Morgunblaðið - 19.12.2004, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 19.12.2004, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 2004 59 David Furnish, unnusti popparans Elton John til ellefu ára, segir að þeir Elton hafi ekki í hyggju að ganga í hjónaband í einkakapellu Davids og Victoriu Beckham á heim- ili þeirra í Hertfordshire. Furnish segir þá Elton ætla að bíða þess að hjónabönd samkyn- hneigðra verði lög- leidd. David sagði einnig að þegar parið láti verða af því að ganga í hjónaband, verði það gert með mjög látlausri athöfn. Fólk folk@mbl.is SEGJA má að rætur Erps Eyvind- arsonar sem hipp-hopplistamanns liggi í Danmörku, þar sem hann bjó á sínum yngri árum. Síðan þá hefur hann skapað sér nafn sem leiðandi afl í íslensku hipp- hopp, einkum sem leiðtogi hinna geysivinsælu XXX Rottweiler- hunda en einnig einn síns liðs og þá gjarnan undir listamannsnafninu Blazroca. Eftir útkomu annarrar Rottweiler- plötunnar Þú skuldar fluttist Erpur aftur til Danmerkur og hóf þá að vinna með dönskum hipp-hoppurum og Unnari Frey, eða U-Fresh, en hann hefur verið búsettur í Dan- mörku um langt skeið og er orðinn allþekkt nafn í dönskum hipp- hoppheimi. Þar stofnuðu þeir saman Hæstu hendina – ferlegt að nafn á bandi skuli vera svona bjöguð ís- lenska en lítið við því að gera annað en að kyngja því og spila með – og njóta dyggrar aðstoðar hinna dönsku Raz og Nick sem sjá um sjálfa tónlist- ina. Það má líka greina vel á þessari fyrstu plötu Hæstu handarinnar að hér er hipp-hopp af öðrum meiði en það sem Erpur hefur áður borið á borð. Hér eru áherslur aðrar og um margt alþjóðlegri en hjá Rottweiler- hundum t.a.m. sem tókst einmitt svo vel að að brugga alíslenskan og rót- sterkan hipp-hoppmjöð. Sá danski rífur reyndar ekkert síður í, hefur svolítið vestrænni keim af sveittu og sexí R&B-svíngi eins og Dr. Dre og hans lærisveinar blanda manna best. En þrátt fyrir þessa augljósu lotn- ingu fyrir hinum vestræna tóni þá fær Kaninn laglega á baukinn í text- unum, nokkuð sem vart ætti að koma þeim á óvart sem þekkja til Erps og hans einhörðu pólitísku viðhorfa. Rímur hans eru sem fyrr ótrúlega beinskeyttar og óvægar í garð þess og þeirra sem hann fellur sig ekki við eða þykir vega að réttlætiskennd sinni. Þessi orð stinga og meiða jafn- vel stundum en þjóna þar með til- gangi sín, ef að líkum lætur, rétt eins og þegar Eminem lætur sína baneitr- uðu dælu ganga. En þetta er nú ekki eintómar heimsósómavísur sem þeir Unnar Freyr eru að kveða. Glensið og glaumurinn gjarnan handan við horn- ið, eins t.d. hið mergjaða „Botninn upp“, sem hlýtur að fara í flokk með bestu og þéttustu danslögum sem á íslensku hefur verið sungið og sann- arlega er það best íslenska R&B hipp-hopp sem á plötu hefur komist. Í þessum hressilegri lögum plötunnar ná þeir líka hvað best saman Erpur og Unnar og gera sér góðan mat úr því hversu ólíkir þeir eru. Þá er vel til fundið hjá þeim að kalla til samvinnu sér ennþá ólíkari listamenn. Skemmtilegast verður það í „Norður“ sem er sérstakt fyrir þær sakir að þar koma fram rapparar af öllum Norðurlöndunum og rappa á eigin tungumáli. Frá Færeyjum eru það MC Hár og frá Grænlandi Nuuk Posse. Þá kemur hún vel út, hin ís- lensk/færeyska söngkona Elísabet, sem syngur m.a. í „Botninn upp“. Proof úr D12 sýnir hins vegar engin sérstök tilþrif, röflar letilega nokkrar línur í upphafi „Rautt ljós á barnum“ sem eru ekki umræðunnar virði nema fyrir þær sakir að maðurinn á ansi þekkta vini. Það verður samt ekki annað sagt um þessa fyrstu plötu Hæstu hand- arinnar en að hún sé skrambi skemmtileg enda er hún smekkfull af samskonar góðgæti og hinu marg- spilaða „Botninn upp“. Þá er hún mjög kærkomið innlegg í íslenska hipp-hoppflóru og auðgar hana tví- mælalaust enda hljómar hún ólíkt öllu því sem hér er að gerast. Þeir sem kunnu að meta XXX Rottweiler- hunda og hafa blessunarlega ekki fengið þá gölluðu grillu í höfuðið að þeir séu vaxnir upp úr slíku – eins og einhverra hluta vegna vill verða með áhuga margra á grallaralegu hipp- hoppi – þá ætti Hæsta hendin að vera nákvæmlega þeirra tebolli, eða skul- um við segja smurbrauð. Rétt eins og Jörundur forðum daga þá eru þessir hipp-hopphundar komnir frá Dana- veldi til að drottna yfir Ísalandi og svei mér þá ef þeir eiga bara ekki skilið að vera hér lengur við völd en þá nokkra sumardaga sem kenndir eru við hunda. Hundadagakonungar TÓNLIST Íslenskar plötur Hæsta hendin er skipuð þeim Erpi Ey- vindarsyni (Blazroca) og Unnari Frey Theodórssyni (U-Fresh). Þeir sömdu texta en um forritun, hljóðfæraleik og upptökustjórn sáu Rasmus Berg (Raz) og Nicholas Kvaran (Nick). Aðrir sem koma við sögu eru Ann Elisabeth Berg, Dj Mono, Proof, Dansken, Nuuk Posse, Elastinen, Clemens og MC Hár og Pro- fessor P. Eigin útgáfa. Hæsta hendin – Hæsta hendin  Skarphéðinn Guðmundsson Hæsta hendin er skipuð þeim Erpi Eyvindarsyni (Blazroca) og Unnari Frey Theodórssyni (U-Fresh). Munið að slökkva á kertunum ❄ ❄ ❄ ❄ Treystið aldrei alfarið á kertaslökkvara. ❄ ❄ ❄ ❄ Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins ❄ ❄❄ ❄ ❄          !"#  $%"%#  " "# & ' &( ' )( ' ( *+$%,% % -" ., /''" Feðgarnir Jón Norland og Sverrir Norland leggja hér saman krafta sína á þessum magnaða ljóðadiski. Jón hefur samið 28 ljóð sem hann les sjálfur og Sverrir skemmtilega tónlist við þau öll sem hann leikur á kassagítar, rafgítar og bassagítar. Þetta er diskur sem tengir saman kynslóðirnar og kemur verulega á óvart. Dreifing: GH Gr af ís k Hö nn un
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.