Morgunblaðið - 19.12.2004, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Fáir listamenn hafa stigið framá sjónarsviðið með einsmagnaðri frumraun og NasirJones sem kallar sig Nas. Fyrsta breiðskífa hans, Illmatic, semkom út fyrir áratug, er með helstuskífum rappsögunnar fyrir frábærtflæðið hjá Nas, magnaðar rímur og
áreynslulausan flutning. Undirspilið
var ekki síðra, taktarnir frá þeim
Q-Tip, Pete Rock, DJ Premier og
Large Professor.
Margir nefna Illmatic sem eina af
bestu hiphopplötum tíunda áratug-
arins og sumir segja hana þá bestu.
Þótt ekki verði tekið undir það síðast-
talda hér er óhætt að fallast á að
Illmatic sé með bestu hiphopplötum
síðasta áratugar, en það hefur ekki
gagnast Nas nema miðlungi vel; æ
síðan hefur hann staðið í skugganum
af sjálfum sér ef svo má segja, því
plöturnar sem á eftir komu hafa ekki
náð sömu hæðum, reyndar verið
langt frá því. Í raun má segja að það
sé ekki fyrr en með plötunni God’s
Son, sem kom út fyrir tveimur árum,
og nú Street’s Disciple, sem kom út
um daginn, sem Nas nálgast sjálfan
sig, sýnir loks hvað í honum býr.
Nasir Ben Olu Dara Jones
Nas heitir fullu nafni Nasir Ben
Olu Dara Jones, sem snara má sem
Nasir sonur Olu Dara Jones, en Olu
Dara er trompetleikari og var á sín-
um tíma meðal frammámanna í svo-
nefndum frjálsum djassi og spilaði
með kanónum á við David Murray,
Henry Threadgill, Hamiet Bluiett,
James „Blood“ Ulmer og Don Pullen.
Nas ólst upp í Queens-hverfi New
York og níu ára gamall var hann
kominn á kaf í hiphop. Foreldrar
hans skildu er hann var tólf ára og
ekki leið á löngu þar til Nas var kom-
inn í klandur. Hann heyktist á að
ganga í skóla og sem unglingur var
hann kominn á glæpabrautina, fram-
fleytti sér með fíkniefnasölu og um-
gekkst helst ekki nema illþýði.
Þegar piltur var átján ára var
helsti vinur hans myrtur sem hafði
svo mikið áhrif á Nas að hann ákvað
að snúa við blaðinu, hætti í glæpum
og sneri sér að tónlistinni. Næstu ár
fóru í að lesa Kóraninn og Biblíuna
undir sterkum áhrifum frá Five Per-
centers-hreyfingunni, klofningshóp
úr helstu hreyfingu svartra múslima,
semja rímur og etja kappi við aðra
unga rappara á götuhornum og í
rímnaflæði. Hann átti góða að í mús-
íkinni, helsti lærifaðir hans var Large
Professor sem var um tíma í rapp-
sveitinni Main Source, en fyrsta sem
heyrðist í Nas á plasti var einmitt á
Main Source-skífu. Annar sem lagði
Nas lið á þessum tíma var MC Serch,
þriðjungur 3rd Bass, sem valdi lag
með Nas á kvikmyndaskífu sem hann
var að setja saman. Það dugði til þess
að pilti var boðinn samningur sem
gat af sér Illmatic.
Bófarapp en þó ekki
Þótt Illmatic sé iðulega flokkuð
með bófarappskífum, en sú gerð tón-
listar var áberandi í hiphopinu á þeim
tíma er Illmatic kom út, sker hún sig
úr á flestum sviðum, til að mynda er
tónlistin djassskotnari en tíðkaðist í
bófarappi og svo voru textar Nas
mun vandaðri og metnaðarmeiri en
tíðkaðist.
Næsta plata á eftir, It Was Writt-
en, kom út tveimur árum síðar og var
öllu síðri þótt hún hafi farið beint í
efsta sæti plötusölulista vestan hafs.
Segja má að smám saman hafi hallað
undan fæti eftir það, plöturnar urðu
lakari og seldust minna. Framan af
orti Nas um lífið á götunni í New
York, en þegar hann var kominn upp
í kaggann var eins og hann missti fót-
anna, náði ekki að yrkja sannfærandi
rímur þótt flæðið hafi haldist gott og
orðaforðinn fínn.
Kviknar líf
Eftir döpur ár kviknaði líf með Nas
þegar helsti keppinautur hans á
rappsviðinu, Jay-Z, dissaði hann á
sviði vorið 2001 og Nas svaraði fyrst
með snældu og svo með plötu sem
hann kallaði Stillmatic. Sú skífa er
býsna ójöfn að gæðum, andinn ber
efnið ofurliði á köflum, en verulega
góðir sprettir inn á milli þar sem Nas
sýndi að þótt hann hafi ekki verið upp
á sitt besta væri hann þó betri texta-
smiður en Jay-Z (sem hefur reyndar
byggt sinn feril að miklu leyti á að
stela textum frá Biggie Smalls, en
það er önnur saga).
Næsta plata á eftir Stillmatic,
God’s Son, kom út fyrir réttum
tveimur árum, en á henni glímdi Nas
ekki bara við Jay-Z, heldur var meira
undir; hann var að gera upp við sjálf-
an sig, stíga skref frá efnishyggjunni,
frá sókn eftir vindi í átt að veigameiri
pælingum. Ástæða sinnaskiptanna er
aðallega sú að móðir hans lést áður
en upptökur plötunnar hófust, en
hann er líka að leita að leið út úr öng-
stræti frægðarinnar. Frábær plata.
Gríðarlega fjölbreytt
Nýjasta innleggið í þroskasögu
Nasir Jones kom svo út um daginn,
eins og áður er getið, Street’s
Disciple. Platan er tvöföld og gríð-
arlega fjölbreytt hvað varðar takta
og hugmyndir. Henni svipar reyndar
til God’s Son um margt, sama teymi
sem sér um takta á báðum skífunum
og Nas er í fantaformi sem rímna-
smiður og rappari. Platan öll er eins
og yfirlýsing, tvöföld plata uppfull
með fjölbreytta tónlist og fjöldann
allan af ævintýralega vel ortum rím-
um. Rímurnar eru einmitt í aðal-
hlutverki og greinilegt að Nas er bú-
inn að ná áttum, hann fer hreinlega á
kostum. Gott dæmi um magnaða
texta á skífunni eru lög eins og Am-
erican Way, sem er beitt gagnrýni á
pólitíkarsyni bandaríska, Coon Picnic
(These Are Our Heroes), þar sem lit-
ar stórstjörnur eins og Kobe Bryant
og Cuba Gooding fá til tevatnsins og
titillagið Street’s Disciple.
Þess má geta til gamans að Olu
Dara, faðir Nas, leikur á trompet,
munnhörpu og gítar á skífunni og
leggur til rödd í nokkrum lögum.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Nas snýr aftur
Nasir Joners, Nas, er smám saman að ná áttum eftir
eyðimerkurgöngu síðasta áratugar. Fyrir stuttu kom
frá honum tvöföld plata sem sýnir að fáir standa hon-
um á sporði í rímnagerð og kveðskap.