Morgunblaðið - 19.12.2004, Side 51

Morgunblaðið - 19.12.2004, Side 51
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 51 Þráðlaust þjófavarnakerfi Þráð- laus þjófavörn með hringibúnaði sem hringir í allt að 5 númer. Mikið úrval af aukahlutum. www.heimur.com . Reynir, sími 662 2020. Vertu viðbúinn áður en það gerist. Ódýrar bensínvatnsdælur LTP80C, afköst 830 l/min, verð 40.629 án vsk. LTWT80C "Heavy Duty", afköst 1300 l/min, verð 63.345 án vsk. Loft- og raftæki, sími 564 3000, www.loft.is Toyota Corolla Terra Liftback 1,6. Rauður árg. '99, ek. 57 þús., sjálfsk. Góð smurbók, ryðvarinn í apríl '04. Einn eigandi. Verð 790 þús. Eingöngu staðgreiðsla kem- ur til greina. Uppl. í s. 821 9435. Nýr bíll frá grunni. 2005 Grand Cherokee. Það hefur sjaldan verið hagstæðara að flytja inn nýja og notaða bíla frá USA. Ör- ugg þjónusta hjá löggiltum bif- reiðasala. 10 ára reynsla. S. 897 9227. www.is-band.is Nissan Sunny 1,6 SLX árg. '92. 4ra dyra með skotti, krókur, raf- magn í rúðum og hurðum, sk. '05. Verð 120 þús. eða tilboð. Uppl. í síma 866 8000 eða 554 3883. Mercedes Benz Unimog 1550l árg. '90. Til sölu Unimog 1550L, 6 cyl., túrbó, intercooler, um 200 hp. Er á 53 tommu dekkjum, engin fyrirstaða. Uppl. í s. 435 6662. Hjólhýsi Tilbúinn bústaður með öllu. Þetta 31 fermetra risahjólhýsi sem skiptist í stofu, eldhús, 3 svefnherbergi m. rúmum fyrir 7 manns og snyrtingu með baði og sturtu. Húsið er í góðu ástandi og tilbúið til flutnings frá Reykja- vík. Verð aðeins 1500 þús. Upplýsingasími 893 4171. Alternatorar og startarar í fólksbíla, vörubíla, vinnuvélar og bátavélar. Á lager og hraðsend- ingar. 40 ára reynsla. Bílaraf, Auðbrekku 20, s. 564 0400. Smáfólk, Ármúla 42. Nýkomin bómullarlök í 4 stærð- um, mynstruð sængurverasett frá 1.490, fóðraðar vinnuskyrtur 990 kr., bakpokar verð 495-790 kr., baðhandklæði 490 kr., minni handkl .250 kr. Opið frá kl. 11. ATVINNUAUGLÝSINGAR sendist á augl@mbl.is STÖRF hjá lögreglunni bíða allra þeirra 35 nem- enda sem voru útskrifaðir úr grunndeild Lög- regluskólans á föstudag. Um fimmtungur nem- endanna var konur en námið tekur eitt ár. „Þessir nemendur munu allir geta fengið vinnu hjá lögreglunni því það vill nú svo til að í lok nóv- ember var auglýst svo mikið, einar 54 stöður ef mig minnir rétt. Þar af voru auglýstar 25 stöður í Reykjavík. Þannig að það er fullt af lausum stöð- um,“ segir Arnar Guðmundsson, skólastjóri Lög- regluskólans, og bætir við að langflestir nemendur úr skólanum skili sér í vinnu hjá lögreglunni. Arnar segir að ákveðið hafi verið að taka inn 20 nemendur í skólann nú eftir áramótin en síðan hafi orðið ljóst að það þyrfti að fjölga. Því hafi verið ákveðið að taka inn 32 nemendur og búið sé að velja þá. Arnar segir um 150 umsóknir hafa borist þegar auglýst var í sumar og liðlega helmingur af þeim hafi staðist allar kröfur skólans. Störf bíða allra nemenda Morgunblaðið/Kristinn „HIVE ætlar að veita stóru risunum á fjarskipta- markaði, Og Vodafone og Símanum, samkeppni á sviði fjarskipta. Við teljum fulla þörf fyrir þriðja að- ilann til að veita þeim samkeppni og tryggja að neytendum séu alltaf boðin bestu kjör,“ segir Arn- þór Halldórsson, framkvæmdastjóri Hive, en fyrir- tækið hóf nýverið rekstur. Að sögn Arnþórs er markmið Hive að brjóta niður þá múra sem ríkt hafa hér í tengslum við netnotkun. „Til langs tíma hefur tíðkast skrefagjald, þ.e. símafyrirtækin hafa mælt erlent niðurhal og inn- heimt samkvæmt því magni sem viðskiptavinurinn hefur notað. Við segjum þessu fyrirkomulagi stríð á hendur. Okkur þykir það gamaldags og bjóðum viðskiptavinum okkar að nota Netið hindrunar- laust, sækja efni hvaðanæva úr heiminum fyrir fast mánaðargjald. Auk þess má nefna að við bjóðum upp á miklu meiri hraða en þekkst hefur hingað til.“ Sem dæmi um verð nefnir Arnþór að mán- aðaráskrift á 8 MB-tengingu með ótakmörkuðu niðurhali kostar í kringum 6 þúsund kr., sem er meira en helmingi ódýrara en hjá samkeppnisað- ilum. Spurður hvernig hægt sé að bjóða þjónustuna svona miklu ódýrari nefnir Arnþór tvær ástæður, annars vegar séu aðföngin til símafyrirtækjanna mun lægri en fyrir nokkrum misserum auk þess sem hérlendis sé næg bandvídd út úr landinu þar sem sá tími sé liðinn að hér var ekki hægt að fá tengingar við umheiminn. „Hvað aðföngin varðar má nefna að í ársbyrjun 2002 kostaði niðurhalið 1.600 kr. án vsk. á GB til fyrirtækja sem voru að selja aðgang að útlandagátt. Í dag hefur þetta verð lækkað um 70%, en verðið til neytenda hefur staðið í stað allan þennan tíma og haldist í 2.500 kr. Ég spyr því af hverju hin fyrirtækin hafa ekki séð sóma sinn í því að láta neytendur njóta þessarar verðlækkunar?“ Sjónvarpssendingar og myndbandaleiga á Netinu væntanleg Aðspurður hvernig viðtökur hafa verið segir Arnþór þær afar góðar. „Við erum mjög ánægð með viðtökur höfuðborgarbúa, en við höfum fengið fjölmarga áskrifendur síðan við hófum starfsemi sem gefur okkur byr undir báða vængi, enda erum við mjög bjartsýn með framhaldið. Einnig höfum við fengið fjöldann allan af fyrirspurnum um hvað við erum að bjóða og höfum greinilega vakið for- vitni og ýtt við fólki, fengið það til að hugsa sinn gang, hugsa um hversu réttmætt þessi gjaldtaka á erlendu niðurhali er.“ Aðspurður segir Arnþór þjónustu Hive nú ná til um 62 þúsund heimila á höfuðborgarsvæðinu, en Hive leigir aðgengi að ljósleiðarakerfi Orkuveit- unnar. Arnþór segir stefnt að því á næstu miss- erum að auka útbreiðslu kerfisins þannig að það nái til a.m.k. 80% landsmanna. Spurður um þann net- hraða sem boðið er upp á segir Arnþór hann ná allt að 20 MB á sekúndu, sem sé ríflega tífalt það sem að jafnaði hefur verið í boði hingað til. „Þessi mikli hraði gerir okkur kleift að bjóða upp á sjónvarps- útsendingar yfir Netið. Nú geta allir viðskiptavinir okkar horft á útsendingar Popp Tíví í gegnum Net- ið. Væntanlega hefjast svo útsendingar á efni RÚV fyrir áramót, en þá munu viðskiptavinir okkar geta horft á efnið í beinni eða seinkaðri dagskrá, sem er ýmist hálftími, klukkutími eða tveir tímar. Í byrjun nýs árs er síðan stefnt er að því að fjölga úrvalinu á sjónvarpsefni mjög hratt og bjóða upp á úrval er- lendra frétta-, fræðslu- og skemmtistöðva. Einnig munum við bjóða upp á vídeóleigu yfir Netið sem ég vænti þess að muni boða byltingu varðandi það hvernig Íslendingar geta notað Net- ið.“ Að sögn Arnþórs er einnig stefnt að því að bjóða upp á almenna símaþjónustu snemma á næsta ári. Um er að ræða stafræna heimasíma- þjónustu sem mun m.a. gera notendum kleift að tengjast heimasímanum í gegnum fartölvu á ferða- lögum erlendis og hringja heim til Íslands á lægsta innanlandstaxta. Risunum veitt samkeppni Morgunblaðið/Kristinn „Við teljum fulla þörf fyrir þriðja aðilann á fjar- skiptamarkaðnum til að veita stóru risunum samkeppni og tryggja að neytendum séu alltaf boðin bestu kjör,“ segir Arnþór Halldórsson, framkvæmdastjóri Hive. Í GREIN sem birtist í breska lækna- tímaritinu Lancet nýverið er því haldið fram af hálfu svissneskra vís- indamanna að upplýsingar hafi legið fyrir árið 2000 sem bentu mjög sterk- lega til aukinnar tíðni kransæðastíflu sem tengdist notkun rófekoxíb (Vioxx). Eins og kunnugt er tók lyfja- fyrirtækið Merck Sharp & Dohme gigtarlyfið Vioxx af markaði hinn 30. september sl. vegna þess að fram höfðu komið upplýsingar um auknar líkur á sjúkdómum í hjarta og æða- kerfi. Fjallað er um þetta í frétt á heimasíðu Landlæknisembættisins. Þar segir að teknar hafi verið saman upplýsingar úr tíu rannsóknum sem tæplega 21 þúsund sjúklingar tóku þátt í. „Í rannsóknunum kom fram marktæk aukin hætta á kransæða- stíflu hjá sjúklingum sem tóku rófek- oxíb miðað við þá sem tóku saman- burðarlyf, fyrst og fremst önnur gigtarlyf,“ segir í fréttinni. „Allar þessar rannsóknir höfðu verið birtar árið 2000 og var hlutfallsleg áhætta þá metin rúmlega tvöföld hjá þeim sem tóku rófekoxíb miðað við þá sem ekki tóku það. Áhættan var ekki háð því hvert viðmiðunarlyfið var né heldur hversu lengi hver rannsókn hafði staðið. Hér eru því sett fram rök fyrir því að ástæða hafi verið til að íhuga að taka rófekoxíb af markaði þegar árið 2000. Þessi athugun styð- ur það að ástæða er til þess að spyrja alvarlegra spurninga um rannsóknir sem alfarið eru studdar af fyrirtækj- um á markaði, hvort sem um er að ræða lyfjafyrirtæki eða önnur rann- sóknarfyrirtæki. Ennfremur hafa menn í nálægum löndum spurt spurninga sem lúta að virkni alþjóð- legra eftirlitsstofnana.“ Fram kom í leiðara Læknablaðsins nýverið að varfærni í þessu efni er mun affarasælli en offærni. „Ef til vill eru klínískar leiðbeiningar einn af lausnarsteinum hér og þær þarf ein- dregið að efla hérlendis. Við sem læknar þurfum að efla sjálfstæði gagnvart lyfjafyrirtækjum. Þörf er á að efla umræðu um lyf í samfélaginu, bæði af hálfu lækna, annarra heil- brigðisstétta og almennings,“ segir í frétt Landlæknisembættisins. Ástæða til að taka Vioxx af markaði strax árið 2000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.