Morgunblaðið - 04.01.2005, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 47
John Travolta er nærri óþekkj-anlegur í nýjustu mynd sinni,
hinni dramatísku A Love Song for
Bobby Long. Hár hans er hvítt og
andlitsdrættir meitlaðir og veðr-
aðir. Hann segist hafa haft áhyggj-
ur af því að hann hefði ekki verið
trúverðugur í hlutverkinu án þessa
gervis „og það er skelfilegra fyrir
leikara en að líta ekki vel út. Það
er sannleikurinn,“ segir hann. Í
myndinni leikur Travolta fyrrum
prófessor í bókmenntafræði sem
sokkið hefur í hyldýpi solls og
ólifnaðar. Hann situr allan daginn á
verönd niðurnídds húss í úthverfi
New Orleans, aðgerðalaus og
drukkinn. Scarlett Johansson leik-
ur aðalhlutverkið á móti Travolta í
myndinni. Travolta segir að hann
þurfi ekki að hafa upplifað hið
sama og persónurnar sem hann
leikur, til að vera trúverðugur á
hvíta tjaldinu. „Ég hef heldur aldr-
ei verið heróínfíkill, eða leigumorð-
ingi, ef þú skilur hvað ég á við,“
hefur AP-fréttastofan eftir þessum
fimmtuga leikara.
Hótelprinsessan Paris Hiltonmissti af opnun eigin næt-
urklúbbs, Club Paris, í Flórída á
fimmtudaginn. Hún mætti sex
klukkustundum of seint til fagn-
aðarins. Hún kenndi seinkun á
flugi um en hún hafði áður verið í
skíðafríi í svissnesku Ölpunum.
Systir hennar, Nicky Hilton,
neyddist til að hlaupa í skarðið og
klippa á bleika borðann til merkis
um að klúbburinn væri tekinn í
notkun. Paris bað viðstadda afsök-
unar. „Ég var á skíðaferðalagi í
Sviss og lenti í jólaöngþveiti á flug-
vellinum. Ég er búin að reyna að
komast í loftið síðasta sólarhring-
inn. Mér þykir mjög miður að vera
sein.“
Bill Murray vísar því á bug aðhann sé erfiður í samstarfi og
tekur því illa þegar haldið er fram
að hann hafi það orð á sér. „Ef það
bægir andstyggilegu fólki frá er
það í lagi,“ segir hann í viðtali við
Time-tímaritið í gær. „Þetta minnir
mig á orðatiltækið um að maður
veiði fleiri flugur með hunangi en
ediki. Fólk segir þetta við mann án
þess að blikna og ég svara alltaf:
„Hver. Vill. Flugur?“ segir hann.
Murray leikur aðalhlutverk í mynd-
inni The Life Aquatic with Steve
Zissou. Hann segir að samúð fyrir
þeim sem minna mega sín sé lík-
lega ástæðan fyrir því að hann taki
köst endrum og sinnum, en hann
ólst upp í verkamannafjölskyldu. Í
því sambandi rifjar hann upp atvik
á tökustað óútgefinnar myndar á
dögunum. Murrey lenti í útistöðum
við staðsetningarstjóra mynd-
arinnar, þegar leikarinn kveikti eldi
í arni. Verið var að taka upp atriði
með hópi barnaleikara í ísköldu
húsi og segist Murray hafa haft
samúð með börnunum.
Fólk folk@mbl.is
Nýr og betri
Sýnd kl. 6.
PoppTíví
kl. 5.45, 8 og 10.15 B.i. 14 ára.
Jólaklúður Kranks CARYELWES DANNYGLOVER
MONICA
POTTER
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára Sýnd kl. 3.40,5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára
Sýnd kl. 8 og 10. Stranglega b.i. 16 ára.
BLÓÐBAÐIÐ ER HAFIÐ BLÓÐBAÐIÐ ER HAFIÐ
SMÁAR HETJUR STÓRT ÆVINTÝRI
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20%
AFSLÁTT AF MIÐAVERÐIÍSLANDSBANKI
ÍSLANDSBANKI
... „séríslenskt
Fönn, fönn, fönn!“
SV MBL
... í l
, , !
... „séríslenskt
Fönn, fönn, fönn!“
SV MBL
... í l
, , !
"...bráðvel heppnuð
skemmtun, grín og fjör..."
ÓHT rás 2
..
t , í fj ...
VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐII I I I Í I I
"...bráðvel heppnuð
skemmtun, grín og fjör..."
ÓHT rás 2
..
t , í fj ...
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára.
Hverfisgötu ☎ 551 9000
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 4 og 6. ÍSLENSKT TAL
I I I I Í
I I
Yfir 17.000 gestir
Yfir 17.000 gestir