Morgunblaðið - 19.12.2004, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 19.12.2004, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 41 UMRÆÐAN hitinn hækkaði um þrjár gráður á Celsius í heiminum gæti lands- framleiðslan í þróunarlöndunum minnkað um 2–9% á ári, auk þess sem það myndi hafa skelfileg áhrif á heilsu og lífskjör íbúanna og við- kvæm vistkerfi. Auðugu ríkin þurfa að gegna for- ystuhlutverki í því að draga úr nið- urgreiðslum á óhreinni orku. Þess- ar niðurgreiðslur nema rúmum 200 milljörðum dollara á ári [12.600 milljörðum króna], meðal annars í löndum Efnahags- og framfara- stofnunarinnar (OECD). Þessum löndum ber skylda til að ganga fram fyrir skjöldu, draga úr kol- efnafrekri orkuframleiðslu og -notkun, taka upp nýjar tegundir orkugjafa og tækni sem eykur orkunýtnina, og stuðla á sama tíma að þróun og notkun hreinnar orku í þróunarlöndunum. Það er óraun- sætt að ætlast til þess að þróun- arlöndin, þar sem um 1,6 milljarðar manna hafa ekki aðgang að raf- magni, axli byrðarnar sem tengjast nauðsynlegum tæknibreytingum. Þetta er ekki spurning um ann- aðhvort eða. Við þurfum ekki að velja á milli alþjóðlegra reglna um losun koltvísýrings annars vegar og tækniþróunar og aðlögunar að afleiðingum loftslagsbreytinga hins vegar. Við verðum að velja hvort tveggja. Við getum ekki beðið til ársins 2015 til að komast að raun um að aldamótamarkmiðin um að draga úr fátækt í heiminum um helming eru í hættu vegna skað- legra áhrifa loftslagsbreytinganna á tilraunirnar til að tryggja efna- hagslegar framfarir í þróunarlönd- unum. Frekari hlýnun á yfirborði jarð- ar verður til þess að vandamálið versnar, vegna þess að sjávarmálið hækkar og veðurfarið verður óstöðugra og válegra í náinni fram- tíð. Til að mynda gæti orðið meira um mikla úrkomu eða hitabylgjur sem leiddu til fleiri flóða eða þurrka. Á ári hverju deyja að minnsta kosti 150.000 manns af völdum hlýnunarinnar, samkvæmt tölum Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unarinnar, WHO. Þessar tölur gætu hækkað vegna hugsanlegra farsótta sem geta blossað upp og stefnt í hættu tilraunum til að draga úr dánartíðninni meðal barna, bæta næringu og uppræta malaríu. Frá sunnanverðri Afríku til Mið- Ameríku, frá Bangladesh til Afgan- istans hefur fátækt fólk fengið að kenna á afleiðingum þurrka og flóða. Á síðasta áratug hafa lofts- lagsbreytingarnar haft skaðleg áhrif á líf tveggja milljarða manna og flestir þeirra búa í fátæku lönd- unum. Samkvæmt Kyoto-bókuninni á kolefnalosunin í iðnríkjunum að- eins að minnka um 5% að meðaltali á árunum 2008 til 2012, miðað við losunina árið 1990. Nú gefst tæki- færi til að horfa fram á við og fá allt alþjóðasamfélagið til stuðnings við málstaðinn, án nokkurra und- antekninga, þótt ríkin beri mis- mikla ábyrgð, til að tryggja örugg- ari heim og afstýra því að heimurinn einkennist af hnignun í umhverfismálum og félagslegum átökum eins og spáð hefur verið. Hægt er að ná raunverulegum árangri í baráttunni fyrir fram- förum í þróunarlöndunum og varð- veita plánetu okkar. Fyrst þurfa þó öll ríki heims og einkum þróun- arlöndin að bregðast við loftslags- breytingunum með því að fella um- hverfisverndarsjónarmiðin inn í stefnu sína og bæta stjórnunina í mikilvægum málaflokkum eins og orku-, vatns- og samgöngumálum. Auðugu ríkin þurfa einnig að beita sér fyrir umhverfisvænni fram- leiðslu og neyslu og beita frum- legum úrræðum eins og sérstökum sjóðum til að kaupa mengunar- kvóta af þróunarlöndunum. Aðeins þá mun draga úr hættunni sem steðjar að heiminum og fátæka fólkinu sem skaðast mest á afleið- ingum loftslagsbreytinganna. Höfundur er varaforseti þeirrar deildar Alþjóðabankans sem fer með málefni sem tengjast sjálfbærri þróun. Til sölu Reiðskólinn Þyrill í Víðidal í Reykjavík. Reiðskólinn er í eigin húsnæði. Þetta er heilsársskóli með nám- skeiðum á vegum íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, nám- skeiðum fyrir fatlaða og frjálsum námskeiðum á ýmsum stigum hestamennskunnar, einkum fyrir börn og unglinga. Þyrill rekur einnig hestaferðir, stuttar og langar, eftir atvikum. Mest eru það ferðir með fólk sem dvelur á hótelum á höfuðborgarsvæðinu. Nánari uppl. á skrifstofu FM, sími 550 3000. Sjá einnig fmeign- ir.is og mbl.is. Einnig má sjá upplýsingar um reiðskólann á www.thyrill.is. 18180 REIÐSKÓLINN ÞYRILL FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali. Þverholt - Heil húseign auk byggingarréttar Hér er um að ræða heila húseign sem er 2.923 fm og skiptist í kjallara og fjórar hæðir. 1.-4. hæð eru góðar skrifstofuhæðir, hver með 6-10 af- stúkuðum skrifstofum, opnum vinnu- rýmum, skjalageymslum, tækjarým- um og salernum. Svalir eru á hverri hæð og útsýnis nýtur af efri hæðum. Kjallari hússins er með mikilli lofthæð og góðum innkeyrsludyrum og var upphaflega teiknaður sem bílageymsla. Húsið býður uppá ýmsa nýtingar- möguleika og hefur m.a. verið teiknað 107 herbergja hótel í því og einnig gæti húsið verið vel til þess fallið að hýsa stofnanir. Allar nánari upplýsingar og teikningar á skrifstofu. Garðastræti Glæsilegt 330 fm einbýlis- hús í miðborginni. Fjögur sérbílastæði á lóðinni. Eignin skiptist þannig að efri hæð er glæsileg 110 fm 4ra herb. íbúð sem er öll nýlega innréttuð á afar vand. og smekklegan máta. Neðri hæð er inn- réttuð sem 4ra herb. íbúð og er í ágætu ásigkomulagi. Kjallari hússins er í dag innrétt. sem geymslur, þvottaherb. og íbúðarherb. Mögulegt er að tengja sam- an neðri hæð og kj. og gera úr því eina íbúð. Einnig er húsið mjög vel til þess fallið að breyta í einbýlishús. Skipholt Björt og mikið endurnýjuð 105 fm endaíbúð á 3. hæð. Íbúðinni fylgir 8,3 fm séríbúðarherb. og sérgeymsla í kj. og 22 fm bílskúr. Íb. skiptist í stórt hol, eldhús m. nýjum vönd. tækjum, uppgerðum innrétt. og góðri borðaðst., bjarta stofu, 3 rúmgóð herb. og nýlega endurn. flísalagt baðherb. Vestursvalir. Gler og gluggar nýir að hluta. Parket og mósaikflísar á gólfum. Verð 18,7 millj. Nesvegur Falleg 86 fm 4ra herb. íbúð með sérinngangi. Íbúðin skiptist í for- stofu, hol, bjarta stofu m. útsýni til sjáv- ar, flísal. baðherb. sem er nýlega upp- gert, 3 herb., þvottaherb. og eldhús m. fallegri innrétt. Geymsluris yfir íbúð. Verð 17,5 millj. Óðinsgata Falleg 94 fm 4ra herb. íbúð, hæð og ris, með sérinng. í Þingholtun- um. Íbúðin skiptist í tvær stofur, tvö herb., eldhús með eldri innrétt., bað- herb. og snyrtingu. Sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús í kjallara. Svalir út af annarri stofunni með útsýni yfir Tjörnina. Verð 18,5 millj. Asparás - Gbæ Glæsileg 89 fm 3ja herb. íbúð á neðri hæð í nýlegu ál- klæddu 2ja hæða fjölbýli auk 7,8 fm sérgeymslu. Stofa m. útg. á hellulagða verönd til suðurs, eldhús m. vönduðum innrétt. og tækjum, góð borðaðst., 2 herb., bæði með skápum, flísal. þvotta- herb. og flísal. vandað baðherb. Parket á gólfum. Verð 19,4 millj. Sólheimar 85 fm íbúð á 5. hæð í góðu lyftuhúsi. Opið eldhús, stofa, 2 herb., bæði með skápum og flísal. baðherb. Stórkostlegt útsýni, svalir eftir endil. stofunni. Sérgeymsla í kj. og önnur á hæðinni. Verð 15,7 millj. Miklabraut Vel skipulögð og nokkuð endurnýjuð 64 fm íbúð á 2. hæð með 5,1 fm geymslu í kj. Eldhús m. góðri borðaðst. og uppgerðum innrétt., rúm- góð stofa og herb. með skápum. Nýtt gler og gluggar, þrefalt að hluta. Verð 10,9 millj. Fjögurra til fimm herbergja björt og falleg „penthouse“-íbúð á tveimur hæðum í sérlega fal- legu fjölbýlishúsi. Íbúðin er 118,8 fm (m. geymslu) en auk þess er stæði í bílageymslu. Íbúðin skiptist í: Á neðri hæð er hol, stofa/borðstofa, eldhús og útg. á svalir. Á efri hæð er sjónvarpshol, þrjú góð svefnherbergi, bað og sérþvottahús. Í kjallara fylgir sérgeymsla og gott stæði í bílageymslu o.fl. Verð 22,0 m. 4658 FLÉTTURIMI - „PENTHOUSE“ REYNIMELUR - HÆÐ Vorum að fá í sölu fallega 3ja herb. hæð í 3-býlishúsi. Íbúðin skiptist m.a. í tvær samliggjandi stof- ur með rennihurð á milli og herbergi. Endur- nýjað baðherbergi. Íbúðin er laus fljótlega. V. 15,9 m. 4663 STÓRAGERÐI - NÝSTAND- SETT BLOKK 4ra herb. um 100 fm mjög falleg íbúð á 4. hæð með góðu útsýni. Íbúðin skiptist í 2 saml. stofur (skiptanl.), 2 stór herb. o.fl. Nýl. parket á gólfum. Nýir gluggar og gler o.fl. Ákv. sala. V. 15,9 m. 4673 ÞVERBREKKA - FALLEG Vor- um að fá í sölu mjög fallega um 50 fm íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi. Góðar svalir. Fallegt út- sýni. Ákv. sala. V. 9,9 m. 4654 SÓLTÚN - LAUS FLJÓT- LEGA 2ja herb. falleg og björt íbúð á jarðhæð í nýlegri blokk. Íbúðin skiptist í hol, baðherbergi, eldhús, stofu og svefnherbergi. V. 12,5 m. 4651 AUSTURSTRÖND - 62 FM MEÐ BÍLAGEYMSLU 2ja herbergja 62 fm íbúð á 3. hæð í lyftublokk ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðin snýr öll til vesturs og skiptist í rúmgott hol, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi og rúmgóða stofu. Sérgeymsla fylgir íbúðinni á geymsl- ugangi. Þvottahús. er sameiginlegt á hæð- inni. V 11,9 m. 4652 GLEÐILEG JÓL! Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Í GRANDALEYSI mínu var ég að leita á Netinu og skoða síður og rakst þá á áhugaverða síðu sem opnaði hug minn. Stopp.is er íslensk dýravernd- unarsíða sem á allan heiður skil- inn. Þar var verið að fjalla um meðferð hunda í Dalsmynni. Ég áttaði mig ekki alveg strax á því um hvað var verið að tala fyrr en ég sá myndirnar: Hundar liggj- andi á dagblöðum í eins fermetra klefa. Ég fór að lesa mér til um þessa starfsemi og varð stórlega hneyksluð á þessari meðferð á hundum. Eigandi Dalsmynnis, opnaðu augu þín og sjáðu hve illa þú ferð með dýrin. Guð gaf okkur öllum þessa plánetu – ekki bara mönn- unum. Hvet ég alla til að fara á heima- síðuna: http://www.stopp.is og fyr- irtæki og heimili að styrkja starf- semi þeirra, svo að þessi fjölda- framleiðsla á hvolpum hætti. Magnea Hilmarsdóttir á lof skil- ið fyrir að safna saman upplýs- ingum og skýrslum um Dalsmynni. Hundurinn er besti vinur mannsins – ferð þú svona með vini þína? TINNA HALLSDÓTTIR, Brekkutúni 14, 200 Kópavogi. Skammarleg með- ferð í Dalsmynni! Frá Tinnu Hallsdóttur AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.