Morgunblaðið - 04.01.2005, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
Kópavogur | Hansína Ásta Björgvinsdóttir, oddviti
framsóknarmanna í Kópavogi, tók formlega við starfi
bæjarstjóra í gær, og segir hún að komandi ár muni
verða mjög litað af ýmsum viðburðum tengdum 50 ára
afmæli bæjarins í ár.
Hansína hefur þó sinnt störfum bæjarstjóra meira og
minna frá fráfalli Sigurðar Geirdal og er því búin að
setja sig vel inn í hvað bíður hennar. Hún staldrar þó
stutt við í embættinu, því fyrirfram var ákveðið að
Gunnar I. Birgisson, núverandi formaður bæjarráðs og
oddviti sjálfstæðismanna, tæki við starfi bæjarstjóra
hinn 1. júní nk.
„Ég tek við sérlega góðu búi, hér er allt í fínu standi,
fjármálin eru fín og óskaplega fínn og góður rekstur
sem ég kem að. Ég mun bara reyna að halda í horfinu
og gera þetta eins og gert hefur verið,“ segir Hansína.
Fólksfjölgun og uppbygging
Árið mun einkennast af fólksfjölgun, uppbyggingu
og afmæli bæjarins. „Það eru gífurlegar framkvæmdir
framundan, það er verið að byggja ný hverfi og þar eru
leikskólar, skólar og gatnagerð, svo það er mikið um að
vera. En ég held að það megi segja að þessir mánuðir
sem ég sit í embætti muni mótast fyrst og fremst af af-
mælinu,“ segir Hansína“
Hápunktur afmælisins verður í kringum afmælisdag-
inn sjálfan, 11. maí, en hægt verður að sjá merki þess
alla mánuði ársins hjá ýmsum stofnunum bæjarins.
Sýningar verða í Gerðarsafni og Salnum, og dagskrá í
bókasöfnum, í skólum og leikskólum. Gert er ráð fyrir
því að aukalegur kostnaður vegna afmælisins verði 20
milljónir króna.
Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2005 gerir
ráð fyrir miklum framkvæmdum í nýrri hverfum bæj-
arins. Gert er ráð fyrir að varið verði rúmlega 260
milljónum króna í nýja sundlaug í Salahverfi, reiknað
er með 220 milljónum í Vatnsendaskóla, og leikskóli á
Vatnsenda mun kosta 194 milljónir króna. Aðrar fram-
kvæmdir verða m.a. við Hjallaskóla og 4. áfanga Sala-
skóla, auk þess sem búningsaðstaða við Sundlaug
Kópavogs verður bætt. Að auki er gert ráð fyrir að
leggja rúman 1,1 milljarð króna í gatnagerð á árinu.
„Tekjur bæjarins aukast og eignirnar aukast líka, á
meðan skuldirnar minnka. Það er varla hægt að biðja
um meira,“ segir Hansína. Hún segir uppbyggingu í
nýjum hverfum ekki kalla á auknar lántökur: „Í raun
og veru höfum við vanið okkur á að byggja allt upp í
nýju hverfunum jafn óðum, við gerum bara ráð fyrir
því og reiknum með því, og hefur tekist að gera það
nokkuð vel, það veldur engum kollsteypum hjá okkur
að koma upp nýjum hverfum.“
Tekjur af hverjum íbúa að hækka
Nýju hverfin hafa greinilega mikið aðdráttarafl, og
Hansína segir það mjög góðar fréttir fyrir bæjarfélagið
að tekjur af hverjum íbúa séu að hækka, en þær voru
lengi lágar í Kópavogi. Hún þakkar þetta m.a. því að
Kópavogur hefur haft gott framboð af lóðum á meðan
nágrannasveitarfélögin hafi haft lítið. Auk þess séu t.d.
skólar bæjarfélagsins góðir sem hafi sitt að segja þegar
fólk velur sér framtíðarheimili.
Nýr bæjarstjóri hefur tekið við stjórnartaumunum
Afmæli bæjarfélagsins
mun setja mark sitt á árið
Morgunblaðið/Þorkell
Nýr bæjarstjóri tekur við „Ég tek við sérlega góðu
búi,“ segir Hansína Ásta Björgvinsdóttir, oddviti Fram-
sóknarflokksins og nýr bæjarstjóri Kópavogsbæjar.
Miðbær | Hugmyndir
eru uppi um að reisa
allt að fjögurra hæða
skrifstofubyggingu á
reitnum bak við
Stjórnarráð Íslands
sem stendur við Lækj-
artorg og myndi bygg-
ingin tengjast stjórn-
arráðinu. Tillaga að
deiliskipulagi fyrir lóð-
ina hefur verið aug-
lýst, en enn er langt í
að lagt verði í fram-
kvæmdir.
„Þetta eru tillögur
sem eru lagðar fram
að hálfu skipulagsins í
Reykjavík, og eru svona einhver
framtíðarmúsík,“ segir Bolli Þ.
Bollason, ráðuneytisstjóri í forsæt-
isráðuneytinu. „Þarna er verið að
gera tillögu um hugsanlega nýtingu
á þessum reit í framtíðinni, og það
liggja engar frekari tillögur um nán-
ari útfærslu fyrir.“
Gert er ráð fyrir allt að fjögurra
hæða hárri skrifstofubyggingu bak
við Stjórnarráðið sem muni tengjast
því með sérstakri tengibyggingu.
Bílageymsla í kjallara kæmi á móti
þeim stæðum sem nú eru bak við
Stjórnarráðið og myndu fara undir
bygginguna. Bolli segir engar tillög-
ur liggja fyrir í ráðuneytinu um nán-
ari útfærslu á byggingunum, eða hafi
verið gert ráð fyrir þeim á fjárlög-
um.
Forsætisráðuneytið er nú í þrem-
ur húsum og því væri klárlega hagur
í því að koma starfseminni fyrir í
einni byggingu, segir Bolli, og því sé
ljóst að einhvern tímann vilji menn
ráðast í betri nýtingu á stjórnarráðs-
reitnum. Hann segir þó slíka upp-
byggingu ekki á dagskrá á næstu ár-
um.
Byggja fyrst á Landssímalóð
„Það sem er væntanlega næst
framundan er stjórnarráðsbygging á
milli Sölvhólsgötu og Skúlagötu á
Landssímalóðinni svokölluðu, en því
var frestað fram til 2008–10,“ segir
Bolli. Hann segir að ekki verði farið í
uppbyggingu á stjórnarráðsreitnum
fyrr en eftir að byggt hefur verið á
Landssímareitnum, og það verði því
varla fyrr en á öðrum áratug ald-
arinnar.
Morgunblaðið/Kristinn
Í framtíðinni er gert ráð fyrir allt að fjögurra
hæða skrifstofuhúsi bak við Stjórnarráð Íslands.
Reiknað með allt
að fjögurra
hæða byggingu
Hugmyndir um stjórnarráðsreitinn
Vegfarendur í Víkurskarði
aðstoðaðir | Félagar í björg-
unarsveitinni Súlum á Akureyri
á tveimur sérútbúnum jeppa-
bifreiðum aðstoðuðu vegfar-
endur í Víkurskarði á nýárs-
dag.
Arftakaveður var á staðnum
og skyggni ekkert á köflum
vegna snjókófs. Vegurinn var
tiltölulega greiðfær í fyrstu þar
sem ruðningstæki hafði stungið
í gegn fyrr um daginn en færð-
in þyngst töluvert þegar á leið.
Um kl. 18 barst björg-
unarsveitarbifreiðunum tveim-
ur beiðni um aðstoð frá
Slökkviliði Akureyrar sem
þurfti að komast yfir í Fnjóska-
dal til að hlú að og ná í sjúkling
með brjóstverk. Sjúkrabíllinn
þurfti aðstoð upp úr skarðinu
vestanmegin og fylgdu björg-
unarsveitarbílarnir honum alla
leið heim að hlaði. Skyggni var
afar slæmt í Fnjóskadalnum og
þurftu björgunarsveitarmenn
að fara fyrir bílalestinni þar
sem lítið sást í vegstikur eða
brúnir vega.
Víkurskarðið var ekki jafn-
greiðfært á leiðinni til baka og
þurftu bílar sveitarinnar að
fara fyrir sjúkrabílnum og gera
slóð auk þess sem draga þurfti
hann stuttan spöl niður úr
skarðinu.
Sjúklingnum var komið á
FSA og er líðan hans nokkuð
góð.
Ein milljón í söfnun | Bæj-
arráð Akureyrar samþykkti á
síðasta fundi sínum að leggja
fram eina milljón króna til
fjársöfnunar Rauða kross
Íslands vegna neyðarhjálpar
til handa íbúum þeirra landa í
Suður-Asíu, sem nú þjást
vegna afleiðinga þeirra miklu
náttúruhamfara sem urðu
hinn 26. desember síðastlið-
inn.
FRAMKVÆMDAMIÐSTÖÐ
Akureyrarbæjar gengst fyrir
söfnun jólatrjáa til endur-
vinnslu nú næstu daga.
Markmiðið er að minnka
magn sorps sem fer til urð-
unar og endurnýta jólatrén,
um leið og bæjarbúum er gert
hægara um vik að losa sig við
trén. Jólatré sem lokið hafa
hlutverki sínu verða kurluð og
afurðin m.a. notuð til jarðvegs-
gerðar.
Dagana 4. til 17. janúar
gefst bæjarbúum kostur á að
setja jólatrén í sérstaka gáma
sem staðsettir verða við Kaup-
ang, Hagkaup, Sunnuhlíð og
verslunina Síðu.
Gámar þessir eru eingöngu
ætlaðir fyrir jólatré og eru
bæjarbúar vinsamlega beðnir
að virða það, segir í frétt á vef
Akureyrarbæjar.
Þar að auki má koma með
trén á gámastöðina við Rétt-
arhvamm, Skíðastaðavegi, á
meðan hún er opin.
Dagana 10. til 14. janúar
verða starfsmenn fram-
kvæmdamiðstöðvar á ferð um
bæinn og safna jólatrjám sem
sett hafa verið út að götu við
lóðarmörk.
Ekki verður safnað trjám
frá fyrirtækjum og stofnunum
en forsvarsmönnum þeirra er
bent á að nýta sér söfnunar-
gáma og gámastöðina við
Réttarhvamm.
Jólatré
endur-
unnin
„ÞAÐ er yndislegt að vera kominn í
Þorpið aftur, ég er svo mikill þorpari í
mér,“ segir Pétur Björgvin Þorsteins-
son sem á nýársdag var settur inn í
embætti djákna við Glerárkirkju. Pét-
ur ólst upp í Glerárhverfi, sem í eina
tíð var ævinlega nefnt Þorpið, Gler-
árþorp. Þar gekk hann í Glerárskóla
og síðan Menntaskólann á Akureyri
þaðan sem hann lauk stúdentsprófi ár-
ið 1987. Pétur er menntaður á sviði
trúaruppeldis og djáknafræða í Karls-
röhe í Ludwigsburg í Þýskalandi og
lauk embættisprófi 1999. Hann hefur
starfað við Háteigskirkju í Reykjavík
frá árinu 2000. „Ég var í burtu í 17 ár,
þar af í áratug í Þýskalandi við nám og
störf,“ segir Pétur, en hann starfaði
sem æskulýðsfulltrúi við kirkjuna í
Wuttenberg að námi loknu.
Pétur segir að hann hafi ekki stefnt
heim, ætlaði sér að vera úti í Þýska-
landi lengur enda hefði sér líkað það
vel, „en konan og börnin vildu endilega
flytja til Íslands og þau fengu að ráða,“
segir hann er eiginkona hans er Reg-
ina Þorsteinsson og eiga þau þrjú
börn, Samúel Örn, Helenu Rut og Jó-
hannes Má.
„Það er margt skemmtilegt fram-
undan í þessu nýja starfi og ég hlakka
til að takast á við að byggja upp æsku-
lýðsstarfið við kirkjuna,“ segir Pétur,
en hann tók sjálfur á yngri árum þátt í
æskulýðsstarfi Glerárkirkju, á þeim
árum þegar hún var til húsa í skóla-
stofu í Glerárskóla. „Ég þekki starf
kirkjunnar frá því áður en hún var
byggð, en nú hefur heldur betur orðið
breyting á, kirkjan komin í stórkost-
legt og fallegt húsnæði, sem er gjör-
bylting frá því ég tók þátt í starfinu.“
Pétur segir að nú á fyrstu dögum í
starfi muni hann velta fyrir sér hvar
sóknarfæri sé fyrir kirkjuna og hvar
þörf fyrir þjónustu sé mest. Nefnir til
að mynda að barnastarf sé með ágæt-
um en lítið í boði fyrir ungmenni frá
fermingu upp að tvítugu, „kannski við
byrjum þar,“ segir hann. Pétur nefnir
einnig að hann muni taka þátt í for-
varnarstarfi á vegum kirkjunnar,
verður fulltrúi hennar í verkefninu
„Barnið í brennidepli“ sem er sam-
starfsverkefni ýmissa aðila í bænum.
„Þetta er eitt af mínum áhugamálum
og verður á meðal þeirra mála sem ég
mun leggja áherslu á í starfi mínu.
Með auknu starfliði innan kirkjunnar
er hægt að setja aukinn kraft í þetta
starf,“ segir Pétur. Hann mun einnig
taka þátt í fræðslustarfi safnaðarins
og þjónustu við eldri borgara.
Tveir djáknar starfa nú á Akureyri,
en Valgerður Valgarðsdóttir, djákni á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri,
hefur starfað þar í um áratug. Djákna-
nám hefur verið í boði við guðfræði-
deild Háskóla Íslands frá því hausti
1993, fyrstu 5 djáknarnir voru útskrif-
aðir snemma árs 1995 og en hátt í 30
djáknar eru nú starfandi hér á landi.
Settur í embætti djákna í Glerárkirkju
Margt skemmtilegt
framundan í nýju starfi
Morgunblaðið/Hörður Geirsson
Nýr djákni Séra Gunnlaugur Garðarsson, sóknarprestur í Glerárkirkju,
Valgerður Valgarðsdóttir, djákni á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri,
Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju, og séra Arnaldur Bárð-
arson í Glerárkirkju.