Morgunblaðið - 28.12.2004, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
VIKTOR Jústsjenko, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Úkraínu,
lýsti í gær yfir sigri í forsetakosn-
ingunum, sem þar fóru fram á
sunnudag. „Úkraínska þjóðin hefur
sigrað. Ég óska ykkur til hamingju,“
sagði Jústsjenko þegar hann ávarp-
aði stuðningsmenn sína á Sjálfstæð-
istorginu í Kíev í gær. „Við höfum
notið sjálfstæðis í 14 ár en ekki
frelsis. Það ástand heyrir nú fortíð-
inni til. Nú er Úkraína bæði sjálf-
stæð og frjáls,“ bætti hann við og
vísaði þar með til endaloka Sovét-
ríkjanna fyrir tæpum 14 árum sem
færðu Úkraínumönnum sjálfstæði.
Landið er á hinn bóginn á áhrifa-
svæði Rússa og mikill fjöldi Rússa
býr í Úkraínu, einkum í austurhluta
landsins. „Nýtt tímabil er hafið, nýtt
og öflugt lýðræðisríki hefur litið
dagsins ljós,“ sagði Jústsjenko m.a. í
ávarpi sínu.
Þegar atkvæði frá 99,76% kjör-
staða höfðu verið talin hafði Jústsj-
enko fengið 52,07% atkvæða en
Víktor Janúkovítsj, forsætisráð-
herra, 44,13%. Kosningaþátttaka
mældist 77,22% og munurinn í at-
kvæðum talinn 2,3 milljónir.
Atkvæðatölur bárust hægt frá
tveimur héruðum í austurhluta
landsins þar sem Janúkovítsj nýtur
mikils stuðnings. Jaroslav Davydo-
vítsj, formaður kjörstjórnar lands-
ins, hvatti starfsmenn til að sinna
skyldum sínum. „Leggið pólitísk
deilumál til hliðar. Þjóðin bíður eftir
úrslitunum,“ sagði hann.
Líkt og búist hafði verið við
reyndist fylgi Janúkovítsj mest í
iðnhéruðum í austurhluta landsins
þar sem rússneska er ráðandi
tungumál. Fylgi forsetans nýja var
hins vegar mest í vesturhlutanum
þar sem landbúnaður er ráðandi at-
vinnugrein og úkraínsk þjóðernis-
hyggja hefur reynst eiga einna
dýpstar rætur.
Eftirlitsmenn almennt ánægðir
með framkvæmdina
Síðari umferð forsetakosning-
anna, sem fór fram í nóvember, var
ógilt vegna víðtækra brota á kosn-
ingalöggjöfinni. Um 12 þúsund inn-
lendir og erlendir eftirlitsmenn
fylgdust með kosningunum á sunnu-
dag. Úkraínskir eftirlitsmenn kváð-
ust ekki hafa orðið varir við að
brögð hefðu verið í tafli og hinir er-
lendu virtust almennt telja að fram-
kvæmdin hefði verið viðunandi.
Annað sögðu talsmenn Janúkovítsj
og lýsti talsmaður hans yfir því síð-
degis í gær að úrslitin yrðu kærð til
hæstaréttar vegna þess að brögð
hefðu verið í tafli.
Erlendir eftirlitsmenn sögðu að
mun færri vandamál hefðu komið
upp nú en síðast. „Þetta er annað
land,“ sagði þýski eftirlitsmaðurinn
Stefan Mironjuk sem fylgdist með
framkvæmd kosninganna í Sumy-
héraði. „Andrúmsloft hótana og
ótta, sem ríkti í fyrstu og annarri
umferð kosninganna, var á bak og
burt... Nú ríkti kyrrð og friður.“
Jústsjenko tók þó enga áhættu og
hvatti stuðningsmenn sína til að
koma á Sjálfstæðistorgið í gær,
mánudag, og verja sigurinn ef nauð-
syn bæri til. Sjálfstæðistorgið hefur
verið helsti vettvangur „appelsínu-
gulu byltingarinnar“ eins og um-
skiptin hafa verið nefnd í Úkraínu.
Þar hélt mikill fjöldi fólks til í gær
og á sunnudag.
Þá bað Jústsjenko um aðstoð al-
mennings við það mikilvæga verk að
mynda trúverðuga ríkisstjórn.
Fréttaskýrendur sögðu í gær að sig-
ur hans gæti að sönnu talist sögu-
legur. Barátta hans væri þó í raun
aðeins nýhafin. Jústsjenko tæki við
sem forseti klofinnar þjóðar og gríð-
arstór verkefni biðu hans. Ef til vill
yrði stærsta verkefnið að tryggja
einingu ríkisins og koma í veg fyrir
að austurhlutinn segði sig úr lögum
„Nú er Úkraína sjálfstæð
Sigri Víktors Jústsjenkos í
forsetakosningunum í Úkraínu
líkt við pólitískan landskjálfta
Reuters
Stuðningsmenn Víktors Jústsjenkos, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, fögnuðu í gær ákaflega sigri hans í forseta-
kosningunum. Mestur var fögnuðurinn í höfuðborginni, Kíev, þar sem þessi mynd var tekin. Frá hinum rússneska
austurhluta landsins bárust þær fréttir að þar tækju menn almennt úrslitunum heldur þunglega.
Kíev. AFP.
VÍKTOR Jústsjenko, hinn nýkjörni
forseti Úkraínu, er hagfræðingur að
mennt og fyrrum forsætisráðherra
landsins. Hann varð leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar er hann tók að berj-
ast fyrir efnahagsumbótum að hætti
vestrænna ríkja en barátta hans á
sér einnig þjóðernislegar rætur því
marga Úkraínumenn dreymir um
að losna undan rússneskum áhrifum
sem jafnan hafa mótað samfélag
þeirra og þjóðfélagsgerð.
Jústsjenko hefur jafnframt orðið
eins konar táknmynd þess hversu
hættulegt það getur reynst að boða
svo róttæk umskipti. Jústsjenko var
fluttur í skyndi á sjúkrahús í Vín-
arborg í septembermánuði nokkrum
dögum eftir að hann hafði veikst illa
er hann snæddi kvöldverð með yf-
irmanni öryggislögreglu Úkraínu.
Hann var um skeið í lífshættu. Eftir
miklar rannsóknir komust sérfræð-
ingar að þeirri niðurstöðu að eitrað
hefði verið fyrir hann með díoxíni.
Sú niðurstaða var í samræmi við þá
fullyrðingu hans að honum hefði
verið sýnt banatilræði. Hann segir
stjórnvöld ábyrg, þau neita sök.
Jústsjenko hafði jafnan verið tal-
inn maður myndarlegur og heldur
fríður en andlit hans hefur verið af-
myndað frá því að honum var byrlað
eitrið. Segja læknar að batahorfur
hans séu góðar og að tvö ár eða svo
muni líða þar til útlit hans verður
hið sama og áður.
Jústsjenko varð forsætisráðherra
Úkraínu í desembermánuði árið
1999 eftir að hafa náð nokkrum ár-
angri sem bankastjóri seðlabanka
Úkraínu. Embætti forsætisráðherra
hélt hann þar til í apríl 2001. Þá
hafði hann átt í útistöðum við Leon-
íd Kútsjma forseta sem var andvíg-
ur breytingum og vildi umfram allt
tryggja óbreytt ástand sem var
valdakerfinu þóknanlegt. Svo fór að
Kútsjma svipti hann forsætisráð-
herraembættinu með því að beita
þinginu fyrir sig.
Þessi atburður varð til þess að
Jústsjenko gerðist leiðtogi banda-
lags stjórnarandstöðunnar sem
myndað hafði verið skömmu áður.
Raunar er fullyrt að hann hafi í
fyrstu verið tregur í taumi því hann
hafi vart getað hugsað sér að fara
gegn Kútsjma og valdakerfinu sem
lítt hafði breyst frá sovéttímanum.
Samstaða stjórnarandstöðunnar
breytti hinu pólitíska landslagi í
Úkraínu á undraskömmum tíma og
til varð nýtt afl í samfélaginu.
Hversu áhrifamikið þetta nýja afl
var kom í ljós í liðnum mánuði þeg-
ar Jústsjenko stóð frammi fyrir tug-
um þúsunda stuðningsmanna sinna í
höfuðborginni, Kíev, og neitaði að
viðurkenna úrslit síðari umferðar
forsetakosninganna sem fram hafði
farið 21. nóvember. Andstæðingur
hans, Víktor Janúkovítsj forsætis-
ráðherra, hafði þá verið lýstur sig-
urvegari og réttkjörinn forseti
Úkraínu.
Jústsjenko og stuðningsmenn
hans hættu ekki baráttu sinni fyrr
en hæstiréttur Úkraínu hafði ógilt
úrslitin vegna víðtækra kosn-
ingasvika.
Gegn kyrrstöðu og spillingu
„Appelsínugula byltingin“ var
orðin að veruleika í Úkraínu. En um
leið hafði breyting orðið á stöðu
Jústsjenkos. Nú var hann ekki ein-
ungis foringi stjórnarandstöðunnar
heldur raunverulegur „bylting-
arleiðtogi“ sem boðaði uppgjör við
þá pólitísku kyrrstöðu sem einkennt
hafði ástandið í Úkraínu frá því að
Sovétríkin leystust upp. Maðurinn
sem hafði verið dyggur þjónn þessa
valdkerfis hafði nú snúist gegn því.
Jústsjenko tók að boða djúpstæðar
breytingar á flestum sviðum þjóð-
lífsins. Þar hefur borið einna mest á
herferð sem hann hyggst efna til
gegn spillingu í landinu. Þá vill hann
innleiða vestræn viðmið á sviði
stjórnsýslu, efnahags- og fjármála
ekki síst til að búa í haginn fyrir
inngöngu Úkraínu í Evrópusam-
bandið (ESB). Hann hefur og sagt
að innganga Úkraínu í Atlantshafs-
bandalagið (NATO) gæti reynst
álitlegur kostur. Þessar yfirlýsingar
hafa fallið í grýttan svörð í Rúss-
landi enda líta ráðamenn þar á
Úkraínumenn sem bræðraþjóð og
að landið falli undir rússneskt
Bankamaður verður byltingar
Fréttaskýring | Víktor Jústsjenko var lengi
dyggur þjónn hins miðstýrða valdakerfis
sem hélt velli í Úkraínu þótt Sovétríkin liðu
undir lok. Nú fer hann fyrir „byltingar-
mönnum“ í úkraínskum stjórnmálum.
AP
Forsetaframbjóðandinn Víktor Jústsjenko fagnar sigri ásamt eiginkonu sinni, Katrínu (t.v.), og Júlíu Tímosjenko,
einum helsta leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Úkraínu. Eiginkona Jústsjenkos er bandarísk að uppruna.
’Nú var hann ekki ein-ungis foringi stjórn-
arandstöðunnar heldur
raunverulegur „bylting-
arleiðtogi“ sem boðaði
uppgjör við þá pólitísku
kyrrstöðu sem einkennt
hafði ástandið í Úkraínu
frá því að Sovétríkin
leystust upp.‘