framfara fyrir alla landsmenn.“ Síðan leggur Reynir Tómas til að olíufélögin leggi fram fjármuni til þessa verkefnis og nái þannig sáttum við þjóðina. Umhugsunarefni fyrir olíufélögin?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.