Morgunblaðið - 03.01.2005, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2005 41
MINNINGAR
✝ Ásdís Þórðar-dóttir fæddist í
Hvammi á Völlum í
S-Múlasýslu 25. apríl
1927. Hún lést á
sjúkrahúsinu í Nes-
kaupstað 27. desem-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Þórður Helgason, f.
27.2. 1901, d. 19.3.
1985, og Vilborg
Guðmundsdóttir, f.
15.10. 1892, d. 13.1.
1983. Systkini Ásdís-
ar eru Óskar, f. 8.1.
1923, d. 22.3. 1934;
Guðmundur Helgi, f. 26.3. 1924;
Arnþór, f. 20.6. 1925, d. 7.7. 2004;
Margrét Sigurrós, f. 13.4. 1929, og
Ingibjörg f. 10.5. 1931. Uppeldis-
systir Ásdísar er Auðbjörg Elísa
Stefánsdóttir, f. 25.5. 1942.
Árið 1947 hóf Ásdís sambúð
með Vigni Brynjólfssyni, f. 22.
apríl 1926, d. 26. jan. 1983, og
bjuggu þau fyrstu árin á Ekkju-
felli í Fellahreppi. Þau byggðu svo
húsið Brúarland í sama hreppi,
fluttu í það 1954 og bjuggu þar æ
síðan. Ásdís og Vignir giftu sig í
Áskirkju 20. maí 1951.
Börn þeirra eru:
Brynjólfur, f. 18.3.
1947, kvæntur
Hönnu Eiríksdóttur,
börn þeirra eru Ei-
ríkur, Vignir og Rík-
harður. Solveig, f.
26.1. 1949, gift Ein-
ari Ólafssyni, börn
þeirra eru Ólafur
Sigurður, Vignir
Barði, Eva Björg og
María Björk. Þóra
Vilborg, f. 18.6.
1950, gift Guðmundi
Þorgrímssyni, dætur
þeirra eru Ásdís og
Dagný Lára. Gunnar Friðgeir, f.
5.4. 1954, kona hans er Birna
Jónasdóttir, synir þeirra eru
Jónas Reynir og Þórhallur Elí.
Börn Gunnars úr fyrri sambúð
eru Vignir Þór, Gunnþór Ægir og
Ásdís Rán. Vignir Elvar, f. 19.7.
1964, kona hans er Björg
Skúladóttir, börn þeirra eru
Skúli, Védís Vaka, Guðjón Bjarki
og Ásdís. Barnabarnabörnin eru
8.
Útför Ásdísar fer fram frá Eg-
ilsstaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Ásdís mágkona mín hefur komið
til að búa á Ekkjufelli í kringum 1950
með Vigni bróður mínum og elsta
syni þeirra hjóna, Brynjólfi. Þar var
oft mannmargt og um þetta leyti
hafa verið 2–3 fjölskyldur í húsinu á
sama tíma. Börn voru líka oft í sveit
á þessum árum, þannig að mann-
margt var yfirleitt alltaf á bænum.
Þá reyndi á hæfileikana til að um-
gangast fólk. Ásdís gat svarað vel
fyrir sig og þurfti örugglega oft á því
að halda. Börn og unglingar löðuðust
alltaf að henni og mér finnst þegar
ég lít til baka að hún hafi átt þátt í
mínu uppeldi. Hún beitti svo mikilli
lipurð og nærgætni við að leiðbeina
okkur sem í kringum hana vorum, og
ég var oft erfið viðureignar. Alla tíð
síðan hefur verið hressandi og
skemmtilegt að líta inn til hennar á
Brúarlandi. Yngsti sonur þeirra Ás-
dísar og Vignis, Elvar, og elsti sonur
okkar Sigurjóns, Gísli, voru fæddir á
sama ári. Voru þeir góðir félagar í
skóla. Ég veit að Gísli naut sömu um-
hyggju hjá Ásdísi og ég í æsku, því
oft sátu þeir frændur hjá henni lang-
tímum saman. Hún mátti nefnilega
vera að því, og gaf sér tíma til að
ræða við þá um allt mögulegt sem
þeim hefur legið á hjarta á þessum
tíma. Fyrir allt þetta langar mig að
þakka nú. Börnum, tengdabörnum,
barnabörnum, barnabarnabörnum
og öðrum aðstandendum votta ég og
fjölskylda mín okkar dýpstu samúð
við andlát og útför Ásdísar Þórðar-
dóttur. Megi guð veita ykkur öllum
styrk.
Sigrún Brynjólfsdóttir.
Þeim hefur farið fækkandi að und-
anförnu sem teljast frumbýlingar í
Fellabæ, litla og vinalega þéttbýlinu
á bökkum Lagarfljóts miðsvæðis á
Fljótsdalshéraði; þorpið reyndar
þegar rúmlega hálfrar aldar gamalt,
reist á nokkurri spildu úr landi
Ekkjufells við Lagarfljótsbrú. Hver
af öðrum hafa þessir fyrstu íbúar
Fellabæjar verið að týna tölunni á
síðustu árum og síðustu misserum,
hafa kvatt þennan heim og ekki allir
mjög við aldur. „… á snöggu auga-
bragði afskorið verður fljótt …“ seg-
ir sálmaskáldið Hallgrímur Péturs-
son um endalok vegferðar okkar hér
í heimi: svo óvæntur er oft á tíðum sá
viðskilnaður, svo snögglega komið að
leiðarlokum í lífinu. Hinn 27. desem-
ber sl. andaðist á Fjórðungssjúkra-
húsinu í Neskaupstað nágrannakona
okkar, Ásdís Þórðardóttir, á Brúar-
landi í Fellabæ – og í dag, mánudag-
inn 3. janúar, verður hún til grafar
borin.
Áratuga löng vinátta og styrk ætt-
arbönd tengdu fjölskylduna á Brú-
arlandi og mitt fólk, á margvísleg
samskipti okkar í áranna rás bar
aldrei neinn skugga. Hjá þeim
sæmdarhjónum Ásdísi og Vigni,
frænda mínum, Brynjólfssyni á Brú-
arlandi áttum við ætíð að mæta
hjálpsemi ef eitthvað bjátaði á, gest-
risni og stakri hjartahlýju hvenær
sem komið var á þeirra heimili. Þau
hjónin voru með þeim allra fyrstu
sem settust að á bökkum fljótsins, en
þéttbýlið sem þar tók að myndast
hlaut síðar heitið Fellabær. Ásdís og
Vignir byggðu sér fallegt og að ýmsu
leyti nýstárlegt íbúðarhús við Aust-
urlandsveg rétt ofan Lagarfljótsbrú-
ar; húsið var nær fullgert árið 1954
þegar þau fluttu inn. Atvinna var þá
nóg, afkoman viðunandi og fjölskyld-
an stækkaði smátt og smátt. Þau
eignuðust fimm mannvænleg börn.
Fáum árum síðar voru auk fyrstu
húsanna risin þarna á staðnum tíu til
tólf önnur íbúðarhús, einnig verslan-
ir, veitingahús og annað atvinnuhús-
næði. Íbúafjöldinn tók að vaxa jafnt
og þétt og þarna þróaðist brátt gott
mannlíf, samheldni mikil meðal þess-
ara fyrstu staðarbúa og gagnkvæm
hjálpsemi þegar á þurfti að halda.
Vignir rak um árabil allstórt bif-
reiðaverkstæði í Fellabæ og Ásdís sá
bæði um heimilishald og vann auk
þess nokkuð utan heimilis þegar
hentug atvinna bauðst. Mann sinn
missti hún snemma árs 1983; Vignir
var aðeins 56 ára að aldri þegar hann
lést og var ótímabært fráfall hans
henni mikið áfall. Það var hins vegar
ekki háttur Ásdísar Þórðardóttur að
bera sorgir sínar og áhyggjur á torg;
hún var stolt kona í eðli sínu og þrátt
fyrir hlýlegt viðmót og einlægni í
skoðanaskiptum við aðra var hún
ávallt fremur dul á sína einkahagi. Á
síðustu árum átti hún við þónokkra
vanheilsu að stríða og varð þar af
leiðandi að breyta ýmsu í lífsháttum
sínum en hún gat samt búið áfram á
heimili sínu þótt aldurinn færðist yf-
ir og heilsan tæki að bila og áleit sig
einkar gæfusama að fá þó til hinstu
stundar að lifa eðlilegu lífi heima í
návist ástvina. Ásdís var mikil fríð-
leikskona, bar sig vel um en var yf-
irleitt hæglát í fasi þó skapmikil væri
að eðlisfari. Hún gat aftur á móti líka
verið mjög svo skorinorð, þætti
henni ástæða til, en annars ein-
kenndi glaðlyndi og hæfileg glettni
jafnan hennar dagfar. Hún var nær-
gætin jafnt við menn sem málleys-
ingja og með hlýlegu viðmóti sínu
átti hún sérstaklega auðvelt með að
umgangast börn sem líka löðuðust
mjög að henni. Hún gat rætt við þau
sem jafningja, frætt þau og glatt eft-
ir föngum, átti gjarnan trúnað þeirra
og tiltrú og var þeim örugg stoð og
stytta þegar eftir var leitað.
Ásdís hélt þessi jól hátíðleg með
sínum nánustu að vanda og bar þá
ekki á neinni breytingu til hins verra
í heilsufari hennar. Aðfaranótt ann-
ars dags jóla, 26. desember, fann hún
hins vegar fyrir mikilli vanlíðan og
magnleysi og var þá að læknisráði
flutt á sjúkrahúsið í Neskaupstað.
Þar andaðist hún um morguninn
daginn eftir; hún var á sjötugasta og
áttunda aldursári þegar hún lést.
Fyrir hönd fjölskyldu minnar vil
ég votta systkinum Ásdísar, börnum
hennar og barnabörnum svo og öðr-
um ástvinum einlæga samúð okkar.
Blessuð sé minning mætrar konu,
við munum sakna vinar í stað.
Halldór Vilhjálmsson.
ÁSDÍS
ÞÓRÐARDÓTTIR
Okkar ástkæra móðir og amma,
DRÍFA GUNNARSDÓTTIR,
Þingvallastræti 37,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
fimmtudaginn 30. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Hulda Tómasína Skjaldardóttir,
Harpa Skjaldardóttir,
Drífa Sól Sveinsdóttir
og aðrir ástvinir.
Útför móður okkar,
HRAFNHILDAR AÐALSTEINSDÓTTUR
frá Jórunnarstöðum,
sem lést 24. desember fer fram frá Akureyrar-
kirkju miðvikudainn 5. janúar kl. 13.30.
Torfi, Svanhildur
og Kolfinna Sigtryggsbörn.
Innilegustu þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð, stuðning og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns,
föður, tengdaföður og afa,
SVEINS ÓLAFS TRYGGVASONAR,
Álfhólsvegi 53.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 11E,
krabbameinsdeild á Landspítalanum við Hring-
braut.
Guðrún Jónsdóttir,
Jón Kristinn Sveinsson, Elínborg Árnadóttir,
Tryggvi Gunnar Sveinsson, Anna Ragna Siggeirsdóttir,
Rannveig Sveinsdóttir, Lúðvík Berg Bárðarson,
Helga Björg Sveinsdóttir, Bjarni Sigurðsson
og afabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓN BJARNI ÓLAFSSON,
Borgarbraut 65a,
Borgarnesi,
verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju
miðvikudaginn 5. janúar kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast
bent á Krabbameinsfélagið eða Sjúkrahús
Akraness.
Kristrún Jóna Jónsdóttir, Guðmundur Arason,
Sæmundur Jónsson, Kristín Anna Kristjánsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, tengdadóttir, amma og systir
RAGNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR
lést á heimili sínu Skipastíg 11 laugardaginn 1.
janúar.
Sævar Þórarinsson og fjölskylda.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi
PÁLL LÚÐVÍKSSON,
verkfræðingur,
Álfheimum 25,
lést á gamlársdag.
Ása Fanney Þorgeirsdóttir,
Þorgeir Pálsson,
Hildur Pálsdóttir,
Páll Reynir Pálsson,
tengdabörn, afabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma
MARGRÉT HJÁLMARSDÓTTIR
lést á hjúkrunarheimlinu að Víðinesi, Reykjavík
laugardaginn 1. janúar.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGA RÓSA HALLGRÍMSDÓTTIR,
Engihjalla 9,
Kópavogi,
andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 29.
desember. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 5. janúar kl. 13.
Guðný Sigríður Þorgilsdóttir,
Inga Dóra Þorgilsdóttir,
Þórdís Hrönn Þorgilsdóttir, Magnús Magnússon,
Garðar Gunnar Þorgilsson, Ásta Halla Ólafsdóttir,
Víkingur Þorgilsson, Guðrún Árnadóttir,
Ragnheiður Þorgilsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona og móðir okkar,
LILJA MAGNÚSDÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Skógarbæ föstudaginn
31. desember sl. Útför auglýst síðar.
Guðmundur Ástráðsson,
Magnús Guðmundsson,
Guðmundur Örn Guðmundsson,
Ástráður Karl Guðmundsson.