Morgunblaðið - 19.12.2004, Side 47

Morgunblaðið - 19.12.2004, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 47 MINNINGAR ✝ Guðrún Pálsdótt-ir Ullsten fæddist í Reykjavík 13. mars 1918. Hún lést í Västerås í Svíþjóð 8. september síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru hjónin Páll Magnússon járn- smíðameistari (f. 1877, d. 1960) og Guðfinna Einarsdótt- ir (f. 1888, d. 1950) kona hans. Guðfinna var dóttir Einars Einarssonar bónda í Laxárdal í Gnúp- verjahreppi og síðar organista í Hafnarfirði og Sigríðar Jónsdótt- ur frá Hörgsholti í Hrunamanna- hreppi. Páll var sonur Magnúsar Pálssonar bónda í Lambhaga í Mosfellssveit og Guðbjargar Jóns- dóttur frá Helgafelli í sömu sveit. Börn Guðfinnu og Páls voru átta: 1) Sigríður, f. 1913, d. 1940, gift Hauki Gröndal. 2) Einar, f. 1914, d. 1973, kvæntur Guðlaugu Valdi- mars. 3) Guðbjörg, f. 1915, d. 1992, gift Árna Tryggvasyni. 4) Kristín, f. 1917, gift Einari B. Pálssyni. 5) Guðrún, f. 1918, d. 2004, gift Arne Ullsten. 6) Brynhild- ur, f. 1920 d. 1995, ógift. 7) Magnús, f. 1922, d. 1984, kvænt- ur Kristrúnu Hreið- arsdóttur. 8) Jóhann, f. 1931, kvæntur Hrafnhildi Jónsdótt- ur. Guðrún ólst upp á heimili foreldra sinna á Bergstaða- stræti 4. Hún gekk í Landakotsskóla og settist síðan í Menntaskólann í Reykjavík og lauk þaðan stúdentsprófi átján ára gömul vorið 1936. Árið eftir sigldi hún til Svíþjóðar og lauk tann- læknanámi í Stokkhólmi 1940. Guðrún giftist Arne Ullsten verkfræðingi 1945 og settust þau að í Västerås þar sem hún stofnaði tannlæknastofu og rak hana þar til hún lét af störfum vegna ald- urs. Dætur Guðrúnar eru Guðrún Agneta, f. 1946, og Edda Mari- Ann, f. 1948, d. 2000. Útför Guðrúnar fór fram í Västerås 24. september síðastlið- inn. Látin er, í Västerås í Svíþjóð mág- kona mín Guðrún Pálsdóttir tann- læknir. Foreldrar hennar voru hjónin Guðfinna Einarsdóttir bónda í Lax- árdal í Gnúpverjahreppi og síðar org- anista í Hafnarfirði og Páll Magnús- son járnsmíðameistari frá Lambhaga í Mosfellssveit. Páll lærði ungur járn- smíði hjá Þorsteini Tómassyni járn- smíðameistara, sem bjó og hafði verkstæði sitt við sjálfa Lækjargöt- una næst sunnan við Skólabrú. Það var áður en byggt var yfir lækinn. Páll sigldi til Kaupmannahafnar til frekara náms í járnsmíði. Eftir heim- komu setti hann á fót eigin járn- smiðju á Bergstaðastræti 4 í Reykja- vík. Þar koma saman þrír af helstu umferðarvegum, sem lágu út úr borg- inni, Laugavegur, Skólavörðustígur og Bergstaðastræti. Þar reisti hann sér stórt íbúðarhús og járnsmiðju og þar var að sjálfsögðu port til þess að járna hesta. Það má enn sjá þótt járn- smiðjunni hafi nú verið breytt í list- munaverslun. Við þessar aðstæður ólust upp átta börn þeirra Guðfinnu og Páls Magnússonar; Sigríður, Ein- ar, Guðbjörg, Kristín kona mín, Guð- rún, Brynhildur, Magnús og Jóhann. Öll voru þau systkin gædd listrænum hagleik til munns og handa, þ.á m. í tónlist og hvers konar handverki. Af þeim eru nú Kristín og Jóhann á lífi. Guðrún Pálsdóttir, sem hér er minnst, fæddist 1918. Hún stundaði barnaskólanám í Landakotsskóla, en settist síðan í Menntaskólann í Reykjavík og lauk þaðan stúdents- prófi átján ára gömul vorið 1936. Árið eftir hélt hún til Svíþjóðar og hóf nám í tannlækningum í Stokkhólmi. En örlagaríkir tímar fóru í hönd. Heims- styrjöldin síðari brast á haustið 1939 og Danmörk og Noregur voru her- numin af Þjóðverjum vorið 1940, en Ísland af Bretum. Tók þá fyrir sam- göngur milli Íslands og annarra Norðurlanda. Haustið 1940 fékkst samt heimild til þess að strandferða- skipið Esja færi eina ferð til Petsamo í Norður-Finnlandi til þess að sækja hóp Íslendinga á Norðurlöndum, sem ekki höfðu komist heim vegna styrj- aldarinnar. Örfáir mánuðir voru þá eftir af námi Guðrúnar, og gat hún ekki slegist í hópinn með löndum sín- um. En snemma um vorið 1942 lagði hún í það áhættusama ferðalag að fljúga frá Svíþjóð til Lundúna og sigla síðan með togara til Reykjavík- ur. Eftir heimkomuna hóf Guðrún störf á tannlækningastofu Halls Hallsonar, en eftir að heimsstyrjöld- inni lauk, 1945, hélt hún á ný til Sví- þjóðar og giftist sænskum unnusta sínum, Arne Ullsten, verkfræðingi. Ungu hjónin settust að í borginni Västerås og bjuggu þar alla tíð síðan. Västerås stendur við stöðuvatnið Mälaren, um 100 km vestar en Stokk- hólmur. Þar stofnaði Guðrún tann- læknastofu og rak hana þar til hún lét af störfum vegna aldurs. Guðrún hafði lengst af ævi sinni áhuga á íþróttum. Ásamt Kristínu systur sinni var hún um skeið í fim- leikaflokki ÍR, sem Björn Jakobsson stjórnaði, og sýndi stundum fimleika á sunnudögum á Austurvelli. Seinna tók skíðaíþróttin við og þá hjá KR á Skálafelli, þar til Guðrún fluttist til Svíþjóðar. Síðan var það golf, sem átti hug hennar, og varð hún fjórtán sinnum Västeråsmeistari í þeirri grein. Guðrún var mjög listelsk, og var það einkum myndlist, sem áhugi hennar beindist að. Þau hjón eignuð- ust tvær dætur, Guðrúnu Agnetu og Eddu Mari-Ann, sem nú er látin. Ég kveð elskulega mágkonu mína með þökk fyrir vináttu hennar. Einar B. Pálsson. GUÐRÚN PÁLS- DÓTTIR ULLSTEN HINN 1. desember síðastliðinn lést Bernhard prins af Hollandi, eigin- maður Júlíönu fyrrverandi drottn- ingar Hollands. Prinsinn var fæddur 29. júní 1911 í Jena í Þýskalandi. Var hann af prússneskum aðalsættum, von Lippe, sem átti óðalsetur í Reck- enwalde, er nú tilheyrir Póllandi. Bernhard var við nám í Lausanne og München og lauk það- an lögfræðiprófi 1935. Gerðist hann þá starfs- maður I.G. Farben- efnafyrirtækisins og varð framkvæmda- stjóri útibúsins í Frakklandi með aðsetri í París. Kynntist hann þar Júlíönu Hollands- prinsessu og gengu þau í hjónaband 1937. Fékk Bernhard þá hollensk- an ríkisborgararétt, og var heimili hjónanna lengst af í Soestdijk- höllinni í Hollandi. Á heimsstyrjaldarárunum síðari, við innrás Þjóðverja í Holland 1940, urðu þau að flýja land, og héldu þá til Ottawa í Kanada. Bernhard var samt langdvölum í London, en þar sat út- lagastjórn Hollands. Hann gerðist þar yfirmaður hersins og undirritaði að lokum friðarsáttmálann við Þjóð- verja árið 1945. Árið 1948 tók Júl- íana við drottningartitli af móður sinni Wilhelmínu. Júlíana sat síðan að völdum fram til 1980. Þann tíma starfaði Bernhard prins við hlið konu sinnar að þjóðmálum. Þau Júlíana eignuðust fjórar dætur, og er Beat- rix núverandi drottning elst þeirra. Bernhard prins lét mikið til sín taka í ýmsum menningarmálum í Hollandi, en hæst ber þátttöku hans í umhverfismálum. Hann var stofn- andi og fyrsti forseti WWF (World Wildlife Fund) umhverfisverndar- samtakanna frá upphafi þeirra 1961. Hafa samtök þessi beitt sér fyrir friðun dýra í útrýmingarhættu og fyrir varðveislu á merkum náttúru- perlum víða um heim. Þessi samtök stuðluðu meðal annars að stofnun þjóðgarðsins í Skaftafelli í Öræfum. Ég hafði á sjöunda áratugnum verið að sinna ýmsum umhverfismál- um hér á landi, og þegar leitað var eftir aðild Íslands að samtökunum, mælti Árni Kristjánsson, hollenski ræðismaðurinn á Íslandi, með mér, sem fulltrúa í félagsskap WWF. Þáði ég boð um að koma á fund samtak- anna í Frakklandi 1973. Fórum við Sigrún kona mín til Parísar, þar sem inngönguathöfn fór fram. Var Bern- hard Hollandsprins þá í forsæti sam- takanna og veitti mér móttöku sem fulltrúa og sæmdi mig einkenni fé- lagsins. Var okkur síðan boðið í sam- sæti á heimili Aga Khans, en hann og kona hans bjuggu þar í einkar rík- mannlegu skrauthýsi á Signu-bakka. Upp frá því urðum við þess aðnjót- andi að fá að ferðast á vegum sam- takanna. Í þeim leiðöngrum sáum við fjölmargar áhugaverðar náttúru- perlur veraldar, er samtökin höfðu hug á að friða eða þar sem þau töldu þörf á að efla rannsóknir á sérstæð- um lífverum í útrýmingarhættu og umhverfi þeirra. Á vegum samtakanna fórum við síðan víðsvegar um Afríku, kynnt- umst þjóðarleiðtogum margra landa og vísindamönnum, sem fengust við kannanir ýmissa dýra og plantna í fjölmörgum friðlöndum álfunnar. Var Bernhard prins þá jafnan í for- svari í þessum leiðöngrum, og lent- um við þá með honum í ýmsum æv- intýrum, svo sem við að merkja fíla og flytja nashyrninga til nýrra búsvæða. Við ferðuðumst einn- ig oft með honum um Asíu til að skoða þar þjóðgarða og hugsan- leg friðlönd. Vorum við á vegum samtakanna í Indlandi, Bhutan og Nepal. Var þá meðal annars rætt við prins- inn í Nepal um friðun dýra og landsvæða og við fyrirmenn í Bhutan, sem fróðlegt var að kynnast. Á ferð um Himalajafjöllin nutum við fylgdar hins frækna fjallagarps Tenzings Norgei, sem kleif Everest-tind með Hillary. Eftirminnilegust verður samt för okkar til Suðurskautslandsins. Kom Bernhard prins þá í einkaþotu sinni og sótti okkur á Keflavíkurflugvöll. Fórum við með honum yfir Græn- land og þaðan til Ameríku, en síðan suður alla álfuna allt að syðsta odda hennar á Eldlandi. Var þaðan siglt ásamt mörgum kunnum vísinda- mönnum og landkönnuðum til Suð- urskautslandsins. Í Sviss eru höfuðstöðvar Um- hverfissamtaka WWF og þar höfum við oftast setið fundi og kynnst stjórnarmönnum. Í fyrstu var Bern- hard prins þá í forsvari samtakanna. Upphafsmaður hugmyndarinnar um alþjóða dýraverndarsamtök var hins vegar breski fuglafræðingurinn Sir Peter Scott, sem var góður Íslands- vinur, en framkvæmdastjóri samtak- anna var þá lengst af suður-afríski Búinn, Charles de Haes, sem var góður ráðgjafi Bernhards prins og varð ágætur vinur okkar. Kynni þessi urðu jafnframt til þess, að okkur var nokkrum sinnum einnig boðið með völdum félögum til að sitja veislur í höllum í Hollandi eða til sumarseturs Bernhards prins og Júlíönu í L’Elefante Felice við Port ’Ercole á Ítalíu. Bernhard prins lærði að fljúga á stríðsárunum og tók oft í stýrið á einkaþotu sinni. Hann fór öðru hvoru til Bandaríkjanna til að hitta dóttur sína Christine, sem þar var búsett, eða í öðrum erindagjörðum. Ef hann hafði viðkomu á Keflavík- urflugvelli, lét hann okkur Sigrúnu vita, og fórum við þá og spjölluðum við hann á meðan á dvöl hans stóð. Margir úr hópi félaga í Worldwide Fund for Nature hafa orðið góðir vinir okkar. Þykir okkur vænt um að hafa lent í þessum félagsskap og fengið að njóta samveru Bernhards prins, ýmissa mætra vísindamanna og fjölda náttúruskoðara, sem höfðu samstarf við þennan frábæra leið- toga. Farsælt forustustarf Bernhards prins í umhverfismálum mun lengi halda á lofti minningu hans meðal náttúruunnenda um heim allan. Sturla Friðriksson. Bernhard prins, Sigrún Laxdal og Sturla Friðriksson. Bernhard prins af Hollandi látinn Hann var jarðsunginn með mikilli viðhöfn í Hollandi 10. desember Bernhard prins af Hollandi. Bridsfélag Selfoss og nágrennis Gísli Þórarinsson sigraði í jóla- einmenningnum sem lauk fimmtudaginn 16. desember sl. Lokastaðan í mótinu varð því: Gísli Þórarinsson 37 Gunnar Þórðarson 23 Þröstur Árnason 22 Magnús Guðmundsson 21 Ólafur Steinason 18 Þessir skoruðu mest seinna kvöldið: Magnús Guðmundsson 32 Brynjólfur Gestsson 21 Ólafur Steinason 19 Björn Snorrason 12 Vilhjálmur Þór Pálsson 12 Nánar má finna um gang mála á heimasíðu félagsins www.bridge.- is/fel/selfoss. Bridsfélagið vill þakka fyrir- tækjum fyrir stuðning við jólaein- menninginn. Miðvikudaginn 5. janúar verður spilað HSK-mótið í tvímenningi á vegum félagsins. Spilað verður í Tryggvaskála og hefst spilamennska klukkan 19:30. Næsta mót hjá félaginu er aðal- sveitakeppnin, en hún hefst fimmtudaginn 13. janúar. Stjórn mun að venju raða pörum niður í sveitir. Bridsfélag Selfoss vill óska fé- lögum sínum, ættingjum þeirra og öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, með þökk fyrir árið sem er senn liðið. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Elsku amma mín, nú þegar þú ert farin frá okkur sem elskuðum þig þá rifjast upp ótal yndislegar minningar sem tengjast þér og nærveru þinni. Ég var svo heppin að fá að vera í sveit hjá þér og afa. Fyrst þegar ég kom og var í sveit- inni hjá ykkur var ég bara smá- stelpa. Hanhóll var besta sveit í heimi. Ég hlakkaði alltaf mikið til að sjá bæinn og fallega umhverfið og hitta allt skemmtilega fólkið sem var á Hanhóli. Mér leið mjög vel hjá þér amma eins og öllum öðrum. Ég man þegar ég var lítil þá sváf- um við Steini inni hjá þér og afa. Steini svaf uppí hjá þér en ég á barnadívaninum við hliðina á ykkur. Á kvöldin þvoðir þú okkur niðri í eldhúsi, það voru hendur, tær og eyru sem voru þvegin. Á meðan þú þvoðir okkur sagðir þú okkur sög- ur, oftast sömu sögurnar þ.e. um grísina þrjá, Fóu Fóu feykirófu og fleiri. Eftir þvottinn vorum við svo hrein að við vorum borin upp í rúm, stóru stelpurnar sáu um það. Svo komst þú og last fyrir okkur Steina. Ég sé þig fyrir mér með kringlóttu gleraugun á nefinu og röddin var svo notaleg. En þú varst auðvitað svo þreytt eftir erfiðan dag og sofn- aðir í miðri sögu, þá ýttum við Steini aðeins við þér og þú hélst áfram að lesa. Þegar við vöknuðum á morgnana varstu alltaf frain út í fjós að mjólka Skrautu og búin að setja mjólkurfötuna út í læk og hafa til hafragrautinn. Það var alltaf góður matur á Hanhóli og alltaf nóg af mat þó að við værum mörg. Allt sem þú eld- aðir var svo gott þó að það væri t.d. rauðmagi í marga daga var alltaf nýr matseðill, þ.e. soðinn rauðmagi, steiktur, rauðmagabollur á sunnu- dögum og reyktur rauðmagi ofan á brauð í kaffitímanum. Allt sem þú bakaðir var líka gott, ef maður spurði: „Amma hvað ertu að baka?“ var svarið oftast: „Æi þetta er bara einhver klessa.“ Þó að þú amma mín sæir um heimilið, uppeldið og bústörfin var líka fal- legur blómagarður og matjurta- garður við bæinn sem þú hugsaðir um. Þegar þvottur var þveginn á Hanhóli var mikið að gera, það þurfti að fara með allan þvottinn niður að á og skola hann þar. Að því búnu var öllu raðað á girðinguna og svo langt sem maður sá niður með túninu héngu peysur, buxur, skyrt- ur og fleira. Hanhóll var alvöru sveitabær þar sem húsmóðirin hafði lykil að búrinu, þangað inn máttum við ekki fara. Ég man hvað það var gaman að horfa inn þegar dyrnar voru opnar, þar voru mjölpokar, rúsínur, suðusúkkulaði og fleira góðgæti, niðursoðnir ávextir (aðal- lega fyrir gesti). Amma mín þú hafðir alltaf tíma til að sinna okkur krökkunum og hugga, þú passaðir okkur svo vel, ég man að við máttum ekki fara ein niður að á og ekki koma nálægt pyttunum. Ég held ég sé ennþá hrædd ef ég sé botnlausan pytt. Þú gafst okkur dót í búið, bein til að fara með uppá Leikhól, fannst handa okkur lítil berjabox þegar við fundum fyrstu krækiberin, fórst út á hlað að snúa við stígvélum og gúmmískóm þegar fór allt í einu að rigna og við inni að leika okkur. Seinna þegar ég var svo komin í Menntaskólann á Ísafirði kom ég stundum í helgarfrí til ykkar afa, Jóa og Steina. Það var svo rólegt og gott að komast aðeins af heimavistinni og fá líka góðan mat. Ég man einu sinni þagar ég kom um hávetur til ykkar þá var hálfkalt í bænum og þú amma fórst niður í kjallara og settir aukaspýtur í kyndinguna. Þú vildir ekki að mér yrði kalt. Þú áttir líka nýja dúnsæng sem þú lést mig sofa með, ekki kom annað til greina, notaðir sjálf gömlu sængina. Það var hugsað um mig eins og prins- essu. Um morguninn komstu svo með nýsoðinn sviðakjamma og færðir mér í rúmið, þetta var þvílík lúxushelgi. Elsku amma, takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér og gert fyrir mig. Svala Sigurvinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.