Morgunblaðið - 04.01.2005, Side 6

Morgunblaðið - 04.01.2005, Side 6
BRAGI Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir nærtæk- ast að styrkja hlutverk Fjölskyldu- ráðs ef meta eigi stöðu íslensku fjöl- skyldunnar líkt og forsætisráðherra fjallaði um í áramótaávarpi sínu. Hlutverk ráðsins, sem heyrir undir félagsmálaráðuneytið og var stofn- sett 1998, er m.a. að hafa frumkvæði að umræðum um stöðu fjölskyldunn- ar auk þess að leggja mat á stjórn- valdsákvarðanir með tilliti til áhrifa þeirra á stöðu fjölskyldna. Bragi bendir á að orðum verði að fylgja aðgerðir. „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem menn beina sjónum að þessu viðfangsefni á þessum tíma,“ segir Bragi. Hann segist þó fagna því að menn veki athygli á mál- efnum barna og fjölskyldna. Fjölskyldukjarninn rýrnað „Ég held að það sé ekkert nýtt að gerast sem við höfum ekki verið að upplifa síðastliðinn áratug eða leng- ur,“ segir Bragi aðspurður um upp- lausn fjölskyldunnar í íslensku sam- félagi. Hann segir kjarnahlutverk fjölskyldunnar hafa verið að rýrna smátt og smátt í gegnum árin, sem sé bæði skaðlegt og geti haft afdrifa- rík áhrif á þroska barna þannig að þau skorti alla undirstöðu til þess að byggja sín lífsgildi á. Hann telur nauðsynlegt að færa umræðuna um hlutverk og lífsgildi fjölskyldunnar í nútímalegan bún- ing, auk þess sem nauðsynlegt sé að viðhalda henni. Hann segir það jafn- mikilvægt að börn geti fengið að þroskast á tilfinningalegan hátt eins og að þroskast vitsmunalega. Tímanna tákn Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í fé- lagsráðgjöf við HÍ, segist afar ánægð með að Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hafi ákveðið að setja af stað vinnu við að meta stöðu íslensku fjölskyldunnar. Hún segir það tímanna tákn að forsætisráð- herra, forsetinn og biskup hafi allir rætt um málefni barna og fjölskyld- unnar í áramótaávörpum sínum. Nauðsynlegt sé að marka heild- ræna stefnu á þessu sviði en til þess þurfi fjármagn ef árangur á að nást. Sigrún, sem átt hefur sæti í fjöl- skylduráði, býst við því að vinnan við að meta stöðu íslensku fjölskyldunn- ar verði undir merkjum eða í beinni samvinnu við fjölskylduráð. Hún segir það vera grunnfor- sendu að til þess að ráðið geti beitt sér markvisst og sinnt sínu lög- bundna hlutverki um undirbúning fjölskyldustefnu í nafni Alþingis þurfi það að hafa yfir meiri fjárveit- ingum að ráða sem slíkt eða í sam- vinnu við fjölskylduskrifstofu félags- málaráðuneytisins. Hún segir að félagsvísindadeild Háskóla Íslands hafi verið og sé að rannsaka aðstæður, velferð og vanda tengdan fjölskyldum og börnum, og því sé fyrir hendi mikið af rannsókn- arniðurstöðum sem sé mikilvægt að nota og gögnum sem vinna þarf bet- ur úr. T.a.m. um misjafna stöðu barna eftir fjölskyldugerðum, vensl skilnaða, fjöskylduáfalla og velferðar síðar meir. Það skorti mjög á að fé- lagsvísindum sé gert nægilega hátt undir höfði í fjárveitingum, bæði til þess að safna gögnum á vísindalegan hátt, vinna faglega úr þeim og kynna þannig að gagni megi koma. Hún telur afar mikilvægt að ungt fólk sé búið undir foreldrahlutverkið og fjölskylduábyrgð. Í því felist fyrst og fremst fræðsla sem verði að byrja í grunnskólum landsins, þannig að annars konar viðhorf skapist hjá ungu fólki. Svo bendir hún á að mik- ilvægt sé að vel sé hlúð að kennara- stéttinni sem skipi mikilvægan sess og taki við þunganum af því sem fjöl- skyldan geti ekki sinnt með sama hætti og áður. Morgunblaðið/Kristinn Mikilvægt er að börn fái að þroskast tilfinningalega jafnt sem vitsmunalega, segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu. Myndin var tekin í Ingunnarskóla í nóvember síðastliðnum á meðan á verkfalli kennara stóð. Nauðsyn að marka heild- ræna fjölskyldustefnu 6 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR INGÓLFUR A. Þor- kelsson, fyrrverandi skólameistari Mennta- skólans í Kópavogi, lést á Hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni í Reykja- vík 3. janúar. Ingólfur var 79 ára gamall, fæddur 23. janúar 1925 á Háreksstöðum í Jökuldalshreppi. For- eldrar hans voru Þóra Margrét Þórðardóttir húsmóðir og Þorkell Björnsson verkamað- ur. Ingólfur lauk kenn- araprófi frá KÍ 1948, stúdentsprófi frá MR 1954 og BA-prófi í sögu og dönsku frá HÍ 1959. Árið 1973 var Ingólfur skipaður skólameistari við MK eftir að hafa sinnt kennslu í aldarfjórðung. Á þeim tíma kenndi hann við Melaskólann í Reykjavík, Kópavogsskóla, Gagnfræðaskóla Kópavogs, Vogaskóla, Kvennaskól- ann í Reykjavík og Háskóla Ís- lands. Ingólfur var virkur í félagsstarf- semi og sat m.a. í stjórn Lands- sambands framhaldsskólakennara 1960–64, í stjórn Félags BA-próf- smanna 1962–64 og í stjórn Félags háskólamenntaðra kennara 1964– 67, en hann var formaður sama fé- lags á árunum milli 1970 og 1973. Hann sat í fulltrúaráði BHM 1963–66, var formaður Félags dönskukennara 1968–70, í flokksstjórn Samtaka frjálslyndra og vinstri manna 1969–79 og í fram- kvæmdastjórn 1972– 74. Einnig var Ingólf- ur í nefnd um endur- skoðun dönskukennslu á barna- og gagn- fræðastigi árið 1968 og á árunum 1972–75 var hann í grunnskóla- nefndinni sem endurskoðaði löggjöf um skyldunám og samdi frumvarp til laga um grunnskóla. Ingólfur var formaður Seyðfirð- ingafélagsins í hartnær tíu ár, frá 1981. Hann sat í ritstjórn Frjálsrar þjóðar – Nýs lands á árunum 1972– 74 og í kosninganefnd fyrir Vigdísi Finnbogadóttur árið 1980. Ingólfur ritaði fjölda blaðagreina um skóla- mál, stéttarmál og stjórnmál, flest- ar á tímabilinu 1960–74. Ingólfur skrifaði sögu MK og kom hún út í tveimur bindum árin 1995 og 1997. Eftirlifandi eiginkona Ingólfs er Rannveig Jónsdóttir. Þau eignuð- ust þrjú börn, Jón Arnar, Þorkel Má og Þóru Sigríði. Andlát INGÓLFUR A. ÞORKELSSON „ÉG VÆNTI þess ekki að fólk ætli að halda því fram núna að það séu konur sem eigi að fara heim aftur og að það séu menn sem eigi ekki að fara heim aftur,“ segir séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir sem telur slíka umræðu ekki vera til heilla. Hún telur aðspurð að Karl Sigur- björnsson biskup hafi verið á hálum ís í nýársávarpi sínu er hann minnt- ist á hlutverk móður sinnar, sem hafði ávallt nægan tíma fyrir hann í æsku. Hún segir forsætisráðherra, forseta Íslands og biskup Íslands eiga að gera meira heldur en að einungis benda á að fjölskyldur landsins séu í upplausn. „Mér hefur fundist að þeir ættu að segja hvað þeir meina. Mér finnst þeir eigi um leið að segja á hvern máta, úr því að þeir segja að fjölskyldurnar séu í upplausn og það þurfi að bæta um, hvaða hug- myndir þeir hafi um þessar umbæt- ur,“ segir séra Auður Eir og bætir því við að menn eigi ekki að tala í hálfsetningum. Hún segir fjölskyldumynstrið hafa breyst í áranna rás, nýjar teg- undir fjölskyldna hafi sprottið upp. Hún segist víða heyra að fólk telji að hjón eigi að rækta hjónabandið betur þannig að ekki komi til skiln- aða. „Við verðum að horfast í augu við staðreyndirnar. Fólk bara skil- ur, hvort sem okkur líkar betur eða verr,“ segir Auður Eir. Hún telur biskup vísa til liðinna tíma sem eigi ekki við í dag sökum breyttrar heimsmyndar. Í dag séu fjölskyldur af ýmsum toga og það sé bæði betra og nauðsynlegt að horfast í augu við það og meta þær fjölskyldur mikils þar sem aðeins eitt foreldri sé til staðar. Mikið vinnuálag á Íslendingum Þorbjörg Inga Jónsdóttir, for- maður Kvenréttindafélags Íslands (KRFÍ), segir stöðu fjölskyldunnar hafa verið talsvert rædda innan fé- lagsins. „Við getum að hluta til tek- ið undir þetta með þeim, að það þurfi að huga miklu betur að mál- efnum fjölskyldunnar, þ.e. að gert sé ráð fyrir að fólk á vinnumarkaði eigi börn,“ segir Þorbjörg, og hún bætir því við að félagið hafi einkum einbeitt sér að þeim punkti. Hún segir það mikilvægt að bæði ríkis- stofnanir og fyrirtæki geri ráð fyrir fjölskyldum þegar vinnutími starfs- manna sé skipulagður. „Það þarf að hugsa þetta heildstætt,“ segir Þor- björg. Hún segir mikið vinnuálag á ís- lenskum fjölskyldum, bæði konum og körlum, sem bitni oftar en ekki á fjölskyldunni. Hún segir undir- rótina að upplausn fjölskyldna stafa að miklu leyti af þeim langa vinnu- tíma sem Íslendingar búi við, og hann sé að lengjast frekar en hitt. Hún segir að það vanti algerlega stefnumörkun á þessu sviði. Spurð um nýársávarp biskups segir Þorbjörg menn verða að passa sig hvernig umræðan sé sett upp. „Það var auðvitað mjög verð- mætt fyrir hans kynslóð að geta notið þess að geta haft móðurina inni á heimilinu til þess að annast uppeldið,“ segir Þorbjörg. Hún tel- ur það hins vegar vera mun verð- mætara fyrir börn að þau njóti upp- eldis beggja foreldra sinna, heldur en að aðeins móðirin sjái um það á meðan faðirinn sé úti á vinnumark- aðinum langtímum saman eins og oft var tilfellið á árum áður. Barist fyrir styttri vinnutíma Katrín Anna Guðmundsdóttir, talsmaður Femínistafélags Íslands, segir nauðsynlegt að skoða stöðu fjölskyldunnar svo að börnin verði ekki afgangsstærð í jafnréttisbar- áttunni. „Það sem ég vil ekki gera er að fara aftur til gamalla tíma sem við vitum að gengu ekki upp,“ segir Katrín. Hún telur betra að koma með nýj- ar lausnir s.s. eins og að berjast fyr- ir styttri vinnutíma þannig að báðir foreldrar komi að uppeldi barna sinna. „Ég held að það sé nærtæk- ara heldur en að skófla konunum aftur inn á heimilið,“ segir Katrín. Ráðamenn eiga ekki að tala í hálfsetningum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.