Morgunblaðið - 19.12.2004, Page 52
Rakkarapakk - Giljagaur
saga: Sigrún Edda
teikning: Jan Pozok
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
ER ÉG AÐ FARA Í
TAUGARNAR Á ÞÉR?
ER ÞAÐ? ... HA?...
ER ÞAÐ? ...
VEGNA ÞESS AÐ ÉG ER
FARINN AÐ FARA Í
TAUGARNAR Á SJÁLFUM MÉR
EF ÉG VÆRI HRIFIN AF
EINHVERJUM SEM ER EKKI
HRIFINN AF MÉR, FINNST
ÞÉR AÐ ÉG ÆTTI AÐ HÆTTA
AÐ REYNA AÐ LÁTA HONUM
LÍKA VIÐ MIG?
AUÐVITAÐ! ÞÚ VEIST
SVONA MIKIÐ!
ÉG SKIL EKKI AF
HVERJU ÞÚ ÞARFT
AÐ FARA ÚR
FÖTUNUM TIL
ÞESS AÐ VERA Í
BÍLALEIK. SKRÍTIÐ
KOMDU BARA
MEÐ ÞAU
Dagbók
Í dag er sunnudagur 19. desember, 354. dagur ársins 2004
Víkverji hefur hald-ið þá hefð í heiðri
í mörg ár að skreyta
heima hjá sér fyrir
jólin í kompaníi við
Gunna og Felix. Þeir
félagar gáfu út bráð-
skemmtilegan jóla-
disk fyrir nokkrum
árum, leikrit sem
segir frá þeirra jóla-
undirbúningi frá
A–Ö.
Víkverji og sonur
hans hafa ávallt
hlakkað mikið til að
draga fram diskinn
góða um leið og jóla-
skrautskassanna en í
ár kom í ljós að diskurinn er
skemmdur, enda gríðarlega mikið
notaður undanfarin 6–7 jól eða svo.
En það sem verra er, diskurinn
er ófáanlegur. Í það minnsta eiga
stóru verslanirnar hann ekki.
Þegar þetta kom í ljós var Vík-
verja skapi næst að fara á Netið og
sækja diskinn eins og hann leggur
sig, en óvíst er hvort hann er til í
fórum tölvunotenda. Víkverji hefur
þó ekki gefið þá hugmynd al-
gjörlega upp á bátinn og finnst á
þessu máli einmitt hafa sannast
nauðsyn þess að tónlist, sérstaklega
sú sem eldri er, sé aðgengileg á
Netinu. Víkverji mun ef hann finnur
jóladiskinn sækja
hann á Netið án þess
að hika, enda virðist
hann hvergi fáan-
legur nú um stundir.
x x x
Mikið fer fyrirkonum í fjöl-
miðlum þessa dag-
ana, og er það vel. Ís-
lenskar stúlkur eru
eins og kunnugt er
drengjum fremri í
stærðfræði. Þá eru
þær mun fleiri en
strákarnir í úrslitum
Idol-stjörnuleitar og
einnig í raunveru-
leikaþættinum Survivor þar sem
kvennaklíkan sendi karlana heim
hvern á fætur öðrum.
x x x
Víkverji sér ekki betur en þessiskólaönn sé handónýt. Sama
sem ekkert heimanám hefur verið
hjá syni Víkverja í vetur, hvorki fyr-
ir né eftir verkfall. Að sögn skóla-
stjórans voru kennararnir ennþá að
undirbúa skólastarfið framundan í
síðustu viku og gátu því ekki mætt á
fund með foreldrum. Þetta finnst
Víkverja áhyggjuefni og vonar að
kennararnir noti jólafríið vel til að
skipuleggja vorönnina.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Háteigskirkja | Aðventustund við kertaljós verður í kvöld kl. 20 í Háteigs-
kirkju. Þar mun kór
Háteigkirkju syngja og barnakór Háteigskirkju flytja helgileik um fæð-
ingu frelsarans. Í barnakór Háteigskirkju eru nú 27 börn á aldrinum sjö til
níu ára og eru flest þeirra að syngja í kór í fyrsta skipti. Stjórnandi þeirra er
Sigrún Þórsteinsdóttir.
Þessir ungu helgileikarar voru svo sannarlega snortnir af hlutverkum sín-
um og fluttu helgileikinn með andakt þegar þeir æfðu í vikunni sem leið.
Morgunblaðið/Golli
Helgileikur barnanna
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Ver þú ekki of réttlátur og sýn þig ekki frábærlega vitran – hví vilt þú
tortíma sjálfum þér?
(Préd. 7, 16.)